Morgunblaðið - 29.12.1973, Side 22

Morgunblaðið - 29.12.1973, Side 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. DESEMBER 1973 Minning: Guðmundur J. Sig- urðsson Þingeyri Um hver áramót leilar hugur- inn gjarnan til þess, sem liðið er. Nú hugsa allir kunnugir til Dýra- fjarðarþinga. Guðmundur J. Sig- urðsson á Þingeyri er látinn. Það markar tímamót, er athafnamenn hverfa af sjónarsviðinu. í áratugi var Guðmundur J. Sig- urðsson einn af máttarstólpum sveitar sinnar og byggðar. Vél- smíði var hans ævistarf. Þar kom réttur maður til á réttum tíma. Vélmenning og verkmenning var forsenda þess, að fólkið næði fram frá fátækt til bjargálna. Guðmundur bjó sig undir ævi- starfið af þeirri kostgæfni og framtakssemi, er átti eftir að móta allt hans líf. Hann nam ung- ur járnsmíði á Þingeyri í 3 ár. En síðan stundaði hann framhalds- nám í Danmörku og Noregi árin 1906 — 1907. Hann var því vel undir starf sitt búinn og svo, að óvenjulegt var, á þeirrí tið. Arið 1913 gerðist Guðniundur stofnandi og forstjóri vélsmiðj- unnar Guðmundur J. Sigurðsson & Co. á Þingeyri. Þessu fyrirtæki vann hann alit meðan kraftar ent- ust, en honum var gefið meira starfsþrek en títt er. Hann var að koma frá vinnu sinni í smiðjunni í marz s.l., er hann hrasaði og hlaut þá byltu, er hélt honum rúmföst- t Eiginmaður minn kolbeinn SIGURÐSSON skipstjóri andaðist 28 þ m Ingileif Gisladóttir. um, unz hann lézt 19. þ.m., 89 ára að aldri. Það er sjaldgæft að eiga svo langan starfsaldur sem Guðmund- ur J. Sigurðsson átti. En með ein- dæmum er það, sem honum tókst að afreka á þessum tíma. Vél- smiðjan á Þinge.yri hafði ekki ein- ungis grundvallarþýðingu fyrir vaxandi útgerð og véltækni i heimabyggðinni, heldur og ann- ars staðar um Vestfirði og víðar um land. Hér kom tii, að vél- smiðja þessi þótti i fremstu röð um verktækni, nýjungar og ný- smíði tækjaútbúnaðar, sem eink- um kom í góðar þarfir hinni ört vaxandi útgerð landsmanna. Vél- smiðjan á Þingeyri varð snemma þjóðkunn af þessum ástæðum. Þetta var afrek Guðmundar J. Sigurðssonar. Fyrir þetta hlaut hann viðurkenningu og virðingu allra, sem tii þekktu og var m.a. sæmdur riddarakrossi Fálkaorð- unnar 1956 og heiðursmerki Landssambands iðnaðarmanna úr gulli 1960. Það var ekki fyrr en á efri árum Guðmundar, sem kynni okkar hófust. Þá bjó hann í sama hús- inu, þar sem eiginkona hans, Estiva Björnsdóttir, hafði búið honum heimili. Hún var þá látin fyrir mörgum árum en minnzt sem mikilhæfrar konu, eiginkonu og móður. Hann naut þá forsjár Matthíasar sonar síns í Vélsmiðj- unni og umönnunar Camiilu tengdadóttur sinnar á heimilinu. Þótt aldur væri farinn að færast yfir, fannst mér Guðmundur vera í fuliu fjöri. En var vinnudagur- inn langur og áhugamálin margs konar. Hann hafði látið til sín taka málefni sveitar sinnar og byggðarlags svo sem átt sæti í hreppsnefnd, skólanefnd, sóknar- nefnd o.fl. Hann var áhugamaður Þökkum auðsýnda samúð við andlát og jarðarför systur minnar MARGRÉTAR PÁLSDÓTTUR, Bjarnarstig 6, Reykjavík. Fyrir hönd vandamanna Páll Pálsson, Hnífsdal. t Faðir okkar tengdafaðir og afi JÓN