Morgunblaðið - 14.12.1973, Síða 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 1973.
Skák
Þegar
Petrosjan fór
í sókn
Úrslitin á nýafstöðnu skák-
þingi Sovétríkjanna sýna
glöggt, að sovétzku þátttakend-
urnir í áskorendakeppninni
eru allir í toppformi. Rtissar
ætla sem sagt ekki að láta
hne.vkslið frá 1972 endurtaka
sig.
Einn þessara kappa er
Georgíumaðurinn Tigran
Petrosjan, f.vrrverandi heims-
meistari. Petrosjan á langan og
glæsilegan skákferil að baki,
en sjaldan hefur hann þótt
tefla beinlínis skemmtilega.
Sannleikurinn er þó sá, að
Petrosjan teflir flestum mönn-
um betur. Djúpur stöðuskiln-
ingur og þrautseigja í erfiðum
stöðum eru aðalsmerki hans.
Engu að siður getur Petrosjan
..kombinerað" glæsilega þegar
sá gállinn er á honum og má i
þvi viðfangi minna á skák hans
við Paehman í Bled 1961.
í eftirfarandi skák mætir
Petrosjan öðrum f.vrrverandi
heimsmeistara, Mikhail Tal,
sem jafnan mun verða talinn á
meðal fremstu sóknarsnillinga
skáksögunnar. Flestir munu
hafa vænzt þess, að i þeirra
viðureign m.vndi Tal sækja
allan tímann og úrslitin ráðast
af því, hve vel Petrosjan
tækist til í vörninni. Við skul-
um nú líta á skákina og sjá,
hvað gerðist. Skákin var tefld
á umræddu Sovétmeistara-
móti.
Hvftt: M.Tal
Svart: T. Petrosjan
Carokann vörn
1. e4— c8.
(Caro kann, eða byrjun fátæka
mannsins, á alltaf nokkra
trygga áhangendur. Þeirra á
meðal eru Petrosjan og
Botvinnik).
2. d4— dá, 3. Re3
(I einvígunum gegn Botvinnik
lék Tal gjarnan 3. e5, en með
harla misjöfnum árangri).
3. — dxe4,4. Rxe4 — Rd7,
(Ýmsir meistarar Ieika hér
gjarnan 4. — Rf6, en algengast
er 3. — Bf5. Þessi leikur gefur
hinum tveim þöekkert eftir).
5. Be 4
(Á Olympíumóti lék Paul
Keres hér eitt sinn 5. De2gegn
pólskum meistara. Áframhald-
ið varð: 5. — Rgf6, 6. Rd6+ og
mát!
5. — Rgf6, 6. Rg5 — e6, 7. De2
— Rb6,
(Ilvítur hótaði 8. Rxf7).
8. Bb3 — a5!,
(Virkasti varnarleikurinn.
Svartur mátti alls ekki drepa á
d4 vegna 9. Rlf3. ásamt Reöog
svarta peðið á f7 fellur).
9. a4!?
(Eftir 9. c3 — a4, 10. Bc2 — a3
gæti svartur framkallað veik-
leika í hvítu peðastöðunni á
drottningarvæng. Þessi leikur
felur þó einnig í sér nokkra
veikingu, einkum með tilliti til
þess, að Tal hrókar langt síðar
i skákinni).
9. — h6, 10. R5f3 — c5, 11. Bf4
— Bd 6,
(fikki 11. — cxd4 vegna 12.
0-0-0 og hvítur hefur hættulegt
frumkvæði).
12. Be5 — 0-0,13.0—0—0,
(Línurnar hafa skýrzt. Hvftur
stefnir að sókn á kóngsvæng,
þar sem veikittgin á h6;ptti að
koma honum að nokkrum not-
um. Svartur verður hins vegar
að reyna gagnsókn á drottn
ingarvæng).
13. — c4!,
(Kapphlaupið er hafið, hvor
verður á undan?)-
14. Bxc4 — Rxa4, 15. Rh3 —
Rb6, 16. g4 — a4, 17. g5 —
hxg5.18. Rhxg5 — a.i. 19. b3 —
Bb4.
