Morgunblaðið - 12.12.1973, Blaðsíða 1
279. tbl. 60. árg.
MIÐVIKUDAGUR 12. DESEMBER 1973 Prentsmiðja Morgunblaðsins
Bretland:
J árnbr autarst jór-
ar í yfirvinnubann
Algert neyðarástand að skapast
flytja eins mikið af kolum með
járn brautum.
Heath forsætisráðherra hefur
sent sérstakan sendimann.
Aldington lávarð, til Saudi-
Arabíu, til viðræðna við Feisal
konung um oliumálin og ástamlið
f londunum fyrir botni Míðjarðar-
hafs. Heimsókninni átti að halda
levndri, en fregnir af henni láku
út i dag. Talið er, að Ileath ætlí að
reyna að gera Feisal grein fyrir
þvi, hversu alvarlegt ástandið sé
að verða í Bretlandi. Sterlings-
pundið féll snarplega í verði f dag
við þessar fréttir, og hefur gengí
þess aldrei verið lægra gagnvart
dollar. Ýmsir talsmenn atvinnu-
rekenda lýstu því yfir. að atvinnu-
líf lattdsins væri i stórkostlegri
hættu.
Þá skýrði talsmaður vínfram-
leiðenda frá þvi, að hætta væri á,
að landsmenn yrðu að vera án
áfengra drykkja um hátíðarnar,
þar sem mikill f löskuskortur
hefði stórdregið úr framleiðslu-
getu verksmiðjanna.
Aðgerðir verkalýðsfélaganna
beinast gegn verðbólguráðstöfun-
um stjórnar Heaths. sem tak-
marka mjöglaunahækkanir.
Hér sést í hluti af 12000 Fiatbifreiðum, sem ekki er hægt að Ijúka við, f Turin á Italíu þar sem
verksmiðjur, sem framleiða ýmsa hluti f bflana, urðu að loka vegna orkuskorts á ttaliu. Víða annars
staðar er ólíuskorturinn farinn að þrýsta á í atvinnulífi þjóða.
London, 11. desembei;AP.
ASTANDIÐ í Bretlandi nálgast
það nú óðfluga að verða hreint
neyðarástand. Járnbraut arstjórar
tilkynntu í dag, að yfirvinnubann
myndi koma til framkvæmda á
miðnætti f nótt. Þar meðeru þrjú
verkalýðsfélög komin í yfirvinnu-
bann, en starfsmenn hjá rafveit-
um ríkisins og kolanámaverka-
menn hafa verið f yfirvinnubanni
sl. mánuð. Er nú hætta á, að iðn-
aður landsins lamist.
Rafmagnsskömmtun hefur ver-
ið víða i Bretlandi sl. mánuð
vegna bannsins, en með yfir-
vinnubanni járnbrautastjóra
kemur það ástand til að versna til
muna, þar eð ekki verður hægt að
„Ég hef ekki orðið fyr-
ir teliandi þrýstingi”
sagði Einar Ágústsson eftir NATO-fundinn í Brussel
„ÉG HEF ekki orðið fyrir neinum
teljandi þrýstingi hér,“ sagði
Einar Agústsson utanrfkisráð-
herra í samtali við Mbl. í gær, en
ráðherrann var þá að koma af
tveggja daga fundi utanríkisráð-
herra Atlantshafsbandalagsríkj-
anna þar í borg.
Ráðherrann sagði ennfremur:
„Nokkrir mer.n hafa komið að
máli við mig og látið í ljós von um,
að viðræður okkar um endurskoð-
un varnarsamningsins leystust
með samkomulagi, en ég tek það
fram, að ég kom ekki hingað til
neinna samninga. Ég hélt ræðu,
þar sem ég skýrði frá afstöðu
okkar til málsins, á sama hátt og
ég gerði á Alþingi fyrir skömmu.
Að öðru leyti hef ég lítið komið
yið sögu hér " Varðandi le.vni-
skýrslu þá, sem fréttamaður NTB
sagði frá í dag, sagðist Einar ekk-
ert hafa heyrt um slíka skýrslu og
hann efaðist um, að hún væri til.
Aðspurður um helztu mál
fundarins sagði utanríkisráð-
Fara Podgorny og Kosy-
gin bráðlega á eftirlaun?
Moskvu, 11. desember AP.
t 1)A(; lauk í Moskvu inikil-
vægum fundi miðstjórnar
sovézka kommúnistaf lokksins.
Ekkert hefur verið skýrt frá efni
hans annað en að Brezhnev aðal-
ritari hafi f lutt mjög nierka ræðu.
Orðróntur hefur verið á kreiki í
Moskvu meðal erlendra frétta-
manna um að Brezhnev hafi
aúlað á þessttm fttndi að styrkja
enn aðstiiðu sína og stíga enn eitt
skref í átt til algers einræðis
innan miðstjórnarinnar.
Er talið hugsanlegt að bæði
Podgorny forseti og Kosygin for-
sætisráðherra verði settir á eftir-
laun og dyggir f.vlgismenn Brez-
hnevs settir í embætti þeirra.
