Morgunblaðið - 04.12.1973, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 04.12.1973, Blaðsíða 4
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4 DESEMBER 1973 Fa jl Ití l. i III f. t \ iifAit; 22*0*22* RAUOARÁRSTIG 31 BÍLALEIGA CAR RENTAL 21190 21188 Itel 14444 • 25555 mm/rn IBÍUmGAMR^RENTAd /p BÍLALEIGAN felEYSIR CAR RENTAL 24460 í HVERJUM BÍL PIOMEER ÚTVARP OG STEREO Kasettutæki Hverf isgötu 18 86060 SKODA EVÐIR MINNA. Shoor LEIGAN AUÐBREKKU 44-46. SiMI 42600. HOPFERÐIR Til leigu í lengri og skemmri ferðir 8—60 far- þega bilar. KJARTAN INGIMARSSON. simi 86155 og 32716. MARGT SMÁTT GERIR EITT ST ^ SAMVINNUBANKINN VELA-TENGI 75i ' eZ-Wvllenkuppluny Conax Planox Vulkan Doppelflex Hadeflex. STURLAUGUR JÓNSSON & CO. Vesturgötu 1 6, s. 1 3280. STAKSTEINAR Eftirfarandi forustugrein birtist í dagblaðinu VIsi sl. föstudag. íslenzk hrollvekja (fyrir sterkar taugar) Ilvar sem menn telja sig f flokki, ættu þeir að gefa sér tóm til að huglciða hið ein- stæða ástand, sem hefur skap- azt í atvinnu- og efnahagsmál- urn. Vitum við eiginlega, hvað við erum að gera? Okkur ber að fhuga, hvort við ætlum vitandi vits að bjóða heim þvf ástandi, sem oftast hefur verið kennt við Suður- Ameríkurfki. Lengi höfum við verið í sköla verðlrólgunnar. Með rétti getum við sagt, að við þckkjum hana manna bezt, jafnvel að við kunnum stund- um að spila á hana. Þeir, sem telja sér hag að verðbölgunni, geta glaðzt í hjarta og sagt, að ekki eigi þeir að gæ.a bræðra sinna og aðeins vesalingar verði undir í verðbólgu- kapphlaupinu. Þetta sjónar- mið er rangt, en það á marga forvfgismenn, sem hafa valdið þvf, að svona er komið. En er það í rauninni ætlun okkar að ganga ertn lengra? Þykjumst við í alvöru hafa tileinkað okkur slfka kunnáttu í verðbólguspilinu, að við viljum leggja meira undir í von um meirigróða? Auðvitað ekki, kunna menn að segja. Ekki mun finnast stjórnmálamaður, sem mælir verðbólgu bót, hvað þá óðaverð- bólgu. En svo sem með sam- stilltu átaki höfum við skapað þessa stöðu og sett okkur f stell- ingar til að færa hana út. Verðbólguhugsunarháttur er meira en talnarcikningur. Verðbólgan sezt í sálir manna. Menn verða að fara geyst, troð- ast fram til þess að verða ekki troðnir undir. Þú verður að heimta sem mest þú mátt af öðrum, því að þeir heimta sem mest þeir mega af þér. Ef þú dregur úr ferðinni, ef þú dreg- ur úr kröfugerð þinni, átt þú nokkuð vfst að verða troðinn undir. Við höfum á þessu ári búið við talsvert meira en 20 prósent verðbólgu. Sú metverðbölga hefur leikið marga grátt. En þvf fer vfðs fjarri, að mikil von sé til úrhóta. Þvert á móti cr nú að þvf komið, að kjarasamning- ar eru runnir út, og svo grátt lcikna telja launþcgar sig af verðbólgukapphlaupinu, að þeir gera kröfur um meiri kauphækkanir en nokkru sinni áður. Ilcfðu kjarasamningar verið framlengdir óbreyttir í eitt ár enn, gætum við samt, að óbreyttri stjórnarstefnu búizt við, að verðbólgan yrði sízt minni á næsta ári en hún hefur verið í ár. Launþegar, sem fá kauphækkun 1. desember næst- komandi, eingöngu vegna vfsi- töluuppbóta, fá rúm sjö prósent hækkun. Með þeirri hækkun er aðcins verið að bæta upp verð- hækkanir á þriggja mánaða tímabfli. Vísitöluskrúfan eykur hraðann. Þ\f þyrfti engar grunnkaupsha'kkanir til þess, að verðbölgan