Morgunblaðið - 21.11.1973, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21, NÖVEMBER 1973
Minning: ,
Guðbjartur Asgeirsson
skipstjóri
LAUGARDAGINN 10. nóvember
var gerð frá Isafjarðarkirkju út-
för Guðbjarts Asgeirssonar fyrrv.
skipstjóra.
Guðbjartur var fæddur 14. apríl
1899 í Þeruvík I ísafjarðardjúpi,
sonur Rjónanna Guðbjargar
Pálsdóttur og Ásgeirs Guðbjarts-
sonar, er þar bjuggu.
Guðbjartur ólst upp hjá
foreldrum sinum fyrst í Þernuvík
og á Markeyri í Skötufirði, en
seinna fluttust þau til Hnífsdals.
Synir þeirra Guðbjargar og
Asgeirs, sem komust til fullorðins
ára, voru þrír, Sölvi, Guðmundur
Júm' og Guðbjartur. Sölvi er nú
einn eftir á lífi, nær áttatfu ára að
aldri.
Ásgeir stundaði ávallt sjóinn
samhliða búskapnum, svo sem
alsiða var þá um bændur við
Djúp. Ýmist voru róðrar
stundaðir frá heimavör eða farið
var tií útróðra, sem kallað var, til
Hnífsdals eða Bolungarvíkur. Oft
var það svo, að þessi útgerð var
aðallffsbjörgin, þar sem búin
voru víða frekar smá í þá daga og
tekjurnar af þeim hrukku
skammt til nauðþurfta.
Á uppvaxtarárum Guðbjarts
var ekki margt, sem menn gátu
valið um, þegar þeir höfðu atgervi
til þess að verða þátttakendur í
lifsbaráttunni. Naumast var þar
um annað að ræða en sveita-
vinnuna eða sjóróðra. Það fór þvf
oft svo, að þá, sem höfðu löngun
til þess að takast á við hin stærri
verkefni, heillaði sjórinn, því þar
voru möguleikamir fleiri og von
um betri afkomu ef lánið var
mönnum innan handar.
Ásgeiri Guðbjartssyni og konu
hans mun og hafa verið það ljóst,
að sonunum ungu væri búin betri
framtíð ef þeir fengju tækifæri til
þess að komast á þær slóðir þar
sem möguleikar til athafna voru
nærtækari en þá gerðist við
sveitastörfin. Það kom og
snemma í Ijós, að þeir bræður
voru búnir augljósum hæfileikum
til mannaforráða, enda varð og sú
raunin á, að þeír urðu allir
dugandi skipstjórar.
Þegar Ásgeir og þeir feðgar
fluttust til Hnífsdals hófu þeir
útgerð og fiskverkun. Utgerð vél-
báta hafði þá aukizt allnokkuð í
verstöðvum við Djúp, þó að skil-
yrðin væru á mörgum sviðum
frumstæð.
t
Litli sonur okkar.
HALLDÓR
sem lézt á Landspitalanum
13 nóv . verður jarðsunginn frá
Bræðratungukirkju laugardaginn
24 nóv kl 2 e h Blóm vinsam-
lega afþökkuð
Sigriður Stefánsdóttir
Sveinn Skúlason
t
Móðir okkar. tengdamóðir jg
amma.
Guðbjartur mun hafa hafið for-
mennsku á árabáti 18 ára gamall,
en hugur hans stóð til annars og
meira, og þegar hann þóttist til
þess fær réðst hann í að festa
kaup á vélbáti, sem hét
Guðmundur.
Þessi bátur var um 8 tonn að
stærð og búinn Alpha-vél, en þær
vélar voru mjög algengar I bátum
þá og reyndist hinir beztu gripir.
Sölvi bróðir hans var þá kominn
á bát, sem hét Ranka, og var hann
aðeins minni. Það má vel ímynda
sér, að ungir menn þeirra tlma
hafi hugsað gott til fram-
tíðarinnar og dreymt stóra
drauma, hafandi undir fótum vél-
knúið far, sem ekki þótti svo lítil
framför frá því, sem áður var,
þegar áramar og handaflið voru
það eina, sem fyrir hendi var til
þess að knýja skipið áfram.
