Morgunblaðið - 04.12.1973, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 04.12.1973, Blaðsíða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. DESEMBER 1973 bækur...bækur...bækur...bækur...bækur...bækur...bækur...bœkur...bœkur...bœkur...bæk JÓLABÓKA VER TÍÐM Utgáfubœkur Ægisútgáfunnar Guðmundur Jakobsson hjá /Eg isútgáfunni vcitti okkur eftirfar- andi upplýsingar um útgáfuna í ár: Mennirnir f brúnni, þættir af starfandi skipstjórum, Guðmund- ur Jakobsson skráði. Þetta er fjórða bindi þessa bókaflokks og hafa þá alls verið kynntir 26 afla- sælir og dugandi skipstjórar. Að þessu sinni eru það þeir Einar Sigurðsson skipstjóri á Aðal- björgu frá Reykjavík, Gunnar Arason, skipstjóri á Lofti Bald- vinssyni frá Dalvik, Ilalldór Bryn- jólfsson skipstjóri á Lómi frá Keflavík, Magnús Þórarinsson skipstóri á Bergþór frá Sand- gerði, Maríus Héðinsson skip- stjóri á Héðni frá Húsavík og Tryggvi Gunnarsson skipstjóri á Brettingi frá Vopnafirði. I bók- inni eru yfir 80 myndir af mönn- um, skipum og veiðiskap. Brautryðjendur, bók, sem Þor- steinn Matthíasson hefurskráð og Oscar Clausen — brautryðjand- inn búið til prentunar. Þetta er hugs- uð fyrsta bók í bókaflokki, sem ætlað er að einhver skil nokkrum þeim íslenzkum mönnum, sem hafa með sérstæðum hætti iifað lífi sinu landi og þjóð til farsæld- ar. Sá maður, er fyrstur varð fyrir valinu, er Óskar Clausen, sem flestir íslendingar munu kannast við, enda á hann óvenjulega sögu. Nokkur sýnishorn úr eldri bók- um Öskars eru birt í þessari bók, en af nægu eru að taka, því eftir hann hafa komið út 26 bækur. Þræðir örlaganna er nýja bókin eftir Denise Robins. Valgerður Bára Guðmundsdóttir þýddi. Denise Robins er talin afburða- snjall ástarsagnahöfundur og er- lendir blaðadómar eru margir á þá leið, að hún sé þeirra allra fremst. Bækur hennar hafa hvar- vetna selzt í risaupplögum, og hér á landi eiga þær vaxandi vinsæld um að fagna, en hafa samt ekki selzt eins mikið og efni standa til. Einar á Aðalbjörgu — Er þar mest um að kenna áhuga- leysi útgefanda, sem ekki hefur mikið dálæti á þessu annars á- gæta lestrarefni. Á brún hengiflugsins, skáld- saga eftir Morris West en hann er talinn meðal beztu höfunda leyni- lögreglu- og njósnasagna. Þessi bók fjallar um ævintýri blaða- manns, sem reynir af miklu kappi að ná í „stóru fréttina“, sem á að verða kóróna á hans blaða- mennskuferli. Málið varðar örlög heilla þjóða, en ljónin á vegi blaðamannsins reynast mörg og illvíg, þeir reynast sem sé ýmsir, sem ekki æskja þess, að málið sé gert opinbert. Auðvitað kemur hér blessað kvenfólkið nokkuð við sögu, (enda lítið varið í bók án þess). Draumar og dulskyn. Óvenju lega draumspök og skyggn kona, Jósefína Njálsdóttir, segir hér frá reynslu sinni í dulrænum efnum, Guðmundur — þættir af skip- stjórum. og það er margt og merkilegt, sem fyrir hana hefur borið langri ævi. Hér eru ekki miðlar á ferð, heldur beint samband við dulheima, sem okkur, venjulegu fólki, eru oftast lokaðir. Þwsteinn Matthíasson hefur skráð þessar frásagnir. Afburðamenn og örlagavaldar eru 20 ævisöguþættir mikilmenna sögunnar, og er þetta önnur bók útgáfunnar um þetta efni. Bækur þessar eru skrifaðar sem fróðlegt og skemmtilegt lestrarefni fyrir almenning, en eru þó jafnframt brot af veraldarsögu og henta vel þeim, er vilja skyggnast lítillega inn í fortíðina. Bárður Jakobsson þýddi þetta bindi. Þorsteinn — bein lína til dul- heima. I fremstu víglínu eftir Svein Hazel. Þetta er fimmta bók útgáf- unnar eftir þennan vinsæla höf- und, sem flestir telja nú fremstan núlifandi stríðsbókahöfunda. Lengi hefur honum verið jafnað við Hemingway og Re- marque, en nú segja þeir í útland- inu, að hann sé greinilega kominn framar þeim báðum. Bækur Hazels, sem komið hafa út á ís- lenzku, hafa allar selzt upp og sú siðasta, Monte Cassino, var horfin hjá útgáfunni hálfum mánuði fyrir jól. Halldór á Lómi — UTAVER LITAVER LITAVER LITAVER LITAVER LITAVER LITAVER LITAVER LITAVER LITAVER LITAVER LITAV'H Höfum á boðstölnum yfir 30 Dúsund fermelra af teppum. Allar hugsanlegar gerðlr, verð frá kr. 345.- per fm og allt að kr. 3.000.- per fm Það hefur ávallt borgað slg að llta vlð f Teppadelld utavers ClTHDER Grensásvegl 10,22.24 Sfminn l teppadeiidinni er 30400 = HlAVlll USAVlll U3AV1I1 U3AV1IT H3AV1I1 H3AV1I1 U3AV1I1 U3AV1I1 U3AV1I1 U3AV1I1 U3AV1I1 H3AV1I1

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.