Morgunblaðið - 14.12.1973, Blaðsíða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 1973.
Minning:
Valborg Steingríms-
dóttir, Siglufirði
Fædd 1. febrúar 1914.
Dáin 10. nóvember 1973.
Einn i dag, annar á morgun er
lífsins saga, og tjáir ekki um að
fást. En þegar dauðann ber svo
skjótt að sem hér var. er niaður
óviðbúinn og tekur því nokkurn
tíma að átta sig á þvf. sem gerzt
hefur.
Það má sannarlega segja. að í
okkar fjölskyldu hafi verið
skammt stórra högga í milli. Fyr-
ir tæpum tveimur árum dó bróðir
Valborgar. Baldur. fyrír tíma
fram, og nú kveður hún.
Valborg var fædd á Þverá í
Öxnadal. Hún vardóttir hjönanna
Guðnýjar .lóhannsdóttur og Stein-
gríms Stefánssonar, búandi hjóna
þar. Steingrímur var bróðir
Bernharðs Stefánssonar alþingis-
manns.
Rúmlega eins og hálfs árs að
aldri missti. Valb.org föður sinn,
aðeins þrjátíu ára gamlan. Að
rúmu ári liðnu fluttist Guðný
rnóðir hennar frá Þverá til
Sauðárkróks, þar sem Valborg
ölst upp hjá henni til 18 ára ald-
urs. en þá fluttist Valborg lil
Siglufjarðar og bjö þar allt til
dauðadags.
A Siglufirði kynntist hún eftir-
lifandi manni sínum. Kristni Guð-
mundssyni útvarpsvirkja og kvik-
my nda rsýni nga nn ann i.
Ileimilið og uppeldi barnanna
var alltaf hennar aðalvettvangur,
sem er þvf miður ekki alltaf met-
inn sem skyldi, en er þö starfið
störa. þegar það er vel af hendi
leyst.
Þau Valborg og Kristinn
eignuðust þrjú börn. Þau eru:
Steingrímur kvæntur Guðnýju
Friðriksdóttur, þau eru búsetl á
Siglufirði og eiga þrjú börn. Jö-
hanna gift Birgi Gestssyni raf-
virkja. þau eru búsett í Reykjavík
og eiga eina d.óttur, og Ilulda Guð-
björg gift Stefáni Gíslasyni bónda
að Dyrhólum í Mýrdal, þau eiga
þrjár dætur.
Öll eru börnin hin myndar-
legustu að allri gerð og gott fólk.
Það er vissulega hin mesta gæfa
foreldra að eiga slík börn.
Hjónaband þeirra Valborgar og
Kristins var alla tíð mjög gott.
Þau voru svo samhent, að á betra
varð ekki kosið. Þetta var mér,
stjúpföður hennar, sem þessar
línur ritar, vel kunnugt um, veit
ég því, að nú er honum söknuður-
inn sár. En öll sár gróa og þetta
líka, ef trúin er nógu sterk og við
felum drottni öll okkar sár í ein-
lægni og bæn.
Þegar börnin voru uppkomin og
farin að heíman, fékkst Valborg,
nokkuð við ýmiss konar listiðnað,
sem átti hug hennar allan, þvf að
hún var að eðlisfari mjög list-
hneigð. Nokkur hin siðari ár vann
hún utan heimilis, þegar tækifæri
gafst.
Valborg var hlýlynd kona. Hún
hafði stórbrotna lund. framkoma
hennar var hrein og bein og var
hún ætíð tilbúin að rétta öðrum
hjálparhönd. Þannig var hennar
upplag. Valborg var mér alla tíð
sem dóttir og á ég hlýjar endur-
minningar um glaðlyndi hennar
og gæzku. Vissulega er gott að
minnast vináttu. þar sem engan
skugga hefur borið á.
Að lokum ert þu svo kvödd Val-
borg niín með söknuði og þakk-
læti fyrir allt og allt. af aldraðri
möður þinni. sem nú hefur orðið
að sjá á bak tveimur af þremur
börnum sínum. Einnig ertu kvödd
af hálfsystur þinní. Iluldu. og
nniðursystur. Ilerdísi. Felum við
þig svo góðum guði og biðjuin þér
allra blessunar hans á landinu
hulda og dulda.
Kristinn Gunnlaugsson.
A vegamótum, á inærutn lífs og
dauða. þegar vegir skilja. nemum
Sonur minn
NJÁLL GUÐMUNDSSON,
andaðist aðfaranótt 12 þ m.
Helga Marteinsdóttir.
t
Systir okkar,
GUÐRÚN ÁRNADÓTTIR
THORKELSSON,
andaðist í Winnipeg 1 1. des.
Fyrir hönd annarra ættmenna.