Bamingsróðurinn var mikill
þrældómur, og það erfiði felldi
margan manninn um aldur fram.
Það var miklum erfiðleikum
háð að stunda sjósókn frá
Hnífsdal á þeim árum, sem
Guðbjartur átti þar heima. Þarna
voru þá engin hafnarmannvirki
og ekki annað að gera en leggja
bátunum í legufæri á víkinni, svo
til fyrir opnu hafi. Fiskinn varð
að flytja I Iand á smábátum, sem
síðan voru dregnir upp á land
meðgangspili.
Þegar versnaði í sjóinn og ekki
var fært til róðra varð að fara með
bátana inn á Isafjörð, þar sem
þeim var lagt I leguf æri f sundun-
um. Síðan urðu sjómennirnir að
fara gangandi út Eyrarhlíð, 5 km
leið, oft í ófærð að vetri til. Oft
bar það við, að tíðarfar var breyti-
legt og þó að, ekki væri útlit fyrir
sjóveður að kveldi, höfðu veður
skipzt þannig í iofti að morguninn
eftir var orðið gott í sjóinn og
varð þá aftur að leggja á Eyrar-
hlíðina til þess að sækja bátinn.
Það gefur auga leið, að þessar
aðstæður voru hinar erfiðustu og
reyndu mjög á þrek mannanna,
sem urðu að búa við þær.
Asgeir Guðbjartsson og synir
hans, Guðbjartur og Sölvi, tóku
sig upp frá Hnífsdal árið 1930 og
fluttust til Isafjarðar, þar sem
þeir héldu áfram atvinnurekstri
sínum enn um skeið.
Á Isafirði voru aðstæðurnar
ólíkt betri en í Hnífsdal, þar voru
góð hafnarskilyrði og ýmislegt
annað til hagræðis við atvinnu-
reksturinn.
Árin, sem í hönd fóru eftir
1930, voru erfið fyrir sjávarútveg
og fiskverkun á Islandi. Þá skall
yfir hin eftirminnilega kreppa í
fjármálalífi margra landa og
markaðsverð á útflutnings-
afurðum sjávarútvegsins féll
mikið. Afleiðing þess varð sú, að
margir, sem stunduðu útgerð,
urðu að hætta þeim atvinnu-
rekstri vegna þessara erfiðleika.
Þá var svo til öll fiskverkun
bundin við saltfiskinn og því ekki
um það að ræða að fara aðrar
leiðir. En þessir erfiðleikar urðu
til þess að farið var að kanna,
hvað til bjargar mætti verða og
var þá farið að snúa sér að því að
frysta fiskinn, þó að í smáum
mæli væri fyrst f stað.
Guðbjartur var ekki á því að
gefast upp við útgerðina og sótti á
brattann, þótt þungt væri fyrir
fæti. Hann réðst í að kaupa sér
stærri bát, hét sá Venus, um 12
tonn að stærð, sem þótti nú
aldeilis skip á þeim tíma. Þegar
Ásgeir faðir Guðbjarts gerðist
aldraður hættu þeir feðgar allri
fiskverkun og var aflinn þá
seldur þar, sem hagkvæmast þótti
hverju sinni.
Þegar Hálfdán Hálfdánsson frá
Búð í Hnífsdal stofnaði fyrirtækið
Norðurtangann h/f og reisti hrað-
frystihús á Isafirði, gerðist
Guðbjartur þar meðeigandi, en
hann hafði þá selt bát sinn og
hætt allri sjósókn, þar sem
heilsan varfarin að gefa sig.
Guðbjartur var alla tíð mjög
farsæll skipstjóri og aflasæll í
meira en meðallagi. Hann hafði
jafnan valinn mann í hverju rúmi
og sömu mennirnir voru með hon-
um í áratugi, enda var skip-
stjórinn með afbrigðum
umgengnisgóður og hið mesta
ljúfmenni. Einstök prúðmennska
í orðum og allri framkomu var
hans aðalsmerki.
Guðbjartur fór mjög vel með
allt, sem hann hafði undir hönd-
um, og hygg ég, að honum hafi
búnazt betur en mörgum öðrum
af því litla, sem útgerðin gaf af
sér á þeim árum, þótt oft væri við
mikla erfiðleika að etja.
