Morgunblaðið - 14.12.1973, Blaðsíða 1
72 SIÐUR (TVO BLOÐ)
281. tbl. 60. árg.
FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 1973
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Jolasveinarnir komu til borgarinnar í gær. Sjá frásögn bls.3. Ljósm. Ól. K. Mag
Tekst Aröbum
að svínbeygja
EBE-löndin?
Kaupmannahöfn, 13. ses, NTB.
MVRKAR götur Kaupmanna-
hafnar gefa réttan hakgrunn fyr-
ir toppfund leiötoga Efnahags-
bandalagslandanna. sem hefst f
Uöfn á morgun. Orkuskortur í
heiminum og þá einkuni þau
vandamál. sem komið hafa upp
vegna oltuhanns Arabaríkjanna
verða þar efst á dagskrá. Banda-
lagið hefur þó komið sér hjá þ\f
að þurfa að gefa út opinbera
stefnuvfirlýsingu eftir fundina,
sem standa vfir í tvo daga. með
því að hafa ekkert fyrir fram
ákveðið prógram.
Ýmsir telja þó alls ekki óliklegt,
að til harðra deilna komi milli
fulltrúa Hollands og hinna
aðildarrikjanna átta og þær deil-
ur verði opinberar. Holland er
eina landið, sem ekki hefur beygt
sig fvrir hótunum Arabaríkjanna,
enda er það nú i algeru olfubanni.
A fundi Efnahagsbandalagsins
í Parfs í fyrra var ein af grund-
vallarákvörðununum. sem þar var
tekip. á þá leið, að EBE-löndin
skyldu standa saman og hafa
nána samvinnu um allt, sem lyti
að iðnaði, orkumálum og öðrum
skyldum málum. Holland telursig
. nú eiga rétt á aðstoð hinna aðild-
arlandanna vegna neyðarástands
i orkumálum.
Það reyndi mjög á samheldni og
samstöðu EBE-landanna. þegar
Arabar beittu olíunni sem vopni
eftir október-stríðið. Margirtelja.
að bandalagið hafi ekki staðist
það próf. Holland lýsti stuðningi
við ísrael og var sett í algert
bann. Ilin löndin sendu frá sér
yfirlýsingu, sem var mjög hag-
stæð Arabaríkjunum og hafa
fengið mi ldari meðferð.
Arabarfkin verða nú að reyna
að sundra Efnahagsbandalaginu
og letja ömiur ríki þess tíl að
koma Hollandi til hjálpar. Óopin-
berlega hefur það verið sagt. að
ekki komi til mála að skilja Kol-
lendinga „eftir úti í kuldanum'.
en allavega er víst. aðeinhverjar
afdrifarikar ákvarðanir \erða
teknir á fundunum i Kaupmanna-
h öf n.
Neyðarástand í Bretlandi:
daga vinnuvika
Jörgensen
gafst upp
Kaupmannahöfn. 13. desem-
ber. NTB.
M.VRtíRÉT drottning hafði í
kvöld samhand við leiðtoga
allra þeirra tíu flokka. sem
fengu kjiirna menn á þing. eft-
ir að Anker Jörgensen. seni
gegnir embætti forsætisráð-
herra til bráöabirgða, hafði til-
kynnt henni. að hann hefði
gefist upp við að reyna að
mynda nýja ríkisstjórn.
V ar af or m a ður jaf n a ðar-
mannaf lokksins. Kjeld Olesen,
Framhald á bls. 26.
Orkuskortur er að lama alla starfsemi
London, 13. desember, AP,
NTB.
EDWARD Ileath forsætisráð-
herra tilkynnti í dag, að vegna
orkuskorts í landinu neyddist
ríkisstjórnin til að stytta vinnu-
vikuna niður í þrjá daga frá
næstu mánaöamótum. Þangað til
verða leyföir fimrn vinnudagar f
viku, en þó með ýmsum takmörk-
unum. Forsætisráðherrann hvatti
fólk til að hita ekki upp nema eitt
Slys 1 Túnis og
í Tékkóslóvakíu
Prag. Túnis, 13. des, NTB.
AÐ minnsta kosti 45 skólabörn
biðu bana, þegar flóðbylgja sóp-
aði burt skólabyggingu þeirra f
Gafsa í suðurhluta Túnis f dag.
Miklar rigningar hafa verið á
þessum slóðum undanfarna sólar-
hringa og Mohammed Nzali, heil-
brigðismálaráðherra sagði, að ást-
andið væri mjög alvarlegt víða í
landinu.