(Hvítum hefur tekizt að opna
g — Ifnuna og sennílega vildu
fáir hafa svörtu stöðuna gegn
Tal. Petrosjan teflir hins vegar
gagnsóknina af mikilli snerpu
og öryggi. Ef hvítur léki nú 20.
Dd3 gæti áframhaldið orðið:
20. — Rxc4, 21. Bxf6 — g6!, 22.
Dxc4 (22. Bxd8 — a2) — a2,
23 Dxb4 — a 1D+. 24. Kd2 —
Dal5 og vinnur).
20. Hdgl?
(20. — Bc3 hugðist Tal svara
með 21. Dd3 og eftir t.d. 21. —
a2. 22. Kdl — alD + ,23. Ke2er.
hvíta sóknin mjög hættuleg
þött svartur hafi tvær drottn-
ingar á borðinu. Galli texta-
leiksins kemur bezt í ljós eftir
23. leik svarts).
20, — a2!.
(Mun sterkara en 20. — Bc3)
21. Kb2 — Rxc4 + . 22. Dxc4 —
Rfd 5,23. Re4— f6
(Þar lá hundurinn grafinn
Eftir 24. Bg3 — f5, 25. Be5 —
alD+ vinnur svartur mann)
24. Bf4 — Ba.3+, 25. Kal —
Rxf4, 26. h4 — Hf7, 27. Hg4 —
Da5 og hvítur gafst upp. Hann
á enga vörn gegn hótuninni
Bb2+.
Jón Þ. Þór.
María Finnsdóttir, hjúkrunarkona:
Frjálsar fóstureyðingar
1 NÁMI við hjúkrunarháskóla í
Englandi fyrir tveim árum
kynntist ég að nokkru þeim
vandamálum, sem löggjöf um
frjálsar fóstureyðingar frá 1967
hefir haft í för með sér þar í
landi. Einnig starfaði ég á skurð-
stofu Fæðingar- og kvensjúk-
dómadeildar Landspítalans fyrir
rúmum tveim áratugum. Það er
reynsla, sem aldrei gleynist, þótt
þessar aðgerðir hafi þá aðeins
verið svipur hjá sjón miðað við
það, sem nú er. Þvi langar mig til
að leggja nokkur orð í belg.
Ég vil leyfa mér að taka upp
nokkra þætti úr nefndaráliti Heil-
brigiðis- og tr.vgginagamálaráðu-
neytisins um fóstureyðingar og
ófrjósemisaðgerðir.
Látum fyrst tölurnar tala um þá
gífurlegu aukningu, sem verður,
er löggjafarvaldið léttir af öllum
hömlum.
einstaklingur skal bundinn af
lögum þessum til að taka þátt í
aðgerðum þeim, sem lögin fjalla
um, sé það andstætt samvizku
þeirra." Vissulega er hér mikið
vandamál á ferðinni, svo stórt að
ekki er hægt að afgreiða þaðein-
faldlega með því, að hér sé um
fordóma að ræða. Anclúðin á
þessum aðgerðum er fyrst og
fremst fólgin í eðli hennar. Á
sjöundu viku fer fóstrið að fá
mannsmynd. 12 vikna gamalt get-
ur það hreyft hönd að munni og
gert soghreyfingar. 18 vikna
gamalt sýgur fóstrið þumalfingur.
Hér er um að ræða einstakling
með sjálfstætt blóðrásar- og
taugakerfi.
I frumv. til laga segir: „Föst-
ureyðing skal framkvæmd eins
f ljótt og auðið er og helzt fyrir lok
12. viku meðgöngutíma. Fóstur-
eyðing skal að jafnaði ekki fram-
kvensjúkdómadeild Landspít-
alans tekið upp rúm, sem
ætluð eru konum með kvensjúk-
dóma. Stór viðbygging er nú að
rísa af grunni. Langþráð takmark
þeim, sem við þessi störf vinna.
