Morgunblaðið - 14.12.1973, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 1973.
17
Peter Barlow hefur verið dæmdur I ævilangt fangelsi fyrir
morð, sem hann er saklaus af. Hann er staðráðinn í að
strjúka úr fangelsinu og finna hinn seka. Honum tekst að
komast undan með aðstoð vina sinna, en hvað eftir
annað eru gerðar tilraunir til að taka hann höndum eða
hreinlega ráða hann af dögúm.
Svo vill til, að Peter hittir unga stúlku á flótta sínum.
Hann verður fyrst að taka hana með sér sem eins konar
gísl, síðan verður hún honum mikil hjálparhella, þegar
óvinir hans fara að kreppa að honum, en að endingu
finnst honum rétt að reyna að hrista hana af sér og halda
leitinni að morðingjanum og hjálparmönnum hans einn
síns liðs.
Leikurinn berst loks vestur til Wales og upp í fjall nærri
Snowdon-tindi, því að Peter hefur grun um, að lausn
gátunnar sé að finna þar. Og þar er hana raunar að finna
Stafafell.
Ný Cannings-DóK
I Dýðlngu Herstelns Pálssonar