Morgunblaðið - 04.12.1973, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 04.12.1973, Blaðsíða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. DESEMBER 1973 DJtGBÓK ÁRIMAÐ HEII-iA Þann 12. ágúst voru gefin saman í hjónaband í Hofskirkju í Öræfasveit af séra Fjalari Sigur- jónssyni, Ásdfs Gunnarsdóttir og Sigurður Magnússon. Heimili þeirra er að Arnarhrauni 14, Hafnarfirði. (Ljósmyndast Jóns K. Sæm.). Þann 11. ágúst voru gefin saman í hjónaband í Kópavogs- kirkju af séra Þorbergi Kristjáns- syni, Ingibjörg Jónsdóttir og Einar D. Hálfdánarson. Heimili þeirra verður að Laugarnesvegi 44, Reykjavík. (Ljósmyndast. Þóris). Þann 18. ágúst voru gefin saman í hjónaband af séra Sig- urði Sigurðssyni, Alfhildur Benediktsdóttir og Sigurður H. Iíermannsson. Heimili þeirra verður í Súðavík. (Ljósmyndast. Þóris). Þann 25. ágúst voru gefin sam- an í hjónaband í Neskirkju af séra Gunnari Benediktssyni, Ragna Drífa Skarphéðinsdóttir og Sveinn Benediktsson. Heimili þeirra verður að Bjarnhólastíg 4, Kópavogi. (Ljósmyndast. Þöris). Kvöld-, nætur- og helgidaga- varzla apóteka f Reykjavfk vik- una 30. nóv. — 6. des. er f Reykjavíkurapóteki og Laug- arnesapóteki. Nætur- og helgidagaþjónusta er í Reykja- vfkurapóteki. Læknastofur eru lokaðar á laugardögum og helgidögum, en læknir er til viðtals í göngudeild Landspítalans f síma 21230. Almennar upplýsingar um lækna- og lyfjabúðaþjónustu í Reykjavík eru gefnar í símsvara 18888. Mænusóttarbóiusetning fyrir fullorðna fer fram í Heilsu- verndarstöðinni á mánudögum kl. 17.00—18.00. Vaktmaður hjá Kópavogsbæ — bilanasími 41575 (símsvari). Tannlæknavakt er f Heilsu- verndarstöð Reykjavíkur alla laugardaga og sunnudaga kl. 17—18. Sfmi 22411. Lárétt: 1. kjökrað 6. líferni 8. þann sem sígur 11. skel 12. stuldur 13. ósamstæðir 15. tónn 16. rösk 18. jurtin Lóðrétt: 2. Kvenmannsnafn 3. skammstöfun 4. mjög5. reyktir 7. ofninn 9. svelgur 10. lærdómur 14. þjóti 16. samhljóðar 17. spil. Lausn á síðustu krossgátu Lárétt: 1. árana 6. váa 7. sarp 9. án 10. kassana 12. IR 13 ilin 14. önd 15. álasa Lóðrétt: 1. aurs 2. rápsins 3. AA 4. Asnana 5. óskina 8. áar 9. ani 11. alda 14. ÖA Heimsóknartími sjúkrahúsa Barnaspftali Hringsins: kl. 15—16, virka daga, kl. 15—17 laugard. og kl. 10—11.30 sunnud. Borgarspftalinn: Mánud.—föstud. kl. 18.30—19.30. Laugard. og sunnud. kl. 13.30— 14.30 og kl. 18.30—19. Flókadeild Kleppsspftala: Daglega kl. 15.30—17. Fæðingardeildin: Daglega kl. 15—16 og kl. 19—19.30. Fæðingarheimili Reykjavíkur: Daglega kl. 15.30—16.30. Heilsuverndarstöðin: kl. 15—16 og kl. 19—19.30 daglega. Hvítabandið: kl. 19—19.30, mánud.—föstud. laugard. og sunnud. kl. 15—16 og 19—19.30. Kleppsspftalinn: Daglega kl. 15—16 og 18.30—19. Kópavogshælið: Eftir umtali og kl. 15—17 á helgidögum. Landakotsspftali: Mán- ud.—laugard. kl. 18.30—19.30. Sunnud. kl. 15—16. Heimsóknar- tími á barnadeild er kl. 15—16 daglega. Landspítalinn: Daglega kl. 15—16 og 19—19.30. Sólvangur, Hafnarfirði: Mán- ud.