Morgunblaðið - 04.12.1973, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 04.12.1973, Blaðsíða 24
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. DESEMBER 1973 24 Sagan í Ijósi dálestra UPPHAF OG ÖRLÖG MANNSINS. Sagan í ljósi dálestra. Edgar Cayce. Höfundur: L.W. Robinson. Þýðari: Dagur Þorleifsson. Bókaútgáfan ÖRN OG ÖRLYGUR h.f. 1973. Káputeikning: Hilmar Helgason. Prentun: Viðeyhf. Þessi bókaútgáfa heldur hér áfram að gefa út bækur um Edgar Cayce. Ber að fagna því. Á því er enginn vafi, að Cayce er einn allra magnaðastur þeirra manna ófreskra, sem sögur fara af. Það dregur ekki úr forvitni manna, að þessi sjáandi lifði fram á miðja 20. öld. Það, sem gefur lifsstarfi hans alveg sérstakt gildi fyrir nú- tímann. eru hinar vandlega stað- festu og skráðu skýrslur um dá- lestra hans, sem varðveittar eru á Virginia Beach. Þangað er enda- lausan fróðleik að sækja og eru þær efni I ótal bækur. Vegna frá- bærlega vandaðs spjaldskrárkerf- is eru þær mjög aðgengilegar þeim, sem vilja sækja vitneskju til Cayces um þau fjölmörgu mál- efni, sem þar eru varðveitt, og vitruðust þessum ófreska manni á dásvefni. Margir höfundar hafa þegar notfært sér þetta, og streyma nú bækur á markaðinn um hinn margvísiegustu efni. Er hér að ræða um slíkan Mfmis- brunn, að með ólíkindum má telja. Hvað sem menn annars kunna að halda um þessi dulrænu efni, þá leyfir sér enginn að rann- sökuðu máli að véfengja, að þarna er mjög merkilega þekkingu að finna. Og eru spádómarnir, sem ótrúlega margir hafa rætzt bók- staflega, ekki hvað sízt forvitni- legir og merkilegir. Þessi bók er skrifuð af rithöf- undinum Lytle Webb Robinson, sem lagt hefur fyrir sig rann- sóknir á dulrænum efnum í tvo áratugi. Hann hefur skrifað mjög mikið um Cayce og flutt fyrir- lestra um efnið, m.a. i Sovétríkj- unum, en I því landi mun nú vera varið mestu fé af hálfu ríkisvalds- ins til rannsókna dulrænna fyrir- bæra og óþekktra afla i mann- inum. Þetta er alveg sérstaklega skemmtileg og fróðleg bók. Af þeim sjö bókum, sem sá, er þetta ritar, hefur lesið um Cayce, er þessi bezt, að undantekinni bók sálfræðingsins Ginu Cerminara Margar vistarverur. Hér er tekin fyrir andleg og efnisleg þróun mannkynsins, og er það hrífandi lestur. Fyrsti hluti bókarinnar fjallar um hin forsögulegu tímabil sköp- unarinnar og komu mannsins í heiminn, hið sagnfræga Atlantis og Egyptaland hið forna. Efni annars hluta er um landnám Atlanta í Suður- Mið- og Norður- Ameríku. Þarna óx á undra- skömmum tima hámenning úr frumstæðum samfélögum, og er hér komið með nýjar skýringar á þeirri grósku. Þriðji hluti bókarinnar ér um þá félagslegu, stjórnmálalegu og efnahagslegu ólgu, sem hráir mannkynið á þessum tímum. í bókinni eru þessi fyrirbæri skýrð sem eðlilegar afleiðingar hins liðna, og jafnframt er spáð um það, sem gerast kann fyrir og eft- ir árið 1998, þegar gagnger um- skipti munu eiga sér stað. Hér eru færð ný rök fyrir kenningum um karma og endurholdgun og reynt að