Morgunblaðið - 29.12.1973, Side 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. DESEMBER 1973
iHgerðarmenn
Skipstjóri, sem haft getur alla áhöfn, óskar eftir góðum
vertíðarbát. Helzt bát, sem gerður væri út frá Suðvestur-
landi. Þó ekki skilyrði. Tilboð merkt: „Góð útgerð 605",
sendist afgr Mbl. strax.
GÖMLU DANSARNIR
í KVÖLDKL. 9—2.
HUÓMSVEIT
ÁSGEIRS
SVERRISSONAR
SÖNGVARAR:
SIGGA MAGGÝ OG
GUNNARPÁLL
Miðasala kl. 5.15 — 6.
Sími 21971.
GÖMLUDANSAKLÚBBURINN.
LINDARBÆR
OriSIETOLl OFIOIETOLD OPIBIETOLS
HÖT4L ÍA<iA
SÚLNASALUR
Hljómsveit Ragnars Bjarnasonar
DansaÓ til kl. 2.
Engar vínveitingar.
Sérstakur aðgangseyrir.
___________________________________________I
VIÐVORUNARMERKINGAR
Á ÖLL HÆTTULEG EFNI
AÐALFUNDUR Bandalags
kvenna í Reykjavík, haldinn 8. og
9. nóvember 1973, ályktar eftir-
farandi um verðlags- og verzl-
unarmál:
1. „Aðalfundurinn beinir þeirri
eindregnu áskorun til heilbrigðis-
málaráðuneytis og landlæknir, að
sett verði sem fyrst reglugerð um
viðvörm;3jmerkingar á öll hættu-
leg efni og lagt verði strax ban’n
við því, að klór, hreinsilögur o.fl.,
sé sett í sams konar umbúðir
(plastbrúsa og flöskur) og
notaðar eru undir saft, ávaxtasafa
o.fl. matarkyns."
2. „Vegna tíðra slysa á börnum í
heimahúsum, vill aðalfundurinn
beina þeirri áskorun til foreldra
og annarra húsráðenda að gæta
itrustu varká'rni í meðferð og
geymslu lyfja, hreinsiefna og
tækja, sem geta valdið stórslysum
og heilsutjóni á börnum.“
3. „Affalfundurinn fagnar nýút-
gefinni reglugerð viðskiptamála-
ráffuneytis um „merkingu mat-
væla og annarra neyzlu- og nauð-
synjavara, sem seldar eru í smá-
sölu.“
4. „Aðalfundurinn lýsir ánægju
sinni yfir góðri upplýsinga-
þjónustu og f jölbreytni og gæðum
íslenzkrar mjólkurvöru, en vill
jafnframt fara þess á leil við
Mjólkursamsöluna, að hafin verði
hið bráðasta framleiðsla á sýrðri
undanrennu, fituminni mjólk og
kaffirjóma. Æskilegt er, að pokar
séu fáanlegir í búðum samsölunn-
ar. Óskað er eftir betri umbúðum
um undanrennuna."
5. „Aðalfundurinn beinir þeirri
áskorun til Grænmetisverzlunar
ríkisins, að hún vinni markvisst
að því að bæta kartöflufram-
leiðsluna, t.d. með upplýsinga-
þjónustu og aðhaldi við fram-
leiðendur. Þá vill fundurinn
beina því til sömu aðila að vanda
vel til geymsluhúsnæðis og allrar
meðferðar á kartöflum, svo að
þær nái borði neytandans í sem
beztu ástandi."
6. „Aðalfundurinn ítrekar fyrri
ályktun sína um nauðsyn þess að
koma fisksölumálum I borginni í
betra horf og beinir því þeirri
eindregnu áskorun til borgarráðs
og borgarstjórnar að setja sem
allra fyrst reglur um öflun og
dreifingu fisks til verzlana á
borgarsvæðinu.“
7. „Aðalfundurinn fagnar þvi,
að fjármálaráðherra með aðild
iðnaðarmálaráðuneytis og við-
skiptamálaráðuneytis, hefur
skipað starfshóp til þess að íhuga
erindi, sem borizt hafa um til-
lögur til breytinga á tollskrá o.fl.
