Morgunblaðið - 04.12.1973, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 04.12.1973, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. DESEMBER 1973 Aðalfundur L.Í.U.: Skólanemendum verði gef- ið frí, þegar mikið berst að AÐALFUNDI Landssambands fslenzkra útvegsmanna lauk á föstudaginn með stjórnarkjöri og var Kristján Ragnarsson einróma endurkjörinn formaður sam- bandsins. Á fundinum voru sam- þykktar nokkrar ályktanir, meðal annars var samþykkt ályktun um fyrirsjáanlegan vinnuaflsskort á fiskiskipum og fer hún hér á eftir: „Aðalfundur L.Í.U. 1973 lýsir þungum áhyggjum yfir fyrir- sjáanlegum vinnuaf lsskorti á fiskiskipum og 1 fiskvinnslustöðv- um, einkum á næstu vetrarvertíð. Telur fundurinn óhjákvæmilegt, að ríkisvaldið bregðist skjdtt og ákveðið við þessum vanda og leiti allra ráða til að leysa hann. Bendir fundurinn á eftirfarandi úrræði: 1. Sjómönnum og fiskiðnverka- fólki verði veitt sérstök rffleg skattfrfðindi og hætt verði þeirri ofsköttun, sem nú tíðkast á tekjur, sem fólk aflar með því að leggja á sig mjög mikla vinnu til þess að bjarga verðmætum og skapa verðmæti, sem færu for- görðum, ef þetta fólk fengist ekki til að leggja á sig af mikilli fórn- fýsi, störf, sem ekki er krafizt af öðrum stéttum. 2. Að skólastjórum framhalds- skóla séu gefin fyrirmæli um að haga kennslutíma i skólum sín- um, — í. samráði við fræðsluyfir- völd og sveitastjórnir — þannig, að einstökum bekkjardeildum, einni eða fleiri, sé veitt frf frá kennslu, þegar upp kemur tíma- bundinn mannaflaskortur, einkum á vetrarvertíð, enda verði Happdrættið í fullum gangi NÚ FER hver að verða síðastur að gera skil í Happdrætti Sjálfstæð- isflokksins. Dregið verður næst- komandi laugardag í þessu glæsi- lega happdrætti með 11 vinning- um. Þeir, sem hafa fengið heim- senda miða, eru beðnir að gera skil strax. Greiðslur eru sóttar ef óskað er. Skrifstofan að Laufás- vegi 47 er opin alla daga til kl. 10 e.h., sími 17100. skapaðir möguleikar á að bæta slikum nemendum tapaðan náms- tima með framlengingu á kennslu að vorinu. — Mælir fundurinn með því, að þessi mál verði til frambúðar könnuð rækilega á grundvelli þingsályktunartillögu á þingskjali 18, sem flutt hefur verið á yfirstandandi Alþingi. 3. Ríkissjöður og sveitasjóðir dragi stórlega úr framkvæmdum AKEYRSLA Á TÍMABILINU frá því eftir há- degi á laugardag fram til mánu- dagsmorguns var ekið á bláa Dodge-bifreið, R-34422, á stæði við Asparfell 8 og hurð hægra megin dælduð. Þeir, sem kynnu að geta gefið upplýsingar um ákeyrsluna, eru beðnir að láta lög- regluna vita. sinum frá áramótum til vetrar- vertíðarloka. 4. Athugaðir verði möguleikar á að flytja inn erlent vinnuafl fyrir sjávarútveginn eða til verkefna, sem myndu leysa af hólmi vinnuafl, sem ynni við sjósókn og fiskvinnslu. Eins og fyrr segir var Kristján Ragnarsson endurkjörinn for- maður L.Í.Ú, en aðrir í stjórn eru: Agúst Flygenring, Hafnar- firði, Andrés Finnbogason, Reykjavik, Baldur Guðmundsson, Reykjavík, Björn Guðmundsson, Vestmannaeyjum, Hallgrímur Jónasson, Reyðarfirði, Matthías Bjarnason, ísafirði, Stefán Pétursson, Húsavík, Tómas Þor- valdsson, Grindavik, Þórður Öskarsson, Akranesi, Þorsteinn Jóhannesson, Garði, Marteinn Jónasson, Reykjavík, Valdimar Indriðason, Akranesi og Vilhelm Þorsteinsson, Akureyri. Frjálslyndi flokk- urinn stofnaður NVR stjórnmálaflokkur, Frjáls- lyndi flokkurinn, var stofnaður f Reykjavík laugardaginn 1. des sl. Kjiirin var 29 manna stjórn og eiga sæti f henni fulltrúar frá öllum kjördæmum landsins. For- maður flokksins var kjörinn dr. Bjarni Guðnason, alþingismaður Og prófessor, en varaformaður frú Inga Birna Jónsdóttir, formaður Menntamálaráðs. — Bjarni Guðnason tilkynnti á Alþingi í gær, að hann teldi sig héðan i frá þingmann