—laugard. kl. 15—16 og kl. 19.30— 20. Sunnudaga og aðra helgidaga kl. 15—16.30. Vffilsstaðir: Daglega kl. 15—16 og kl. 19.30—20. f dag er þriðjudagurinn 4. desember, 338. dagur ársins 1973. Barbárumessa, eftir lifa 27. dagar. Ántegisháflæði er kl. 00.53, síðdegisháflæði kl. 13.13. Heldur er orðið harla nærri þér, í munni þínum og hjarta þínu, svo að þú getur breytt eftir þvf. (V. Mósebók 30.14.). f/ BEZTUR FRÁ VINSTRI" — sagði forswtis- ráðherra, þegar hinn frtegi teiknari Cwert Karlsson teiknaði hann í gœi fyrir Vísi ást er . . . . . . að veita meira en þegið er TM Rey U.S P<it. OH All Gyt.ts reserveci • 197? Iiy l.,s Aoqeles T.mes | BRIDC3E ~| Danmörk sigraði Tyrkland í Evrópumótinu 1973 með 17 stig- um gegn 3. Hér er spil frá þessum leik. Norður: S A-K-D-10-7 H 6 T A-G-10-5 L Á-K-3 Vestur: S G-8-5-3-2 H Á-10-9-5 T 8-2 L10-9 Suður S 9-4 H K-4-2 T K-9-4-3 L G-8-6-5 Austur: S 6 H D-G-8-7-3 T D-7-6 L D-7-4-2 Dönsku spilararnir sátu N—S við annað borðið og þar varð loka- sögnin 5 tíglar og vannst sú sögn. Við hitt borðið sátu tyrknesku spilararnir N—S og sögðu þann- 1 SÁ IMÆSTBESTl Hafið þið heyrt um apann, sem komst yfir eintak af riti um þró- unarkenningu Darwins? Apinn átti heima i dýragarði, og þegar hann hafði kynnt sér efni ritsins lék hann á als oddi, og æpti til hinna dýrannaf dýragarðinum: — Ligga-ligga-lá! Ég er lika bróðir dýragarðsstjórans! Ifréttih Hvöt, félag sjálfstæðiskvenna, heldur jólafund sinn f kvöld kl. 20.30 i kaffiteríunni f Glæsibæ. Séra Þórir Stephensen flytur jóla- hugleiðingu, Ómar Ragnarsson skemmtir, og auk þess verður jólahappdrætti. Kvennréttindafélag fslands heldur jólafund sinn annað kvöid, 5. desember, kl. 20.30 að Hall- veigarstöðum, niðri. Sigurveig Guðmundsdóttir, kennari, flytur jólahugleiðingu, þrjár ungar listakonur flytja ljóð og tónlist, og sýndar verða jóla- skreytingar. Þann 20. nóvember s.l. var dregið í happdrætti því, sem Slysavarnadeildin Eykyndill, Björgunarfélag Vestmannaeyja og Akóges-félögin á íslandi efndu til. Vegna þess hversu margir eiga enn eftir að gera skil, sér- staklega þeir sem eru úti á landi, reyndist nauðsynlegt að innsigla vinningsnúmerin. Happdrættisnefndin hefur beð- ið Mbl. um að beina því til þeirra, sem enn hafa ekki gert skil að gera það sem allra fyrst. Styrktarsjóði S.Í.B.S., Illlfar- sjóði, hefur borizt gjöf frá „bræðrum“ í Eyjafirði. Sendir Hlífarsjóður „bræðrum" þakkir, og óskar þeim alls góðs. | ÁHEIT og gjafir I Til kirkju Óháða safnaðarins og Kvenfélags kirkjunnar. Fanney kr. 10.000, til minningar um Jóhann Amason og Helgu Bjarnadóttur, Helga G. kr. 10.000. Helga Sveinsd. kr. 10.000, til minningar um Kristin Ág. Eiríks- son, Agnes og Guðrún, kr. 10.000, til minningar um Sigurbjörgu Gísladóttur, Filipus kr. 1.000, við kirkjudyr kr. 1.100, Sigrún Ásmundsd. kr. 500, Jón Kjartans- son kr. 500, Þórdís Þorsteinsdótt- ir kr. 1.000, Tómas S. kr. 1.000, Svanhildur kr. 5.000, fyrir sálma- bókum, Svanhildur kr. 1.000, Ónefnd kr. 5.000, fyrir