Morgunblaðið - 21.11.1973, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 21.11.1973, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, MJÐVIKUDAGUR 21. NÓVEMBER 1973 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Ritstjórnarfulltrúi Fréttastjóri Auglýsingastjóri Ritstjórn og afgreiðsla Auglýsingar hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Eyjólfur Konráð Jónsson, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson. Björn Jóhannsson. Árni Garðar Kristinsson. Aðalstræti 6, sími 10-100. Aðalstræti 6, sími 22-4-80. Áskriftargjald 360,00 krá mánuði innanlands. í lausasölu 22, 00 kr. eintakið Isljórnmálayfirlýsingu flokksráðs Sjálfstæð- isflokksins er mörkuð mjög skýr og ákveðin stefna í öryggismálum landsins. Þar segir svo: „Það er brýnasta mál íslenzku þjóðarinnar að tryggja áfram öryggi landsins og sjálfstæði þjóð- arinnar. Þar til samkomu- lag næst milli ríkja austurs og vesturs um afvopnun og viðunandi öryggi í Evrópu, er það nauðsynlegt vegna örvggis íslands og hags- muna bandalagsþjóða okkar, einkum Norður- lanria. að áfram verði um sinn vamir í landinu. þar sem ástand í alþjóðamálum er svo ótryggt sem raun ber vítni. Vegna hinna mikiu og vaxandi umsvifa herskipaflota Sovétríkj- anna á hafsvæðunum um- hverfis ísland, er yfirvof- andi hætta á, að ísland lendi innan sovézks áhrifa- svæðis. ef íslendingar draga sig út úr varnar- keðju vestrænna ríkja. ísland hefur, vegna legu sinnar, svo mikla hernaðar- þýðingu, að landið hlyti að verða í verulegri hættu, ef spenna ykist í þessum heimshluta og hér væru engar varnir. Því fullnægir það ekki hagsmunum íslendinga nú, að í landinu sé aðeins eftirlitsstöð án nokkurs varnarliðs. Varnarþörf landsins og til- högun varnanna verður að meta með hliðsjón af ástandi heimsmála hverj- um tíma. Kanna ber til hlítar, hvort hagkvæmt sé að auka þátttöku íslend- inga í þeim störfum, sem unnin eru hér á landi vegna öryggis íslands og annarra Atlantshafsbanda- lagsríkja.“ Sjónarmið Sjálfstæðis- flokksins hafa jafnan að lokum ráðið úrslitum um stefnuna í öryggismálum þjóðarinnar. Þannig hafði Sjálfstæðisflokkurinn for- ystu um aðild íslands að Atlantshafsbandalaginu 1949 og gerð varnarsamn- ingsins 1951. Sjálfstæðis- flokkurinn lagðist ein- dregið gegn ályktun Alþingis 28. marz 1956 um brottför varnarliðsins, og hálfu ári síðar urðu vinstri flokkamir að viðurkenna, að þeir hefðu haft rangt fyrir sér og Sjálfstæðis- flokkurinn haft á réttu að standa. Fyrr og sfðar hefur Sjálfstæðisflokkurinn ver- ið sú brjóstvörn í bar- áttunni fyrir öryggi lands- ins og sjálfstæði, sem bezt hefur dugað. Næstu vikur og mánuðir eru örlagatímar í öryggis- málum þjóðarinnar. Nú, eins og 1956, er gerð til- raun til að knýja fram breytingar, sem leiða mundu til þess, að landið yrði óvarið, eitt sjálfstæðra ríkja um gjörvalla heims- byggð. Með samþykkt flokksráðsins hefur Sjálf- stæðisflokkurinn á þessum örlagatímum markaðskýra og ákveðna stefnu. Enn er ekki tímabært, að vamar- liðið hverfi af landi brott. Eftirlitsstöð án vamarliðs er ekki fullnægjandi fyrir hagsmuni Islendinga, að dómi Sjálfstæðisflokksins. Þessi afstaða er byggð á öryggishagsmunum ís- lands og bandalagsríkja þess í Atlantshafsbanda- laginu, sérstaklega þó Norðurlandaþjóða. Hins vegar er Sjálfstæðisflokk- urinn reiðubúinn til þess að standa að aukinni þátt- töku Islendinga í þeim störfum, sem unnin eru á Keflavíkurflugvelli. Andstæðingarnir halda því fram, að Sjálfstæðis- flokkurinn og Morgun- blaðið boði ævarandi hersetu í landinu. Því fer viðs fjarri. Svarið við þess- ari ásökun kemur fram i' stjórnmálayfirlýsingu flokksráðs Sjálfstæðis- flokksins, þar sem segir: „Þar til samkomulag næst milli ríkja austurs og vest SKÝR STEFNA SJÁLF- STÆÐISFLOKKSINS urs um afvopnun og við- unandi öryggi í Evrópu, er það nauðsynlegt vegna öryggis íslands og hags- muna bandalagsþjóða okkar, einkum Norður- landa, að áfram verði um sinn vamir í landinu....