Morgunblaðið - 21.11.1973, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. NÓVEMBER 1973
7
Utflutningur inn
sexf aldast í ár
Rætt við Orra Vigfússon,
framkvœmdastjóra Glits hf.
,,Eg tel, að árangurinn af til-
raununum til af efla útflutning
á vörum okkar hafi sannað, að
vörur frá Glit H/F eigi fullt
erindi á erlenda markaði,"
sagði Orri Vigfússon fram-
kvæmdastjöri Glits II/E í sam-
tali við Mbl. Övenju hljött hef-
ur verið um starfsem Glits, en
þar starfa um 50 manns við
Orri Vigfússon framkvæmda-
stjóri Glits H/F.
framleiðslu á keramikhlutum,
og er gert ráð fyrir, að heildar-
salan á þessu ári verði um 45
mi lljónir króna.
Glit var stofnað árið 1957 og
var fyrst'til húsa að Óðinsgötu
13. Fyrstu vélar og tæki voru
smfðuð eftir fyrirsögn Ragnais
Kjartanssonar myndhöggvara,
sem átti mestan þátt í hönnun
fyrirtækisins og vöruþróun.
Arið 1971 var ráðizt í verulega
stækkun, samið við fyrirtæki í
Tékkóslóvakíu um aukinn véla-
búnað og uppsetningu og flutt í
ný húsakynni að Höfðabakka 9.
Glitvörur hafa átt miklum
vinsældum að fagna hjá erlend-
um ferðamönnum og eru stór
hluti af sölu minjagripa-
verzlana. Hráefnin, sem notuð
eru í Glitvörur, eru að mestu
leyti íslenzkt hraun, sem tekið
er á Reykjanesi, og móhella,
sem fengin er við Elliðaárnar.
Auk þess eru notuð ýmis inn-
flutt efni.
Orri Vigfússon tók við fram-
kvæmdastjörastöðu hjá Glit um
sl. áramót og hafði þá um árabil
starfað hjá Útflutningsmiðstöð
iðnaðarins, þar sem hann sér
hæfði sig í eflingu útflutnings á
íslenzkum iðnaðarvörum. Hann
tók i upphafi þá stefnu að efla
útflutningdeild fyrirtækisins,
en útflutningur 1972 nam
aðeins 2,5 milljónum króna.
Aðaláherzlan var lögð á að afla
umboðsmanna erlendis, og hef-
ur á þessu ári tekizt að koma
upp stérkum sölukerfum í
nokkrum löndum, og í ár er
gert ráð fyrir, að útflutningur-
inn sexfaldist og verði 15 mill-
jónir kr, eða 1/3 af heildarsöl-
unni. Á næsta ári er gert ráð
fyrir, að talan verði 30—40
milljónir og helmingur af
heildarsölunni.
— Hverjir hafa verið helztu
erfiðleikarnir i sambandi við
öflun erlendra markaða?
— Fyrst og fremst sveiflur á-
gengi ísl. krónunnar. Þegar ég
kom til Glits um sl. áramót
hafði gengi krónunnar nýlega
verið fellt og allar áætlanir,
sem þá voru gerðar, miðuð við
miklu lægra gengi isl. kr. en
það er nú. 1. marz sl. var t.d.
kaupgengi pundsins 240,60 kr,
en var sl. föstudag 199,40 kr.
Nú er t.d. að fara frá okkur
sending til Evrópu, sem við
fáum fyrir 710 þúsund kr, en
hefðum 1. marz fengið fyrir
sömu sendingu 856 þúsund kr.
Mismunurinn er sem sagt 146
þúsund krónur. Á sama tíma
hefur svo kaupgjald og allur
kostnaður hækkað um
30—40%. Það segir sig því
sjálft, að erfiðleikarnir eru
miklir.
—Ilvernig mætið þið þeim?
—Við teljum þessa erfiðleika
timabundna og ætlum að
sigrast á þeim með aukinni
framleiðni. Slíkt hefur í för
með sér verulega endurskipu-
lagningu á rekstri verksmiðj-
unnar og þjálfurnaráformum
fyrir starfsfölk og betri skipu-
lagningu á sölustarfsemi á er-
lendum mörkuðum.
