Morgunblaðið - 12.12.1973, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 12. DESEMBER 1973
3
Síldveiðum lokið í Norðursjó:
Aflaverðmætíð
helmingi meira
en 1 fyrra
HELGA Guðmundsdóttir frá
Patreksfirði var síðasta skipið,
sem seldi sfld í Danmiirku á þessu
hausti. Helga seldi tæpar 9 lestir
4. desember, fyrir 307 þús. kr., og
var meðalverðið kr. 35.55. Fjörir
aðrir bátar seldu I síðustu viku og
komst meðalverðið f kr. 38.97,
sem er hæsta verð, sem fengizt
hefur á þessu hausti.
Fyrstu íslenzku síldveiðiskipin
hófu veiðar i Norðursjó og á
Hjaltlandsmiðum að þessu sinni
síðast í maímánuði, og hafa því
veiðarnar staðið yfir í tæpa 7
mánuði. Alls öfluðu þau 43.860.3
lestir, sem seldust fyrir
1.122.163.677 kr., meðalverð fyrir
hvert kíló var kr. 25.58. I fyrra
veiddu skipin samtals 37.558.1
lest, sem seldist fyrir 561.226.655
kr. og þá var meðalverð fyrir
hvert kg aðeins kr. 14.94. Afla-
verðmæti skipanna er því helm-
ingi meira nú en í fyrra.
Þrjú aflahæstu skipin nú voru:
Loftur Baldvinsson frá Dalvík
með 2.433.7 lestir, sem ældust
fyrir 65.8 millj., Guðmundur,
Reykjavík með 2.011.9 lestir, sem
seldust fyrir 51.9 millj. og Súlan,
Ákureyri með 1.811.0 lestir, sem
seldust fyrir 45.3 millj. kr.
Akstur Kópavogs-
vagnanna um jólin
AKSTUR vagnanna um jól og ára-
mót verður sem hér segir:
Laugardaginn 22. desember aka
vagnarnir til kl. 01.00 eftir mið-
nætti. Frá kl. 13.00—01.00 á hálf-
tíma fresti í hvorn bæjarhluta
(eins og venjulega frá
13.00—20.00).
klukkutíma fresti (á heila tíman-
um) i báða bæjarhluta, fyrst í
Austurbæ síðan í Vesturbæ. Eftir
kl. 18.00 er ekkert fargjald greitt.
Á jóladag er ekið frá kl.
14.00—24.00.
A annan í jólum er ekið frá kl.
10.00—24.00.
Þorláksmessu (sunnudag) ekið
eins og venjulega sunnudaga frá
10.00—00.30.
Aðfangadag (mánudag) ekið
eins og venjulega til kl. 17.00.
Eftir það er ekið frá kl.
18.00—22.00. Verður ekið á
Á gamlársdag er ekið frá kl.
6.45—17.00 og enginn akstur eftir
það.
Á nýársdag er ekið frá kl.
14.00—24.00.
Strætisvagnar Kópavogs.
Atvinnuleysi meir en
tvöfaldaðist i nóvember
ATVINNULEYSI á landinu fór
vaxandi í nóvember. í lok
mánaðarins voru 485 manns skráð
atvinnulaus á öllu landinu, en í
lok október voru atvinnulausir
aðeins 174.
Aberandi er, hve miklu fleiri
konur eru atvinnulausar en karl-
menn, og bendir margt til þess, að
þar sé einkum um að ræða konur,
sem hafa unnið í frystihúsum. t
kaupstöðum landsins eru 307
atvinnulausir, en voru 139 i
október. Ekkert atvinnuleysi er f
4 kaupstöðum, þ.e. Seyðisfirði,
Neskaupstað, Vestmannaeyjum
og Kópavogi. í kauptúnum, sem
hafa 1000 íbúa eða fleiri, eru 46
atvinnulausir, en enginn var
skráður í október, og í öðrum
kauptúnum ðru 132 atvinnu-
lausir, en i lok október voru
atvinnulausir þar 35.
Þorbjörn Karlsson
HJARTAVERND
BERST STÓRGJÖF
GUÐRUN Bjarnadóttir frá Bjarn-
e.vjum í Breiðafirði afhenti ný-
lega Iljartavernd kl. 100.000 - til
minningar um systur sinar, |
Magdalenu Bjarnadóttur, f. 31/8 '
1899, d. 15/6 1973, og Sigríði
Bjarnadóttur, f. 1903, d. 1952.
Vegna þessarar höfðinglegu gjaf-
ar vill Hjartavernd koma á fram-
færi þökkum til frú Guðrúnar.
