Morgunblaðið - 21.11.1973, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 21.11.1973, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. NÓVEMBER 1973 Óvefengj anlegur réttur fóst- ursins er virtur að vettugi III. Athugasemdir við vinnuhrögð nefndarinnar. Þótt vér þannig teljum rýmkunartillögur nefndarinnar óþarfar, og umsögn vorri gæti af þeim sökum verið lokið með þeirri niðurstöðu, þá verður ekki hjá þvf komizt að víkja nánar að nokkrum þáttum greinar- gerðarinnar. Á bls. 9 í greinargerð stendur eftirfarandi: „Nefndin hefur mótað tillögur sínar um, í hvaða tilvikum fóstureyðingar skuli heimilar á grundvelli þeirra niðurstaða, sem fengizt hafa í eftirrannsókn á högum kvenna, sem framkvæmd hefur verið fóstureyðing hjá og með hliðsjón af þeirri læknisfræðilegu reynslu, sem fengizt hefur varðandi áhættu, sem getur verið samfara aðgerð í hverju einstöku tilfelli." Samkvæmt þessu er könnun þessi einn aðalgrundvöllur til- lagna nefndarinnar um nýja fóstureyðingarlöggjöf. Spyrja má, hvort hér sé ekki byggt á alltof veikum grundvelli, þar sem sá hópur kvenna, sem könnunin nær til, sé mjög sér- stæður og fjarri því að vera sam- bærilegur við þann hóp kvenna, sem ætla má, að myndi helzt hag- nýta sér hina nýju löggjöf. Benda má á, að í viðmiðunar- hópi nefndarinnar varengin kona yngri en tvítug, sbr. töflu 3 á bls. 51, á aldrinum 20—24 aðeins 3.9- % könnunarhópsins, en 84.3% 30 ára og eldri. Aðeins 4 konur, eða 5.3%, ógiftar og engin þeirra und- ir 25 ára aldri. 88.5% kvennanna áttu 3 börn eða fleiri. Ýmislegt fleira kemur fram, sem undir- strikar sérstöðu þessara kvenna, en þessar upplýsingar ættu að nægja, einkum þegar haft er f huga, að árin 1966 — 1970 svara mæður á aldrinum 16—19 ára fyr- ir 51.8% af heildarfæðingum. Ennfremur voru 54.9% af ógift- um barnshafandi konum, sem komu til skoðunar í mæðradeild Heilsuvemdarstöðvarinnar í Reykjavík á tímabilinu nóv. — jan. 1969, á aldrinum 15—19 ára, sbr. bls. 81 greinargerðar. Ætla má, að stór hluti umsókna um fóstureyðingar, samkvæmt hinni nýju löggjöf, komi frá mun yngri konum en könnunin nær til, enda er það reynsla annarra þjóða. Virðist það vera mjög mikill ljóður á ráði nefndarinnar, að hún telur sér fært að heimfæra niðurstöður könnunar á högum mjög sérstæðs ’hóps yfir á hóp kvenna, sem augljóslega býr við allt aðrar aðstæður. Ástæða er til að benda á, að í þessum hópi er að finna langflestar frumbyrjur. Ætla má, að fóstureyðing geti haft varanlegri áhrif á frumbyrj- ur, bæði lfkamlega og andlega, heldur en fjölbyrjur. Ymislegt fleira má að vinnu- brögðum finna, t.d. hvers vegna var ekki gerð samsvarandi könnun hjá þeim konum, sem var synjað um fóstureyð- ingu, sem nefndin taldi þó nauðsynlegt? Hver hefði nið- urstaða slíkrar könnunar verið? Að lokum skal áréttað, að það vekur furðu, að nefndin skuli telja sér fært að byggja tillögur um, í hvaða tilfellum fóstureyð- ing skuli heimiluð, á niðurstöðum könnunar hjá svo sérstæðum hópi og án nokkurs samanburðar. IV. Fóstureyðing. Vér höfum í þessu áliti talið föstureyðingu neyðarúrræði. í því efni erum vér sammála nefnd- inni. Nefndin skýrir þessa afstöðu sína til fóstureyðinga