Frjálslynda flokksins. Um 70-80 manns sóttu stofn- fundinn, en ákveðið var að halda framhaldsstofnfund á næsta ári, þar sem gengið yrði frá rækilegri stefnuskrá og lögum flokksins. í samtali við Mbl. i gær sagði Bjarni Guðnason, formaður flokk- sins, að til stofnfundarins hefði verið boðað með skömmum fyrir- vara, því að staðan hefði verið metin svo, að innan tíðar „gæti dregið til stórtíðinda í íslenzkum stjórnmálum, ekki sizt eftir upp- gjöfina í landhelgismálinu," eins og Bjarni orðaði það. Er Mbl. spurði Bjarna um helztu stefnumál flokksins, svaraði hann: Stöðvum óðaverð- bólgunnar, sem er að umturna þjóðfélaginu, brottför hersins, gjörbreyting í skattamálum og aukið lýðræði utan hinna reglu- bundnu kosninga á fjögurra ára fresti, m.a. með því að viðhafa þjóðaratkvæði um mikilvæg mál, t.d. NATO-aðildina. — Þá taldi Bjarni afar mikilvægt að rjúfa samtryggingar- og valdakerfi gömlu flokkanna, sem lamaði þá og rændi getu til að gera nauðsyn- lega hluti. Á stofnfundi Frjálslynda flokksins var gerð ályktun, þar sem þvi er lýst yfir, að stofnfund- urinn telji þingmann flokksins (Bjarna Guðnason) óbundinn í afstöðunni til samstarfs nú- verandi stjórnarflokka. Þannig getur farið, ef aðgát er ekki höfð. Myndin er tekin þegar brann hjá Sláturfélaginu í sumar. „Eldhættuhátíð” fer senn í hönd NÚ FER senn í hönd sá tími, sem hvað varhugaverðastur hefur þótt sakir slysa- og eldhættu, þ.e.a.s. jólin — hátfð kertaljósanna og áramótin hin mikla hátíð bál- kasta og skotelda. Af þessu tilefni boðaði Rúnar Bjarnason slökkvi- liðsstjóri blaðamenn á sinn fund, en slfkir fundir eru jafnan haldn- Vopnin munu snúast í höndum fasistastjórnar herforingjanna — segir chilenski útlaginn, Rafael Carero 11 „Andspyrnuhreyfing alþýðunnar f Chile einbeitir sér nú að því að sameina öll þau öfl, sem and- snúin eru fasistastjórn herfoingj- anna, en það er mikill meirihluti þjóðarinnar. Allir flokkar sem áttu sæti í einingarstjórn Allend- es, svo og meirihluti þjóðarinnar. Allir flokkar sem áttu sæti f ein- ingarstjórn Allendes, svo og meirihluti Kristilega demókrata- flokksins, sem þá var í stjórnar- andstöðu, eru andvfgir herforing- unum. Andspyrnuhreyfingin vinnur þannig að þvf núna að endurskipuleggja baráttuna, en er ekki árásar- eðagagnbyltingar- stöðu.“ A þessa leið mæltist Rafael Carero, stúdent frá Chile, sem nú er útlægur og hér staddur f boði Stúdentaráðs, þegar hann svaraði spurningum btaðamanna í gær. Carera stundaði nám í verkfræði við Kaþólska háskólann í Chile, er valdaránið átti sér stað, en fór úr landi 4. september og starfar nú á vegum Alþjóðasamtaka stúdenta og Andspyrnuhreyfing- ar Chilebúa erlendis. „Eini styrkur herforingja- stjórnarinnar er herinn," sagði Carero, „og andspyrnuhreyfingin mun beita sér fyrir því að grafa undan honum, því um leið og her- mennirnir komast að raun um, að þeir hafa verið blekktir mun her- inn og stuðningur hans við stjórn- ina klofna. Og það yrði þá ekki í fysta skipti, sem vopnin snúast f höndum fasista. Um 70% her- manna í Chile eru komin úr verkamanna- og bændafjölskyld- um, og því munu þeir fáir her- mennirnir, sem ekki eiga ein- hvern ættingja sem orðið hefur fyrir barðina á fasista- stjórninni. Alveg síðan her- foringjarnir tóku völdin, hafa hermennirnir verið einangraðir frá fjölskyldum sínum. Þetta á- stand getur magnazt, unz spreng- ing verður." Carero vildi ekki spá um ná- kvæma timasetningu alþýðubylt- ingar, — það væri andspyrnu- hreyfingarinnar að ákveða það í fyllingu tímans. Ilann kvað hreyf- ínguna myndu bæði nota löglegar undirróðursaðgerðir, en einnig væri vopnuð barátta óhjákvæmi- leg. Ekki vildi hann segjatilum. hvaðan andspyrnuhreyfingin fengi vopn tilslíkra áíaka. Ilann taldi ljóst, að herforingja- stjómin væri ekki traust