Morgunblaðið - 21.11.1973, Side 15

Morgunblaðið - 21.11.1973, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. NÓVEMBER 1973 15 Toppfundur EBE-landa Ermar- sund Samningur um gerð ganga undir Ermarsundhefur verið undirritaður. Hér skiptast utanríkisráðherrar Frakka og Breta, Michel Jobert og sir Alec Douglas-Home, á samningsskjölum að Chequers, sveitasetri brezka forsætisráðherrans, Edward Heaths, sem einnig er á mvndinni ásamt Georges Pompidou forseta. Kaupmannahöfn, 20. ncívember, AP. RlKISSTJÓRNIR Efnahags- bandalagslandanna urðu í dag ásáttar um, að. fundur æðstu manna landanna 14.—15. desem- ber hæfist með óformlegum sam- ræðum („arineldaviðræðum") þjóðarleiðtoganna um ástandið f Miðausturlöndum, sambúðina við Bandaríkin og önnur mál. sem eru efst á baugi í heiminum. Utanríkisráðherra og sér- fræðingar ræðast við samtímis. Seinna munu allir sitja sameigin- legan lokafund. Framkvæmda- nefnd Efnahagsbandalagsins verður reiðubúin að sitja fundinn ef um verður beðið. Þjóðarleiðtogarnir munu ákveða, hvort fleiri svipaðir fundir verði haldnir í framtíðinni og hve oft. Búízt er við, að á fundinum verði gefin út yfir- lýsing um „Sérstæði Evrópu", er verði grundvöllur framtíðarsam- skipta Efnahagsbandalags- landannaog umheimsins. Sir Alec Douglas-Home utan- rfkisráðherra Breta hvatti til þess í dag á fundi utanrikisráðherra EBE-Iandanna f Kaupmannahöfn, að æðstu menn Vestur-Evrópu kæmu til fundar þegar alvarlegt ástand ríkti. Ilann sagði, að þjóðarleiðtogarnir ættu f>Tst að Framhald á bls. 18 Pachman sviptur borgararétti Prag, 20. ndvember. AP. INNANRlKISRAÐUNEYTI Tékkóslóvakfu hefur svipt Ludek Pachman skákmeistara borgara- rétti ásamt öðrum áköfum stuðningsmanni Alexanders Dubseks, Jan Sling, fyrir að „stríða gegn mikilvægum hags- munum Tékkóslóvakíu erlendis“ að sögn daghlaðsins Prace í dag. Paehman var sjö sinnum varpað f fangelsi, þar til yfirvöld í Tékkó- slóvakfu leyfðu honum og fjöl- skyldu hans að fara úr landi fyrir einu ári. Hann er nú búsettur í Vestur-Þýzkalandi. Sling er sonur Otto Sling, starfsmanns kommúnistaflokks- ins, er var lfflátinn 1952 og endur- reistur 1963. Ekkja hans, Marion Weber, er brezk og sneri aftur til Fækka ferðum um þriðjung Seoul, 20. nóv., AP. STJÓRN Suður-Kóreu fyrirskip- aði f dag, að dregið yrði um 10—30% úr ferðutn leigubifreiða, vörubifreiða, strætisvagna, ferja og flugvéla í innanlandsflugi vegna versnandi ástands f olíu- málum landsins. Jafnframt skipaði stjörnin að öllum benzínstöðvum yrði lokað á sunnudögum. Erlendar leiguflug- vélar fá þvf aðeins að lenda, að þær eigi eldsneyti til næsta ákvörðunarstaðar. í Hong Kong hafa olíufélög ver- ið beðin að takmarka verulega eldsneyti til flugvéla. Bretlands 1968. Sonur hennar, Jan, fluttist til Bretlands 1972. Bæði Pachman og Sling hafa tekið virkan þátt í stjórnmálum í útlegðinni, og fyrir það hafa fjöl- miðlar í Tékkóslóvakíu oft tekið þá til bæna. Paehman sag’ði f símtali við AP á heimili sínu f Solingen i Ruhr, að sú ráðstöfun að svipta hann ríkisborgararétti bryti í bága við stjórnarskrána, og hann kvaðst mundu berjast gegn henni. Frétt- in kom honum á