Morgunblaðið - 14.12.1973, Síða 34
34
MOQGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 1973.
Þorvaldur Garðar Kristiánsson:
Ibúðarlán til efling-
ar byggðajafnvægi
Lánin hækki í 1,2 milljónir
ÞORVALDUR Garðar Krisl-
jánsson (S) hefur flutt
f rumvarp til laga um breytingu á
liigum um Húsnæðismálastofnun
rfkisins. Gerir flutningsmaður aö
tillögu sinni. að nýr kafli komi
inn i lögin með fyrirsögninni:
tbúðalán til eflingar byggðajafn-
vægi. Verði ríkisstjórninni þar
heimilað að ákveða. eftir beiðni
viðkomandi sveitarstjórnar,
sérstaka fvrirgtreiðslu við hús-
b.vggjendur í þeim héruðum
landsins, þar sein aðstoðar er
þiirf til eflingar bvggðajafnvægi
í landinu.
Þá gerir Þorvaldur Garðar
einnig að tillögu sinni, að láns-
fjárhæð byggingarláns Húsnæðis-
málastjórnar megi nema allt að
1,2 milljónum. sem síðan sé
heimild til að hækka til sam-
ræmis við breytingar á vfsitölu
b.vggingarkostnaðar.
I greinargerð, sem frumvarpinu
fylgir, kemur fram, að frumvarp
sama efnis hafi verið flutt á síð-
asta þingi, en þá ekki hlotið af-
greiðslu. Þá segir:
„Á nauðs.vn byggða,jafnvægis
er víðtækur skilningur. Þóerþað
svo, að við þetta mál hefur verið
fengizt með minni árangri en
flest önnur viðfangsefni. Þetta er
vegna þess, að mönnum hefur
seint skilizt, að til að stuðla að
jafnvægi f byggð landsins þarf að
koma til alhliða uppbygging
þeirra byggðarlaga eða land-
svæða. sem efla skal til aukins
byggðajafnvægis. Enn fremur
hafa menn lengi skirrzt við að
viðurkenna, aðekki verður unnið
að jafnvægi í byggð landsins
nema mismuna þannig, að meira
verði gert fyrir þá staði, sem efla
þarf, en hina."
Nokkru sfðar f greinargerðinni
segir:
„í allri viðleitni til eflingar
byggðajafnvægi kreppir nú
skórinn ekki sízt að í húsnæðis-
málunum. Vfða úti á landi skortir
nú íbúðarhúsnæði. Þetta á
einkum við þróttmikla útgerðar-
staði. Þar er húsnæðisskorturinn
þess eðlis, að hann kemur i veg
f.vrir fólksflutninga til þessara
staða, sem annars væri grund-
völlur f.vrir. Þetta er á stöðum,
þar sem skortir fólk á vinnu-
markaðinn, til þess að fram-
leiðslutækin, sem þar eru þegar
fyrir hendi, verði fullnýtt og
rekin með eðlilegum hætti. Á
þessum sömu stöðum eru víða
hinar hagkvæmustu aðstæður til
f rekari atvinnuuppb.vggingar.
Þar sem svo háttar til, getur þvf
Lárus Jónsson o.fL;
Réttlátari
byggingarlán
á landsbyggðinni
LARUS Jónsson og þrfr aðrir
þingmenn Sjálfstæðisf lokksins
hafa flutt tillögu til þingsályktun-
ar um réttlátari reglur í veitingu
húnnæðislána á landsbyggðinnu.
Hljóðar tillagan svo:
Alþingi ályktar aðskora á rfkis-
stjórnina að láta endurskoða
reglugerð um úthlutun lána hús-
næðismálastjórnar f því skyní, að
fullt tillit sé tekið til sérstöðu
húsbyggjenda á landshyggðinni,
þannig að fólk, sem hefur hús-
byggingar á eðlilegum árstímá.
miðað við aðstæður. þar sem það
býr. hafi jafna möguleika til hús-
næðisláns á þvf ári og húsbyggj-
endur á mesta þéttbýlissvæði
landsins.
Meðflutningsmenn Lárusar eru
Magnús Jónsson. Pálmi Jónsson
og Matthfas Bjarnason.