Þórhallur Árnason,
MagnúsÁ. Árnason.
t
Konan mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma,
GUÐRÚN HALLDÓRSDÓTTIR,
Framnesvegi 57,
verður jarðsungin frá Dómkirkjunni, mánudaginn 1 7 des kl 1 3 30
Gunnar Árnason,
Hilmar Gunnarsson, Steinunn Jónsdóttir.
Dóra Gunnarsdóttir, Pétur M. Jónasson
og barnabörn.
Eiginmaður minn,
BJARNI SÆMUNDSSON,
Hveramörk 6, Hveragerði,
verður jarðsettur frá Fossvogskirkju, laugardaginn 15, des kl 1 0 30
Sigurrós Guðlaugsdóttir.
Minning:
Guðbjörg Bjömsdóttír
frá Vestmannaeyjum
við staðar og hverfum á vit minn-
inganna.
Um árabil lágu leiðir okkar Val-
borgar Steingrímsdóttur saman á
Siglufirði. og leiddu fyrstu kynni
okkar þar til þeirrar vináttu, sem
aldrei barskugga á.
Lalla. en svo var hún nefnd af
vinum sínum, var búin sérstak-
lega litríkri eðlisgerð, en hlédræg
o.g vönd að vinum. Ilún var góðum
gáfuin gædd og lífsvitur, trygg,
glaðlynd og góð.
Ekki skildu leiðir okkar. þótt ég
flyttist burt frá Siglufirði, því að
alltaf var samband á inilli okkar.
— töluðum oft saman og heiin-
sóttum hvor aðra. Það var alltaf
hátíð á heimili mfnu. þegar hún
kom, og áttum við saman marga
góða stund hin síðari árin sem hin
fyrri.
Ilún átti fallegt og hlýlegt heim-
ili á Siglufirði. þar sein ríkti frið-
ur og andaði á móti gestum hljiíð
1 í f s h a m i n gj a he i mi li sf ó 1 ksi n s.
Mikið gagnkvæmt ástríki var með
þeim hjónum. Valborgu og
Kristni. og var hjónaband þeirra
sérstaklega innilegt og farsælt.
Valborg var hamingjunnar barn
og áttu þau hjönin jafnan hlut að
þeirri gæfusmíð. sem sambúð
þeirra var og heimili alla tíð.
Eg kveð Löllu vinkonu mína
með söknuði og trega og þakka
henni einlæga vináttu hennar og
tryggð. Eg votta eiginmanni henn-
ar, Kristni Guðmundssyni, börn-
iinuni þeirra og öðrum ástvinum
innilega samúð mína í sárri sorg
þeirra og harmi eftir mæta konu,
sem var þeirn svo mikils virði.
Valborg, Lalla. átti sér ómetan-
leg fyrirheit um góða heimvon að
leiðarlokum.
..Sælir eru hjartahreinir, því að
þeir miinu Guð sjá."
Guðnv Oskarsdóttir.
Ilinn 18. nóvember síðastliðinn
lézt að Hrafnistu. dvalarheimili
aldraðra sjömanna, öldruð kjarn-
orkukona, sem ekker! fékk bugað
nerna elli kerling og dauði að lok-
um.
Guðbjörg fæddist 27. maí 1887
að Bryggjum í Austur-Landeyj-
um. Foreldrar hennar voru Guð-
ríður Sigurðardóttir og Björn
Tyrfingsson bóni á Bryggjum.
Guðbjörg var yngst þriggja systk
ina, en bræður hennar voru Tyrf
ingur, sem bjó á Bryggjum eftir
föður sinn og Stefán, sem gerðist
skipstjóri og útgerðarmaður í
Vestmannaeyjum og kenndur var
við húsið Skuld.
Þeir, sem eru rosknir orðnir og
svo þeir, sent kynnt hafa sér at-
vinnusögu þessa lands, vita. að
unglingar voru ekki aldir upp í
neinni værð á árunum fyrir alda-
mót. heldur gengu þeir að öllurn
algengum störfum undir eins og
þeir höfðu þroska til. Ber margt
eldra fólk þess enn merki og er
iðjuleysi ellinnar niörgum þung-
hært.
A þessum árum þóttu stúlkur
lítt hæfar til að taka að sér for-
stöðu heimilis, kynnu þær ekki
eitthvað til handavinnu Þvf
dvaldist Guðbjörg einn vetur í
Reykjavík og nam fatasaum. Guð-
björg var alla ævi vandlát konaog
krafðist þess jafnan. að menn
leystu verk sín vel af hendi, enda
þötti hún sjálf með eindæmum
verkhög.
Hinn 16. júní árið 1916 giftist
hún eftirlifandi manni sínum Sig-
urði Sæmundssyni frá Nikulásar-
húsum í Fljötshlíð. Þau byrjuðu
búskap á Bryggjum í sambýli við
Tyrfing, en fluttust árið 1918 að
Tjörnum undir Eyjafjöllum og
bjuggu þar til 1922.