óvart. Skákmeistarinn sagði, að það væri ekki á valdi innanrikisráðu- neytisins að s\úpta tékkóslóvak fska borgara ríkisborgararétti, heldur dómstóla. „Enginn dóm- stóll hefur yfirheyrt mig i sam- bandi við þessa ráðstöfun," sagði hann. Ilann ætlar að hafa sam- band við lögfræðing sinn í Prag og segir, að eignir blandist inn i Sakaðir um ábyrgð á kólerufaraldrinum Napólí, 20. nóv. — AP. LÖGREGLAN hefur nú ákært 49 embættismenn í Napólí, suma háttsetta, fvrir að bera ábvrgð á kólerufaraldrinum, sem upp kom á Suður-Italíu í sumar og út'- breiðslu hans. Meðal embættis- mannanna voru hafnarstjórinn í Napóll, héraðslæknirinn, yfir- dýralæknirinn og heilbrigðiseft- irlitsmenn í allmörgum borgum og iKej um. Þessar kærur komu fram, er fyrsta hluta rannsóknar á orsök- um kólerunnar lauk. Forstjóri Napólíhafnar, sem er rekin af sjálfstæðu fyrirtæki, og héraðs- læknirinn voru sakaðir um að eiga einkahagsmuna að gæta i þeim opinberu málum, sem þá varða, um embættisafglöp og að hafa hleypt hættulegum fæðuteg- undum inn á almennan neyzlu- markað. Þeir hafi leyft ólöglega rækt skelfiska f menguðum sjó. Fleiri embættismenn voru sak- aðir um svipuð brot. Mengaðir skelfiskar, sem ræktaðir voru ólöglega, hafa verið taldir höfuð- orsök kólerufaraldursins, sem drap 22 manneskjur f og umhverf- is Napólí í sumar. málið. Hann útskýrði það ekki nánar. Pachman sagði, að í svipuðu máli 1967 hefði innanrikisráðu- neytið svipt rithöfund borgara- rétti og orðið að endurreisa hann árið síðar, þar sem dómstóll úr- skurðaði ráðstöfunina brot á stjórnarskránni. Þegar Pachman fór frá Tékkó- slóvakíu i nóvember 1972, var hann að því spurður, hvort hann vildi halda borgararétti sínum, og hann kvað já við. Paehman sagði, að ef hann hefði afsalað sér borgararétti, hefði hann sloppið undan anni tékkósh'n akfskra laga og fengið ýmis hlunnindi í Vestur-Þý'zka- landi. ,,En ég vil halda honum. því að ég ætla að snúa aftur til Tékkóslóvakíu, þegar ástandið breytist til hins betra." Ilann sagðist jafnvel mundu kæra inn- anríkisráðuneytið fyrir Mannrétt- indanefnd Sameinuðu þjóðanna, ef það reyndist nauðsyniegt. Morðinginn sjái fyrir fjölskyldu hinsmyrta? Miami 20. nóv. — AP DÓMARI einn í Miami, sem hafði haft í hyggju að gera tilraun með óvenjulega refs- ingu til handa 19 ára morð- ingja, hefur skipt um skoðun. Dómarinn, Dan Satin. hafði hugleitt, að í stað fangeisis- vistar væri það raunhæfari refsing, að dæma Larrv Clark, sem játað hefur morð á manni einum, til þess að sjá fyrir ekkju og fjölskyldu hins myrta. En eftir að hafa fengið í hendur skýrslu fangelsisprest- sins taldi Satin Ijóst, að Clark hefði „ekki sýnt neitt raun- verulegt samvizkubit vegna verknaðarins, enga löngun til að iðrast gerða sinna“. Og yfir- lýst löngun hans til að vinna fyrir fjölskvldu mannsins, sem hann myrti, hefði aðeins verið yfirborðsleg tilraun til aðkomast hjá fangelsisvist. Þvf fór þessi óvenjulega hegning út um þúfur. Larry Clark hefur veriðdæmdur í .30 ára fangelsi. Fimm fórust í óveðri Oklahoma Citj’ 20. nóvember — AP. í MIKLU óviðri, sem geisaði f gær í Oklahoma-ríki biðu fimm manns bana og talsverðar skemmdir