Þyrlur hafa verið teknar í notk-
un við hjálparstarfið og við að
flytja mat og teppi til fkíðasvæð-
anná. í höfuðborginni, Túnis, og f
fleiri borgum hafa flóðin stöðvað
alla umferð. Þá hafa hundruð
húsa eyðilagst.
Frá Tékkóslóvakíu berast þær
fréttir. að 28 manns hafi beðið
bana, þegar stór fbúðarblokk
hrundi til grunna eftir mikla gas-
sprengingu. Rúmlega 50 var
bjargað út úr húsarústunum og
lögregla og hermenn héldu áfram
leit þar seint i gærkvöldi. Einhver
bilun mun hafa orðið í gaskerf-
inu, sem notað var til að hita
húsið upp. Það leiddi til þess, að
gasið safnaðist fyrir á ýmsum
stöðum, þar sem það lak út. Við
eina uppkveikju varð svo spreng-
ing, þar sem kveikt var, og síðan
keðjusprengingar í gegnum allt
húsið. Flestir þeirra. sem fórust,
voru ungir iðnnemar, sem stund-
uðu nám i plastverksmiðju
skammt þar frá.
herbergi f húsum sínum og sagði.
að útsendingartfmi sjónvarps-
stöðva yrði takmarkaður.
Eins og sjá má af þessu er hreint
neyðarástand í Bretlandi, og
það fer versnandi með hverjum
deginum sem líður. Nokkuð er
síðan byrjað var að spara orku
með því að banna öll auglýsinga-
skilti og l.jósaskreytingar, og öll
jólaljós eru bönnuð. Þá hefur
fólki einnig verið gert að spara
mjög eldsneyti til húsahitunar.
Forsætisráðherrann sagði .þing-
inu, að þetta ástand hefði einkum
skapast vegna yfirvinnubanns
námuverkamanna, járnbrauta-
starfsmanna og starfsmanna í raf-
orkuverum. Yfirvinnubann námu-
verkamannanna gerir m.a. að
verki, að ekki er hægt að fram-
kvæma eðlilegt viðhald og verður
þvf hver náman af annarri östárf-
hæf. Um 70 prösent af raforku-
verum í Bretlandi fá orku sfna úr
kolum og framleiðslan eins og
ástandið er nú er hvergi nærri
nóg. Þar viðbætist. aðlangmestur
hluti kolaflutninganna fer fram
með lestum og verkfall járnbraut-
armanna sker enn niður það
magn, sem hægt er að flytja. Loks
verða æ fleiri raforkuver að tak-
marka framleiðslu sína vegna
þess, að yfirvinnubann starfs-
manna þeirra veldur þvf. að ekki
er hægt að framkvæma eðlilegt
viðhald og viðgerðir.
Forsætisráðherrann sagði. að
það væri alveg ljóst að ýmsar ráð
stafanir. setn fyrirhugaðar hefðu
verið um að bæta lifskjör og
afkonut Breta. væru nú algerlega
úr sögunni. Hann spáði köldum
og dimmúm vetri og sagði, að all-
ar þær takmarkanir. sem nauð-
synlegt væri að setja iðnaði og
annarra framleiðslustarfsemi i
landinu. myndu öhjákvæmilega
leiða til stóraukins atvinnuleysis.
Verður Kosyg-
in leystur af?
Kairó. 1,3. desember -NTB.
ALEXEI Kosygin. forsætisráð-
berra Sovétríkjanna, hefur oft-
ar en einu sinni beðiö um að
verða leystur frá embætti, og
verulegar breytingar kunna að
standa fyrir dyruni í forystu-
sveit ráðanianna í Krenil. Þetta
segir hið áhrifarfka dagblað Al
Alirani í Kairö í dag.
I fréttaskeyti frá Moskvu
vitnar blaðið í heimildir innan
evrópskra kommúnistaf lokka.
sem haldi þvi fram að Kosygin
verði kosinn í forsætisstjórn
æðsta ráðsins. Enn frennir seg-
ir i fréttinni. að Kosygin þjáist
af nýrnasjúkdömi.
Samkva'mt þessum lieiniild-
um kann fyrsti varaforsætisráð-
herrann. Kyril Mazurov að
verða eftirmaður Kosygins. og
einnig er talið, að Andre.i
Kirilenko. sem nú gegnír ein-
bætti innan leynilögiegiuiinar.
muni hljóta aðra lykilstiiðu f
tivrri forvstusveit.