—Er í raun og veru grund-
völlur fyrir iðnaðarútflutningi
eins og hjá ykkur, miðað við
það ástand, sem ríkir í gjald-
eyrismálum okkar og með verð-
bólguþróunina i landinu i
huga?
—Við erum sannfærðir um
það og allar áætlanir fyrir 1974
verða miðaðar við hið núver-
andi háa gengi ísl. krónunnar.
Auðvitað eru erfiðleikar hjá
öllum iðnfyrirtækjum, sem eru
að hefja útflutning, og
það þarf mikið fjármagn til að
hasla sér völl á erlendum mörk-
uðum. Hins vegar er það skoð-
un min að íslenzk iðnf.vrirtæki,
sem ekki eru samkeppnishæf á
erlendum mörkuðum, starfi
ekki á nægilega traustum
grundvelli.
— Hvernig er ykkar
hönnunairnálum háttað i dag?
—Fyrirtæki eins og Glits
verða að leggja í mikinn vöru-
þróunar- og hönnunarkostnað.
Við starfrækjum hönnunar-
deild og er þar stöðugt unnið að
þróun margvíslegra hugmynda,
bæði með innanlandsmarkaði
og útflutning í huga. Við vinn-
um fyrst og fremst með íslenzk-
um listamönnum en erum auk
þess i sambandi við nokkra er-
lenda hiinnuði.
— Hvernig takið þig ákvörð-
un um, hvort hlutur verður
sendur á erlenda markaði?
—Við setjum hlutina fyrst á
innanlandsmarkað. Sfðan ráða
hugmyndir og viðbrögð is-
lenzku verzlunarstjóranna
mestu um það, hvort hluturinn
verður fluttur út. Hins vegar
eru það auðvitað hönnuðirnir,
sem hafa lokaorðið um útlit
hlutanna.
—Hvernig er framleiðslunni
háttað í dag?
— Framleiðslan skiptist i þrjá
meginflokka. Minjagripi fyrir
ferðamenn, listiðnað fyrir inn-
lenda markaðinn og sérstaka
framleiðslu fyrir útflutning.
Framleiðslan er mjög fjöl-
breytt, vasar, plattar, ljósker,
skálar, kaffi og testell, lampar
og margt fleira, sem of langt
mál yrði að telja upp. Helzta
nýjungin í framleiðslunni í dag
eru veggskildir fyrir þjóðhátið-
ina 1974 á vegum þjóðhátiðar-
nefnda bæja og sveitar-
félaga viðsvegar um landið.
— Að lokum, hvað er helzt á
döfinni hjá ykkur núna?
—Framleiðsla þjóðhátiðar-
skjaldanna verður mjög stór
þáttur i starfseminni næsta
mánuði, við gerum ráð fyrir að
framleiða 20—30 þúsund slíkra
Fyrir þessa útflutningssend-
ingu fær Glit í dag 710 þúsund
kr, en hefði fengið 856 þúsund
1. marz sl.
skildi. Það olli okkur að visu
nokkrum vonbrigðum, að okkuf
var skýrt frá því nú, að Reykja-
víkurborg hefði samið við er-
lent fyrirtæki um framleiðslu
sinna skjalda, en við látum það
ekki á okkur fá og stefnum að
því að gera okkar fyrirtæki það
sterkt, að við getum.fengið verk
erlendis frá. Þess vegna vinn-
um við nú að þróun margvis-
legra hugmynda, sem of
snemmt er að skýra frá hér, en
við erum mjög bjartsýnir urn
framtíð fyrirtækisins.
VOLVO 144 '68. Til sölu Sérlega ‘fallegur og vel með farmn bíll Uppl. i síma 53501 BROTAMÁLMUR Kaupi allan brotamálm langhæsta verði Staðgreiðsla Nóatúm 27. simi 25891
TIL LEIGU Góð 3ja herbergja ibúð í ..blokk' Búin húsgögnum Upplýsingar i sima 1 61 20 ÍBÚÐ TIL LEIGU 4ra herb á góðum stað Tilboð sendist afgr Mbl merkt ..íbúð — 5051'
SJÓMAÐUR óskar eftir herbergi eða tveimur litlum í Hafnarfirði Upplýsingar í sima 51169 TILSOLU Caterpillar-vél uppgerð. 100 hest ofl. 1 550 snúninga á min Vélaverkstæði J. Hinriksson, Skúlatúni 6, simar 23520, 26590. heimasimi 35994.