í greinargerð. sem fl.vlgir tillög-
unni segirsvo m.a.:
í reglugerð um veitingu íbúðar-
lána á vegurn húsnæðismála-
stjórnar er miðað við komutíma
lánsumsókna og hvenær viðkorn-
andi húsnæði verður fokhelt. Mið-
að er við, að umsóknir. sem hljóða
á nafn, þurfi að vera komnar fyrir
1. febr. ár hvert. til þess að lán
fáist á því ári. Þessi regla er mjög
óeðlileg gagnvart húsb.vggjendum
á landsbyggðinni. vegna þess að
aðstaða þar til lóðaúthlutunar er
víða erfið og því oft á tíðum
óhægt um vik að afla lóða-
samninga og teikninga fyrir
1. febrúar. Þá er og á það að
líta. að sé úthlutun miðuð við
eindaga fokheldisvott-
orðs. sem er snemma á hausti. er
það mjög óhagstætt fyrir þau
byggðarlög, sem búa við frum-
stæðari byggingartækni, öhæga
aðstöðu til öflunar sérhæfðs
vinnuafls. svo og öblíðari náttúru
skil.vrði en eru hér suðvestan-
lands.
Reglan um komutíma umsókna.
sem hljóða á nafn einstaklings. er
sérstaklega öhagstæð fvrir verk-
taka í b.vggingaiðnaði. einkum
bvggingaverktaka á landsbyggð-
inni. Ljóst er, að vei má standa að
sölu þeirra fbúða, sem hafin er
bygging á í byrjun árs og eru
orðnar fokheldar á hausti, þannig
að hinn 1. febrúar sé unnt að
leggja inn hjá húsnæðismála-
stjórn unisókn um slfkar fbúðir
frá kaupendum sjálfum. Þött-
þetta sé vissufega örðugt hér á
þéttbýlissvæðinu. tekur steininn
úr á landsbyggðinni. því að þar
tíðkast alls ekki að selja fbúðir á
teikniborðinu. eins og mun gerast
hér syðra. enda eftirspurn eftir
fjölbýlishúsnæði alla jafna miklu
minni á landsbyggðinni.
verið hinn ákjósanlegasti grund-
völlur til ef lingar b.vggðgjafnvægi
í landinu, ef ýtt er undir fólks-
flutninga til þessara staða frá
þeim landsvæðum, þar sem fjöl-
menni hefur raskað eðlilegu
byggðajafnvægi.
Til að hagnýta þennan grundvöll
til eflingar b.vggðajafnvægi þarf
aðgerðir, sem koma í veg fyrir, að
húsnæðisskortur hindri búsetu-
skipti fólks, sem vill leita til
þessara staða í atvinnuskyni.
Þessar aðgerðir þurfa og að vera
þess eðlis, að þær í sjálfu sér örvi
til þessara fólksflutninga. Þess
vegna eru ekki önnur úrræði í
þessu máli en að gera mögulegt,
að ibúðarlán, sem veitt eru til
þessara staða, verði hærri og hag-
kvæmari en almennt gerist."
Atvinnumál
aldraðra
SVAVA Jakobsdóttir (Ab) o.fl.
flytja þingsályktunartillögu um
atvinnumál aldraðra. Skal að
því stefnt, að allir yfir 67 ára
aldri geti átt kost á atvinnu við
sitt hæfi.
Línusvæði fyrir
Vestfjörðum
STEINGRÍMUR Hermannsson
(F) flytur fyrirspurn til sjávar-
útvegsráðherra: „Telur sjávar-
útvegsráðherra koma til greina
að afmarka sérstakt línusvæði
fyrir Vestfjörðum, og ef svo er,
hefur ráðherra i huga að gera
það?“
Ellilífeyrir
sjómanna
Hannibal Valdimarsson
(SFV) flytur frumvarp um
breytingu á lögúm um
almannatryggingar, þar sem
lagt er til, að sjómenn, sem
stundað hafa sjómennsku leng-
ur en 35 ár, öðlist rétt til ellilíf-
eyris við 60 ára aldur og sjó-
menn, sem stundað hafi sjó-
mennsku í 40 ár, fái rétt á tvö-
földum ellilífeyri við sama
aldur. Eins og kunnugt er, er
almenna reglan sú, að menn
öðlist rétt til ellilifeyris við 67
ára aldurs.
