Morgunblaðið - 11.11.1973, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. NÓVEMBER 1973.
27
Raforka til hey-
kögglaframleiðslu?
SKIPUÐ hefur verið þriggja |
manna nefnd til að kanna hvort
hentugt væri að nýta raforku við
framleiðslu heyköggla ef hún yrði
aukin svo, að hún fullnægði að
verulegu leyti þörfum landbúnað-
arins. Ennfremur á að áætla
hversu mikið magn raforku þyrfti
til slíkra nota og hvort sá mark-
aður tengdist á hagkvæman hátt
við stóraukna notkun raforku til
húshitunar i sambandi við Sig-
ölduvirkjun.
Iðnaðarráðuneytið hefur skipað
eftirtalda menn í nefndina:
Stefán H. Sigfússon búfræði-
kandidat, sem jafnframt er falið
að gegha formennsku í nefndinni;
Bergsteinn Gizurarson verkfræð-
ingur; Sigurður Þórðarson verk-
fræðingur.
Innflutningur kjarnfóðurs fyrir
nautgripi, sauðfé og hross nemur
árlega um 50.000 tonnum, sem að
útsöluverðmæti er á annan millj-
arð króna. Er talið, að heyköggla-
framleiðsla í stórum stíl gæti
sparað um 75% af þessum inn-
flutningi. Utsöluverð á kjamfóðri
til bænda er um 25.000 kr. hvert
tonn, þannig að hér er um veru-
legt fjárhagsatriði að ræða.
Hérlendis eru í dag framleidd
tæp 5.000 tonn af heykögglum, en
þyrfti að tifaldast ef framan-
greindur spamaður í innflutningi
á að nást.
Batik Sigrúnar vekur
mikla athygli erlendis
SIGRUN Jónsdóttir vefnaðar-
listakonu hefur verið boðið að
sýna batikverk i Suður-Frakk-
landi, en 62 lönd taka þátt I þess-
ari sýningu, sem byggist á mál-
verkum og höggmyndum.
Fýrir skömmu sýndi Sigrún f
Vármlande f Svfþjóð og vakti sýn-
ing hennar mikla athygfL Eftir
sýninguna f Svfþjóð var Sigrúnu
boðið að senda verk á sýninguna
til Frakklands.
Sigrún er fyrsta batiklistakon-
an, sem kynnti þessa listgrein á
Islandi og það gerði hún fyrst
með sýningu f Bogasalnum 1955
eftir 5 ára nám i Svíþjóð þar sem
hún lagði megináherzlu á kirkju-
lega vefnaðarlist. Alla liti, sem
Sigrún notar, fær hún ómálaða og
vinnur þá sjálf, en um er að ræða
Kyp-liti, sem eru þeir sterkustu,
sem notaðir eru i tau og þola
margfalda sódasuðu. Sigrún fékk
mjög góða dóma í sænskum blöð-
um fyrir sýningu sína þar og fara
hér á eftir dómar úr tveimur blöð-
um.
NyeVármlands-Tidningen:
íslenzkur stórsigur
í Jörsefors.
„Sigrún Jónsdóttir frá Reykja-
vík hefir hlotið mikinn frama af
batiksýningu siimi í Jörsefors.
Aðsókn að sýningunni hefir
verið jöfn og góð og fólk hefir
komið frá nálægum og f jarlægum
stöðum. Salan hefir verið góð. Það
er því með ánægju hægt að slá því
föstu að nú munu mörg af hinum
frábæru verkum Sigrúnar Jóns-
dóttur prýða sænsk heimili og
opinberar byggingar.
Þessir munir eru meðal hins
bezta í þessari listgrein, sem ger-
ist á vorum dögum.
Þessi sýning hefir verið há-
punkturinn fyrir frú Ingrid
Nygárd-Keers í Jörsefors, sem að
öðru leyti hefur haft velheppnað
sumar.
Hið fórnfúsa starf hennar til að
stuðla að listmennt hefur borið
ávöxt. Vármland hefur orðið rfk-
ara og enn frekar en áður aðlað-
andi fyrir ferðamenn."
Arvika tidnimgen:
Óvenjuleg batik frá
fslandi á sýningu
I Jörsefors.
„Þessa dagana stendur yfir
óvenjuleg sýning í Jörsefors, rétt
vestan við aðal byggðina.
Brenndu ekki
blaðið
I FRÉTT I Mbl. í gær var sagt frá
viðbrögðum ýmissa nemenda
M.R. við efni nýjasta skólablaðs
síns. Var sagt, aðallir nemendur í
bekknum 6. Q. hefðu brennt blað-
ið, en eftirtaldir nemendur hafa
óskað að láta koma fram, að þeir
brenndu ekki sín eintök af blað-
inu: Ársæll Másson, Þórir Inga-
son, Reynir Pálsson, Jón Ingvar
Ragnarsson, Gísli Fannberg og
Einar Már Guðvarðarson.
I „Öskavillunni" sem stendur
sunnan þjóðvegarins, skammt frá
verzluninni, hefur Sigrún Jóns-
dóttir opnað sýningu. Hún var
opnuð síðastliðinn laugardag og á
henni er mikill fjöldi batikmuna,
jafnt fatnaður sem fallegar mynd-
skreytingar fyrir almenning eða
fyrir kirkjunnar.