STEFÁNSSON Ránargötu 36 andaðistí Landakotsspítala 28 12 Stefán H Jónsson Unnur Sigurðardóttir Jón Þórir Jónsson Þórunn Vilmundardóttir og barnabórn. Eiglnkona mín, t GUÐNÝ GUÐJÓNSDÓTTIR frá Vík i Fáskrúðsfirði, andaðist hinn 26 desember Friðbjörn Þorsteinsson. t Eiginmaður minn og faðir okkar, RÓBERT ARNAR KRISTJÓNSSON framreiðslumaður, Látraströnd 30, Seltjarnarnesi, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju, miðvikudaginn 2 jan kl. 10 30 Ásta HeiðurTómasdóttir, Linda Guðný Róbertsdóttir, Tómas Kristjón Róbertsson. um þjóðmál og vildi framgang hugsjónar sjálfstæðisstefnunnar. Mér eru minnisslæðar samveru- stundirnar með Guðmundi J. Sig- urðssyni. Viðræður við hann voru fyrir mig gagn og gaman. Eftir- minnilegust er mér höfðingleg reisn hans og áhugi fyrir framför- um hvers konar, en þó einkum í verkmenningu þjóðarinnar. Það er mikill sjónarsviptir að Guðmundi J. Sigurðssyni öllum, sem hann þekktu. Og mestur er söknuður hjá börnum hans og öðrum ástvinum. En minningin um mætan merkismann mun lifa. Þorv. Garðar Kristjánsson. SVAR MITT EFTIR BILLY GRAHAM Vinsamlegast útskýrið, hvað í þvf felst, að Guð cr faðir okkar og við mennirnir bræður. Þessi orð eru misskilin. Allir menn eru bræður í þeirri merkingu, að við erum allir komnir af Adam. Við erum bræður í fjölskyldu mannanna. Og Guð er faðir okkar í þeirri merkingu, að hann hefur skapað okkar. En lengra nær samlíkingin ekki. Biblían segir, að allir menn hafi dáið í Adam, en allir muni verði lífgaðir aftur í Jesú Kristi. Þegar maðurinn syndgaði, missti hann réttinn til þess að vera sonur, og sonur verður hann aftur einnungis fyrir Jesúm Krist. Þetta er ástæðan til þess, að hann dó „til þess að sætta oss við Guð“. Jesús Kristur er hinn eini á himni og jörð, sem getur veitt okkur hina glötuðu sonarstöðu að nýju og fullkomnað„fjölskyldu Guðs“. Varla verður sagt, að mennirnir í þessum heimi, sem við lifum í, komi fram eins og bræður. Þeir berjast, svíkja, ofsækja, stela og myrða. Jesús Kristur, hann, sem sættir manninn við Guð, endurleysir hann og endurfæðir, hann einn getur komið því til vegar, að við verðum að nýju sannir synir Guðs og Guð faðir okkar. Einungis fyrir hann skiljum við, hvað átt er við, þegar sagt er, að Guð sé faðir okkar og mennirnir bræður. Davíð Friðriksson Þorlákshöfn - Mnning I dag verður til moldar borinn frá Eyrarbakkakirkju vinur minn Davíð Friðriksson B-götu 24 Þor- lákshöfn. Þegar hátíð ljóssins var að ganga í garð barst sú frétt út um litla þorpið okkar, að Davíð Frið- riksson væri dáinn. Alla setti hljóða, því að þó við vissum öll, að hann gekk ekki heill til skógar, hafði hann borið sjúkdóm sinn með slíkri karl- mennsku a§ fáir vissu í raun og veru hve sjúkur hann var. Davíð var maður sistarfandi, og hefðu fallið þungt að verða að hætta vinnu. Það er huggun harmi gegn, að það var ekki á hann lagt. Hann fór i fullu starfi, boðinn og búinn tii hjálpar og' liðsinnis við alla, sem leituðu fíl hans. Skyldurækinn gekk hann síð- asta spölinn við hlið sonar síns þegar kallið kom, og hinn ungi maður bar gæfu til að taka fallið af föður