Morgunblaðið - 21.11.1973, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. NÖVEMBER 1973
19
— Ræða Geirs
Framhald af bls. 12.
verja mundu reynast auðveldari
en samningar við Breta. Ég skal
engu um það spá, hvort samn-
ingar við Vestur-Þjóðverja tnuni
takast, þótt oft hafi það „legið í
Ioftinu“. En eins og venjulega í
samningaviðræðum, bæði við
Breta og Vestur-Þjóðverja, hefur
eitthvað það komið fyrir á síðustu
stundu, sem valdið hefur, að upp
úr samningaviðræðum hefur
slitnað. Ekki er ástæðulaust að
álykta, að sjávarútvegsráðherra
hafi stundum, þegar útlit var
fyrir, að samningar tækjust,
komið því svo fyrir, að þeir
strönduðu. Þá hafa aðrir ráð-
herrar í viðræðunefndínni ekki
haft kjark til þess að fara eftir
sannfæringu sinni, fyrr en for-
sætisráðherra tók með serstökum
hætti samningana við Breta í
sínar hendur. Breytir í þeim
efnum engu, þótt menn geti verið
ósammála um, hvernig forsætis-
ráðherra hefur að öðru leyti
haldið á málum.
Ég er ekki með þessu að halda
því fram, að sjávarútvegsráð-
herra vilji í sjálfu sér ekki sem
stærsta f iskveiðilögsögu okkar
islendingum til handa. En hitt er
ekki fjarri að ætla samkvæmt
gangi mála, að hann og flokkur
hans hafi gjarnan viljað hafa
landhelgismálið áfram á dagskrá
á þann veg, að ófriðarástand ríkti
við bandalagsþjöðir okkar i
Atlantshafsbandalaginu, til þess
að spilla varnarsamstarfi okkar
og annarra vestrænna rikja.
Mesta vandamálið í samninga-
viðræðunum við Vestur-Þjóðverja
er að ákveða, hvaða togarar
þeirra mega veiða hér við land.
Vestur-Þjóðverjar eiga um 87
togara að veiðum hér við land, þar
af eru um 39 þeirra, eða tæpur
helmingur, verksmiðju- og frysti-
togarar. Með því að binda okkur
við sömu reglu og við gerðum í
samningunum við Breta, er
sóknarmáttur Þjóðverja talinn
lítill, að þeirra mati, og þeir telja
ólíklegt að ná því aflamagni, sem
við jafnvel mundum vilja láta
þeim í té um skamman tíma.
A sl. fimm árum hefur meðal-
afli Þjóðverja hér við land verið
120 þús tonn að jafnaði, Fyrsta
árið eftir útfærsluna telja þeir sig
hafa veitt 93 þús tonn. íslend-
ingar munu hins vegar hafa boðið
þeim 65 þús tonna hámarksafla.
Þá er Ijóst, að í samningum við
Vestur-Þjóðverja yrði þeim gert
að veiða mun dýpra, lengra frá
landi en Bretum. Þeir mundu á
mjög fáum stöðum fiska upp að 12
mflna mörkunum, sem var aðal-
reglan í samningunum við Breta.
Mörkin yrðu almennt 20 — 30
sjómílur og í sumum tilvikum
munu Þ.jóðveriar reiðubúnir að
fara langt út fyrir 50 mflna
mörkin. Þetta kann að hafa
nokkra þýðingu á pappírnum, en í
raun skiptir það minna máli, þar
sem Þióðverjar hafa ávallt fiskað
djúpt undan landi og óvíst er, að
þessar svæðatakmarkanir hafi að
þessu leyti mikil áhrif á heildar-
aflamagn þeirra. En þess ber þö
að geta, að Þjóðverjar hafa lagt
sig eftir öðrum fisktegundum en
Bretar. Bretar hafa fyrst og
fremst veitt þorsk og flatfisk, en
Þjóðverjar sækjast eftir karfa og
ufsa, en þeir fiskstofnar eru ekki
í þeirri hættu sem þorskstofninn
er, að mati fiskifræðinga.
Fyrirvarinn um
gildistöku
tollalækkana.
SU þýðing er bundin við samn-
ingana við Vestur-Þjóðverja, ef
þeir takast, að öruggt er, að fyrir-
varinn umigildistökutollalækkana
á íslenzkum sjávarafurðum á
mörkuðum Efnahagsbandalags-
ins fellur brott. Er það mikilvægt
fyrir íslenzkan sjávarútveg.
Þannig mun tollur á ísfiski, þegar
1. janUar n.k., lækka Ur 16% 19%,
og síðan hverfur tollurinn alveg á
árinu 1977. Þessi tollalækkun get-
ur, þegar eftir næstu áramót,
munað 600—700 hundruð þúsund
krónum á góðri togarasölu, fsfisk-
sölu í Þýzkalandi eða Bretlandi.
Þetta hefur og gildi í sambandi
við sölu á rækju til Bretlands,
sem er eitt aðal markaðsland
okkar í þeirri grein, þannig að að
ljóst er að knýja verður á, að þessi
fyrirvari falli nú úr gildi.