yrði yfir 20 prósent. Menn geta þvf ímyndað sér, hvernig ástandið verður, þegar við bætast verulegar grunn- kaupshækkanir. Launþegar benda á, að ekki er unnt að búast við þvf, að þeir taki að sér hlutverk píslarvotta og geri ekki kröfur um kauphækkanir. Eigi að bæta úr skák, þarf heildaraðgerðir, sem rfkis- stjórn yrði að hafa forgöngu um. Við minnumst aðvörunar Ólafs Björnssonar alþingis- manns \ið „hrollvekju". En menn gleymdu inntaki þess orðs og stefndu beint f ófær- una. _ HH „ spurt og svarað Hringið f sfma 10100 kl. 10—11 frá mánudegi til föstudags og biðjið um Lesendaþjónustu Morg- Lesendaþjónusta MORGUNBLAÐSINS unblaðsins. □ Málefni aldraðra Guðný Jóhannsdóttir, Brautarlandi 9, Rcykjavik, spyr: „Hefur verið skipað í þriggja manna nefnd, sem sjá á um málefni aldraðra?" (Tillagafrá Albert Guðmundssyni um, að þessi nefnd skuli skipuð hefur verið samþykkt í borgarráði). Albcrt Guðmundsson svarar: „Nei, það er ekki búið að skipa í nefndina, en það vcrður gert alveg á næstunni.“ Q Virðisauka- skattur og kostnaður við viðhald fjölbýlishúsa Ingi Iljörleifsson, Hraun- bæ 96, Reykjavfk, spyr: „1. Hvað er virðisaukaskatt- ur? 2. Hvernig á að skipta sameig- inlegum kostnaði vegna utan- hússmálni ngar f jölbýlishúsa (viðhald)?“ Bergur Guðnason, lögfræð- ingur skattstjöra, svarar: „I fáum orðum sagt ervirðis- aukaskattur sama og söluskatt- ur. Sá meginmunur er þó á sölu- skatti, eins og við þekkjum hann, og virðisaukaskatti, að virðisaukaskattur;nn leggst á öll sölu- og frara.eiðslustig, en söluskatturinn i sinni núver- andi mynd aðeins á lokastigið, þ.e. við sölu til neytenda. Virðisaukaskattur er þvi fjöl- stigasöluskattur. Hvert fram- leiðslustig eða söluaðili inn- heimtir því einungis skatt af þeim virðisauka, sem myndazt hefur við meðferð hans á vör- unni (verðmætisaukning + álagning).“ Seinni spurningunni svarar Jón Ólafsson, skrifstofustjóri f félagsmálaráðuneytinu: 1 III. kafla laga um sameign fjölbýlishúsa frá 1959, 11. gr. segir svo: Allir ibúðareigendur eiga rétt eftir eignarhlutföllum til ákvörðunar um innréttingu og fyrirkomulag í þeim hluta fjölbýlishúsa, sem er í óskiptri sameign, þar með talið útlit hússins, girðing og skipulag lóðar, ennfremur um rekstur og viðhald hins sameiginlega, sbr. 13. gr., svo og gerð glers í glugg- um, og sker einfaldur meiri- hluti úr ágreiningi. — Hverjum íbúðareigenda er skylt að taka þátt f kostnaði af framkvæmdunum, sem lö^ega eru ákveðnar eftir þessarigrein og skiptist kostnaðurinn eftir eignarhlutföllum, sbr. þó 16. gr. (Þar stendur, að sameiginlegur rekstrarkostnaður, svo seni raf- magnskostnaður og hirðing sameiginlegs húsrýmis, skuli greiðast að jöfnu). 2. gr. I. kafla laganna um sameign fjölbýlishúsa er á þessa leið: Lög þessi skulu gilda um sameign manna í fjöl- býlishúsum, að svo miklu leyti sem sameigendur hafa ekki samið á annan veg um þau atriði, sem fjallað er um í III. kafla laganna." Morgunblaðið Björn Birgisson, Fáskrúðs- firði, spyr: „1. Hver skrifar þáttinn „Staksteinar" i Morgunblaðið? 