með því, að hér sé um læknisaðgerð að ræða, sem geti haft áhættu í för með sér og sé allkostnaðarsöm getnaðar- vörn fyrir þjóðfélagið, sbr. bls 7—8. Þessi skýring nefndarinnar er að voru áliti ófullnægjandi. Vér fáum ekki séð, að fram hjá því verði gengið, að fóstureyðing sé að taka líf, sem hefur að öðru jöfnu alla eiginjeika til að taka út þroska sem mannleg vera. Eins og vikið er að hér að framan er helgi mannlegs lífs ekki aðeins einn af hyrningar- steinum kristinnar lífsskoðunar, heldur verðmæti, sem allar sið- menntaðar þjóðir meta flestu öðru meir, sbr. Mannréttindayfir- lýsing Sameinuðu þjóðanna, 3. grein „ Allir menn eiga rétt til lífs, frelsis og mannhelgi.“ Vér höldum því jafnframt fram, að ákvæði um mannréttindi verði ekki numin úr tengslum við réttindi fóstursins, enda má minna á yfirlýsingu Sameinuðu þjóðanna um rétt barna, en þar segir í 4. grein, að barnið skuli njóta sérstakrar umönnunar og verndar jafnt fyrir sem eftir fæðingu. í þessu sambandi er ástæða til að benda á, að nefndin vitnar í þessa sömu grein yfirlýsingar- innar á bls. 211, án þess að geta um þennan rétt barnsins f móður- kviði. Nefndin hefur ekki séð ástæðu til að f jalla um rétt fósturs til lífs, en leggur hins vegar mikla áherzlu á rétt fósturs til að fæðast velkomið í þennan heim. Virðist í þessu efni gæta nokkurrar mót- sagnar í málflutningi nefndarinn- ar, þar sem hún gerir aðeins ráð fyrir rétti fóstursins, þegar það þjönar rökstuðningi hennar fyrir frjálsari fóstureyðingum. Vér fáum með engu móti skilið, hvernig það má fara saman, að fóstur hafi aðeins rétt til að fæðast, þegar það er velkomið í heiminn, en almennur réttur fósturs til að fæðast er ekki virtur. Það er með ólíkindum að fjallað sé um nýja fóstureyðingarlöggjöf og henni fylgt úr hlaðí með mjög ítarlegri greinargerð, án þess að ræða rétt fóstursins og gera sér jafnframt grein fyrir, hvaða áhrif sá réttur hafi á meðferð málsins í heild sinni. V. Frumvarp nefndarinnar um fóstureyðingar. 1 9. grein lagafrumvarpsins eru ákvæði um, hvenær fóstureyðing sé heimil. Töluliður 1. að ósk konu. „Ákvæði, sem veita konu rétt til fóstureyðingar, án þess að hún þurfi að skýra frá einhverjum ástæðum fyrir fóstureyðingunni, er það lengsta, sem hægt er að ganga við rýmkun löggjafar um fóstureyðingar, (ef ekki er með- talið afnám allrar fóstureyðingar- löggjafar).“ (Bls 156). Samkvæmt þessum orðum nefndarinnar telur hún rétt að ganga eins langt í þessu máli og frekast er unnt til að tryggja frjálsan ákvörðunarrétt kon- unnar. Hins vegar leggur nefndin mikla áherzlu á, að fóstureyðing sé ætfð neyðarúrræði. Vér fáum ekki séð, hvernig sú skoðun geti samrýmzt þessum tillögum nefndarinnar, þar sem konan þarf ekki að færa fram full- nægjandi ástæðu fyrir aðgerðinni. Sbr. skilgreiningu á tilefni fóstureyðingar, bls. 168. Mun þyngra er hins vegar á metunum, að samkvæmt þessum tillögum er engin grein gerð fyrir þvf, hvaða aðili á að gæta réttar fóstursins. Erum vér eindregið þeirrar skoðunar að vernda beri frjálsan ákvörðunarrétt einstakl- inga. Á það ber þó að líta, að frelsi einstaklings f mannlegu sam- félagi eru ætíð takmörk sett, og almennri löggjöf er