Sigrún Jónsdóttir er listakona,
sem notar gjaman stóra fleti. T.d.
er eitt af batikverkum hennar
sextfu metra langt, skreyting, sem
þekur heilan vegg og stærðin eins
og hæfir opinberum listaverkum.
Flest af fyrri verkum hannar
eiga rót sína að rekja til víkinga-
sagna með fornnorrænum ein-
kennum.
Á seinni árum hefur áhugi
hennar beinzt að kirkjulegri list.
Um fimmtíu kirkjur á Islandi
hafa verk eftir hana innan veggja
sinna og hægt er einnig að finna
einstaka verk í kirkjum vors
lands.
A sýningu þeirri sem nú stend-
ur yfir, má meðal margs annars
sjá komposision með dramatisk-
um einkennum, þar sem efnið er
sótt aftur í víkingatímann. Þaðer
af jarlsdóttur, sem flýr til að
bjarga sínu eigin lífi og tveggja
sona sinna. Hin unga kona og
börnin eru sýnd á natúralistiskan
hátt ásamt börnum sfnum. En
hætturnar, sem umlykja þau eru
aftur á móti sýndar umhverfis
með mjög stílfærðum smáatrið-
um.
Áhugaverðast er þó vel unnin
mynduppbygging fyrir Bústaða-
kirkju í Reykjavík. Hún saman-
stendur af mörgum fáguðum og
fögrum litlum batikmyndum með
fyrirmyndum úr Nýjates-
tamentinu.
Allt er bundið saman í eina
heild, sem hefur stórbrot-
inn svip, þrátt fyrir smæð hverrar
myndar fyrir sig. Hver batikmynd
er listaverk útaf fyrir sig, en þó
renna þær saman i eina fagra
heild. Það erfitt að trúa því að hér
sé ekki um fullunnið verk að
ræða, frumlegt og fagurt og mjög
listrænt verk. Þó segir Sigrún
Jónsdóttir að þetta séu aðeins fyr-
irmyndir að myndvefnaði, sem
hún ætli að láta aðra vinna og
haf a umsjón með verkinu.
Þetta sýnishorn getur vonandi
lokkað lesendur til að skoða sýn-
inguna. Sýningin er þess virði, að
eftir henni sé tekið, hún er
óvenjuleg. Það dregst efalaust
lengi þar til við fáum á ný að
kynnast á þennan hátt list frá
landi, sem þrátt f yrir allt tilheyrir
okkar norræna hópi, jafnvel þótt
það sé nokkuð fjarlægt og hafi
fengið eigin „prófíl“ I list og
menningu."
Myndin er af Sigrúnu Jónsdóttur
vefnaðarlistakonu við þrjú verk
sinna, sem fara til Frakklands.
Frá vinstri: Tristan og Isold,
Stefnumótið og Bæn um frið.
Gútrar vðrur -
sanngjarnt verff
Straufrítt sængurveraefni
frá kr. 245 - m.
Hvítt, röndótt damask frá
kr. 1 10 - m.
Mislitt damask frá kr.
135,- m.
Sængurveraléreft frá kr.
105.-m.
Lakaefni, hvítt og mislitt
frá kl. 1 35.- m.
Lakaefni 2 m frá kr. 255 -
Dúkadamask, frá kr. 1 74,-
m.
Dún og fiðurhelt, frá kr.
275.-m.
Hvítt poplin.
Náttfata-flúnel, frá kr.
1 75.-m.
Kjólaefni, ótal gerðir.
Smávára.
Verzl. Donna,
Grensásveg 48.
Sími36999.
-j óskar eftir starfsfólki í eftirtalin störf: fi
BLAÐBURÐARFÓLK ÓSKAST
Upplýsingar i síma 16801.
ÚTHVERFI
Nökkvavogur Vatnsveituvegur
AUSTURBÆR
Sjafnargata — Ingólfsstræti
Hraunteigur — Hverfisgata 63 — 125
Freyjugata 28 — 49
Þingholtsstræti
Laugavegur frá 101 — 171
GARÐAHREPPUR
Börn vantar til að bera út Morgunblaðið
á Flatirnar
Uppl. hjá umboðsmanni í sima 52252.
GARÐUR
Umboðsmaður óskast i Garði. — Uppl. hjá
umboðsmanni, simi 7164, og i síma 10100.
KÓPAVOGUR
Blaðburðarfólk óskast í Bræðratungu.
Upplýsingar hjá umboðsmanni í síma 40748.
VYMURA
VINYL
veggma
VYMURA
VINYL
VEGGFOÐRI
Það er fallegt, endingargott. þvott-
ekta, auðvelt í uppsetningu.
Tilvalið i skóla, sjúkrahús. samkomu-
hús, skrifstofur, opinberar byggingar
— og auðvitað á heimli yðar.
VYMURA VEGGFOÐUR má þvo og
skrúbba, en þó heldur það alltaf sín-
um upprunalega lit.
Gerið ibúðina að faiiegu heimili með
VYMURA VEGGFÖÐRI.