Morgunblaðið - 12.12.1973, Page 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 12. DESEMBER 1973
Elísabet Davíðs-
dóttir — Minning
Fædd 20.8 1889.
Dáin 5.12 1973.
IlUN var fædd að Eyjakoti — nú
Syðri-Ey í Ilúnavatnssýslu.
Foreldrar hennar voru Sigríður
Jönsdóttir, að mestu alin upp hjá
Jóni Skúlasyni, Haukagili í Vatns-
dal, og Davíð Jónatansson frá
Marðarnúpi í Vatnsdal. — Þau
eignuðust 4 börn. Elzt þeirra var
Sigurveig, síðar húsfreyja að
Hraunsmúla í Kolbeinsstaða-
hreppi í Mýrasýslu, þá Elísabet,
næstelzt, Steingrímur skólastjóri
á Blönduósi, en yngstur Lúðvik D.
Norðdal læknir á Eyrarbakka,
síðar á Selfossi. — Steingrimur
lifir nú einn þeirra systkina.
Elisabet fór ung að heinian,
dvaldi hjá Sigurbjörgu móður-
systur sinni á Hamri i Borgar-
firði, sem þá var mikið og mann-
margt rausnarheimili. Sfðar
dvaldi Elísabet hér og hvar við
ýmis störf. Hún giftist árið 1910
Jóhannesi Kr. Jóhannessyni frá
Sveinseyri við Tálknafjörð.
Veturinn 1909 hafði hún verið í
húsmæðraskólanum í Iðnó hjá
fröken Ingunni Hólmfríði Gisla-
dóttur, sem á þeirn tima kenndi
verðandi húsmæðrum af sinni al-
kunnu reisn og myndarskap.
Jóhannes hafði lokið nánti í
t
Faðir okkar
ANDRÉAS AIMDERSEN,
Barmahlið 50
lézt að morgni 10. þm.
Anna Andréasdóttir
Kristjana Andréasdóttir
t
MESSINA
GUÐMUNDSDÓTTIR
lézt aðfaranótt þriðjudags að Elli-
heimilinu Grund
Fyrir hönd ættingja
Sölvi Jónsson.
t
Maðurinn minn og faðir okkar
GUNNARJÓNSSON,
lögmaður,
andaðist í Borgarspítalanum, mánudaginn 10 desember
Aðalheiður Sigurðardóttir,
Edda Gunnarsdóttir Rowland,
Valgarður Gunnarsson,
Drifa Gunnarsdóttir.
húsasmíðum úti i Danmörku og
fengið sín meistararéttindi, enda
hinn mesti völundur í sinu fagi.
Hann byggði síðan hér mörg hin
veglegustu og vönduðustu hús
sem bera honunt vitni enn þann
dag í dag. Þau reistu sér heimili á
Bergstaðastíg 41 hér í borg.
Jóhannes varð fyrir því slysi að
falla niður úr stiga árið 1921, er
hann var að vinna við húsbygg-
ingu, þá á tindi lífs síns. Þaðan í
frá má segja, að hann hafi aldrei
náð fullri heilsu, enda læknis-
fræðin ekki komin á það stig, sem
nú er. Þau Elísabet og Jóhannes
eignuðust 6 börn: Sigríði, fædd
26.8. 1911. Dáin 7.12. 1925. Aðal-
heiði, fædd 21.4. 1913. Giftist Guð-
mundi Jenssyni loftskeytamanni,
dáin 13.4. 1953. Þau eignuðust 4
börn, sem öll eru uppkomin. Lúð-
vik Astvaldur, fæddur 19.12.
1915, síðar framkvæmdastjóri
Bflasmiðjunnar hf., dáinn 10.8.