fyrst og fremst ætlað að tryggja gagn- kvæman rétt einstaklinganna. I löggjöf um fóstureyðingar á þetta sjónarmið tvímælalaust að koma fram í því, að tekið sé fyllsta tillit til réttar konunnar og réttar fóstursins. í þessum tölulið 9. greinar lagafrumvarpsins er UMSÖGN NEFNDAR, SEM BISKUP ÍSLANDS SKIPAÐL UM FÓSTUREYÐING- ARFRUMVARPIÐ SÍÐARI HLUTI réttar fóstursins ekki gætt, þar sem aðeins er gert að skilyrði, að aðgerðin sé framkvæmd fyrir lok 12. viku meðgöngu, og að konan hafi hlotið fræðslu um áhættu samfara aðgerð og um félagslega aðstoð. Það er álit vort, að löggjöf um fóstureyðingu, sem virðir að vettugi rétt fóstursins, gangi í berhöggi við kristna lífsskoðun og almenna skoðun á mannréttind- um. Töluliður 2. að læknisráði. Vér leggjum þann skilning í þennan tölulið lagafrumvarpsins, að hann sé að verulegu leyti í, samræmi við anda núverandi lög- gjafar. Þó að samkvæmt þessari grein sé fóstureyðing í vissum tilvikum heimil vegna félagslegra ástæðna, þá skiljum vér það svo, að mjög erfiðar félagslegar ástæður verði vart greindar frá heilsufarsástæðum, sbr. skiler. á bls 168 „Medical — Social". Augljóst er, að við hugsanlega framkvæmd á þessum tölulið, er gert ráð fyrir, að tekið sé tillit til fjölmargra þátta, er varða heilsu- farsástæður konunnar og fósturs- ins, ásamt félagslegum aðstæðum. Viljum vér undirstrika, að við ákvörðun verði tekið tillit til rétt- ar fósturs, svo og réttar konunnar og fjölskyldu hennar. VI. Ráðgjöf og félagsleg aðstoð. 6. gr. lagafrumvarpsins hljóðar svo: „Ráðgjöf fyrir fólk, sem íhugar fóstureyðingu eða ófrjósemisaðgerð, tekur til þess, sem hér segir: 1. Læknishjálpar 2. Þungunarprófana 3. Ráðgjafar- og stuðningsviðtaka 4. Félagslegrar aðstoðar 5. Aðstoðar við umsókn og tilvísun til sjúkrahúss." Um þessa grein segir svo í athugasemdum: „Greinin út- skýrir nánar í hverju ráðgjöf fyrir fólk, sem fhugar fóstur- eyðingu eða ófrjósemisaðgerð er fólgin. Megináherzla skal leggja á ráðgjafar- og stuðningsviðtöl. Nefndin álítur, að fóstureyðing hljóti alltaf að vera neyðarúrræði fyrir hverja konu. Beri þvf að athuga gaumgæfilega mögu- leikana á þvi, að konan ali barn það, sem hún gengur með. Sér- staklega er nauðsynlegt að aftra því, að konan leiðist út í fóstur- eyðingu vegna fjárhagsástæðna eða utanaðkomandi þvingunar. Ber þvf að veita konunni alla þá félagslegu aðstoð, sem í boði er, til að hjálpa henni til að fæða barnið og annast það.“ Samkvæmt þessari athugasemd útskýrir 6. gr. í hverju þessi ráð- gjöf er fólgin, en eins og sjá má hér að ofan er fjarri því, að um útskýringu sé að ræða, heldur aðeins upptalning á þáttum ráð- gjafar, án nokkurrar skilgrein- ingar. Af þessum þáttum leggur nefndin aðaláherzlu á ráðgjafar- og stuðningsviðtöl, en í hverju er það fólgið? Við lestur greinargerðarinnar höfum vér orðið lítils vísari um innihald þessa þáttar, nema hvað á bls. 202 segir svo: „Hlutlaus ráðgjöf og fræðsla skal veitt í þeim tilgangi að auðvelda umsækjendum að taka ákvörðun, sem reynist bezt í framtíðinni. Konunni og karlinum gefst í við- tölum við félagsráðgjafa og lækni kostur á að ræða málið frá heilsu- farslegu, félagslegu og tilfinn- ingalegu