Skipulag
olíusölunnar
Eggert G. Þorsteinsson (A)
flytur eftirfarandi fyrirspurn
til viðskiptaráðherra:
1. Hvað líður endurskoðun á
skipulagi olíusölu i landinu?
2. Hvenær er þess að vænta, að
hugsanleg endurskipulagn-
ing á olíudreifingunni geti
komið til framkvæmda?
Gengisskráning
Fjárhags- og viðskiptanefnd
efri deildar flytur frumvarp til
laga um breytingu á iögum um
Seðlabanka íslands. Er f frum-
varpinu lagt til, að Seðlabanki
Islands ákveði, að fengnu sam-
þykki ríkisstjórnarinnar, þau
efri og neðri mörk, sem gilda
um daglega gengisskráningu
krónunnar.
Guðlaugur Gíslason:
Flýtum hag-
nýtingu raforku
til húsahitunar
A FUNDI í sameinuðu þingi á
fimmtudag I sl. viku mælti Guð-
laugur Gfslason (S) fvrir tillögu
til þingsályktunar, sem hann flvt-
ur ásamt Jöni Arnasyni (S) um
nýtingu á raforku til húsahitunar
og verðjöfnun á raforku. Hljóðar
tillagan f heild svo:
Alþingi ályktar að skora á ríkis-
stjórnina að taka til endurskoðun-
ar fyrri áætlanir um raforkufram-
leiðslu til húsahitunar með það
fyrir augum. að öllum aðgerðum í
þessum efnum verði f lýtt svo sem
kostur er á. Jafnframt beiti ríkis-
stjórnin sér fyrir nauðsynlegum
lagabre.vtingum, ef með þarf, til
þess að á verði komið jöfnunar-
verði á raforku til húsahitunar,
þannig að kostnaður við upphitun
húsa með raforku verði sambæri-
legur við hitun húsa á jarðhita-
svæðum, þar sem hitaveitur eru
fyrir hendi eða verður við komið
meðeðlilegum hætti.
Fer hér á eftir stuttur kafli úr
ræðu Guðlaugs Gíslasonar:
„Að sjálfsögðu er okkur flutn-
ingsmönnum kunnugt um þær.
áætlanir, sem uppi hafa verið á
undanförnum árum og þá stefnu-
mörkun að stefna að því að taka f
æ ríkari mæli raforku til hitunar
húsa í stað olíukyndingar. Allar
hafa þessar áætlanir þó verið við
það miðaðar, að þetta gæti gerst
með eðlilegum hætti, þróast á
nokkru árabili og skiptin því tek-
ið nokkuð langan tíma. Hins veg-
ar liggur það f.vrir nú f dag, að
viðhorf öll í þessu sambandi hafa
gerbreyst við þá verðhækkun,
sem orðið hefur á olíu og enn er
f.vrirsjáanleg framundan, ef að-
stæður ekki breytast aftur f hið
fyrra horf. Það má segja, að við
séum kannski ekki í neinni beinni
hættu í sambandi við okkar orku-
mál í bili, en þó getur alltaf það
að borið, að ef til styrjaldar
drægi, þá værum við þar mjög illa
sett, ef ekki væru gerðar fljót-
virkari ráðstafanir til orkuöflun-
ar heldur en nú eru áætlanir uppi
um.
Og þó að svo færi, að jafnvægi
kæmist á i olíumálunum, þá er
það eitt atriði, sem liggur alveg
ljóslega f.vrir, en það er, að stofn-
kostnaður við byggingu nýrra
húsa er mun minni, ef gert er ráð
fyrir í upphafi að um rafhitun
verði að ræða í stað olfukynding-
ar, eins og nú er víðast úti á
Iandsbyggðinni. Það liggur nokk-
ur reynsla fyrir í þessu sambandi
um kostnað miðað við verð á oliu,
sem var, áður heldur en verð-
hækkunin skall yfir. Þær upplýs-
ingar, sem ég hef um það, benda
mjög ótvírætt f þá átt, að séu
húsin f upphafi vel einangruð og
með raforkuhitun reiknað, þá
muni raforka ekki þurfa að verða
dýrari heldur en olíukynding og
jafnvel mun ódýrari, ef vel er að
staðið. En f sambandi við það við-
horf, sem nú hefur skapast vegna
verðhækkunar á oliu, þá hefur
enn mjög breyst f þá átt, að að-
stöðumunur verður enn tilfinn-
andlegri í sambandi við hitun
húsa fyrir þá, sem úti á lands-
byggðinni búa og ekki hafa að-
stöðu til að njóta hitunar frá hita-
veitum eða jarðvarma og hlýtur
þvf einnig þetta atriði að verða
tekið til rækilegrar endurskoðun-
— Minning
Framhald af bls. 30
ana 1896. sem hún rnundi vel, og
eldgosiðá Ileimaev.
