Morgunblaðið - 12.12.1973, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 12. DESEMBER 1973
7
Bjartara
útlit í
laxveiði-
málum
Vestan-
hafs
MUN betur horfir nú um
Atlantshafslaxastofninn vest-
an hafs en «ert hefur um
árabil o« á austurstriind Banda-
l íkjanna og Kanada voru í ár
nær tvöfalt stærri göngur og
afli en á sl. ári. Þetta þakka
menn banni vi3 laxveiðum í sjó
og stórfel Idu átaki f fiskrækt.
Fyrir tveimur árum benti allt
til þess, að kanadíski laxa-
stofninn væri hreinlega að
deyja og svipaða sögu var að
segja af þeim bandaríska. Þá
Loftmynd af stærstu fiskeldisstiið Bandaríkjanna í Buhl í Idaho
fylki.
gerðist það í febrúar á sl. ári að
Danir og Bandaríkjamenn
komust að samkomulagi um
bann við laxveiðum i sjó við
Grænland, utan 1100 lesta, sem
grænlenzkir veiðimenn mega
veiða, en árið 1976 verða þeir
að taka þennan afla innan 12
mflna landhelgi Grænlands.
Tveimur mánuðum eftir þetta
samkomulag f.vlgdu K:nada-
menn fordæmínu óg bönnuðu
laxveiðar í sjó á svæðum úti af
New Brunswick, úti af strönd-
um Nýfundnalands, Nova Seot-
ia og Quebeck. Batin þetta gild-
ir í 5 ár, en þá verða ákvæði
þess tekin til endurskoðunar.
Kanadastjórn hefur í ár greitt
rúmar 2 milljónir dollara i
skaðabætur til fikimannanna,
sem stunduðu laxveiðar í sjó.
iMiög strangt eftirlit er haft
með stangveiði og takmörk fyr-
irþví hve marga laxa mádraga
á dag og eru mörkin yfirleitt
sett við 2 laxa á stöng. Þess ber
þó að gæta, að á áðurnefndum
bannsvæðum eru enn nokkur
hólf, þar sem veiða má lax i sjó,
en nú eru uppi ráðagerðir um
algert bann. þrátt fvrir mikil
útgjöld, sem kanadíska stjórnin
verður að taka á sig vegna
skaðabótagreiðslna. Hins vegar
er á það litið, að hver lax veidd-
ur á stöng færir Kanadamönn-
um miklu meiri tekjur en lax,
sem tekinn er í sjö. Bannið við
sjóveiðunum hafði það í för
með sér, að verð á laxi hækkaði
úr 200 kr. kílóið i 340 kr. kílóið.
Áhrifa bannsins gætti þegar í
ár í ám í Kanada og í New
Brunswick veiddust 32 þúsund
laxar, en aðeins 19 þúsund á sl.
ári. Kanadastjórn hefur , auk
þess aukíð mjög eigin rekstur
laxeldisstöðva og fyrirgreiðslu
til einkaaðila á sama sviði. Nú
eru starfræktar 8 slíkar stöðv
ar. Ein stærsta er ríkisstöðin
Mactaquac i St. Johnfljótinu í
New Brunswick, sem getur alið
um 3 milljónir silungsseiða á
ári, en er nú eingöngu notuð til
að ala laxaseiði. Þar sem laxinn
krefst miklu meiri umönnunn-
ar eru aðeins framleidd 250
þúsund sjógönguseiði á ári. Þar
er eingöngu um að ræða 2ja ára
seiði.
Heimtur hafa þó ekki verið
eins góðar og menn höfðu
vonað, því að þær hafa verið
innan við 3%, tæpir 7500 laxar.
Chris Frantsi er fisksjúkdöma-
sérfræðingur við ríkisstöðina
og hann segir „laxaseiði eru
mjög næm fyrir sálrænum
áhrifum. Ef þú gengur að eldis-
tjörn, þar sem silungsseiði eru
geymd, elta seiðin þig í von um
að fá fæðu. Komirðu hins vegar
að tjörn með laxaseiðum þjóta
þau strax í burtu. Laxinn venst
aldrei fólki. Við höfum nú
bqnnað allar ferðir gesta um
stöðina, því að við erum að
reyna að gera aðstæður sent
eðlilegastar. Þegar ég kem í
aðra laxeldisstöð og mér er
sýnd útitjörn, þar sem mikill
seiðadauði hefur átt sér stað,
kemur nær alltaf í Ijós, að við
þá eða þær tjarnir er mest um
mannaferðir."
Það er hins vegar engin alls-
herjarlausn að stunda fiskrækt,
því að þó að seiðin séu sterk og
af mjöggóðum stofnum er mjög
misjafnt hvernig þeim reiðir af,
er þeim er sleppt í ár, aðrar en
þær, sem undaneldisfiskarnir
komu frá. Hver á hefur sinn
eigin laxastofn og undirgreinar
frá honum eru í þverám.
Bandaríkjamenn segja, að
þegar stofninn í Connecticut-
fljóti hafi dáið út, hafi þar með
dáið sá stofn, sem var búinn að
fá í sig erfiðaeinkenni um-
hverfisins i ánni. Þetta á auð-
vitað við um aðrar ár, en
Connecticutfljótið er nær-
tækasta dæmið. Mjög erfiðlega
hefur gengið að rækta upp
nýjan stofn þar, en nú telja
kandadískir og bandarfskir
fiskifræðingar sig hafa fundið
stofn, sem geti byggt ána á nýj-
an leik og í vor var sleppt 50
þúsund slíkum seiðum í fljótið.