sjónarmiði." Við nánari athugun kemur í ljós, að ráðgjöfin á fyrst og fremst að fjalla um möguleika á félags- legri og fjárhagslegri aðstoð, sem stendur verðandi foreldri til boða í þjóðfélaginu, en ekki er gert ráð fyrir að leysa þann vanda, sem leiðir til umsóknar um fóstur- eyðingu. Nefndin gerir sér hins vegar grein fyrir því, að unnt sé að leysa þann vanda, enda leggur hún til að ráðgjafaþjónustan geti veitt slíka aðstoð, en skyldar hana ekki til þess, sbr. bls 205: „Ráðgjafarþjónustan skal skipu- lögð og starfrækt þannig, að hún geti veitt hjónum og einstakling- um aðstoð í sambandi við kynlífs- og samlífsvandamál. I starfinu skal lögð áherzla á f jölskyldumeð- ferð, þegar fólk leitar aðstoðar vegna vandamála í fjölskyldu- lífi.“ Sú áherzla, sem hér kemur fram á ráðgjöf fyrir fólk, sem íhugar fóstureyðingu, er sannar- lega lofsverð, og má vist fullyrða, að mjög hafi skort á þennan þátt við framkvæmd núgildandi laga um fóstureyðingar. Einnig ber að meta að veitt ráðgjöf skuli vera óhlutdræg. En hvað felst í hug- takinu óhlutdræg ráðgjöf, þegar um fóstureyðingu er að ræða? Almennt felst f óhlutdrægni, að tekið sé tillit til allra þátta, sem hugsanlega koma til skoðunar á einu máli, áður en endanleg niðurstaða fæst. Óhlutdræg ráð- gjöf um fóstureyðingu á, að voru mati, á sama hátt að fela í sér nákvæma sundurgreiningu á þeim þáttum, sem lúta að þessari aðgerð. I meðförum nefndarinnar er í mismunandi löngu máli vikið að ýmsum þáttum, er hér koma til greina, t.d. heilsufarsástæðum konunnar og fóstursins, félagsleg- um ástæðum margs konar, rétti konunnar til sjálfsákvörðunar. En nefndin leiðir algjörlega hjá sér að fjalla um rétt fóstursins, sem taka beri óhlutdræga afstöðu til, og er þó staðreynd fóstursins mun áþreifanlegri veruleiki en ýmsir aðrir þættir, sem koma til rækilegrar skoðunar. Líf fósturs- ins er altént ekki veigaminni stað- reynd en svo, að vitundin um það gefur konunni tilefni til að leita ráðgjafar. Hvaðagildi hefur þetta líf? Þeirri spurningu svarar nefndin ekki, en öll meðferð hennar gefur tilefni til að ætla, að helzt vildi hún mega þegja það í hel. önnur hlið óhlutdrægrar ráð- gjafar lýtur að virðingu fyrir skoðunum þess, sem ráðgjafar- innar á að njóta. Nefndin virðist algjörlega sniðganga þann mögu- leika, að kona, sem íhugar fóstur- eyðingu og leitar ráðgjafar, beri í brjósti spurningar, sem eru af trúar- og siðferðislegum rótum runnar. Felur ekki krafan um óhlutdræga ráðgjöf i sér, að virða beri rétt slíkrar konu til að meta þann vanda, sem hún stendur frammi fyrir, í ljósi hennar eigin trúarsannfæringar? A hún ekki jafnframt heimtingu á að fá að ræða þann þátt málsins við aðila, sem er líklegri til að skilja tilfinn- ingar hennar að þessu leyti en læknirinn og félagsráðgjafinn, t.d. við prest? Væri ekki kröfunni um óhlutdræga ráðgjöf betur borgið í höndum teymis, sem skip- að væri lækni, félagsráðgjafa, hjúkrunarkonu og presti, heldur en tillögur nefndarinnar gera ráð fyrir? Nefndin sjálf tekur eindregna afstöðu gegn þeim, sem eru á annarri skoðun, og gætir þá ekki óhlutdrægni, sbr. bls. 203: „Sumt starfsfólk á erfitt með að sætta sig við þátttöku í þessu starfi. Oft eiga þó þessar tilfinningar rætur sfnar að rekja til skorts á fræðslu og vöntun á sðlfræðimenntun og úr þvf má bæta með fræðslufund- um á stofnunum, þar sem öllu starfsfólki gefst kostur á að láta skoðanir sínar í ljós og ræða við- brögð sín og erfiðleika í sambandi við fóstureyðingar.