Morgunblaðið - 29.12.1973, Page 5

Morgunblaðið - 29.12.1973, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. DESEMBER 1973 £> Tyrkirkveðja Ismet Inönii Ankara, 27. des. AP. NTB. ISMET Inönii, sem lézt á jóladag, var lagður til hinztu hvíldar í gær, f „Anit Kabir“, grafhýsi Kemal Atatiirks, stofnanda tyrkn eska lýðveldisins. Hann var 89 ára að aldri. Inönii var náinn vinur og sam- starfsmaður Atatiirks. Atatiirk skipaði hann fyrsta forsætisráð- herra sinn 1923 og Inönii varð eftirmaður hans i forsetastóli 1938. Allir fánar í Tyrklandi voru í hálfa stöng þar til útförin hafði farið fram. Ríkisóperan og leik- húsið felldu niður sýningar og Ismet Inönii útvarp og sjónvarp fluttu aðeins fréttir og klassiska tónlist. Kennsla féll niður í skólanum, en Inönus var minnzt i staðinn. Inönu hélt Tyrklandi hlutlausu í síðari heimsstyrjöld fram á siðustu daga stríðsins. Þegar Rússar kröfðust landa af Tyrkj- um og yfirráða yfir tyrknesku sundunum beitti hann sér fyrir inngöngu Tyrklands i Atlants- hafsbandalagið. Hann leyfði fyrstu raunveru- lega frjálsu kosningarnar í Tyrk- landi 1950 og beið ósigur fyrir Bayar og Menderes. Hann varð aftur forsætisráðherra eftir kosningarnar 1961 og gegndi emb ætinnu til 1964. Tvær byltingar- tilraunin voru gerðar 1962 og 1963, og i febrúar 1964 var honum sýnt banatilræði. A þessum árum tryggði hann Tyrkjum samninga við Efnahagsbandalagið. Fyrir einu og hálfu ári beið hann alvarlegan pólitiskan ósig- ur. Hann sagði þá af sér for- mennsku Lýðveldisflokksins eftir deilur við vinstrimenn í flokkn- um, sem seinna kusu Bulent Ecevit formann. Inönú var félagi í „UngTyrkja“- hrevfingunni. sem barðist gegn soldáninum. í fyrri heims- styrjöldinni var hann hers- höfðingi á sýrlenzku vígstöðvun- um, þar sem hann barðist gegn Bretum. Hann var einn helzti hers höfðingji Atatúrks í stríðinu gegn Grikkjum eftir fyrri heimsstyrj öldina og 1921 sigraði hann þá við Inönú, sem hann kenndi sig við, einu ári áður en þeir voru hraktir í sjóinn. hjá þeim sem hljóta háu vinningana: Ánægjulegt hjá% þeim sem fá þá lægri. Spenn- andi hjá þeim sem eru með. Happdrætti SÍBS sem enginn getur tapað í, því ávinnings af starfi SÍBS njóta allir lands- menn.^ Dregið 10. janúar.% Happdrætti SÍBS. r Vinningur margra, ávinningur allra.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.