Þegar gengið var frá bráða-
birgðasamkomulaginu við Breta
var gefið i skyn af stjórnvalda
hálfu, að Bretar mundu að sjálf-
sögðu, að sínu leyti, falla frá fyrir-
varanum og ef samningaum-
leitunum yrði haldið áfram af
fullum krafti við VesturÞjóð-
verja væru líkur til, að þeir
myndi ekki einir halda fast við
fyrirvarann. En reynslan verður
að þessu leyti að skera úr um það.
Á að semja við
fleiri þjóðir?
Þær raddir hafa heyrzt, eins og
kunnugt er, einkum af hálfu
kommúnista og sjávarútvegsráð-
herra, í sambandi við samninga-
viðræður við Breta og Vestur-
Þjóðverja, að við þyrftum í kjöl-
far þeirra að semja einnig við
aðrar þjóðir, sem raunar hafa
haldið skipum sínum utan 50
mílnanna og þannig viðurkennt
þær í verki.
Ég hygg að vara beri við þess-
um röddum. Því verður í fyrsta
lagi ekki trúað, að þessar þjóðir
hafi aðeins haldið sig utan 50
mflnanna til þess að nota Breta til
að ryðja sér braut til samninga
við íslendinga. 1 öðru lagi eru
forsendur, samninga okkar við
Breta og Vestur-Þjóðverja þær,
að þessar þjóðir þarfnist um-
þóttunartíma til að aðlaga sig
útfærslu fiskveiðilögsögunnar,
þar sem afli þeirra hafi verið um-
talsverður á Íslandsmiðum á
mörgum umliðnum árum og
ára tugum. Afli þeirra þjóða,
sem rætt er um að
semja beri við í kjölfar samn-
inganna við Bretaog Vestur-Þjóð
verja, þ.e.a.s. Pólverja, Rússa og
Austur-Þjóðverja, er hlutfallslega
mjög lítill. Við getum þess vegna
ekki varið þá samningagerð með
því, að þær þjóðir eða sérstök
byggðarlög þeirra þurfi um-
þóttunartima. Ef samið væri við
þær, byggðist samningagerðin
væntanlega á því, að þessarþjóðir
hefðu ætlað sér að auka sókn sína
á Islandsmið i framtíðinni, eftir
útfærslu okkar. Engin ástæða
sýnist að semja á slíkri forsendu.
Mikilvægast er að koma á friði i
landhelgismálinu til þess að ein-
beita sér að því aðstyrkja málstað
okkar á hafréttarráðstefnunni og
undirbúaútfærsluna í 200 mílur.
Meðan við eigum í deilum um
50 milurnar og atburðarásin á
miðunum býður hættum heim, er
ekki nema eðlilegt, að bæði sér-
fræðingar okkar á sviði alþjóða-
réttar, stjórnmálamenn og allur
almenningur sé bundinn við líð-
andi stund og atburði hennar. En
þegar friður er á komirtn, geta
allir landsmenn einbeitt sér að
því að tryggja 200 milna fiskveiði-
landhelgi. Ljóst er, að við öðlumst
ekki óskoruð yfirráð yfir 50
mílunum fyrr en 200 mílum eins
og þróun mála er nú háttað.
Við eigum að einbeita öllum
okkar kröftum að þvi að undirbúa
útfærslu fiskveiðilögsögunnar í
200 mílur fyrir árslok 1974. Sá
undirbúningur fer fram fyrir haf
réttarráðstefnuna og á henni
sjálfri, en mikilvægur þáttur þess
undirbúnigs er ekki sízt að nota
tímann til þess að gera okkur með
vísindalegum hætti grein fyrir í
samstarfi við útgerðarmenn og
sjómenn hvarvetna á landinu,
hvernig við getum hagað friðun
og hagnýtt fiskimiðin við landið
innan 200 mílnanna.
BÁTAR ÓSKAST
í viSskipti á komandi vetrarvertíS.
Straumnes h.f.,
Selfossi. Simi 99-1426
„Læra má af leik”
LEGO TANNHJÓL
Þroskandi skemmtun fyrir
unglinga á vélöld.
Ný tækifæri til þjálfunar
og þátttöku í tækni nútímans.
/u-------------------------------
/ LEGO DUPLO
/ Stórir LEGO-kubbar fyrir
\ yngstu börnin.
\ Einkum ætlaðir ungum börnum,
\ i——| sem enn hafa ekki náð öruggri
\ l stjórn á fingrum sínum.
Njótið góðrar skemmtunar heima.
AÐALSKRIFSTOFA
REYKJALUNDI,
Simi 91 66200
Mosfellssveit
SKRIFSTOFA
I REYKJAVlK
Suðurgata 10
Sími 22150
flúrpípur í möngum stœrðum
og litum. HEILOSÖLUBIRGOIR
___________®
heimilistæki sf
Sætún 8 sími 24000
PHILIPS
PHIUPS