“ (Letur- breyting vor), og bls. 187—88: „Læknar og hjúkrunarlið hefir sína persónulegu lífsskoðun, trú og siðfræði, sem stundum er and- stætt fóstureyðingum. Það eru og verða hjúkrunarkonur, sem ekki fella sig við að hjúkra konum, sem lenda í því, að fóstureyðing sé gerð, og verður stundum ekki hjá því komizt, að þær láta það meira eða minna í ljós við sjúklinginn. Þetta er vandamál, sem er farið er að bera töluvert á í þeim löndum, sem hafa mjög frjálsa fóstureyðingarlöggjöf og er óverjandi ástand. Framkvæmd aðgerðar getur þá orðið erfiðleik- um bundin fyrir lækninn, sem þó hefir siðferðilega gengizt inn á að framkvæma fóstureyðingu. Ef hjúkrunarlið ekki vill aðstoða eða hjúkra í svona tilvikum, sem eru andstæð samvizku þeirra og trú, verður að fá til þess þá hjálp, sem vi 11 gera það.“ (Leturbreyting vor). Hvaðan kemur nefndinni réttur til að setjast á dómarastól og dæma andstæðar skoðanir óverjandi og jafnvel fávizku? Ef gæta á óhlutdrægni verður að virða andstæðar skoðanir og sætta sig við þær án fordæmingar, en þetta yfirsést nefndinni. VII. Fræðsla. Vér álítum, að hér sé komið að einum mikilvægum þætti þess varnaðarstarfs, sem ætti að draga úr þörf á fóstureyðingum. Eins og nefndin réttilega gefur í skyn, er full ástæða til að forðast, að þessi fræðsla verði einskorðuð við tæknilega hlið kynlífsins. Vér leggjum áherzla á, að þessi fræðsla verði tengd fjölskyldu- og samfélagsfræðslu, þar sem fyllsta tillit sé tekið til siðferðilegrar ábyrgðar einstaklingsins í sam- skiptum hans við náungann. í því sambandi teljum vér nauðsynlegt, að þessi fræðsla sé ekki aðeins felld inn í kennslu í náttúrufræði, heldur einnig í kristnifræði og samfélagsfræði. Einnig þarf að hyggja að þessu máli, þegar sett verða lög og reglugerðir um full- orðinsfræðslu. VIII. Alyktunarorð. Allt fram á vora daga hefur fóstureyðingarlöggjöf endur- speglað það grundvallarsjónar- mið, að þjóðfélaginu beri skylda til að standa vörð um rétt fósturs- ins. Þessi réttur hefur verið talinn vera í órofa tengslum við helgi mannlegs lífs. Með réttu hefur fóstureyðing verið talin algjört neyðarúrræði. En nú horfir svo við, þegar stefnt er að því að ganga eins langt og unnt er við rýmkun löggjafar um fóstur- eyðingar, svo notuð séu orð nefndarinnar sjálfrar um hennar eigin verk, að þessi óvenfengjan- legi réttur fóstursins er virtur að vettugi. Öll afstaða vor til þessa máls, eins og hún hefur verið reifuð hér að framan, byggist á þeirri sannfæringu, að lítils- virðing á rétti þess lífs, sem kviknað hefur i móðurkviði, marki ekki spor í átt til aukins frelsis og bættra mannréttinda. Þvert á móti álítum vér, að með lítilsvirðingu á rétti fóstursins til lífs, sé gengið lengra til móts við öfl, er vilja svipta einstakling og þjóðfélag þeirri ábyrgð, seg gefur lífinu gildi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.