Morgunblaðið - 14.11.1973, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 14.11.1973, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. NOVEMBER 1973 31 ÍÞRdTTAFIitTTIK MOnUSIIIS Slökum leik FH og IR lauk með 21:18 sigri FH LEIKIR FH og IR og Hauka og Ármanns, sem fram áttu að fara s.l. sunnudagskvöld, en var þá frestað sökum rafmagns- truflana, fóru fram f Iþrótta- húsinu I Hafnarfirði f fyrrakvöld. Notaði mótanefnd HSl þar með einu mögulegu smuguna fyrir leiki þessa, þar sem sennilega hefði orðið að fresta þeim um langan tfma, hefðu þeir ekki verið háðir á mánudagskvöldið. Verða þvf IR og FH að leika með aðeins eins dags millibili í mótinu, þar sem bæði liðin eiga leik f kvöld. FH-sigur f leiknum f fyrrakvöld var nokkuð öruggur, 21: 18, eftir að jafnt hafði verið f hálfleik 8:8. Hin háa markatala segir nokkra sögu um leikinn, sem f heild var fremur slakur og Ieiðinlegur á að horfa, jafnvel þótt haim væri lengst af jafn. Varnir beggja lið- anna voru ákaflega slakar, svo og markvarzlan, sérstaklega hjá FH- ingum, en flest skot, sem náðu á annað borð að marki þeirra voru inni. Hjalti Einarsson gat ekki mætt til leiks sökum vinnu sinnar, og Birgir Finnbogason átti ákaflega dapran dag, en fékk þó ekki að fara útaf, þótt hann æskti þess. Það voru öðrum fremur þeir Gunnar Einarssoú og Viðar Sfmonarson, sem unnu leikinn fyrir FH. Þeir skoruðu 18 af 21 marki liðsins, og auk þess var Viðar lykilmaðurinn í spili FH- liðsins. Var hann inná mestan hluta leiksins, og því í.erfiðu hlut- verki. FHliðið virkar annars ekki sterkt um þessar mundir, og gagn- stætt því sem oftast hefur verið, virðist ekki mikil breidd hjá félaginu. T.d. komu tveir leik- mannanna aldrei inná í leiknum. ÍR-ingar voru einnig miklu daufari en maður átti von á. Fjar- vera Brynjólfs Markússonar hefur greinilega mikil áhrif á lið- ið. Ekki bara það, að Brynjólfur skoraði jafnan flest mörk iR-inga, heldur var það hann, sem hélt baráttunni í liðinu uppi og batt það saman. Vfst er, að bæði ÍR og FH verða að gera miklu betur en í leiknum í fyrrakvöld, ef liðin eiga að ná stigum af beztu liðunum í deildinni og blanda sér í barátt- una á toppnum. I STUTTU MÁLI: íþróttahúsið í Hafnarfirði 12. nóv. Islandsmótið 1. deild. URSLIT: FH — ÍR 21:18 (8:8). Gangur leiksins: LIÐ FH: Birgir Finnbogason 1, Birgir Björnsson 2, Sæmundur Stefánsson 1, Viðar Sfmonarson 3, Jón Gestur Viggósson 1, Auðunn Öskarsson 2, Ólafur Einarsson 2, Gunnar Einarsson 3, Öm Sigurðsson 1, Þórarinn Ragnarsson 1. LIÐ ÍR: Geir Thorsteinsson 2, Ásgeir Elfasson 2, Guðjón Mar- teinsson 2, Ólafur Tómasson 2, Hörður Hafsteinsson 1, Þórarinn Tyrfingsson 1, Ágúst Svavarsson 2, Hörður Arnason 2, Gunn- iaugur Hjálmarsson 2, Vilhjálmur Sigurgeirsson 1, Jens Einars- son 2, HilmarSigurðsson 1. Mfn. FH IR 2. 0:1 Guðjón 5. Viðar (v) 1:1 6. 1:2 Guðjón 7. Viðar 2:2 8. 2:3 Agúst 10. Gunnar 3:3 11. 3:4 Hörður A. 13. Gunnar 4:4 16. Gunnar 5:4 20. 5:5 Gunnlaugur (v) 20. 5:6 Asgeir 22. Þórarinn 6:6 24. 6:7 Hörður H. 25. Viðar 7:7 25. 7:8 Asgeir 2t Viðar 8:8 Hálfleikur 31. Gunnar (v) 9:8 34. Viðar 10: 9 Guðjón 36. 10:10 Vilhjálmur 36. Birgir 11:10 37. 11:11 Agúst 38. Gunnar 12:11 40. Gunnar 13:11 43. Gunnar (v) 14:11 46. 14:12 Agúst 47. 14:13 Asgeir 48. Viðar 15:13 49. 15:14 Gunnlaugur 50. Viðar 16:14 52. Viðar 17:14 53. Viðar 18:14 54. Viðar 19:14 56. 19:15 Gunnlaugur 57. 