Morgunblaðið - 14.12.1973, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 1973.
7
Eftír
Arna Johnsen
Að teikna hús
með skapgerð íbúana
Guðjdn Ólafsson heitir 38 ára
gamall teiknari frá Vestmanna-
eyjum. Hann er einn af þessum
mörgu listamönnum víðs vegar
um land, sem ekki hefur haft
sig mikið í frammi á hinu opin-
bera listasviði, en sinnt
gyðjunni þó.
í nýútkominni bók, Vest-
mannaeyjar, byggð og eldgos
eftir Guðjón Ármann
Eyjólfsson skólastjóra Stýri-
mannaskólans í Vestmannaeyj-
um, eru m.a. 36 teikningar eftir
Guðjón Ólafsson, eða Gauja í
Gfslholti eins og hann er kallað-
ur í Eyjum.
Flestar eru þessar myndir af
húsum sem hurfu undir hraun í
eldgosinu, en einnig eru
myndir frá ýmsum stöðum i
Eyjum. Ég rabbaði stuttlega við
Guðjón um þessar myndir, og
fer viðtalið hér á eftir:
,,Ekki hefur þú teiknað húsin
eftir minni?"
,,Nei, ekki áð öllu leyti og það
fór feikimikill tími í að safna
saman myndum og fá nákvæm-
ar lýsingar á húsunum, sem ég
teiknaði, en það var þó ekki
nema brot af þeirn tæplega 400
húsum sem hurfu og eyði-
lögðust. Ég rak mig á það í
þessu verki að fdlk á furðulega
lítið af myndum af húsum sín-
um, en allt haustið fór í þetta
verk og ríflega það. Það þurfti
þó ekki gos til að ég færi að
teikna hús og annað í Eyjum.
þvi áður hafði ég teiknað tals-
vert af húsum og öðru í Evjurn
og þá einmitt gömul hús."
„Tók fólk því ekki vel, þegar
þú leitaðir upplýsinga um
húsin?"
„Jú, mjög vel og margir hafa
beðið mig um að fá myndirnar
síðar, en það verður væntan-
lega haldin sýning á þeim
heima í Eyjum og ef til vill á
meginlandinu lfka. Nokkrir
vinir mfnir segjast ákveðnir í
þvf; og verða ekki vinir manns
að fá að ráða einhverju?" segir
Gaui um leið og hann brosir og
fær sér í nefið með hnvkk. Og
víst er, að margir Vestmanna-
eyingar hefðu gaman af að sjá
slíka sýningu."
„Hefur þú teiknað utan
Eyja?"
„Já, re.vndar, en það var nú
mest í öðrum eyjum, nefnilega
Færeyjum. Eg fór þangað í
ferðalag með Samkór Vest-
mannaeyja og varð yfir mig
hrifinn af heimsókninni
þangað. Þá stóðst ég ekki að
teikna nokkur hinna fallegu
gömlu húsa, sem eru f öllum
bygg ðu m Fæ reyj a."
„Var ekki erfitt að teikna
ntörg horfnu Eyjahúsin?"
„Sum, en það auðveldaði, að
ég þekkti fólkið, sem bjó í
húsunum og einhvern veginn
fannst mér, þegar ég var að
teikna húsin, að ég væri líka að
teikna meira, að skapgerð og
framkoma þessa fólks spilaði
inn f. Þegar maður þekkir bæði
hús og mann, þá dregur annað
dám af hinu.“
„Er ekki nóg blý og blek eftir
f teikniáhöldunum?"
„Jú aldeilis, ég er rétt að
byrja, hús og annað býður
heima í Eyjum, en svo finnst
mér líka ágætt stundum að
bregða mér út í fantasíuna,
hvort sem maður teygir sig þá
upp í loftin blá eða siglir á
hugmyndafluginu niður
sædjúpin og heilsar upp á
kynjafiska og kynjagróður, en
maður má aldrei gleyma
húmornum."
— á.j.
Guðjón Ölafsson.
Elliheimilið Skálholt.
Urðaviti.
Vilborgarstaðir, Hlaðbær og vilpa.