lýsa, hvernig endanlegt tak- mark mannssálarinnar öðlast nýja og dýprimerkingu. Dagur Þorleifsson hefur leyst þýðingu bókarinnar mjög þokka- lega af hendi, þótt ekki sé málfar- ið alveg hnökralaust. Af leit er t.d. sögnin að „uppástanda" i merk- ingunni að halda einhverju fram (bls. 89). Þá á slangurmálið „að slá einhverjum við“ illa heima þar, sem verið er að lýsa ágætum vefnaðar f Perú. „i vefnaði sló þeim enginn við,“ segir á bls. 88. Þá kann ég ekki við að tala um, að merking sé ,,útsmogin“ (bls 89). „Atlantar voru fljótir að gera sig gildandi i landinu," segir á bls. 92. Hér er engin þörf á dönsku. Ljótt er eignarfallið Jesúsar, þar sem Jesú myndi nægja. Verst er þó, þegar vitnað er í hið fræga ljóð W.E. Henleys: Invictus og sagt, að þar standi, að maðurinn sé höfuðsmaður sálar sinnar. Hér er átt við hina frægu ljóðlínu: „I am the captain of my souI.“ Skáldið á hér vitanlega ekki við tignartitil i hernum, heldur að hann sé stjórnandi sálar sinnar? Hún lúti vilja hans. Þá er að lokum eitt, sem stendur undarlega fast í fleiri þýðurum en Degi Þorleifssyni, en það er óttinn við eignarfallsessið, sem þó er notað bæði í ensku og fslenzku. Þetta er undirstrikað rækilega á sjálfri kápu bókar- innar, en þar stendur: Sagan í ljósi dálestra Edgar Cayce. Hvers vegna í ósköpunum ekki Cayces? Er það vegna þess, að menn vita ekki, að ættarnafnið er borið fram Keisí og verður því Keisis í eignarfalli? Þetta er nákvæmlega jafnafkáralegt og setningin: „Bók Guðmundur Jónsson er góð.“ Þýð- endur virðast apa þetta hver eftir öðrum án nokkurrar umhugs- unar. Það er mál að linni. Annars er þetta hin ágætasta bók og vonandi heldur þessi bóka- útgáfa áfram að gefa út bækur úr skýrslusafni þessarar einstæðu veru, sem í jarðlífinu hlaut nafnið Edgar Cayce. Ævar Kvaran. t Jarðarför fósturmóður minnar, GUÐBJARGAR ÁSGEIRSDÓTTUR, fer fram frá Fossvogskirkju, miðvikudaginn 5. nóvember kl. 1 0.30 f.h. Ásgeir Gunnarsson. t Jarðarför JÓNS Þ. BJARNASONAR, fer fram fimmtudaginn 6 desember i Fossvogskirkju kl. 3 e h Birna J. Blöndal, Ingi S. Bjarnason. Systir min SIGRÚN GEIRA ÁRNADÓTTIR fyrrverandi kaupkona, Álfaskeiði 72, Hafnarfirði, sem andaðist 26. nóvember s I , verður jarðsungin frá Þjóðkirkjunni i Hafnarfirði, fimmtudaginn 6 desember kl 2. Sigriður Árnadóttir og aðstandendur. t Útför HARALDAR BJÖRNSSONAR, Brautarholti, Borgarnesi, fer fram frá Borgarneskirkju, miðvikudaginn 5. des. kl 1 30 Þeim sem vildu minnast hins látna er vinsamlegast bent á Sjúkrahús Akraness Eiginkona, börn, tengdasynir og barnabörn. t Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi okkar HANS ÓLAFSSON, frá Flatey, Arnarhrauni 19, Hafnarfirði, verður jarðsunginn frá Hafnarfjarðarkirkju, miðvikudaginn 5. desember kl. 2 e.h. Blóm vinsamlega afþökkuð Halldóra Halibjarnardóttir, Guðlaug Hansdöttir, Lárus Sigurðsson, Oddný Lárusdóttur, Hanna Björk Lárusdóttir. Islendingar Norðurlandameist- arar framhaldsskólanema í skák UM helgina fór fram í Gautaborg