Morgunblaðið - 29.12.1973, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 29.12.1973, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. DESEMBER 1973 17 Jóhannes Helgi, rithöfundur: Alþingi grípur í taumana Jóhannes Helgi Morgunblaðið hefur fregnað, að mikil ólga ríki nú meðal rithöf- unda vegna nýlegrar úthlutunar viðhótarritlauna. Einn hinna sniðgengnu höfunda er Jóhannes Helgi og sneri blaðið sér til hans og spurði hvort hann hefði ekki skilað skýrslu, og að fengnu já- Hjörtur Pálsson yrði var hann beðinn að tjá sig um málið. Mér er ekkert að vanbúnaði að tjá mig um málið. Ég skilaði skýrslu. Ég gaf út bækur tvö árin af þrem sem tiltekin voru sem skilyrði fyrir viðbótarritlaunum í auglýsingu nefndarinnar, ég var með bók bæði 1970 og 1971, fyrir nú utan að ég gaf einnig út bók 1969, þannig að ég var með út- gefnar bækur þrjú ár í röð fram að árinu 1972. En útgáfubækurn- ar 1970 og 1971, þær sem nefnd- inni bar að gera úttekt á, voru Svipir sækja þing 1970 og Óþekkti hermaðurinn eftir finnska Norð- ! urlandaráðsverðlaunahafann Vainö Linna 1971, þýðing á 4. hundrað þéttprentaðra síðna. Eg gerði nefndinni skilmerkilega grein fyrir því hve greypilep ég þurfti að gef-a með þessari þýð- ingu, þannig að glíman við Linna batt mér skuldabagga langt um- fram það sem mig óraði fyrir þeg- ar ég hóf þýðinguna, bagga sem ég er ekki enn búinn að hrista af mér, og þýðingin byggði gersam- lega út möguleikanum á að ég hefði getað gefið út bók 1972, fjórðá árið í röð. En þetta kom fyrir ekki. Kristján frá Djúpalæk Það er ástæða til að benda ræki- lega á, að viðbótarritlaunin eru ekki verðlaun, ekki viðurkenning, ekki neins konar listamannalaun, þau eru lögboðin eign rithöfund- anna sjálfra með eftirgjöf ríkis- valdsins á söluskatti af bókum sem tekjustofn, þau eru launa- uppbót fyrir unnin verk sem sýnt er að ekki hafi verið goldin sann- virði. Þennan kjarna málsins hef- ur nefndin í fjölmörgum tilvikum að engu. Vinnubrögð hennar minna sterklega á vinnubrögð út- hlutunarnefndar listamanna- launa, þar sem jafnan ægir saman gerólíkum sjónarmiðum. Nema úthlutunarnefnd listamanna- launa er þó sjö manna nefnd og i fjöldanum felst viss trygging um lýðræðisleg vinnubrögð, en út- hlutunarnefnd viðbótarritlaun- anna er aðeins þriggja manna nefnd -og skipan hennar einhvers konar austantjaldsfyrirbæri. Rit- höfundafélag Islands, félag Ein- ars Braga og Thors & Co, til- nefndi í hana vinstrisinnaða konu hér i borg, konu með nýlegt B.A.- próf i bókmenntum, og Norrænu- deild háskólans tilnefndi mann sem skrifar um bækur i Þjóðvilj- ann. Gegn þessu tvistirni teflir Jóhann Hjálmarsson svo hitt rithöfundafélagið, Fél. ísl. rithöfunda, Hagalínsfélagið svokallaða, lögfræðingi. Að hon- um allsendis ólöstuðum sem slik- um, hlýtur maður að spyrja: Hvað má maður með lögfræðimenntun sin gegn tveim aðilum, sem ekki eru aðeins skoðanasystkin, heldur líka handgengin bókmennum menntunarlega séð? Enda er út- koman svo sem efni standa til, það geta menn væntanlega gengið úr skugga um þegar báðir listarn- ir verða birtir samsíða, ef því fæst framgengt, listinn yfir þá sem náð hlutu fyrir augum nefndarinnar og forsendur veitingarinnar, og hinsvegar Iistinn yfir hina sem synjun hlutu. Það þarf meira en meðalasna til að láta sér detta í hug að borga