Jafnframt itrekar fundurinn
fyrri áskorun sína til hæstvirts
Alþingis og ríkisstjórnar um að
lækka, að verulegu leyti, tolla af
brýnustu nauðsynjum heimil-
anna, svo sem búsáhöldum, borð-
búnaði, rafmagnstækjum og
hreinlætistækjum, en samkvæmt
gildandi tollskrá eru þessi tæki í
80% og 100% tollflokki, að
undanskildum eldavélum.“
Greinargerð: Samkvæmt toll-
skrá eru þessi tæki, sem hér um
ræðir, í langhæstu tóllflokkunum.
Engum dylst þó, að hér er um að
ræða nauðsynleg heimilistæki.
Sundurliðuð tollálagning er sem
hér segir:
Leirvörur: 80% tollur = hrein-
lætistæki (handlaugar, salerni,
baðkör)
100% tollur = borðbúnaður (ekki
postulín)
Glervörur: 100% tollur = borð-
búnaður og hreinlætistæki
Stálvörur: 80% tollur = hrein-
lætistæki
100% tollur = borðbúnaður,
búsáhöld
Álvörur: 100% tollur =
búsáhöld
Heimilisvélar: 80% tollur =
þvottavélar, kæliskápar, ryk-
sugur, straujárn
55% tollur = eldavélar frá Efta-
löndum.
8. „Aðalfundurinn beinir þeirri
áskorun til hæstvirts Alþingis og
ríkisstjórnar, að látin verði fara
fram athugun á þvi, hvernig hægt
sé að verðtryggja sparifé aldraðs
fólks.“
9. „Aðalfundurinn lýsir ánægju
sinni yfir þeim íbúðabyggingum á
vegum borgarinnar, sem leigðar
eru út öldruðu fólki og þegar hafa
verið teknar í notkun. Jáfnframt
beinir fundurinn þeirri áskorun
til borgarstjórnar, að hafizt verði
sem fyrst handa um að koma upp
fámennum vistheimilum fyrir
aldrað fólk, sem þarf á aðstoð og
hjúkrun að halda. Þá vill
fundurinn einnig leggja ríka
áherzlu á það, að borgin haldi
áfram byggingu á almennu leigu-
húsnæði.“
10. „Aðalfundurinn ítrekar
áskorun sína á hæstvirt Alþingi
og ríkisstjórn um að láta sem allra
fyrst setja lög um sölu og leigu
íbúðarhúsnæðis, til þess að
stemma stigu við hækkunum á
leigu og verðlagi húsnæðis í
landinu."
VORNAMSKEIÐ
BYRJAR 5. JANÚAR
lýkur laugardaginn 27. apríl.
Þar eru kennd eftirtalinn valfög:
Sálfræði, þjóðfélagsskipun, vinna í íðnaðarfélögum, hljómlist, mynd-
list, kvikmyndun, leiklist, bókmenntir, heimspeki, enska, þýzka,
danska, reikningur, stærðfræði, EDB-,námskeið, uppeldisfræði
Samskóli með yfir 1 00 nemendum.
Herbergi, einnig fyrir hjón.
Nýi bæklingurinn okkar með upplýsingum
um skólann, ásamt yfirliti sent. Aðstoð veitir
Norræna félagið.
HERNIIMG HOJSKOLE
Forstander Bent Pedersen
BIRK, 7400 HERNING - TELEFON (07) 1232 44
ajiQtaoa a
Oft getur tekiS langan tíma
að hugsa um næsta leik.
En sért þú að hugsa um reykingar
og viljir ekki tefla heilsunni í tvísýnu,
þá er næsti leikur augljós.
Sjáðu þér leik á borði: Hættu strax!
Hollenzkt
torg í
Jerúsalem
Tel Aviv, 27. des. AP.
NYTT torg ( Jerúsalem verður
skfrt f höfuðið á Hollending-
um í heiðursskyni við stuðning
þeirra í deilunum við Araba.
Mörg hundruð ísraelskir
drengir og stúlkur eiga að
dreifa hnöppum, sem á stend-
ur „ísraelska þjóðin dáist að
hollenzku þjóðinni“ í öllum
helztu borgum og bæjum lsra-
els á morgun.