EJtirtekjurnar voru ekki alltaf
miklar í krónutölu, en það vill nú
oftast verða svo, að þeir, sem af
alúð og ýtrustu hagsýni
umgangast verðmætin, skapa sér
oft betri afkomu en almennt
gerist.
Það mun hafa verið reyndin, að
þó að Guðbjartur sækti sjóinn af
miklu kappi og ósérhlífni, þá var
hann ekki svo sem ætla mætti,
hraustUr maður. Harkan og
dugnaðurinn voru með
eindæmum og ekki var gefizt upp
fyrr en í fulla hnefana, en undan
varð þó að láta á bezta aldri.
Þegar Guðbjartur varð að hætta
sjósókn og fyrirtækið Norður-
tanginn var komið á laggirnar,
hóf hann að vinna þar og starfaði
hjá fyrirtækinu alla tíð síðan að
undanteknu tímabili, er hann var
við störf hjá Sundhöll ísafjarðar.
Þegar Norðurtanginn h/f hóf út-
gerð samhliða fiskverkuninni
kom það í hlut Guðbjarts að sjá
um allar þarfir útgerðarinnar út á
við og gerði hann það af sömu
umhyggju og samvizkusemi og
hann hafði áður séð um sinn eigin
rekstur.
Það var Guðbjarti áreiðanlega
mjög hugstætt að fá að sjá um
þessa hluti og fá þannig tækifæri
til þess að verða á ný þátttakandi
á þeim vettvangi, þar sem hann
hafði ungur haslað sér völl.
Hinn 16. desember árið 1925
var stór dagur í lífi Guðbjartar
því þá gekk hann að eiga’ eftir-
lifandi eiginkonu Jómnu
Guðbjartsdóttur frá Höfðaströnd
f Jökulfjörðum. Mikilhæf kona af
góðu fólki komin.
Börn þeirra urðu fimm, þrír
synir, Ásgeir og Hörður skip-
stjórar og Guðbjartur verkstjóri
og sæturnar Margrét og Ragn-
heiður. Allt er þetta mesta
myndarfólk, sem kosið hefur að
stofna heimili hér á æskuslóðum
og byggja upp bæjarfélagið með
störfum sínum og myndarlegri
aukningu á íbúafjöldanum.
Hjónaband Jónfnu og Guðbjarts
hefir verið til fyrirmyndar um
reglusemi og ráðdeild á öllum
sviðum. Þar hefir ríkt hófsemi og
fjármunum ekki verið sóað til
einskis nýtra lystisemda. Algjört
bindindi var gagnvart þeim
nautnalyfjum, sem hin íslenzka
þjóð lætur sér nú orðið sæma að
verja til fjármunum sínum í allt
of ríkum mæli, heilsu manna og
heimilislífi til stórskaða. Það var
mikið lán fyrir Isafjörð, þegar
Guðbjartur Asgeirsson tók þá
ákvörðun að setjast þar að. Þá
bættist við gildur hlekkur í þá
keðju, sem styrkir athafnalíf
þessa bæjar enn í dag. Það er
ómetanlega mikils virði fyrir
hvert byggðarlag, sem byggir alla
afkomu sina á svipulum sjávar-
afla, að þar sé ávallt að finna
trausta menn, sem áhuga hafa á
því að leggja út á sjóinn til fanga.
Guðbjartur var alla ævi virkur
þátttakandi í þessari baráttu,
hann var sem áður getur einn af
stofnendum Hraðfrystihússins
Norðurtangans h/f, sem nú er
orðið eitt af bezt uppbyggðu fyrir-
tækjum hér á landi á sviði fisk-
iðnaðar. 1 stjórn þessa fyrirtækis
var hann lengst af.
Þá var Guðbjartur einn af
stofnendum útgerðarfyrirtækis-
ins Hrannar h/f og stjörnarfor-
maður þess alla tíð.