Mál þessi munu að líkindunt
skýrast betur á morgun, er
Æðstraráð Sovétríkjanna kemur
saman, en ráðið verður að sam-
þykkja ákvarðanir miðstjórnar-
innar, áður en þær taka formlega
gildi. Sú samþykkt er þó aðeins
formsatriði. Vitað er, að fjárlög
næsta árs hafa verið til umræðu.
því að slíkt er vani á þessum tíma
herra: „Umræðurnar snerust að
mestu um samskipti Bandaríkj-
anna og Evrópuríkjanna, eða öllu
heldur sambandsleysi. Það er
ekkert leyndarmál. að þaðskarst í
odda milli Kissingers og Joberts.
utanrikisráðherra Frakka. i þessu
máli. Voru Bandaríkjamenn sak-
aðir um að taka ákvarðanir um
aðgerðir án þess að láta banda-
menn sína vita fyrirfram, eins og
t.d. i sambandi við viðbúnaðar-
skipunina i lok striðsins i Mið-
austurlöndum. Kissinger sagði
hins vegar, að EBE-löndin væru
alltaf að taka ákvarðanir, ánþess
að skýra Bandarfkjamönnum
frá.“ Sagði ráðherrann, að auk
þess hefðu nokkur minni mál
verið tekin fyrir.
Framhald á bls. 22
4% framleiðslutak
mörkun hjá Volvo
C.autaborg, 11. des., NTB
T ALS MAÐU R Vol voverksm i ðj-
anna í Svíþjóð hcfur upplýst, að
framleiðsla þeirra verði minnkuð
um 4% í upphafi næsla árs vegna
orkuskortsins, en búizt er við
verulegum samdrætti í sölu bif-
reiða á Evrópumarkaöi á kom-
andi ári. Er gert ráð fyrir, að
framleiðsla fólkshifreiða minnki
um 10.000 bifreiðar á árinu.
Jafnframt verður vinnuvikan
st.vtt í fjóra daga, frá 8. janúar nk.
Verður það gert til reynslu, fyrst
um sinn í 5—8 vikur, en mönn-
um gefinn kostur á að vinha 5.
daginn, þegar því verður við kom-
ið.
Loks upplýsti talsmaður Volvo,
að verksmiðjunum yrði lokað á
aðfangadagskvöld og allir starfs-
menn sendiri frí til 8,jan.
ENGIN ,
LEYNISKYRSLA
— segir talsmaður NATO
MORGUNBLAÐID bað f dag
AP-fréttastofuna að kanna í
höfuðstöðvunt NATO frétt
NTB-fréttastofunnar norsku
um leyniskýrslu hermála-
nefndar bandalagsins, þar sem
sagt er, að Sovétríkin mvndu
freistast til að hertaka Island,
ef handarski herinn hyrfi frá
varnarstöðinni í Keflavík. I
svari til AP-fréttastofunnar
neitaði talsmaður NATO með
öllu, að slík skýrsla væri til,
hvað þá að hún hefði verið
rædd á fundiráðherranna.
I frétt NTB, sem er eftir
fréttamann hennar, Svein A.
Röhne, segir ennfremur, að ef
Nato missti Keflavíkurstöðina,
mvndi geta NATO til að senda i
Þá
skyndi liðsauka til Noregs oj
annarra staða á norður
vængnúm skerðast til muna
segir i fréttinni, að í skýrslunni
sé varað við þeim afleiðingum,
sem brottflutningur hersins
gæti haft á aðvörunarkerfi
NATO og eftirlit með sovézkum
kafbátum í Norður-Atlantshafi.
Er á það bent, að hinar miklu
heræfingar Sovétrfkjanna
undanfarin ár á N-Atlantshafi
sýni glöggt mikilvægi hafsvæð-
anna umhverfis Island
Grænland. Er sagt,
skýrslunni ljúki á þeirri stað-
hæfingu, að verði island
varnarlaust, aukist mjög mögu-
leikar til að klekkja á NATO
noröurvæng bandalagsins.
og
að
a
Nelson Rockefeller
Rockefeller
segir af sér
N ew York, 11. desember. AP.
NELSON Rockefel ler, fylkis-
stjóri f New York, sagði af sér í
dag og útnefndi Maleolm Wilson
varafylkisstjóra sein eftirmann
sinn.
Rockefeller kvað ástæðuna þá.
að hann teldi sig betur geta
þjónað Nevv York-búum (« öðrum
Bandarikjamönnum með því að
beita starfskröftum sfnum að for-
mannsstöðum í tveimur mikil-
vægum nefndum. sem hann er
formaður fyrir. Nefndirnar eru
„Nefnd um eftirlit með vatnsgæð-
um" og „Valkostanefnd Banda-
ríkjanna". Rockeféller, sem er 65
ára að aldri, lét að þvi liggja að
hann myndi hugsanlega gefa kost
á sér sem forsetaefni republikana
f kosningunum 1975.