nýgræðingi 220 þús. kr. kaupuppbót á 97 blaðsíðna ljóðakver sem tilviljun ræður að kemur út á árinu 1972, svo aðeins eitt dæmi sé nefnt, krassandi að vísu, en sniðganga t.d. mann eins og Jóhann Hjálmarsson, sem gef- ur út tvær bækur 1971, Ljóðaþýð- ingar og viðamikið verk um ís- lenzka nútímaljóðlist, margra ára hjáverk, og Trúarleg ljóð ungra skálda 1972 (umsjón). .Eða Krist- ján frá Djúpalæk sem gefur út ljóðabók á árinu 1972, maður með fjölda bóka að baki eins og Jó- hann. Eða Hjörtur Pálsson með ljóðabók 1972. Eða, eða . . . aðrir verða væntanlega til að nefna fleiri nöfn. Menn sjá vonandi að hér hefur verið svo gróflega mis- farið með fé að lengi mun verða frægt að endemum. Önnur fram- kvæmd nefndarinnar í málinu er einnig forkastanleg, hún er skip- uð 8. nóv., hún auglýsir ekki eftir skýrslum fyrr en 23. nóv. og þá með skilafresti til 10. des. og er þó gert skylt af menntamálaráðu- neytinu að hafa lokið störfum fyr- ir 15. des., þannig að hún ætlar sér aðeins fimm daga til að gera úttekt á verkum 121 rétthafa til kaupuppbótarinnar, þrjár mann- eskjur á hlaupum í jólaönn. En úttekt af þessu tagi er a.m.k. tveggja mánaða verk. Bækur höf- undanna sem til greina koma þurfa að Iiggja fyrir, þær þarf að skoða og hafa jafnframt fyrri fer- il höfundarins til hliðsjónar. Það er ekki aðeins úrelt fyrirkomulag að menn komi saman stund úr degi nokkra daga í röð og þæfi um menn og bækur og geri hrossa- kaup, það er ósæmilegur verknað- ur þegar um er að ræða sjóð sem úthluta á úr á grundvelli starfs- mats. Blákalt starfsmat, "að því marki sem framast er á valdi manna, stigagjöf hvers einstaks nefndarmanns — samkvæmt bestu samvisku undir eið, og sam- lagning stiganna og veiting eða synjun á grundvelli hennar, er það eina sem siðuðum mönnum er sæmandi. Hér verður Alþingi að gripa í taumana. Á fjárlögum ársins 1974 eru veittar 2 milljónir til viðbót- arritlauna. Alþingi hlýtur að beita áhrifum sínum til þess að einhverjum hluta af þessu fé verði varið til þess að leiðrétta augljós mistök á úthlutuninni 15. des. sl. — með endurmati á bók- menntaframlagi sniðgengnu höf- undanna. Vænti ég þess að allir sem láta sig bókmenntir ein- hverju skipta verði til þess að taka einarðlega í þennan streng. Ef rithöfundar geta ekki treyst því að verk þeirra séu metin í góðu tómi og af skynsamlegu viti nokkurnveginn ópólitískra manna, er þessum milljónum á , glæ kastað og munu gera meira | ógagn en gagn. En fyrir þessi mistök, hverjum sem um er að kenna þegar öll kurl eru komin til grafar, verður að bæta. Sjálfstæðisflokkurinn — ekki síst fyrir tilstilli Gunnars Thor- oddsen — hafði á sinum tíma úr- slitaáhrif á, að þessi bráðnauðsyn- lega réttarbót, viðbótarritlaunin, yrði að lögum á Alþingi. Vonandi gerir hann ekki endasleppt við málið. Jóhannes Helgi. Baldur Hermannsson FÓLK OG VÍSINDI . Njósnarinn 1 geimnum BANDARISKIR geimvísinda- menn hafa nú framleitt gervi- hnetti, sem geta fylgzt með gangandi manni á götum Reykjavíkur úr 200 kílómetra hæð! Big Bird-gerðin, sem tek- in var í notkun 1971, getur nefnilega greint hlut á stærð við mannshnefa á jörðu niðri. Upplausnarhæfileikinn er um það bil 10 sentímetrar. Samos Ljósmyndir Pioneer 10 af Júpiter. Bletturinn á neðri myndinni er hið sögufræga „rauða auga“ Júpiters. árgerð 1967 