sínum. Eg minnist þess, þegar ég kom fyrst til Þorlákshafnar öllum ó- kunnugur. Davíð var þá einn af þeim starfsmönnum, sem þar voru fyrir. Báðir vorum við þann- ig skapi farnir að við tjáðum okk- ur ógjarna við ókunnuga meira en nauðsyn bar til. Þó varð það svo, að við urðum fljótt góðir kunningjar og eftir þvi sem árin liðu urðu þessi vin- áttubönd traustari, og nú að leið- arlokum get ég sagt, að enginn vandalaus maður stóð mér nær en hann. Alltaf þegar Davíð kom til min í vinnuskúrinn fannst mér létta yfir mér. Hann var bjart- sýnn og glaður, fundvís á hinar broslegu hliðar lífsins, án þess þó að særa nokkurn eða meiða. Stærsta gæfuspor sitt í lífinu steig Davið þegar hann giftist eft- irlifandi konu sinni Ingibjörgu Guðmundsdóttur frá Akranesi, sem reyndist honum sá góði lífs- förunautur, að fáar hefðu gert eins, og enginn betur. Þau eignuð- ust tvö börn, sem bæði etu á æskuskeiði og bera foreldrum sín- um fagurt vitni. Það var ekki ætlan mín að rekja ævisögu Davíðs heldur aðeins að rifja upp kynni mín af þessum góða dreng. Davíð bar ekki tilfinningar sín- t Faðir okkar og tengdafaðir v GÍSLI KAREL ELÍSSON sem andaðist 25. þ.m verður jarðsunginn frá Grundarfjarðarkirkju mánudaginn 3 1. des. kl. 1 1 f.h. Ferð frá B.S.Í. sunnudag kl. 2. Vilborg Glsladóttir Haraldur B. Þorsteinsson Pálína Gisladóttir Halldór Finnsson Elís Glslason Hulda Valdimarsdóttir Hólmfrlður Glsladóttir EggertTh. Kjartansson t Útför okkar ástkæru móður, tengdamóður og ömmu GUÐRÚNAR GUÐBJARTSDÓTTUR Bragagötu 36 R , er lést I Landspítalanum aðfararnótt 21 des , fer fram frá Fossvogs- kirkju miðvikudagínn 2 jan 1 974 kl 1.30 e.h Blóm vinsamlegast afþökkuð, en þeim, sem vilja minnast hinnar látnu, er bent á líknarstofnanir. Kristin Grimsdóttir Halldór Björnsson Sigriður Grimsdóttir Ólafur Lárusson Guðriður Grímsdóttir Sigmar Sigurðsson og barnabörn. ar á torg svo sem áður var að vikið hvorki um sjúkdóm sinn eða trú. Aðeins þeir, sem komust næst honum, vissu, að hann trúði þvi ákveðið, að þegar hann stigi yfir landamæri lifs og dauða mundu vinir hans, sem á undan væru gengnir, koma til móts við hann og leiða hann til sælli heima. Verði honum að trú sinni. Blessuð sé minning hans. Konu hans og börnum votta ég innilega samúð mfna og konu minnar. Björgvin Guðjónsson. Tannlækningar í trygginga- loggjof Aðalfundur Bandalags kvenna í Reykjavík, haldinn 8. og 9. nóv. 1973, þakkar hæstvirtu Alþingi og ríkisstjórn umbætur á lögum og framkvæmd Tryggingastofnunar ríkisins. Engu að sfður leyfir fundurinn sér að fara fram á eft- irfarandi um tryggingamál: 1. „Mæðralaun með einu barni hækki verulega og haldist til 17 ára aldurs." 2. ,,Að ekki komi til frádráttar minniháttar atvinnutekjur eða lífeyrissjóðsgreiðslur til elli- og örorkubótaþega við ákvörðun uppbóta á tekjutryggingu." 3. „Elli- og örorkulifeyrir hald- ist við sjúkrahúsvist i allt að fjóra mánuði á ári. Jafnframt verði aukin niðurgreiðsla á lyfjum tekjulítilla elli- og örorkubóta- þega.“ 4. „Tannlækningar verði teknar inn f tryggingalöggjöfina."

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.