Morgunblaðið - 11.11.1973, Page 19
1 KJARVALSSTÖÐUM sýna 6 ungir ljósmyndarar, Ljós 73, um þcssar
mundir, 120 ljósmyndir úr daglega Iffinu, og hefur sú sýning vakið
mikla athygli. Gestur sýningarinnar er Gunnar Hannesson, og sýnir
hann í öðrum sýningarsalnum, Kjarvalssalnum, 6 litmyndaseríur frá
ferðum sfnum um tsland. Er ástæða til að hvetja fólk að nota
tækifærið og sjá þessar stórkostlegu myndaserfur Gunnars við beztu
aðstæður.
Við röbbuðum við þá félaga eitt kvöldið fyrir skömmu. t Kjarvals-
salnum ganga 6 sýningarvélar stanzlaust og sýna um 600 litmyndir,
sem eru valdar úr 20 þús. myndum. „Það er úrvalið mitt,“ sagði
Gunnar, „það yrði snöggtum hærri tala, ef égteldi myndimar, sem eru
undir rúmi. Ég er búinn að senda svo mikið út í heim, og oft gef ég
félögunum og klúbbum myndaflokka, þegar ég fæ bréf frá
þeim.
Annars hefur það verið hálfgerður höfuðverkur að koma þessu
saman."
Hvernig skiptast myndaflokkarnir?"
„Það er einn myndaflokkur um Vatnajökul, mesta ævintýri í heimi,
tveir frá Reykjavfk, hálendið og þrír úr lofti yfir landinu."
„Tekur þú aldrei svart-hvítar myndir?“
„Nei, ég hef aldrei á ævinni tekið svart-hvíta mynd. Það gæti gert
mig taugaóstyrkan, en hins vegar fer ég allt að 5—10 sinnum á hvern
stað til þess að ná þeirri litmynd, sem ég vil.“
Þeir félagar í Ljós byrjuðu að vinna saman fyrir þremur árum, en
fyrri sýning þeirra var LJÓS 71. Eitt ár hefur farið í undirbúninginn
að þessari sýningu, en láta mun nærri, að þeir taki til athugunar fyrir
stækkun aðeinstíundu hverja mynd.
Kostnaðurinn við að setja upp sýninguna í Kjarvalsstöðum er liðlega
hálf millj. kr., en þeir stækkuðu allar myndirnar á Hverfisgötu 44 í
íbúð, sem Gunnar lánaði þeim. Það var forvitnilegt að koma þar og sjá
eljuna, sem liggur að bakiþessari sýningu, allt var þar á rúi og stúi,
fullri ferð til þess að af sýningunni gæti orðið. I eina viku má segja, að
þeir hafi unnið nótt og dag við frágang mynda, sem sumar eru mjög
mikið stækkaðar.
Fyrirmyndirnar eru úr öllum áttum, fólk, landslag og sitthvað, sem
menn rekast á hér og þar, en allar þessar myndir eru til sölu og kosta
frá 3500—7500 kr. Þær stærstu eru 80—120 sm.
Þeir sem sýna eru Gunnar S. Guðmundsson offset-ljósmyndari, Pjet
ur Þ. Maack guðfræðinemi,Skúli Magnússon hjáSurtseyjarfélaginu,
Kjartan B. Kristjánsson optiker, Jón Ölafsson lyfjafræðinemi og Karl
Jeppesen kennari, sem kom inn í LJÓS í staðinn fyrir Olaf
Hákonarson.
Sýningunni LJÓS 73 lýkur 13. þ.m., en hún er stærsta ljósmynda-
sýning, sem hefur verið haldin á Islandi, og sama er að segja um
litmyndasýninguna, sem má segja, að sé brautryðjandaverk á þessu
sviði. Nú gefst fólki tækifæri að ferðast um landið f rólegheitum með
þvi að horfa á myndir Gunnars Hannessonar við frábærar aðstæður,
sem Björn Björnsson leikmyndagerðarmaður hefur hannað. — a.j.
UÓS 73
í KJARVALSSTÖÐIJM
Fuglager við Tjörnina eftir Karl Jeppesen. Efsta myndin Úr heita karinu f
Sundlauginni er eftir Skúla Magnússon og miðmyndin í haga er eftir Gunnar S.
Guðmundsson.