19:16 Guðjón Framhald á bls. 18 Haukar — Ármann 14:13: Úrslitamark úr víta- kasti að leik loknum AÐEINS einu sinni náðu Haukar forystu I leik sínum við Ármann I 1. deildar keppni Islandsmótsins I handknattleik. Það var, er Hörð- ur Sigmarsson skoraði 14. mark liðsins úr vftakasti, eftir að leik- tfminn var úti, og færði þar með liði sfnu bæði stiginn f leiknum. 14—13 fyrir Hauka urðu úrslit leiksins, og voru þau ósanngjörn, ef miðað er við gang leiksins og getu liðanna. Armenningar voru öllu betri aðilinn, en úrslitaáhrif hefur það sennilega haft, að fjöl- margir áhorfendur að leiknum voru fiestir á bandi Hauka og hvöttu þá óspart til dáða. Haukar náðu nú ekki eins góð- um leik og gegn Fram á dögunum. Sennilega hafa þeir gengið of . sigurvissir til leiks, og hörð mót- spyrna Ármenninga þegar frá upphafi komið þeim á óvart. Ármann náði þegar forystu í leiknum, og hafði mest 4 mörk yfir um tíma, og var það ekki fyrr en á 41. mínútu, sem Haukum tókst að jafna. Eftir það var mikil barátta í leiknum og úrslitin tví- sýn, en Haukamir höfðu heppn- ina með sér og náðu báðum stig- unum. Þegar á heildina er litið verður tæpast sagt, að þessi leikur hafi verið tilþrifamikill. Ármenning- arnir léku mjög skynsamlega all- an leikinn, reyndu að hafa sóknarlotur sínar langar og láta þær ganga upp með marki, án þess þó að tefja. Var töluverður hraði og ógnun í spili þeirra. I vörn var svo mikiil hreyfanleiki á liðinu og hættulegustu sóknar- leikmenn Hauka, Hörður og Stefán, hafðir í sérstakrigæzlu án þess þó að vera teknir úr umferð. Hjálpaði það Ármenningum einn- ig mikið, að Ragnar Gunnarsson, markvörður þeirra, varði oft með miklum ágætum. Greinilegt er, að Ármannsliðið getur orðið hættu- legt hvaða 1. deildar liði sem er í vetur, og virðist það allvel undir keppnistímabilið búið. Mótspyrna Armenninga virtist setja Haukana út af laginu, þegar i byrjun og áttu þeir undir högg að sækja, gagnstætt því, sem búizt hafði verið við fyrirfram. Liðið lék góðan varnarleik, en sóknar- aðgerðir þess voru hins vegar tæpast nógu vel skipulagðar, og ákafi einstakra leikmanna of mik- i 11. Sem fyrr byggir Haukaliðið mjög mikið upp á línumönnum sínum, sem hafa gott grip og eru harðir í horn að taka. En með því að hafa hættulegustu sóknar- mennina, Hörð og Stefán, stöðugt undir smásjá, tókst Ármenning- um að verjast línusendingunum að töluverðu leyti. Með þessum sigri taka Haukar nú forystu f deildinni ásamt Fram, og er það frávik frá því venjulega, þar sem Haukunum hefur oft gengið illa í byrjun ís- landsmóta, en síðan stöðugt sótt f sig veðrið. I STUTTU MÁLI: íþróttahúsið Hafnarfirði 12. nóv. íslandsmótið 1. deild. URSLIT: Haukar — Ármann 14:13 (6—8) Gangur leiksins: Mfn. Haukar 1. 3. 4. ólafur 7. 9. 13. Hörður 15. 18. 21. Hörður 23. Amór 24. 26. Guðmundur 28. Guðmundur 29. 32. 37. Þórir 38. 39. Guðmundur 40. Guðmundur 41. Hörður (v) 46. 48. Hörður 53. 54. Hörður 56. 58. Svavar 60. Hörður (v) Armann 0: 1 Hörður 0: 2 Vilberg 1: 2 1: 3 Jón 4 Jón 2: 4 2: 5 Jón 2: 6 Ragnar 3: 6 4: 6 4: 7 Þorsteinn 5: 7 6: 7 6: 8 Vilberg Hálfleikur 6: 9 Björn 7: 9 7:10 Jón 8:10 9:10 10:10 10:11 Hörður 11:11 Hörður 11:11 11:12 Hörður 12:12 12:13 Jón 13:13 14:13 Misheppnuð vftaköst: Gunnar Einarsson, Haukum varði vftaköst frá Olfert Naabye á 13. mín. og Vilberg Sigtryggssyni á 48. mfn. Ragnar Gunnarsson, Ármanni varði vítaköst frá Herði Sigmars- syni á 50. mín. og Ölafi Ölafssyni á 57. mín. Dómarar: Sigurður Hannesson og Gunnar Gunnarsson. Þeir dæmdu ekki illa, voru jafnan sjálfum sér samkvæmir, en höfðu tæpast nógu góð tök á leiknum, sem varð þar af leiðandi óþarf- lega grófur. -stjl. STAÐAN STAÐAN f mótsins f I. deild tslands- handknattleik er nú þessi: Fram 2 1 1 0 