Sú kynslóð, sem hafði náð full-
um þroska, þegar Island hlaut
fullveldisviðurkenningu árið
1918, var sér þess meðvitandi, að
hún hafði miklu hlutverki að
gegna. Þetta fólk hefir sennilega
lifað þá mestu breytingatíma, sem
yfir Island hafa gengið, og það
lagði í rauninni grundvöllinn að
þeim stórstígu framförum, sem
við verðum aðnjótandi í dag. Ef
við hugleiðum þær framfarir, sem
orðið hafa í sjávarútvegi, þá er
þetta allt ævintýri líkt. Spannar
tfmabilið vítt svið, nær frá ára-
skipinu til skuttogaranna, sem nú
Benedikt
son, —
Benedikt Friðriksson var fædd-
ur 7. des. 1909, ísaf jarðarvegi 6,
Hnífsdal, dáinn 4. nóv. 1973.
Voru foreldrar hans Guðrún
Ámadóttir og Friðrik Tómasson
skipstjóri, og varð þeim þriggja
barna auðið, voru þau Tómas, sem
var elztur, M argrét og Benedikt.
Vegir Guðs eru órannsakan-
legir. Þegar ég rita þessi fátæk-
legu kveðjuorð eru ég tæplega
búinn að átta mig á því að Bene-
dikt séhorfinnyfirmóðunmiklu
en þetta bar svo snögglega að,
Hann var að vinna inni í hrað-
frystihúsi, fór þá að finna til í
höfði og var þá ekið heim til sín,
en féll meðvitundarlaus i gólfið,
er hann kom inn í íbúð sína. Var
hann fluttur í skyndi á fjórðungs-
sjúkrahúsið á Isafirði. Hann
komst aldrei til meðvitundar eftir
að hann féll f gólfið heima hjá sér,
svo það má segja, að hann hafi
dáið í sama húsi og hann fæddist
í, eftir tæp 64 ár, en þar átti hann
heima óslitið öll sín æviár. Dánar-
orsök var heilablæðing.
Þegar Benedikt hafði ná 11 ára
aldri missti hann föður sinn og
bróður með m/b Hressing, sem
gerður var út frá Hnífsdal, en
fórst 12. maí 1922. Pabbi hansvar
skipstjóri á bátnum. Það voru aðr-
ar aðstæður þá en nú fyrir ekkj-
ur, er misstu fyrirvinnu sfna. Þá
voru engar bætur greiddar til
þeirra né barnalífeyrir. Það hefur
verið mikið áfall fyrir Guðrúnu
heitina og börn hennar að missa
eiginmann og son og þau föður og
bróður, báða i einu. Þau höfðu
keypt húsið Isafjarðarveg 6, árið
1909, og var það mjög stórt og
myndarlegt á þeirra tíðar mæli-
kvarða, og er það reyndar enn.
Þau voru rétt nýflutt f það, þegar
Benedikt heitinn fæddist. Húsið
var mest í skuld, þegar þeir feðg-
ar féllu frá, en þau gátu leigt út
frá sér, og mun það hafa bjargað
því, að hægt var að standa f skil-
um með afborganir. Svo fengu
þau 1000 ferfaðma lóð með hús-
inu á erfðafestu, sem gerði þeim
kleift að hafa málnyt. Eins og
áður segir, var Benedikt 11 ára, er
faðir hans fórst. Kom það fljótt f
hans hlut að fara að vinna í fiski
til að létta undir með móður sinni.
Benedikt var frábær elju- og
dugnaðarmaður, sem aldrei féll
verk út hendi, sama hvað hann
gerði. Við vorum vinnufélagar
bæði til sjós og lands um áratuga
skeið. Einnig vorum við sam-
stjórnarmenn i verkalýðsfélaginu
hátt á annan áratug. Við vorum
einnig samstjórnarmenn í Al-
þýðuflokksfélaginu meðan það
var við lýði. Eg kynntist Benedikt
fyrst 1928, er ég fluttist til Hnffs-
dal. Vorum við þá orðnir 18 ára
sigla í höfn einn af öðrum, með
öllum þeim undratækjum, sem
þar eru um borð.
Guðbjartur Ásgeirsson lifði það
að sjá syni sína taka á myndar-
legan hátt þátt f athafnalffinu,
sem tengt er við sjóinn.