“ Við Islendingar hljótum vissulega að binda ákveðnar vonir við þróun mála í Evrópu um leið og við verðum að gera okkur grein fyrir því, að hingað til er fyrst og fremst um jákvæða breytingu á andrúmslofti að ræða, en ekki áþreifanlegar stað- reyndir. Öryggismálaráð- stefna Evrópu er hafin og þátttakendur í henni eru öll Evrópuríki. Starf hennar mun vafalaust taka nokkurn tíma, en samt sem áður hljótum við að binda ákveðnar vonir við það, að niðurstaða hennar verði jákvæð og að samkomulag takist um nýskipan öryggismála, sem að okkar dómi veiti fullnægjandi tryggingu fyrir sjálfstæði lands og öryggi. En þar til slík niðurstaða er fengin f öryggismálum Evrópu- þjóða er störhættulegt fyrir íslendinga eins og allt er í pottinn búið að grfpa til einhliða aðgerða, sem gera landið varnarlaust, valda því, að Norðurlanda- þjóðir, einkum Norðmenn, verða að endurskoða frá grunni varnarkerfi sín og jafnvægi raskast í okkar heimshluta. Risaveldin og mannúðarhugsjónin KIGA Bandaríkjamenn að krefjast þess er þeir veita Rúss- unt viðskiptaívilnanír. að mannréttíndí sovézkra borgara verði aukin? Þjóðþingið fjallar nú uin þetta grundvallaratriði, en vert er að hafa í huga þann tnannlega veruleika, sem unt er að ræða. Þess vegna segi ég eftirfarandi sijgu: Valery Panov er einhver hezti ballettdansari heimsins. Ilann og hin frábæra kona Itans, Galina. voru starfandi hjá Kirov-félaginu í Leníngrad, þegar þau sóttu um áritun á vegabréf til þess að koniast til Israels. Panov var þegar í stað sagt upp starfi sínu hjá Kirov, og honum var alls staðar bannað að konta fram. Þessi stolti listamaður var þannig (læmdur til þess að bíða sál- fræðiiegan dauða. Aður en Leonid Brezhnev fór til Bandaríkjanna í jtíní, var Panov-hjónunum sagt, að þau gætu fengið vegabréfsáritanir, ef þau þögguðu niður allt umtal iitii mál þeirra unt sumarið. 9. ágúst var þetta loforð opinber- lega staðfest í viðtali við banda- rfskan gest í Moskvu, Robert Abrams. forseta borgarstjórnar í Bronx-hverfi í New York. Sovézkur > aðstoðarinnanríkis- ráðherra. Viktorov að nafni, sagðt Abrams að viðstöddum öðrum háttsettum embætt- ismönnum, að Panov „fengi áretðanlega að fara“. I síðasta mánuði höfnuðu yf- irvöldin aftur beiðni Panov- hjönanna um vegabréfsáritun. Skömmu síðar var Panov sagt, að verið gæti að hann fengi að fara þrátt fyrir allt — ef hann færi eínn síns liðs og skildi Gal- inu eftir. Ilann sagði nei. Ilenry Kissinger berst gegn því í þjóðþinginu, að nokkur skilyrði verði látin fylgja við- skiptaívilnunum Bandaríkja- manna gagnvart RUssum. Iyfir- heyrslunum, sem fóru fram, þegar tilnefning hans var sam- þykkt, sagði hann aðspurður, að Bandaríkin ættu að stefna að því að reyna að hafa áhrif á utanríkisstefnu erlendra ríkja í stað þess að reyna að „breyta innviðum þeirra þjöðfélaga, sem við eigum skipti við". Saga Panovs sýnir regin- skyssu i þessari hugmynd Kiss- ingers: Ógerningur er aðskipta þjóðfélagskerfi eins og því, sem er í Sovétríkjunum, í nákvæm- lega aðgreind svið, annað „inn- lent“ og hitt „erlent". Voldug ríkisstjórn, sem gengur á bak orða sinna heima fyrir, sýnir einum borgara sínum heift- rækni og grimmd án þess að nokkur siðferðileg og pólitísk sjónarmið haldi aftur af henni, getur varla vænzt þess, að henni sé treyst út á við. Gerræðislegar tálmanir á ut- flutningi