1971, kvæntur Ingibjörgu Vil-
hjálmsdóttur. — Þau eignuðust 5
börn og er eitt látið, en hin upp-
komin. Ragnar Jón framkvæmda-
stjóri, fæddur 26.1.1918, kvæntur
bandarískri konu Stasiu. fæddri
Gogatz. Þau eiga 3 börn, öll upp-
kotnin. Konráð Davíð fæddur
12.11. 1922, kvæntur Páldísi
Eyjólfz. Þau eiga 3 dætur. Yngst-
ur er Olafur, fæddur 13.11. 1924.
Dáinn 23.5. 1929.
Nú þegar Elísabet kveður hefur
hún lifað mann sinn og fjögur af
sex börnum sínum. — Ilún fékk f
vöggugjöf þann arf, sem hefur
dugað henni alla hennar ævi, and-
lega og líkamlega hreysti. Áttatíu
og fjögurra ára stóð hún óbuguð
eftir mikla lifsreynslu, ástvina-
missi og sorgir. Hún stóð af sér
élin, sem einatt var skammt á
milli, og ströng. Eljusöm, sterk og
óbuguð.
Yfir 30 ár vann hún utan sfns
heimilis, fyrst hjá Mjólkurfélagi
Reykjavíkur, síðar hjá Mjólkur-
samsölunni, við afgreiðslustörf,
lengst á Hverfisgötu 59, síðast á
Laufásveginunt, þá á áttræðis-
aldri. Trúmennska hennar og
ávekni var vel metin af þessu
fyrirtæki, og var henni eftir 30
ára starf sýnd viðurkenning á
t
Frænka okkar
BJARNFRÍÐUR EINARSDÓTTIR,
andaðist að morgni 1 1 desember í Landspítalanum
Aðstandendur
t Ástkæri eigmmaður minn og sonur t Erginkona min
BJARNI JÓN ÞORVALDSSON GUÐNÝ EYJÓLFSDÓTTIR,
frá Blönduósi, Digranesvegi 115, Bergstaðastræti 31A,
andaðist í Landspilalanum, aðfaranótt 9. des Fyrír hönd systkina og annarra vandamanna lézt aðfaranótt 1 1 desember að Landspitalanum
Ágústa Linda Ágústsdóttir, Þorvaldur Þorláksson. Ottó Bjarnason.
t Móðir mín LINGNY SIGURÐARDÓTTIR t Innilegar þakkir sendi ég öllum er sýndu samúð og vinarhug við andlát og jarðarför bróður mins,
frá Þorvaldsstöðum, SIGURÐAR SIGURBJÖRNSSONAR,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju föstudaginn 1 4. des kl 3. bókbindara í Borgarnesi.
Sérstaklega vil ég þakka þeim hjónum, Önnu Gestsdóttur og Magnúsi Thorvaldssyni fyrir þeirra hlýhug og miklu aðstoð, sem þau hafa veitt okkur bræðrum.
Þóra Guðmundsdóttir. Gunnar Sigurbjörnsson.
t Innilegar þakkir færum við öllum þeim er auðsýndu okkur samúð og hluttekningu við andlát og jarðarför GUÐMUNDU LÁRU GUÐMUNDSDÓTTUR. Miðhúsum, Breiðuvik, Snæfellsnesi. Fyrir hönd barna okkar, tengdabarna, barnabarna og barnabarnabarna, Georg Ásmundsson. t Alúðar þakkir til allra er sýndu okkur samúð viðandlát og útför HARALDAR BJÖRNSSONAR, Brautarholti, Borgarnesi. Þökkum sérstaklega læknum og starfsfólki Sjúkrahúss Akreness Sigrún Jónsdóttir, börn, tengdasynir og barnabörn.