Mikill áhugi er nú í Banda-
rikjunum og Kanada á þvi að
endurreisa þær glæsilegu lax-
veiðiár, sem þar voru, en sem
hafa orðið mengun. ofveiði eða
laxveiði í sjó aðbráð. Opinberir
aðilar og félagssamtök áhuga-
manna vinna nú i sameiningu
að verkefni, sem þeir kalla
Laxarannsóknamiðstöð N-
Ameríku. Er verið að safna 2,4
milljó'num dollara, til þess að
reisa eldisstöð við Chamcook
Creek í St. Andrews. Dr. John
Calaprice, frægur fiskerfða-
fræðingur hefur verið ráðinn
forstöðumaður og standa vonir
til, að hægt verði að sleppa
fyrstu seiðunum úr stöðinni
árið 1976. Ein af ástæðunum
f.vrir þessari auknu áherzlu á
laxeldi er stóraukin eftirspurn
eftir laxveiðileyfum og svo það,
að Bandaríkjamenn eru farnir
að þreytast á því að sækja lax-
veiðar til útlanda og greiða
morðfjár f.vrir ferðir og veiði-
leyfi. Telja tnargir það mun
betri fjárfestingu að leggja
peningana í það, að skapa aftur
aðstæður til laxveiða í heima-
landinu Fiskifræðingar benda
hins vegar á það, að menn verði
að sýna þolinmæði og ekki
búast við að geta gengið að ám
og mokveitt þótt um tnikla
ræktun sé að ræða, því að utn
leið og la.xastofnarnir hafi
horfið, hafi veiðivenjur lfka
gle.vmzt. Menn séu búnir að
gleyma hyljunum og hvernig
eigi að bera sig að því. að retina
fyrir fiskinn í ánum. Hins
vegar eru þeir ekkert leiðiryfir
þvi, þvi að þetta gefur stofnun-
um betri tækifæri til að vaxa og
dafna i friði.
Úr laxeldisstöð kanadfska rfkisins í Mactaquac við St. Johnfljót.
VÖRUBIFREIÐ Til sölu vel með farin Mercedes Benz 1513, árg '71 Ekin 96 þús. km. (með turbinu). s.v. 2291 1 og s.h. 71336 BROTAMÁLMUR Kaupi allan brotamálm lang- hæðsta verði Staðgreiðsla Nóta- túni 27. simi 25891
TAKIÐ EFTIR Úrvals svanadúnssængur, taka fram beztu æðardúnssængum Þetta er sannlerkur, trúið honum Simi 92-6517 TILSÖLU VW árg. '61 (Óskoðaður '73) Góð vél 8 dekk öll á felgum Útvarp Toppgrind Þarfnast við- gerðar Sími 71 727.
HJÚKRUNARKONA MEÐ 2 BÖRN óskar eftir 2ja til 4ra herb ibúð Fyrirframgreiðsla. Uppl. i sima 42341. ANTIK HÚSGÖGN! Borðstofusett, sófasett, stakir stól- ar og skápar. Selst á sanngjörnu verði Upplýsingar i sima 20738 milli kl. 1 —6
SCOUT800 Til sölu Scout '66 Upplýsingar í sima 81 240, JÓLATRÉ sigræn og sáldfri jólatré Einnig sáldfrítt greni Fjallafura og Silkt- fura. Jólatréssalan, Drápuhlið 1.
ÍBÚÐ ÓSKAST íbúð 3ja — 4ra herb. íbúð óskast sem allra fyrst. Upplýsingar í sima 1 2053 milli kl. 7 og 9 á kvöldin. HÁRGREIÐSLUSTOFA Af sérstökum ástæðum er hár- greiðslustofa i fullum' gangi til letgu nú þegar. Sala kemur til greina. Tilboð merkt „Góður stað- ur 4843" sendist afgreiðslu Mbl fyrir 14. desember.
GERUM HREINAR ÍBÚÐIR og stigaganga Gerum tilboð ef óskað er. Svavar, simi 43486 TILSÖLU RAKARASTÓLL, sem nýr, einnig Ijósaskilti rakara. Tækifærisverð Uppl i sima 1 5774 fyrir hádegi og milli kl 5—7 eh.
STÓR TEPPALÖGÐ STOFA til leigu að Hringbraut 50, Kefla vik Upplýsingar i dag og næstu daga á staðnum 22 ÁRA maður meðstúdentspróf og bílpróf óskar eftir atvinnu strax Upplýs mgai i sima 19298
HAFNARFJÖRÐUR OG NÁGRENNI Jólabangikjötið úrbeinað á 495 kr. kg. Svinakjöt. steikur. ham- borgarahryggir. kótilettur, úrbein- aðir léttreyktir bógar. lágt verð Kjötkjallarinn, Vesturbraut 12. HAFNARFJÖRÐUR OG NÁGRENNI Úrbemuð dilka hamborgaialæn. með spekki á 495 kr kg Dilka hamborgarahryggir ódýrir. Rúllu- pylsur 275 kr st Saltað og nýtt hrossakjöt Kjötkjallarinn, Vesturbraut 12
RICOMAC
VERÐ KR. 24.900.00
%
SKRIFSTOFUVÉLAR H.F.
&
Hverfisgötu 33
Sími 20560 - Pósthólf 377