hafði eins metra upplausnarhæfileika. Big Bird er yngsta kynslóð bandarískra eftirlitsgervi- hnatta. Þessir gervihnettir geta verið lengur á lofti en áður þekktist, gegnt margvíslegum eftirlitsstörfum samtímis og sent myndir til jarðar með rafsegulbylgjum. Einnig geta þeir sent nokkur hylki með ljós- myndafilmum til jarðar — sjá skýringamynd. Með öllum út- búnaði vegur „Stóri fuglinn" rúmlega 10 tonn. Til gamans má geta þess, að Júpíter-flaugin Pioneer 10 vegur aðeins 270 kíló. Rússar hafa þann háttinn á að veita engar upplýsingar um geimrannsóknir sínar, fyrr en þær eru orðnar úreltar. Fullvíst er þó talið, að þeir standi Bandaríkjamönnum á sporði í þessum efnum. Þessi tvö stórveldi nota eftir- litsgervihnettina meðal annars til að fylgjast með óeirðum og átökum víða um heim. Rússar fylgdust þannig með her- flutningum Kínverja við rúss- nesku landamærin 1969 og Bangladeshstyrjöldinni 1971 — 1972. Bandarikjamenn hafa notað þessa tækni við ýms tækifæri, meðal annars þegar upp úr sýð- ur fyrir botni Miðjarðarhafs. Það jaðrar við, að eftirlits- gervihnettirnir gætu gefið nákvæma skýrslu um föstu- dagsslagsmál fyrir utan Þörs- kaffi! Evrópskur gervihnöttur 1979 verður fyrstu evrópsku geimflauginni skotið á loft, með 750 kílóa gervihnött. Ef allt gengur skv. áætlun, munu Evrópulöndin 10, sem eru aðilar að ESRO (Evrópska geimrannsóknastof nunin) skjóta Ariane, en svo nefnist flaugin, á loft í Frönsku Guyana í Suður-Ameríku, nálægt hinni illræmdu Djöfla- eyju. Kostnaðurinn er geipilegur — 40 milljarðar íslenzkra króna. Pioneer 10 uppgötvar helíum á Júpíter Bandaríska geimflaugin Pioneer 10, sem fór framhjá reikistjörnunni Júpíter aðfara- nótt 4. desember, hefur sent mikilvægar upplýsingar til jarðar. Útfjólubláar ljós- mælingar sýndu, að frumefnið helíum er til á Júpíter. Þessi uppgötvun, sem reyndar kemur alls ekki á óvart, kemur að liði vísindamönnum, sem fást við að kanna uppruna sólkerfis okkar. Júpíter og reikistjörnurnar fyrir utan hann, Satúrnus, Úranus og Neptúnus eru mjög frábrugðnar jörðunni að efna- fræðilegri samsetningu. Þær eru aðallega byggðar af hinum léttari frumefnum, einkum vetni. Innri reikistjörnurnar svokölluðu, Marz, Jörðin, Venus og Merkúr eru byggðar af þyngri efnum. Þessi áberandi mismunur er vfsinda- mönnum ráðgáta. Þeir vona, að rannsóknir Pioneer 10 og systurflaugar hans, Pioneer 11, sem er á Ieiðinni til Júpfters, skýri málið. Pioneer 10 kannaði geisla- belti, segulsvið og hitageislun Júpíters. Flaugin athugaði og ljósmyndaði sérstaklega hið fræga „rauða auga“. Þetta er geysistór, ávalur blettur á suðurhveli hnattarins. Mesta lengd hans er 40.000 kíló- metrar. Stjörnufræðingar hafa fylgst með honum í hundrað ár og ekki alltaf verið á eitt sáttir. Rauða augað situr ekki fast á yfirborði hnattarins, heldur þokast einlægt til. Ljósmyndir Pioneer 10 sýna skugga og ský í auganu. Vísindamennirnir geta sér til, að augað sé lofttegundir, sem brjótast upp úr freðnum ammoníakskýjum Júpiters. Svona sendir Big Bird hylki með Ijósmyndafilmum til jarðar, samkvæmt merkjasendingum frá vfsindamönnunum. Það svffur sfðasta spölinn í fallhlff. Flugvél grípur sfðan hylkið með sérstök- um útbúnaði, en gervihnötturinn heldur áfram flugi sínu umhverfis jörðu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.