t Innilegar þakkir færi ég öllum þeim mörgu sem sýndu hlýhug og virðingu við útför systur minnar, SIGRÚNAR GEIRU ÁRNADÓTTUR, fv. kaupkonu, Álfaskeiði 72, Hafnarfirði. Sérstakar þakkir færi ég vinafólki hennar i húsinu og Karcher hjónunum fyrir ótal gleðistundir henni veittar og hjálp síðustu stundirnar, einnig starfsfólkinu í Sólvangi hjálpsemina siðustu mánuði. Fyrir mína hönd og annarra vandamanna Sigriður Árnadóttir. t Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og jarðarfarar HALLDÓRU BERGSDÓTTUR frá Efri-Ey. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Elli- og hjúkrunarheimilisins Grundar fyrir góða umönnun i veikindum hennar Bergur Ingimundarson Ingibjörg Ingimundardóttir Sigriður Ingimundardóttir Ingimundur Ingimundarson Halldór Ingimundarson Vigfús Ingimundarson Ólafur Þ. Ingimundarson Vigdis Ingimundardóttir tengdabörn og barnabörn.
veglegan hátt. Hugur hennar var
ávallt hlýr í garð þeirrar stofn-
unar og samstarfsfólksins. Sl. 20
ár hefur hún dvalið á heimili
sonar síns Lúðviks og eftir andlát
hans hjá mér, ekkju hans. Ég hlýt
að láta fylgja henni að sfðustu
fáein orð sem þakklætisvott fyrir
hönd barnanna minna, fyrir ástúð
hennar til þeirra og umhyggju-
semi fyrr og síðar og góðar gjafir,
sömuleiðis þakkir frá barnabörn-
um mínum tveim. Margs er að
minnast frá sl. 20 árum. Ég vil
þakka þann styrk, sem hún veitti
mér með æðruleysi sínu og þreki,
þegar maðurinn minn dó, langt
fyrir aldur fram — og var hann
þó hennar sterkasta stoð í hárri
el li.
Guð blessi hana á landi lifenda,
þar hljóta að hafa verið hlýjar
móttökur.
I.V.
Fndurminning-
ar fyrrum eigin-
konu Krags
„Eg vil iifa á ný“ eftir Birgit
Tengroth er komin út í fslenzkri
þýðingu Guðrúnar Guðmunds-
dóttur.
Birgit Tengroth er sænskur rit-
höfundur og þekkt leikkona. Hún
hefur skrifað 10 skáldsögur, en
bókin, sem hér birtist, er endur-
minningar úr hjónabandi höfund-
ar og Jens Otto Krag, fyrrv. for-
sætisráðherra Danmerkur. Birgit
Tengroth hefur verið borið það á
brýn, einkum f dönskum blöðum,
að rnyndin, sem hún dregur upp
af fyrrverandi eiginmanni sínum,
sé heiftúðug, bókin sé einhliða
varnarskjal. „En sú heita tilfinn-
ing, sem við nefnum gjarna ást,
gægist stöðugt út á milli lfnanna
og lætur hlutlausan lesanda ekki
ósnotinn." segir á kápusíðu.
Bókin er 175 bls. að stærð. Ul-
gefandi ei' Setberg.
Richard Beck.
Undir haust-
stirndum himni
Ný ljóðabók eftir
Richard Beck
MORGUNBLAÐINU hefur borizt
Ijóðabókin Undir hauststirndum
himni eftir Richard Beck, sem
alþjóð er kunnur. Hefur hann
skrifað mikið um bókmenntir og
menningarmál auk þess sem Ijóð
hans hafa á undanförnum árum
birzt á víð og dreif í íslenzkum
ritum.
Höfundur segir, að öll ljóðin f
bókinni hafi verið ort á s.l. 14
árum eða frá því kvæðabók höf-
undar Við ljóðalindir kom Ut
1959. Er hér um að ræða úrval úr
kvæðum höfundar d umræddu
tímabili.
Höfundur tileinkar konu sinni
þessi ljóð sfn.
Undir hauststirndum himni «r
69 bls. að stærð. Útgefandi er
prentsmiðjan Leiftur.
SKILTI Á GRAFREITI
OG KROSSA
Flosprent s.f.
Nýlendugötu 1 4,
sími 1 6480.