2. Hvenær megum við á Káskrúðsfirði ciga von á því að fá Morgunblaðið borið heim til okkar jafnskjótt og það kemur í bæinn? Dagblaðið Tíminn tók upp þá „nýbreytni" ekki alls fyrir löngu að láta bera blöðin út í húsin, og mælist það mjög vel fyrir. en áskrifendur Morgunblaðsins þurfa að biða eftir sínum sncpli allt að sólar- hring lengur. Styrmir Gunnarsson ritstjóri svarar fyrri spurningunni: „Slaksteinar eru ritstjörnar- grein og nafn höfundarins því ekki gefið uþp, enda koma fram sjónarmið rilstjörnar, en ekki einstaklinga i þessum dálki." Seinni spurningunni svarar Orn Jóhannsson skrifstofu- stjóri á þessa leið: „Morgunblaðið hefur ekki haft uinboðsinann á Fáskrúðs- firði um skeið og þar af leið- alidi hefur blaðið ne.vðzt til að nota póstþjónustuna til dreif- ingar. Unnið er að því að fá umboðsmann, sem þá mun sjá um að bera blaðið til áskrif- enda." Til að ráða bót á skotsilfurs- skorti? Olöf Björnsdóttir, Laufás- vegi 18A, Reykjavík, spyr: „Við lestur viðtals við Baldur Pálmason í Morgunblaðinu þann 22. nóvember sl. vaknaði sú spurning, hvort míkið sé um það, að starfsmenn Ríkisút- varpsins lesi inn á segulband efni, sem ekki ér endilega ætl- að til flutnings, en megi bæta úr skorti viðkomandi aðila á skotsilfri?“ Hjörtur Pálsson, dagskrár- stjóri, svarar: „Það heyrir til undantekn- inga.“ Barna- og unglingabækur •• frá Erni og Orlygi MORGUNBLAÐINU hafa borizt nokkrar barna- og ung- lingaba'kur frá bókaforlaginu Öm og Örlygur og skal þar fyrst telja: Paddington kcmur til hjálpar eftir Mcehacl Bond, inyndir gcrði Pcggy Fortnuin. Öni Snorrason þýddi. Er þctta tfunda Paddingtonhókin, sem komið hcfur út á fslcnzku. Bökin, sem er 112 bls. að stærð, er sett í prentstofu G. Benediktssonar, en prentsniiðj- an Iðunn annaðist prentun, Bökbindarinn bókband, en Lit- rof gerði myndamót. Varúlfur f vígahug hafa Öm ' <>g Örlygur einnig gefið út. llún ereflir Jack Lancer, en Eiríkur Tómasson þýddi bókina á íslenzku. Eins konar undírtitill bókarinnar er Christopher Cool ungnjósnari, sem hefur það hlutverk, eins og segir á bókar- kápu að annast „hætlulegasta starf seni þekkist, alþjöðlegar njósnir.. . Chris Cool og Geroni- mo Johnson fara austur fyrir járntjald til þess að bjarga þaðan vinveittum manni, en koma of seint. Leikurinn berst síðan til Austurlanda nær og Austur-Berlinar." Mun þetta vera fjörðabókin sem kemur út íþessum flokki. Þá hafa Öm og örlygur gefið út bókina Emma eftir Noel Streatfeild í þýðingu Jóhönnu Sveinsdóttur. Bókin, sem er 180 bls. að stærð, er einnig sett i- prentstofu G. Benediktssonar, bundin hjá Arnarfelli, prentuð í Viðey h/f en Litrof gerði myndamót. Þá hefur Morgunblaðinu einnig borizt bókin Le.vndar- dómur Svartskeggs sjó- ræningja (leystur af Alfred Ilitchcock og njósnáþrenning- unni). Þorgeir örlygsson þýddi bókina, sem er eftir Robert Arthur, en Harry Kane gerði teikningar. Aftast í bókinni er „viðbætur frá Alfred Hitchcock". Bókin sem er 157 bls. að stærð er einnig sett f prentstofu G. Benediktssonar og offset- prentuð I Svansprenti. Loks má geta bókarinnar Dagfinnur dýralæknir og sjö- ræningjarnir eftir Hugh Lofting, A1 Perkins umskrifaði fyrir byrjendur í lestri, en Andrés Kristjánsson íslenzkaði bókin. Philip Wende mynd- skreytti. Hér er um að ræða myndabók í litum eins og aðrar bækur um Dagfinn dýralækni, en áður hafa kornið út sjö bækur í þessum flokki allar þýddar á islenzku af Andrési Kristjánssyni. Bókin er sett í prent- smiðjunni Eddu. Ilún er 61 bls. að stærð.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.