Þar koma til bætt vinnuskilyrði
og það sem er aðalatriðið, bætt
þjónusta fyrir þær konur, sem
hafa orðið að bfða aðgerða, þar til
í óefni var komið. Konur hafa
nýlega afhent stórfé til kaupa á
tækjum, sem ætluð eru til rann-
sókna og læknismeðferðar.
Vonandi verða það ekki örlög
hinnar nýju deildar að taka við
þeim konum, sem komatil fóstur-
eyðingar „eftir pöntun" á meðan
hinar sjúku verða ennþá að bfða.
Af nefndarálitinu og blaða-
skrifum má skilja, að mistök hafa
átt sér stað í framkvæmd
núverandi laga. En geta þessi
mistök réttlætt frjásar fóstureyð-
‘’S'jöldi fóstureyðinga í Bretlandi:
1968 júlí - des. 2o.ooo fóstureyðingar
1969 jan. - júlí 26.ooo fl
júlí - des. 32.000 ff
197o jan. - júlí 41.ooo tf
júlí - des. 48.ooo II
1971 allt árið 126.ooo M (13.6$ miðað við lifandi fædda)"
í fyrsta kafla nefndarálitsins
stendur: „Nefndin leggur höfuð-
áherzlu á nauðsyn þess að fyrir-
byggja ótímabæra þungun, sem
leiðir til þess að farið er fram
á fóstureyðingu. Nefndin lít-
ur svo á, að -fóstureyðing
sé alltaf neyðarúrræði
vegna þess að um er að ræða
læknisaðgerð, sem getur haft
kvæmd eftir 16. viku meðgöngu-
tíma." Um ástæðu gegn því að
fóslurlát sé framkallað segir
meðal annars i nefndarálitinu:
„Framköllun fósturláts verður
stöðugt hættulegra eftir því sem
líður á lengd meðgöngutímans og
lífsmöguleikar fösturs(?) og ung-
barnamorða geta orðið áþreifan-
legt vandamál".
ingar? Er ekki ástæða til að fleiri
heilbrigðisstéttir en læknar hafi
fulltrúa við ákvörðunartekt um,
hvaða konur skuli fá þessar
aðgerðir framkvæmdar.
áhættu í för með sér og krefst
sérhæfðs starfsfólks og full-
komins útbúnaðar, ef eitthvað ber
útaf. Aðgerðin verður þess vegna
að fara fram í sjúkrahúsum og
verður þvf all kostnaðarsöm
getnaðarvörn fyrir þjóðfélagið."
Hér er lögð áhersla á sérhæft
starfsfólk. Bregður svo við, að
sfðar í nefndarálitinu er rætt um
það óverjandi ástand erlendis þar
sem löggjöfin er frjáls, að læknar
og hjúkrunarkonur vilji ekki taka
þátt í þessum aðgerðum af trúar-
eða siðferðislegum ástæðum og ef
hjúkrunarkonur vilji ekki hjúkra
þessum sjúklingum, verði að fá
„hjálp þeirra, sem það viljigera".
Ef til vill er þetta skrifað með
hliðsjón af því ákvæði í brezku
Iöggjöfinni sem segir: „Enginn
Hingað til, þ.e. á meðan
aðgerðin er læknisfræðilegs- og
þjóðfélagslegs eðlis, vinnur
hjúkrunarkonan sinn hluta
starfsins sem hvert annað skyldu-
starf. En þegar fóstureyðingar
eru framkvæmdar „eftir pöntun"
hjá heilbrigðum konum, sem búa
við góðar félagslegar aðstæður, þá
horfir málið öðruvísi við. Þá
vaknar spurningin um mismunun
á röngu og réttu. En ef til vill
gerir samfélagið ekki lengur þá
kröfu til þessara starfsstétta, að
þær geri greinarmun á röngu og
réttu, heldur viðurkenni þá sið-
gæðisvitund, sem segir að „til-
gangurinn helgi meðalið".