TIL SOLU l\IÝ Alvevler-spildæla 1700, 1308 litrar á min. Vélaverkstæði J. Hinriksson, Skúlatuni 6, simar 23520, 26590, heimasimi 35994. SENDIFERÐABÍLL TILSOLU Til sölu Ford Transit 67 Ný vél ný dekk bocfdý ónýtt eftir veltu Upplýsingar i sima 829 70
REGLUSÖM STÚLKA óskar eftir vinnu Margt kemur til greina Upplýsmgar í sima 71005 TILSOLU DIESELRAFSTOÐ 12'/2 kilówatt, 3ja fasa, 220 — 380 volt með mælaborði Upp lýsingar i sima 93-121 7
hRÍMERKJASKIPTI Óska eftir að skipta á frimerkjum frá öllum löndum og islenskum Erik Hermansen a/s Reno. Stortmgsgt 22 Oslo Norge TILSÖLU 4 innihurðir með kormum og læs- ingum kr 2 500 hver Upplýsmg- ar i sima 42685
TIL SOLU Volvo 34ra manna langferðabif- reið Bifreiðin er með 150 h.sl vél. lofthemlum og i ácjaetu ásig- komulagi Upplýsincjar i sima 66128 ocj 83351 UTGERÐARMENN Loðnunót hentug fyrir 50 — 100 tonna bát til solu Tilboð leggist inn á afgr Mbl fyrir 26 1 1 merkt Loðnunót — 799
MIÐSTOÐ Vil kaupa 2ja — 3ja ára notaðá miðstoð i embýhshús Uj)j)l i sima 92-2694 TEK AÐ MÉR VÉLRITUN HEIMA Upplýsingar i sima 1 2455 Geymið auglýsmguna
ÚRVALS SÚRMATUR Súrsaðir lundabaggar, hrútspung- ar, sviðasulta, svínasulta Úrvals- hákarl, síld og reyktur rauðmagi. Harðfiskur, bringukollar. Kjötmiðstöðin, Laogalæk 2, sími 35020 KEFLAVÍK — SUÐURNES skemmtileg 5 herb 132 fm ibúð til sölu Etnnig 2ja og 3ja herb ibúðir. Bila og fasteignaþjónusta Suður- nesja, simi 92-1535 heima 2341
HESTAEIGENDUR — TAKIO EFTIR Tek að mér að temja hross Upplýsincjár i sima 99 3 1 86 nnlli kl 1 9 oy 20 IVIár Ólafsson YTRI NJARÐVIK Til solu ný 4ra heib íbúð full frágengm ibúðm ei mjog vonduð og með fallegum teppum Fasteignasala Vilhjálms og Guðfmns Simar 1 263 og 2890
3JA HERB ÍBUÐ til leigu i Njarðvik Uppl i sima 83256 KEFLAVÍ K Til solu nýleg ilnið 4 svefnherb samliggjandi stofui laus fljotlega hagsta-ð útboigun Fasteignasala Vilhjálms og Guðfmns Simái 1263 og 2890
VETRARMAÐUR óskast að góðu sveitaheimili á Norðurlandi Þyifti helkft að vera vanur Uj)j)l gefnar i sima 26457 milli kl 6 — 8 á kvoldm KEFLAVIK 3ja herb ibúð til leigu Upj)lýsmgar i sima 2173
Innilega þakka ég vinum
og vandamönnum fyrir
hlýleg handtök gjafir
blóm og skeyti á 70 ára
afma.li mínu þ 1 7. nóv
sl
Steinberg Jónsson.
Innilega þakka ég skyld-
fólki og vinum. er glöddu
mig á 75 ára afmadi minu
8 þ m
Guð blessi ykkur öll
ANNA AGUSTSDOTTIR.
Idugötu 25 a
Innilegt þakklæti til allra þeirra fjölmörgu ættingja, vina
og vinnufélaga. sem glöddii mig á 70 ára afma.li mínu
29. októþersl., með heimsóknum. gjöfum, simskeytum
og heillaóskum á ýmsan hátt og gerðu mér daginn
ógleymanlegan
Eg bið ykkur öllum Guðsblessunar um ókomna daga
Ottó Þorvaldsson.