urðu á mannvirkjum. Þrír hinna látnu voru smábörn. Um 50 manns til viðbótar slösuðust meira eða minna. Tugir heimila gjöreyðilögðust. Atyrtu Kekkonen — reknir af þingi Helsingfors, 20. nóvember, NTB. TVEIMUR þingmönnum Byggða- flokksins, Veikko Vennamo og Rainer Lemström, var f dag bann- að að taka þátt f störfum finnska þingsins í tva‘r vikur af þvf þeir úthúðuðu Urho Kekkonen forseta á þingi f sfðasta mánuði. Forsetar þingsins sögðu, að orðaval þingmannanna hefði ver- ið „óþinglegt" og þess vegna væri þeim refsað. I síðustu viku sakaði Lemström Kekkonen um að vera drukkinn. Tveggja vikna svipting þing- setu er þyngsta refsing, sem þing- forsetar geta veitt þingmöimum. Aðeins einu sinni áður hefur ver- ið gripið til þessa ráðs og þá var það Ifka Vennamo, sem reitti þingforseta til reiði. Stutt í úraníumvinnslu á Grænlandi, segja Danir ÞESS verður ekki langt að bfða, að Danir hefji úraníumvinnslu á Grænlandi og jafnframt hækkar verð á úranfum og yfir vofir skortur á úranfum á heimsmarkaðnum að sögn danska blaðsins J.vllandspost- en. Fyrst um sinn verða unnar um 15.000 lestir f Kvanefjalli við Narssaq. Um 5.600 lestir hafa fundizt við boranir í 17 milljónum lesta málms á svo- kölluðu miðsvæði, 340 grömm af úranfum eru í tonninu. 1 janúar birti jarðfræðistofn- unin á Grænlandi skýrslu um rannsóknir í Kvanefjalli, sjÖ mánuðum sfðar en ráðgert hafði verið, og vekur athygli á þeim með auglýsingum í tíma- ritum um námurekstur. Síðan verður þess beðið hvort rann- sóknirnar vekja áhuga. Námurekstur í Kvanefjalli er óvenjulega auðveldur vegna þess, að hann er nálægt bæ og sjó. Yfirmaður svokallaðrar- Risörannsóknar, dr. phil. C.F. Jacobsen, segir, að úraníumvinnsla í Kvanefjalli eigi að geta borgað sig ef úraní- umverðið er um 8-10 dollarar pundið. Verðið á úraníum hefur lækkað úr 12 dollurum f rúm- lega 8 dollara pundið. I nýút- kominni skýrslu OECD og IAEA, Alþjóðakjarnorkumála- stofnunarinnar, um úraníum- auðlindir heimsins er varað við úraníumskorti upp úr 1980, um sama leyti og starfræksla fyrsta danska kjarnorkuversins hefst. I skýrslunni eru kunnar úraníumauðlindir vestrænna landa áætlaðar 866.000 lestir og þar við bætast hugsanlegar úraníumauðlindir er nema 916.000 lestum sé miðað við 10 dollara hámarksverð pundið. Magnið eykst enn um 680.000 lestir sé miðað við 15 dollara hámarksverð, en lítið hefur verið hugað að þeim möguleik- um. Nýir úraníumfundir á undan- förnurn árum hafa aukið auð- lindirnar um 100.000 lestir á ári en það samsvarar áætlaðri árs- ne.vzlu kringum 1985. Magni, sem vitað er uni og talið er að finna megi í Kvane- fjalli samsvarar 4 til -i pro- mille úraníumauðlinda Vestur- landa. Talið er, að þar rnegi vinna 400 lestir árlega en það nægir til að reka tvö orkuver þegar lagt hefur verið i fjár- festingu er nemur 109 milljón- um danskra króna og reiknað er með 40 milljónum danskra króna í áríegan reksturskostn- að. Næsta sumar hefst leit að úraníum á stóru svæði á Aust- ur-Grænlandi norðan við Meistaravfk. Geilsavirkni verð- ur mæld úr lofti samkvæmt áætlun, sent er til þriggja ára.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.