42:32 3 Haukar 2 1 1 0 33:32 3 Valur 1 I 0 0 24:18 2 FH 1 1 0 0 21:18 2 Armann 1 0 0 1 13:14 0 IR 1 0 0 1 18:21 0 Vfkingur 1 0 0 1 18:24 0 LIÐ HAUKA: Ómar Karlsson 2, Sturla Haraldsson 2, Svavar Geirsson 2, Sigurður Jóakimsson 2, Ólafur Ólafsson 2, Stefán Jónsson 2, Guðmundur Haraldsson 2, Hörður Sigmarsson 3, Gunnar Einarsson 2, Þorgeir Haraldsson 1, Þórir Ulfarsson 1, Arnór Guðmundsson 1. LlÐ ÁRMANNS: Ragnar Gunnarsson 3, Olfert Naabye 2, Björn Magnússon 1, Björn Jóhannesson 1, Ragnar Jónsson 1, Vilberg Sigtryggsson 2, Jón Ástvaldsson 3, Kristinn Ingólfsson 1, Hörður Kristinsson 2, Þorsteinn Ingólfsson 2, Jens Jensson 2. Mörk Hauka: Hörður Sigmarsson 6, Guðmundur Haraldsson 4, Ólafur Ólafsson 1, Þórir Ulfarsson 1, Svavar Geirs- son 1. Mörk Armanns: Jón Astvalds- son 5, Hörður Kristinsson 3, Vil- berg Sigtryggsson 2, Ragnar Jóns- son 1, Þcrsteinn Ingólfsson 1, Björn Jóhannesson 1. Brottvfsanir af velli: Vilberg Sigtryggsson í 2 mfn., Björn Jó- hannesson í 2x2 mín., Sigurður Jóakimsson f 2 mín. Blaklandsleikir ISLENDINGAR munu leika sinn fyrsta landsleik f blaki f vetur. Mótherjamir verða Norðmenn, sem koma munu hingað helgina 23.-2. marz, eða 6.—7. aprfl og leika tvo leiki. Er jafnframt ákveðið að annar leikurinn fer fram á Akureyri, og verður það fyrsti landsleikurinn, sem þar verður háður. Hinn leik- urinn mun fara fram f Hafnar- firði. Tveir leikirí kvöld KEPPNINNI í fyrstu deild- inni f handknattleik verður haldið áfram f Laugardalshöll- inni í kvöld og fara þá fram tveir leikir. Fyrst mætast Vfk- ingur — FH og sfðan IR — Valur, fyrri leikurinn hefst klukkan 20.15. Þeir þrír leikir, sem fram hafa farið í 1. deildinni það sem af er keppnistímabilinu, hafa fært áhorfendum tals- verða spennu og skemmtun og fullvíst er, að ieikirnir í kvöld verða báðir skemmtilegir. Víkingar virðast ekki eins sterkir nú og við hafði verið búizt og sömu sögu má segja um FH, þó svo að liðið hafi unnið IR örugglega. FH varð í þriðja sæti íslandsmótsins í fyrra, en Víkingur f fjórða. Ætli liðin sér að vera með í toppbaráttunni í vetur er hvert stig dýrmætt. Valsmenn hafaoft átt í erfið- leikum með iR-inga, en ættu þó að vera komnir yfir þær sálrænu truflanir, sem fylgt hafa þeim í leikjunum gegn IRIs Valssigur líklegur og öruggur ef IR Ieikur ekki betur en gegn FH í fyrrada. N0RÐURLANDA- MÓTIÐ ÁKVEÐIÐ BUIÐ er að ákveða, að Norður- landamótið í golfi 1974, fari fram hérlendis. Þetta var endanlega samþykkt á fundi hjá golfsamtökum Norður- landa, sem haldinn var fvrir skömmu. Leikdagar verða 31. ágúst og 1. september og verður keppt á velli Golf- klúbbs Reykjavíkur f Grafar holti. Þar er nú unnið af full- um krafti að undirbúningi mótsins og fljótlega munu tveir menn frá klúbbnum fara til Englands, tal þess að kynna sér þar viðhald golfvalla. Þá hefur komið til tals, að landskeppni við Finna f golfi, fari fram annaðhvort dagana fyrir mótið eða dagana eftir mótið. BADMINT0NM0T BADMINTONFÉLAG Hafnar- fjarðar heldur opið möt í B- flokki, 8. desember n.k. og hefst mótið kl. 13.30. Keppt verður í einliðaleik og tviliða- leik karlaogkvenna og tvennd- arkeppni. Mótið verður haldið í Iþróttahúsi Hafnarfjarðar við Strandgötu. Leikið verður með nælonboltum. Þátttaka tilkynnist eftir kl. 20.00 til Áma Sigvaldasonar i síma 52788, eða Jóns Magnús- sonar í sfma 51038 fyrir 1. des. n.k. ARSÞING GSÍ ÁRSÞING Golfsambands Is lands verður haldið f fundar- sal Hótel Holts, Þingholti, laugardaginn 17. nóvember n.k. og hefst kl. 10.00 f.h.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.