Þau hjón, Guðbjörg og Sigurð-
ur. tóku á þessum árurn börn yfir
sumartímann af kaupstaðarfólki
og þá einkum frá Vestmannaeyj-
um, en móðir mín, sem er bróður-
döttir Guðbjargar, minnist ætíð
með þökk sumardvalar sinnar á
Tjörnum, en þangað var hún send
sjúklingur. er hún var á ungum
aldri. Þótti það nær óbrigðult. að
nýmjölkin og útilífið í sveitinni
ynni bug á margs konar kvillum
og sú varð raunin á við móður
mína. Minnist hún þá einkum á
hlýlegt viðmót þeirra hjiina f sinn
garð. enda hélzt óslitin og mikil
vinátta með þeim frænkum. nteð-
an báðar 1 ifðu.
Arið 1922 fluttust þau hjön aft-
ur að Bryggjum. en árið eftir
héldu þau til Vestmannaeyja og
reisu þar húsið Hallormstað.
Systir mfn. t
MARGRÉT PÁLSDÓTTIR
andaðistá Hrafnistu miðvikudaginn 1 2. des.
Páll Pálsson,
Hnífsdal.
t
Útför konunnar minnar,
GUÐBJARGAR MAGNÚSDÓTTUR.
saumakonu,
Króki 1,
fer fram frá isafjarðarkirkju, laugardaginn 15. des. kl 2 síðdegis.
Fyrir hönd vandamanna,
Þórður Einarsson.
Tllraunaslöðln á Keldum
verður lokuð laugardaginn 15. des.
GUNNARS ÓLAFSONAR, bústjóra.
vegna útfarar
sem þau voru kennd við síðan, og
þar áttu þau heimili fram á haust-
ið 1972.
1 Vestmannaeyjum stundaði
Sigurður sjómennsku í tugi ára.
en smíðar þess á milli. Fór því svo
sem oft vill verða. að forstaða
heimilisins féll f hlut Guðbjargar,
er Sigurður dvaldist löngum
fjarri við störf sín. Eftir að Sig-
urður hætti sjómennsku, var
hann um skeið verkstjóri hjá
Helga Benediktssyni og hóf síðan
að vinna við skipasmfðar hjá Ar-
sæli Sveinssyni. Þar Vann hann
fram úndir 1960.
Þuð Guðbjörg og Sigurður eign-
uðust 4 börn og er ekki altítt, að
barnalán sé jafneinstakt og raun
ber vitni uni þeirra börn. en af
þeim komust þrjú til þroska. Þau
eru: Torfhildur, fædd 31. maí
1912. gift Óskari Friðbjörnssyni
lögregluþjóni í Reykjavík. Björn
húsasmíðameistari í Reykjavfk,
fæddur 25. júlí 1819, kvæntur
Jóhönnu Ingimundardóttur og
Þórarinn skipasmíðameistari í
Vestmannaevjum. fæddur 24.
febrúar 1924. kvæntur Perlu
Björnsdóttur. Yngstur var Sigurð-
ur Björgvin fæddur 29. ágúst
1925, en þau hjön urðu fyrir
þeirri þungu raun að missa hann
aðeins 6 ára gamlan. Það bar til
með þeim hætti. að unaðslegan
sumardag, hinn 18 júní árið 1932,
var Sigurður litli að leik ásamt
fleiri börnunt við syðra hafnar-
garðinn í Vestmannaeyjum. Sátu
þeir þar og dorguðu. Sigurður
ntissti þá færið sitt og hugðist
teyja sig eftir þvf. en féll út af
garðinum. Enginn fullorðinn var
nærri og börnin hjálparvana hjá.
Öhætt er að segja, að Guðbjörg
hafi ekki látið bugast við þetta
atvik. þótt þungbært væri. Guð-
björg var mikil trúkona og er ekki
að efa. að trúin hefir veitt henni
styrk. en styrk trúarinnar þekkja
aðeins þeir, sem re.vnt hann hafa.
Guðbjörg var alla tíð mikil hús-
móðir og góð heim að sækja. Mað-
ur átti það víst að fá kaffi og
pönnukökur f hvert skipti, sem
kontið var að Ilallormsstað. Mér
þótti gaman þangað að koma sem
barni, því að þar fékk ég kaffi. en
helzt ekki annárs staðar.
Jafnan var mikil geslakoma að
Hallormsstað. Guðbjörg var ræðin
og fróð og er afleitt, að ekki
skyldi notfærður fróðleikur henn-
ar um Iiðna tíma meir en gert var.
Guðbjörg var fyrir því að lifa
mestu náttúruhamfarir, sem
gengið hafa yfir Suðurland á
einni öld á einni öld: Jarðskjálft-
Framhald á bls. 34
t
Faðir okkar,
ANDREAS ANDERSEN,
Barmahlíð 50,
verður jarðsunginn frá Fossvogs-
kirkju, þriðjudaginn 18 desem-
ber kl 3 e.h.
Anna Andrésdóttir,
Kristjana Andrésdóttir.