Norðurlandameistarainót fram- haldsskólanema í skák. tslenzka sveitin var mjög sigursæl á mót- inu og sigraði með yfirburðum. Illaut hún ll'A vinning, en Svíar urðu í 2. sæti með 8‘A vinning, Finnar urðu nr. 3 með 6 vinninga og I)anir urðu nr 4 með 4 vinninga: Norðmenn tóku ekki þátt f mótinu að þessu sinni. Islenzka sveitin var skipuð pilt- um úr Hamrahlíðarskólanum, en þessi sveit hefur sigrað þrisvar í röð í framhaldsskólakeppnum hérlendis. Taflfélag Reykjavíkur kom á framhaldsskólakeppni fyrir þremur árum og gaf Rfkisút- varpið bikar til keppninnar, sem sveit Hamrahlíðarskólans hefur nú unnið til eignar. Sams konar keppni fer fram á hinum Norður- löndunúm og mætast sveitirnar síðan í úrslitakeppni í einhverju Norðurlandanna til skiptis. Þeir sem þátt tóku í mótinu fyrir íslands hönd voru Kristján Guðmundsson, Björn Halldórs- son, Ömar Jónsson, Helgi Ólafs- son og Adolf Emilsson. íslenzka sveitin sigraði Svíþjóð 3!4 — 1 ‘A, Finnland með 4VS — ‘A og Dan- mörk með 3!4 — l'/í. Kristján vann allar sinar skákir 3 að tölu, Björn fékk 1!4 vinning af 3 mögu- legum, Ömar 1H af 3, Helgi 2'á af 3 og Adolt 3 af 3 mögulegum. Samkvæmt þeim upplýsingum, sem við fengum hjá Hólmsteini Steingrímssyni formanni Tafl- félags Reykjavíkur, er þetta stærsti sveitasigur íslendinga í skák á erlendri grund. t Faðir okkar og tengdafaðir, ALFREÐ MÚNCH FERDINANDSSON, lézt í Landakotsspítala, 2. desember. Inge Hannesson, Hálfdán Hannesson, Sigrid Kristinsson, Guðmundur Kr. Kristinsson, Viktor Alfreðsson, Birgit Masing, Ferdinand Alfreðsson, Guðrún Frímannsdóttir. t Mágkona mín. BENEDIKTÍNA LILJA BENEDIKTSDÓTTIR, Fjölnisvegi 15 andaðist á Landspitalanum 30. nóvember, s.l. Fyrir hönd aðstandenda Jórunn fsleifsdóttir. t Eiginkona min, móðir, tengdamóðir og amma, MARGRÉT ÁGÚSTA MAGNÚSDÓTTIR (frá Seli), áður til heimilis að Framnesvegi 14, lézt þ. 1. des. að Hrafnistu. Jarðarförin fer fram frá Dómkirkjunni laugardaginn 8 des. kl. 10.30. F.h. annarra ættingja, Gunnar Bjarnason Katrfn Gunnarsdóttir, Helgi Guðmundsson, Óskar Gunnarsson Gunnlaug Kristjánsdóttir Ingi Gunnarsson Guðrún Ólafsdóttir, Svanhvft Gunnarsdóttir Björn Magnússon, Karl Gunnarsson Svanlaug Friðþjófsdóttir, og barnabörn. t Faðir okkar og tengdafaðir, BENEDIKT S. BENEDIKTSSON, fyrrverandi kaupmaður og sparisjóðsstjóri, Hellissandi, lézt 2 des. Kveðjuathöfn fer fram frá Fossvogskirkju fimmtudag kl 1 0 30 Jarðað verður frá IngjaIdshóli laugardaginn 8 des. kl. 2. Þeim, sem vildu minnast hans, er vinsamlegast bent á Slysavarnarfélag fslands Unnur Benediktsdóttir, Eggert Sigurmundsson, Halldór Benediktsson, Ólöf Jóhannsdóttir, Sveinbjörn Benediktsson Ástrós Friðbjamardóttir REIÐHJÓLI STOLIÐ Á fimmtudagsnóttina var stolið rauðu D.B.S. reiðhjóli þar sem það stóð við húsið nr. 18 við Há- teigsveg. Hjólið er nýtt og með gírum. Þeir, sem kynnu hafa orð- ið varir við hjólið, eru vinsamlega beðnir að láta rannsóknarlög- regluna vita.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.