TRILLA TIL SÖLU 1 til 2 tonna með skrúfu og stefnisröri Uppl i síma 3155 milii kl. 7 til 8 á kvöldin, Eyrar- bakka HANNYRÐABÚÐIN AUGLÝSIR Margt er það í koti karls sem kóngs er ekki ranni Hannyrðabúðin, Linnetsstíg 6, Hafnarfiði, sími 51314
AFGREIÐSLUSTÚLKU vantar í sælgætisverzlun í Hafnar- firði frá áramótum. Vaktavinna. Upplýsingar í síma 513 71. JÓLAGJÖFIN, SEM GLEÐUR Hjá okkur fáið þið einstakt úrval af handavinnu fyrir eldri konur Hannyrðabúðin, Linnetsstíg 6, Hafnarfirði, sími 51314.
PLYMOUTH Plymouth árgerð 1963 í ágætu standi til sölu Upplýsingar i sima 32462. SVEIT Rösk stúlka óskast í sveit Má hafa með eitt eða tvö börn Þarf að geta ekið bifreið Uppl. eftir kl. 7 á föstud. í síma 33307.
GRINDAVÍK Til sölu 4ra herb ibúð, góðar geymslur i kjallara. tvöfalt verk- smiðjugler i gluggum Útborgun má skiota Fasteignasala Vilhjálms og Guðfinns. Símar 1263 og 2890 SKEMMA 200 fm óupphituð skemma í Vesturbænum til leigu, stórar dyr Upplýsingar í síma 71018
JÓLATRÉ sígræn og sáldfrí jólatré. Einnig sáldfrítt greni. Fjallafura og Silki- fura Jólatréssaian, Drápuhlíð 1. Nýjasta heklublaðið frá MARKS64 Garnið er komið sem upp- skriftirnar eru af BIANCA og LENACRYL Hannyrðaverzlunin Erla, Snorrabra ut
TIL JÓLAGJAFA Hvíldarstólar. skrifborðsstólar, barnastólar, píanóbekkir, innskots- borð, spilaborð, vegghillur, blaða- grindur og margt fleira Nýja Bólsturqerðin, Laugavegi 134. Sími 16541. HAFNARFJÖRÐUR OG NÁGRENNI Jólahangikjötið úrbeinað á 495 kr. kg. Svínakjöt, steikur. ham- borgarahryggir, kótilettur. úrbein- aðir léttreyktir bógar, lágt verð. Kjötkjallarinn, Vesturbraut 1 2.
HAFNARFJÖRÐUR OG NÁGRENNI Niðursoðnir ávextir 1 flokks, ódýr- ir komnir aftur. Rauðkál 450 kr. dósin 9 pund Tekex 1 98 kr. 6 p. Ódýr ávaxtasulta Kjötkjallarinn, Vesturbraut 12. HAFNARFJÖRÐUR OG NÁGRENNI Urbeinuð dilka hamborgaralæri með spekki á 495 kr. kg. Dilka hamborgarahryggir ódýrir, Rúllu- pylsur 2 75 kr. st. Saltað og nýtt hrossakjöt Kjötkjallarinn, Vesturbraut 12
GRINDAVÍK Til sölu 3ja herb íbúð neðri hæð, 6.000 fm erfðafestulóð fylgir Fasteignasala Vilhjálms og Guðfinns, Símar 1263 og 2890. HAFNARFJARÐARAPÓTEK Opið öll kvöld til kl. 7, nema laugard til kl 12 Helgidaga frá kl 2—4
Ateiknuð PUNTHANDKLÆÐI, GÖMLU MUNSTRIN Tilheyrandi hillur, falleg jólagjöf Hannyrðaverzlunrn Erla, Snorrabraut. BENZ VÓRUBÍLL TIL SÖLU Uppl i bif reiðaverkstæðinu Visir, Akranesi.
TILSÖLU Skoda árg 1971 ekin 18.000 km. ( mjög góðu lagi. engin út- borgun en mánaðargreiðslur Skipti koma til greirra. Upplýsingar 1 símum 301 20, 71 725 og 99 3250 BÍLAVERKSTÆÐIÐ BJARG Bjargi við Sundlaugaveg sími 38060. Getum bætt við okkur viðgerðum fyrir jólin. Bílaverkstæðið Bjarg. Bjargi við Sundlaugaveg, simi 38060.
VERZLIÐ í HAFNARFIRÐI Notið timann vel. Urval af bandavinnu i jólapakka Góð þjónusta í rúmgóðri verzlun Næg bilastæði Hannyrðabúðin, Linnetsstig 6, Hafnarfirði sími 51314 BÍSKÚR ÓSKASTÁ LEIGU, TILGEYMSLUÁVÉLUM Félagsbakaríið, Laugarnesvegi 52, simi 37275
jBergstaóastræti 4a Simi 14350