Fram að þessu hafa þær konur,
sem fengið hafa fóstureyðingu
framkvæmda á Fæðingar- og
NÝR
HEIMS-
MEISTARI
Suður-Afrfkubúinn Arnold
Taylor vann til heimsmeistara-
titilsins i hnefaleikun.
bantamvigtar með þvf að sigra
Mexikóbúann Romeo Anaya f
14. og næst síðustu lotu keppni
þeirra, sem fram fór f Jo-
hannesburg fyrir skömmu.
Anaya var titilhafi. Leikurinn
þótti mjög grófur og báðir
hnefaleikararnir voru illa á sig
komnir að honum loknum.
Um ábyrgð
og Glistrup
GRATULERER Glistrup
frændi! Danir, vinir vorir og
frændur virðast vera búnir að
fá nög af sósíalistavellunni í
krataflokkunum í miðið. Hinn
sjálfbjarga maður hefur gefið
hinum „ábyrgu atvinnupólitík-
usum" spark í rassinn, því að
þeir hafa gleymt hagsmunum
og vilja hans vegna velferðar-
dekursins. Enda er Gylfi
harmi lostinn.
Þetta ætti að vera okkar
„ábyrgu" pólitfkusum ábend-
ing um að aðgæta hvar þeir
standa. Sem betur fer fyrir þá,
er enginn Glistrup á ferðinni í
islenzkum stjórnmálum. ís-
lendingar hafa bara Bjarna
Guðnason og hann segir, að
Glistrup sé „hitlerstýpa".
Bjarni er nýbúinn að stofna
fiokk utan um sjálfan sig. Á
þennan flokk smellti hann
gömlu og góðu nafni, sem var á
lausu — Frjálslyndi flokkur-
inn. Þö var nafnið Þjóðernis-
sinnaflokkurinn laust líka.
Flokkurinn er þó ekki frjáls-
lyndari en það, að herstöðva-
komplex Bjarna er ófrávíkjan-
legt boðorð í þeirri sveit.
Annars er það víst, að Bjarni
hefur höfðað til margra með
málflutningi sínum um sam-
tryggingu hinna „ábyrgu"
stjórnmálaflokka. Ilins vegar
verða einræðistilhneigingar
hans sjálfs og þröngsýni, m.a. í
herstöðvamálinu, þess vald-
andi, að hann vinnur ekki
Glistrupsigur hér á landi. Og
fyrir það, að Bjarni er B.jarni.
en ekki Glistrup, mega hinir
„áb.vrgu" pólitíkusar þakka
sínum sæla. Það verður fröð-
legt að sjá, hverju fram vindur
í Danmörku — hver „ábyrgð'
þeirra ómissandi „ábyrgu"
verður.
Nýlega var engin ríkisstjórn
f Belgíu svo mörgum mánuð-
um skipti. Belgir sögðu, að
hlutirnir hefðu síður en svo
gengið verr þann tíma, ef ekki
bara betur. Maður, sem gerir
lítið á vinnustað, má ekki láta
sig vanta. Þá sæju menn, að
hann léti ekki eftir sig neitt
pláss.
En við getum litið yfir hrak-
farasögu íslenzkra efnahags-
mála og spurt: Hvar er
„ábyrgðin?" Ilver verður
„áb.vrgð' Lúðvíks eftir að
hann hefur þvingað fslenzk
fyrirtæki i gjaldþrot eða
rekstrarstöðvun í gegnum
verðlagsnefnd? Ilver verður
„ábyrgð" verkalýðsforustunn-
ar eftir næsta gengisfall? Ilver
er „ábyrgð" Ölafs Jóhannes-
sonar á meira en 20% verð-
bólgu, sem er meira en annars
staðar gerist, þó svo að Halldór
E. sé „alltaf að basla við
hana"?
Ætli þeir fái ekki bara fálka-
kross, þegar þeir hætta —
þ.e.a.s. ef Bjarni verður ekki
búinn að leggja orðuna niður.
Halldór Jónsson verkfr.