I marz s.l. sigldi hér inn f
höfnina nýjasta skipið, sem
Guðbjartur hafði átt hlutdeild í
að keypt var til bæjarins. Það var
skuttogari, sem ber nafn hans, og
Hörður sonur hans er skip-
stjórinn. Annar sonurinn, Ásgeir,
á von á sams konar skipi snemma
á næsta ári og þriðji sonurinn
hefir tekið við starfi föður síns í
landi og sér um, að það sé fyrir
hendi, sem skipin þurfa á að
halda til næstu veiðiferðar.
Það má því segja, að Guðbjartur
hafi með öryggi séð fram á það, að
þessum málum var vel borgið í
höndum afkomenda hans. Þegar
hann nú er lagður upp i ferðina
hinztu, sem við öll eigum fyrir
höndum, þá er arfurinn mikill,
sem hann lætur eftir til handa
Isafirði.
Sfðustu mánuðina, sem
Guðbjartur lifði, átti hann við
erfiða sjúkdómslegu að stríða,
hann andaðist á sjúkrahúsi Isa-
fjarðar laugardaginn 3. nóvem-
ber.
Eftirlifandi eiginkonu
Guðbjarts, börnum og öðrum ást-
vinum votta ég innilega samúð.
Guðmundur Guðmundsson.
Friðriks-
Minning
gamlir og hann að mestu búinn að
taka við búfjárráðum af mömmu
sinni, enda alltaf sívinnandi
heima, ef fri gafst. Það voru
margir steinar í blettinum, sem
þurfti að fjarlægja og þúfan, sem
þurfti að slétta yfir. En sunnudag-
arnir voru í heiðri haldnir í þá
daga, þá var hitzt og spjallað um
daginn og veginn.
Sælir eru friðflytjendur.
Ég minnist þess ekki, öll þessi ár,
sem ég hafði náin kynni af Bene-
dikt, að til misklíðar kæmi, hvorki
milli okkar né annarra samborg-
ara hans. Hann var greiðvikinn og
hjálpfús, en lét sig litlu skipta
metorð.
Hann verður áreiðanlega ekki
sakfelldur af almættinu fyrir að
upphefja sjálfan sig. Ég var svo
heppinn að fá Benedikt fyrir
verkstjóra við saltfiskstöðina Rán
h.f. og fórst honum það með ágæt-
um, enda vandvirkur og sam-
vizkusamur svo af bar. Þegar
línufiskurinn var metinn var út-
koman þessi: 96% N 1, netafiskur
84% N 1 og skreiðin að stórum
hluta á ítalíu.
Ég tel, að Benedikt, vinur minn,
hafi verið gæfumaður í lífinu.
Hann kvæntist gáfaðri ágætis-
konu, Ingibjörgu Guðmundsdótt-
ur, árið 1935. Þau eignuðust eina
dóttur bama Guðmundu Jónu,
sem gift er Ölafi Friðbjörnssyni
stýrimanni og eiga þau tvö ung
börn, Benedikt og Ingibjörgu.
Margrét Friðriksdóttir, systir
Benedikts heitins fluttist til
Reykjavíkur og giftist þar Alex-
ander Guðmundssyniogeignuðust
þau 4 börn, en 3 eru á lífi. Mar-
grét er sjúklingur, en Alexander
er dáinn.
Vertu sæll, Benedikt minn, frið-
ur Guðs þig leiði.
Kæra Ingibjörg mín, við hjónin
vottum þér, dóttur þinni, tengda-
syni og litlu börnunum þeirra
okkar dýpstu samúð og biðjum
ykkur öll Guðs blessunar á þess-
um erfiðu stundum.
Helgi Björnsson.
HELGA JÓNSDÓTTIR,
Lyngholti,
Hrútafirði,
sem andaðist 13. nóv. sl..
verður iarðsungin frá
Prestsbakkakirkju. laugard 24.
nóv kl 14
Þorbjörn Bjarnason,
Þorsteinn Bjarnason.
Jóna Kristin Bjarnadóttir,
Hannes Þorkelsson
og dótturdætur.
t
Þökkum auðsýnda samúð við
andlát og jarðarför
JÓNU
EGGERTSDÓTTUR WAAGE,
Litla-Kroppi.
Aðstandendur.
t Faðir okkar,
HAIMNES HELGASON,
frá ísafirði,
andaðist að Hrafnistu, laugardaginn 17 þ m
Helgi Hannesson Sigurður Hannesson.