í sessi, þannig segir hún enn vera stríðsá- stand í landinu þremur mánuðum eftir valdatöku sína. Frá kl. 10 á kvöldin til 7 á morgnana er út- göngubann í gildi, og þeir sem voga sér út, eru umsvifalaust skotnir. Auk þessa ágerðust efna- hagsörðugleikar stöðugt með óða- verðbólgu, en hins vegar væru laun fryst. Þó taldi Carera ljóst, að herforingjastjórnin nyti meiri fjárhagsaðstoðar og velvildar frá Bandaríkjunum en einingar- stjórn Allendes sáluga hefði not- ið, og strax í september hefði hún hlotið 24 milljóna dollara lán frá bandarískri lánastofnun. Sagði Carera, að fasistastjórnin þakkaði fyrir sig, t.d. væri þegar farið að tala um að afhenda þjóð- nýttu koparnámurnar þeim bandarísku fyrirtækjum, sem þær áttu. Sagði Carera, að alls hefði her- foringjastjórnin látið aflifa um 30.000 manns eftir valdatöku sína. Ekki væri auðvelt að segja til um, hvert væri raunverulegt fylgi stjórnarinnar meðal her- manna, en vissar heimildir hermdu, að heilar herdeildir hefðu verið skotnar vegna and- stöðu, t.d. hefðu 300 undirforingj- ar við herskólann verið teknir af lífi. Að lokum sagði Carera, að and- spyrnuhreyfingin skoraði á allar ríkisstjórnir, sem vildu telja sig lýðræðislegar að viðurkenna ekki herforingjastjórnina, þvi hún ætti ekki traust þjóðarinnar og hefði ekki umboð hennar. Lögleg stjórn landsins væri sú, sem þjóð- in veldi sér sjálf. Með þvi að við- urkenna fasistastjórn herforingj- Rafael Carero á samkomu stúd- enta f Háskólabfói á sunnudag. (Ljósm. Mbl.: Sv. Þorm.) anna væru löndin að viðurkenna um leið réttmæti þessi að myrða löglega kosinn forseta, hneppa þingmenn í varðhald, líf- láta tugþúsundir manna og aðra óvirðu, sem hingað til hefði ekki verið talin merki lýðræðis. Einnig talaði á blaðamanna- fundinum í gær norskur gestur Studentaráðs, Dag österdal, og flutti Islendingum almennan stuðning norsku þjóðarinnar ílandheldismálinu og gerði einnig grein fyrir afstöðunni til NATO og herstöðvarinnar í Keflavík. ir ár hvert f þeim tilgagni að vekja menn til umhugsunar vegna þessara tveggja „eldhættu- hátfða“. Rúnar vakti athygli á því, að tíðni slysa vegna eldsvoða I des- ember og janúar hefðu farið lækkandi hin síðari ár, en áður slógu þessirtveir mánuðir öll met íþessum efnum. Þessari jákvæðu þróun vildi Rúnar m.a. þakka það, hversu vel fjölmiðlar hefðu tekið á þessum málum nú á sið- ustu árum. Kvaðst Rúnar vona, að hið sama yrði upp á teningnum nú og þrátt fyrir þessa jákvæðu þróun væri vert að haf a f huga, að sjaldan er góð vfsa of oft kveðin. Full ástæða er því að hvetja fólk til að gæta sérstakrar varúðar i meðferð eldsyfir hátiðirnar. Rúnar rakti síðan starfsemi slökkviliðsins á þessu ári, en árið hefur verið tiltölulega gott miðað við undanfarin ár. Útköll voru tæplega 1 á dag eða svipað og i fyrra. Brunatjón, sem húsa- tryggingar hafa bætt það sem af er árinu, nema um 15 milljónum króna, sem er einnig svipað og undanfarin ár. Mesta tjón áárinu hlaust vegna brunans f Sláturfél- agi Suðurlands í sumar. Svoköll- uð„göbb“ hafa veriðað meðaltali eitt i mánuði en slíkt athæfi má í flestum tilf,ellum rekja til ölóðra manna og óvita á barnsaldri. - Á fundinum voru einnig staddir þeir Bjarki Elíasson yfirlögreglu- þjónn, Stefán Jóhansson lög- regluvarðstjóri, Pétur Hannes- son, forstöðumaður hreinsunar- deildar ' Reykjavíkurborgar, Tryggvi Þorsteinsson, læknir á slysadeildBorgarspítalans, Gunn- ar Ólafsson frá eldvarnareftirlit- inu og Gunnar Sigurðsson vara- slökkviliðsstjóri, og gerðu þeir grein fyrir viðbúnaði vegna ára- mótabrenna, jólatrésskemmtana, sölu á skoteldum og væntanlegum slysum, sem kunna að vera þessu samfara, en þessum atriðum verða gerð nánari skil hér í blað- inu er nær dregur jólum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.