Guðrún býr nú með manni sínum.
Kristjáni Sveinbjarnarsyni, að
Mýrargötu 14, Reykjavík.
Þorbjörn Karlsson
prófessor við H I
FORSETI fslands hefur aðtillögu
menntamálaráðherra skipað Þor-
björn Karlsson verkfræðing, pró-
fessor i véla- og skipaverkfræði
við verkfræði- og raunvísinda-
deild Háskóla íslands frá 1.
janúar 1974aðtelja.
Þorbjörn Karlsson er fæddur
25. mái árrð 1927. Hann lauk
stúdentsprófi frá MR 1946 ogf.hl.
prófi í verkfræði frá Hí 1948.
BS-prófi í vélaverkfræði frá IIT,
Chicago, III., 1950, MS-prófi frá
California Institute of Technol-
ogy, Pasadena, Cal., 1951 og ME-
prófifrá samaskóla 1952. Eftirað
námi lauk hefur Þorbjörn
stundað verkfræðistörf bæði hér
heima og í Bandarfkjunum, og
eftir hann liggja fjölmargar rit-
gerðir og skýrslur um verkfræði-
leg efni.
Minnispen-
ingur L.Í.F.
LANDSSAMBAND fslenzkra frí-
merkjasafnara hefur gefið út
minnispening I tilefni 100 ára af-
mælis fslenzka frímerkisins.
Upphaflega var ráðgert, að
minnispeningurinn kæmi út I
maf s.l., en af óviðráðanlegum
ástæðum varð að fresta útgáfu
hans þar til nú í desember.
Minnispeningurinn er gefinn út
í gulli. silfri og kopar. Gefnir eru
út 105 gullpeningar og eru þeir
allir löngu pantaðir, 500 silfur-
peningar og200 koparpeningar.
Á framhlið minnispeningsins
stendur „íslenzka frímerkið 100
ára“ og ártölin 1873 1973 og póst-
lúður, á bakhlið er merki L.Í.F.
Stansinn fyrir minnispeninginn
er gerður i Danmörku, en þeir eru
slegnir hér á landi.
Eins og áður er getið, eru allir
gullpeningarnir pantaðir og
margir á biðlista, ef einhverjir
verða ekki sóttir. Nokkur eintök
eru enn óseld af silfurpeningnum
og af koparpeningnum.
Verð gullpeningsins er kr. 6000,
silfurpeningsins kr. 1000 og kop-
arpeningsins kr. 800.
Dreifingu fyrir L.Í.F. atinast
F ri nterkj am i ðst öði n, S kól a vörðtt-
stig 21a, og Frímerkjahúsið,
Lækjargötu 6a. (Fréttatilk.)
FURÐUVERKIÐ
sýnt á Klaustri
og Vík í Mýrdal
B ARN ALEIKRITIÐ Furðuverk
ið, sem sýnt hefur verið að utidan
förnu á kjal larasviði Þjóðleik
hússins, verður sýnt úti á landi á
næstunni, á Kirkjubæjarklaustri
n.k. sunnudag og daginn eftir f
Vfk í Mýrdal.
i siðustu viku var leikurinn
sýndur tvisvar sinnum sama dag-
inn f.vrir nemendur Digranesskól
ans f Kópavogi og á næstunni
verður hann sýndur i fleiri skól-
um.
Segir i frétt frá Þjóðleikhúsinu.
að ef skölastjórar hafi hug á að
láta sýna Furðuverkið fyrir nem-
endur sina þá séu þeir vinsamleg-
ast beðnir að hafa satnband við
aðgöngumiðasölu Þjóðleikhúss-
ins.
Léku borðtennis 1 gróðurhúsi
Hveragerði, 11. desember.
KlNVERSKA landsliðið í borð-
tennis kom hingað til Hvera-
gerðis i gærmorgun. Fyrst skoð-
uðu þeir kauptúnið, en á eftir
bauð hreppsnefnd Hveragerðis
þeim í mat í Náttúrulækninga-
hælinu. Að þvf loknu héldu.
þeir i gróðurhúsið Eden, og
beið þar þeirra mikill mann-
fjöldi, enda var þetta milli kl.
12 og 13.
1 gróðurhúsinu léku Kín-
verjarnir listir sinar í eina
klukkustund. Fannst þeim
mikið til koma að leika þarna
og sömuleiðis fannst þeim gróð-
urinn i Eden tilkomumikill.
Frá Hveragerði héldu þeir til
Gullfoss og Geysis.
Myndirnar sýna Kínverjana
koma úr matarboðinu i
Náttúrulækningahælinu og að
leik loknum í Eden.