Gyðinga eru vissulega ekki eina áhyggjuefnið f sam- bandi við Sovétríkin. Uggvekj- andi er með hliðsjón af utan- ^VnHlork eimcs ^ r'V-r'-v-^ EFTIR ANTIIONY LEWIS ríkismálum, að mótmælaraddir eru miskunnarlaust kæfðar og að hræðilegar hömlur eru settar á mannlegt samneyti við útlendinga, einmitt vegna þess að ósennilegt er að jafn ein- angrað þjóðfélag verði skyn- semi gæddur og áreiðanlegur samherji á alþjóðlegum vett- vangi. Einmitt f þessum ástæðum hefur það verið eitt helzta tak- mark utanrfkisstefnu vest- rænna ríkja um árabil að opna sovézkt þjóðfélag fyri-r frjálsari hugmyndaskiptum og mann- legum samskiptum. Þetta er til dæmis takmarkið á ráðstefn- unni um öryggi Evrópu. Þeir, sem eru eindregið fylgjandi þessum markmiðum, eru ekki andvígir minnkun spennunnar: þeir óttast aðeins það, sem Andrei Sakharov, sovézki vís- indamaðurinn, hefur með réttu kallað „hættuna, sem stafar af því, að minnkun spennunnar verði uppgerð ein og vaxandi traust og aukið lýðræði fylgi ekki í kjölfarið“. En hefði þaðeinhver áhrif, ef skilyrði yrðu sett fyrir við- skiptaívilnunum Bandaríkja- manna? Ein þeirra hugmynda, sem ætti að leggja á hilluna er sú, að opinberar aðgerðir geti bitnað á fórnarlömbum kúgunarinnar, að diplómötum skuli látið eftir að koma á framfæri áskorunum í kyrrþey til hjálpar þeim. Við vitum nú orðið, að kurteisi og tillitssemi hafa engin áhrif á sovézka embættismenn, heldur festa og sá möguleiki, að þeir lendi í vandræðum. Og fórnarlömbin vilja sjálf taka áhættuna. Tólf velmetnir sovézkir Gyðingar hafa nýlega vísað á bug þeirri hugmynd, að farið verði eftir „diplómatísk- um leiðum“ að tjaldabaki, þar sem það sé gagnslaust, og hvatt til „baráttu fyrir opnum tjöld- um“. Einn þeirra manna, sem undirrituðu yfirlýsinguna, var Benjamin Levich, háttsettur vísindamaður, sem hefur orðið að sæta grimmdarlegum refs- ingum fyrir að vilja flytjast úr landi. 24 ára gamall sonur hans, Evgeny, sem beið eftir að verða skorinn upp við alvarlegu inn- vortis meini, var gripinn á göt- unni, dreginn í herinn og send- ur til herbúða á heimskauta- svæðunum. Þar er hann enn og vinnur erfiðisvinnu, þótt hann þjáist nú af bólgu, sennilega illkynjaðri. Það eru takmörk fyrir þvf hvað Bandaríkin geta gert, mikil takmörk. Við getum ekki „breytt innviðum" Sovétríkj- anna, en við getum reynt að tryggja virðingu fyrir vissu lág- marks velsæmi. Hvorf okkur tekst það ekki, byggist ekki á óhlutstæðum hugmyndum samninga og hrossakaupa. Staða okkar er sterk með til- liti til þessara staðreynda. Rúss- um er augljóslega mikið kapps- mál að tryggja viðskipti við Bandaríkin og bandaríska fjár- festingu. Þrátt fyrir mikið fát og uppnám afnámu þeir til dæmis svokallaðan mennta- mannaskatt, sem var lagður á þá, sem vildu flytjast úr landi. Eins og Sakharov hefur komizt að orði, eru „Sovétrikin sá að- ilinn, sem hefur hagsmuna að gæta og beitir óspart prettum. Það er geysimikilvægt að vest- rænu ríkin noti háspil sín til hins ítrasta.“ Við þurfum heldur ekki að hafa nokkurt samvizkubit út af hrossakaupum. I samningavið- ræðunum um vopnaeftirlit er hægt að semja um atriði, sem eru báðum aðilum í hag. En þegar Rússar koma til okkar og biðja um efnahagslega blóð- gjöf, höfum við fullan rétt til þess að fara fram á, að við fáum eitthvað fyrir okkar snúð. Að lokum verður að segja þetta: Málin horfðu öðru.vfsi við, ef aldrei hefða verið vakið máls á mannréttindum í sam- bandi við viðskiptalögin. Ef þingið setur kfkinn á blinda augað, líta sovézku leiðtogarnir svo á, að skoðanir þeirra á lög- um og mannúð hafi verið viður- kenndar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.