Morgunblaðið - 04.12.1973, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 04.12.1973, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. DESEMBER 1973 11 LEYNDARDÓMUR SVARTSKEGGS SJÓRÆNINGJA Önnur bókin um þá félaga Bob, Pete og Júpiter, sem mynda Njósnaþrenninguna, að ógleymdun Alfred Hitchcock. Hinir tápmiklu félagar í Njósnaþrenningunni eru enn við sama heygarðshornið; haldnir óseðjandi löngun til þess að vera leynilögreglumenn og leysa hverskonar leyndardóma. Ævintýralöngunin rekur þá út í margs konar hættur og ævintýri. . VARÚLFUR í VÍGAHUG Fjórða bókin um Chris Cool ungnjósnara. Bandaríska leyniþjónuStan sendir tvo af sínum færustu njósnurum, Chris Cool og Geronimo Johnson, austur fyrir járntjald til þess að bjarga þaðan vinveittum manni, en þeir koma of seint. Minnstu munar að Chris sé hæfður með eiturör og margt fer öðru vísi en ætlað var. Leikurinn berst síðan til Austurlanda og svo aftur austur fyrir járntjaldið, og allan tímann eiqa þeir í höggi við harðsvíraða glæpamenn. EMMA „Elskan mín, ég er hrædd um að það geti orðið langt þangað til að við sjáumst næst. Allir eru mjög ánægðir með kvikmyndina mína og umboðsmanni mínum þykir líklegt að þeir bjóði mér langvarandi samn- ing. Hann gæti jafnvel orðið til fimm ára". Fimm ár, orðin syrtu fyrir augum Emmu. Eftir fimm ár yrði hún sextán ára, nærri fullorðin. Barna- og unglingabœkur 1973 Örn & Örlggur, Vesturgötu 42. — Sími 25722. PADDINGTON KEMUR TIL HJÁLPAR Hugh Lofting f¥\ DagSinnur M dýralækmr og sjorænmgiarixir Al Perkins umskrifaði fyrír byrjendur í lestri Andrés Kristjánsson íslenzkaði Þriðja ævintýrið um Perúbjörninn, sem getur talað og býr með Brownfjölskyldunni. Nú eru þrjú ár liðin síðan hinn gunnreifi hrakfallabálk- ur, PADDINGTON Perúbjörn, hélt innreið sína á ís- lenzkan bókamarkað. Paddi eins og hann er venjulega kallaður, gengur um með rauðan, háan hatt, og hefur sínar eigin skoðanir á lífinu, sem fara því miður ekki alltaf í sama farvegi og annarra. Þess vegna lendir Paddi í alls konar ævintýrum og klandri, enda er hann skjótur að taka ákvarðanir og framkvæma þær, en hugsar minna um afleiðingarnar — og raunar alls ekki fyrr en það er allt of seint. 1 Paddington ] kemur til hjálpar MICHAEL BOND DAGFINNUR DÝRALÆKNIR OG SJÓRÆNINGJARNIR — BYRJENDABÓK — Dagfinnur dýralæknir er á leið heim frá Afríku á skipinu sínu og með honumeru öll dýrin, en þá kemur babb í bátinn, sjóræningjar ráðast á þau. En Dagfinnur dýralæknir drepst nú aldrei ráðalaus og með aðstoð vina sinna, dýranna, finnur hann upp ráð til þess að losna við Ben Ali sjóræningja og félaga hans. Allt fer vel að lokum, sem betur fer. Myndir gerði Pcggy Fortnum Örn Snorrason þýddi LEYNDARDOMUR VILLA ROSA Buckingham-fjölskyldan fer í ferðalag itl Ítalíu og ætlar að dvelja á hótel Villa Rosa í miðaldabænum Orvieto. Á leiðinni lenda þau strax í erfiðleikum og ævintýrin bíða þeirra á Villa Rosa, þar sem þau flækjast I net alþjóð- legs glæpahrings. Útlitið er stundum svart, en að lokum afhjúpar hinn þrautseigi Símon le.yndardóm Villa Rosa og flettir ofan af víðtækum samtökum um stuldi á frægum listaverkum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.