sálmabók- um, S.G. kr. 5.000, í Bjargarsjóð, Oktavía kr. 3.000, J.H.A. kr. 1.500, Þóra Þorst. kr. 1.000, Björn Einarsson kr. 1.000, Sigrún Olafsd. kr. 1.000, Rannveig Einarsd. kr. 1.000, kona frá Vest- mannaeyjum kr. 1.000. Með þakklæti þegið. Til upplýs- ingar skal þess getið, að stjórn safnaðarins hefur fengið leyfi skattyfirvalda til þess að gjafir til kirkjunnar geti verið skattfrjáls- ar, samkvæmt lögum, sem um slíkt skattfrelsi gilda. Séra Emil Björnsson. Ut er komið 4. tölublað 49. ár- gangs Tfmarits Hjúkrunarfélags íslands. Blaðiðkemur út ársfjórð- ungslega, og er ritstjóri þess og ábyrgðarmaður Ingibjörg Áma- dóttir. í ritinu er grein um námsbraut f hjúkrunarfræðum innan Há- skóla islands eftir Ingibjörgu R. Magnúsdóttur deildarstjóra f heil- brigðirráðuneytinu, grein um heilbrigðisþjónustu f nútíma þjóðfélagi eftir Arinbjörn Kol- beinsson lækni, greinar um menntunarmál hjúkrunarfólks eftir Sigurveigu Sigurðardóttur og Guðfinnu Thorlacius, auk fræðslugreina um hjúkrun og annars efnis. | tMÝIH BORGARAR Guðrúnu Gunnarsdóttur og Há- koni Hákonarsyni, Aratúni 21, Garðahreppi, sonur þann 20. nóvember kl. 0.15. Hann vó tæpar 14 merkur og var 50 sm að lengd. Sigurleifi Þorsteinsdóttur og Sigurði Iilöðverssyni, Miklubraut 15, Reykjavík, sonur 21. nóvem- ber kl. 02.25. Hann vó tæpar 13 merkur og var49 sm að lengd. Stefaníu Snævarr og Ingimari Einarssyni, Hólavegi 17, Dalvík, sonur þann 20. nóvember kl. 12.05. Hann vó 15V5 mörk og var 51 sm að lengd. »g: Suður — Norður P 2 s 2 g 3 t 4 t 4 s 5 t 6 t Austur lét út hjarta drottningu, gefið var í borði, vestur drap með ási og lét út spaða. Ástæðan fyrir því, að vestur drap með ási, er sú, að hann telur mikla möguleika, eftir sögnum að dæma, að austur sé spaðalaus, en það reyndist ekki rétt. Sagnhafi drap með ási, lét út hjarta 5, drap með níunni í borði, tók hjarta kóng, kastaði laufi heima, tók síðan tígul ás, því næst laufa ás og kóng og þá var tromp látið út, drepið með kóngi og lauf trompað heima. Nú reyndi hann spaðann, en því miður tókst ekki að fella gosann og spilið tapaðist. — Sagnhafi getur unnið spilið með því að svfna spaða 10 og er alls ekki óeðlilegt að gera það eftir að vestur drepur f fyrsta slag að ástæðulausu með hjarta ási og lætur út spaða. Bendir þetta til þess, að hann eigi marga spaða. Pennavinir Noregur Elin Meldal, Box 3133, 4030 Hinna, Norge. Hún er 14 ára, hefur mikinn áhuga á hestamennsku og óskar eftir íslenzkum pennavini. Karen Götzsche Asoet, öreveien 39 B 3, N-1500 Moss, Norge. Karen segist hafa verið hér á ferð sl. sumar og hafi sér litizt svo vel á land og þjóð, að hún hiakki mikið til að koma aftur til lands- ins. Hún segist bara hafa saknað þess, er hún var hér að komast ekki f persónulegt samband við fólk og vill nú gjarnan bæta úr því. Hún óskar eftir bréfasam- bandi við konu milli fertugs og fimmtugs. Hún er gift og starfar utan heimilis hluta úr degi við náttúrufræðirannsóknir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.