Guðbjörg var eftirsótt til við-
ræðna. hvort sem ungir eða aldnir
a'ttu í hlut. Mörgum þótti gott að
leita hjá henni ráða, og við ungl-
inga átti hún einstaklega létt með
að tala. Minnið brást henni ekki
fram á hennarsíðustustundir og
fylgdist hún jafnan vel með hög-
um frændfólks síns og vina. svo
að furðu gegndi. Hvort sem rætt
varviðGuðbjörgu ttm flókin atriði
úr íslenzkum bókmenntum og þau
útskýrð. eða um almennan al-
þýðufróðleik íslenzkan. var hún
jafnfhugul um það, sem á góma
bar. og menn komu ekki að tóm-
ttm kofunum hjá henni. hvað álit
og skoðanir á málefnunum varð-
aði. þvf aðGuðbjörg varskapgerð-
arkona. Þeir langskólamenn, sem
reyna að gera lftið úr íslenzkri
alþýðumenntun fyrr á árum og
hennar skoðunum. hefðu átt að
kynnast Guðbjörgu á Ilallorms-
stað.
Um árið 1965 tók Guðbjörg að
kenna nokkurs lasleika í höfði, en
hélt þó áfram að veita heimili
þeirra hjóna forstöðu. Það rná
segja. að setið hafi verið, meðan
sætt var. Guðbjörgu brast aldrei
lífslöngunina og heimili sitt yfir-
gaf hún ekki f.vrr en þau hjón
voru flutt á sjúkrahús hjá Þörarni
syni sfnum og Perlu konu hans og
þótti Guðbjörgu mikíð til um þá
miklu umönnun. sem Perla veitti
henni og þeim hjónum báðum.
Er þau hjón urðu að flýja jarð-
eldana í Heimaey, tók Torfhildur
þau á heimili sitt og þar dvöldu
þau fram á mitt sumar, en þá
fluttust þau á dvalarheimilið
Hrafnistu hér í bæ. en þar fékk
Guðbjörg þá beztu umönnun. sem
völ var á.
Ymsar hugsanir leita á hugann
við fráfall ættingja og vina. í raun
og veru er ekki ástæða til að
harma andlát aldraðs fölks, er
heilsan hefir yfirgefið. heldur
mega aðstandendur þakka af al-
hug. ef helstrfðið varir skamma
stund. Sigurður getur minnzt
langrar og hamingjuríkrar ævi-
brautar með góðri konu og
við minnumst þeirra hjóna sam-
an. ljúflegs viðmóts Sigurðar, sem
allir hans kunningjar og vinir
þekkja, og alúðlegs en hressilegs
viðmóts Guðbjargar. Athyglisvert
var að hlýða á málfar hennar fag-
urt og meitlað.
Ef til vill væri málfar allt betra
hjá almenningi, ef hann ætti þess
kost að hlýða á mál eins og Guð-
björg á Ilallormsstað talaði, veita
því athygli og læra það.
Utför Guðbjargar var gerð frá
Hábæjarkirkju f Þykkvabæ og
sótti þangað fjölmenni hinn 24.
nóvember síðastliðinn í frost-
köldu, en fögru veðri. Menn
höfðu orð á því. að víðsýnt væri
um næstu byggðir. Eyjarnar sáust
rísa úr sæ undan landi. h'eimili
hennar um nær fimm áratuga
skeið, og fæðingarsveit hennar
blasti við þeim. er austur fóru.
Jarðvist Guðbjargar er á enda.
en minningin um konuna. sem
fylgdist svo vel með þróun tfm-
ans, að unglingar hændust að
henni bæði sér til skemmtunar og
til þess að leita sér góðra ráða.
lifir.
Reykjavík,3. desember 1973.
Arnþór Helgason.