Morgunblaðið - 12.01.1974, Side 2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. JANÚAR 1974
2
Gífurlegt flóð —
engar skemmdir
MENN í verstöðvum sunnanlands
minnast naumast annars eins
flöSs og þar kom í fyrrakvöld og
gærmorgun. Vfða flæddi allt að
50 sm yfir bryggjur, en engar
skemmdir urðu neins staðar svo
vitað sé til, vegna þess hversu
veður var hagstætt. Er ekki að efa
að stórtjón hefði orðið á flestum
þessara staða í verra veðri.
Tréttaritari Mbl. á Stokkseyri
sagði, að þar hefði flóðið orðið
geysihátt, svo að flæddi yfir
bryggjur. Hægviðri var á þessum
tíma og varð því ekkert tjón í
höfninni. „Hins vegar vil ég helzt
ekki hugsa um hvað hefði getað
gerzt í hressilegri hafátt," sagði
hann.
í Þorlákshöfn fékk Morgun-
blaðið þær upplýsingar, að þar
hefði flóðið orðið mjög hátt og
flætt upp á bryggjur. Sama var
uppi á teningnum í Grindavfk —
fréttaritari Mbl. þar taldi, að þeg-
ar flóðið var sem mest, hafi dýpt-
in verið um 2 fet frá yfirborði
sjávar niður á bryggjuna. Taldi
hann þetta eitt alhæsta flóð, sem
þar hefði komið í manna minnum.
I Sandgerði var flóðið mest í gær-
morgun og flæddi þá sjór yfir
bryggjur, svo að um 30 sm voru
niður á hana. Engar skemmdir
urðu þar á mannvirkjum þrátt
fyrir flóðið.
697 sakborn-
ingar hlutu dóm
Fýrsta útskipunin á freðfiski f Vestmannaeyjum eftir gos fór fram þar á miðvikudaginn var. Vöru
það alls um 100 tonn, sem unnin voru f Vinnslustöðinni eftir að starfræksla hennar hófst aftur
eftir gos. Selfoss, skip Eimskipafélagsins, tók fiskinn og mun flytja á Amerfkumarkað.
(Ljósm. Mbl. Sigurgeir.)
1450 IBUÐIR ERU I
SMÍÐUM í REYKJAVÍK
í SAKADOMl Reykjavíkur voru á
árinu 1973 kveðnir upp dómar í
málum 697 sakborninga. Af þeim
voru 239 ákærðir fyrir brot gegn
LÝST EFT-
IR VITNUM
HINN 22. desember sl. um mið-
nætti var ekíð á mann í Nóatúni.
Bifrerðin, sem ók á manninn, var
jeppabifreið, græn aðofan en ljós
að neðan, af eldri gerð. Talið er,
að ökumaðurinn hafi kallað í
sjúkrabifreið og lögreglu, en
þegar hún kom á vettvang, var
jeppinn horfinn af staðnum. Þrátt
fyrir allnákvæma lýsingu finnst
jeppabifreið þessi hvergí á skrá,
og biður því umferðardeild rann-
sóknarlögreglu alla þá, sem ein-
hverjar upplýsingar geta gefið
unrþennan atburð — að gefa sig
fram.
SEMENTSVERKSMIÐJA ríkis-
ins seldi á sl. ári samtals 135.874
tonn af sementi, að því er segir f
fréttatilkynningu frá verk-
smiðjunni. Af því magni fóru
2.302 tonn til virkjanafram-
kvæmda á Norður- og Austur-
landi, og hafa þannig alls um
133.572 tonn farið til húsbygg-
inga og allra annarra fram-
kvæmda á árinu.
Á árinu 1972 nam salan all:
128.572 tonnum en af þeirri upp
hæð fóru 3.745 tonn tíl virkjana
framkvæmda og 7.524 tonn til
steypu í nýja Vesturlandsveginn.
Til húsbygginga og allra ann-
arra framkvæmda fóru því
117.303 tonn árið 1972. A árinu
Bessi
aflar vel
Súðavík —11. jan.
Skuttogarinn Bessi kom hingað
f dag með um 120 tonn af fiski,
seiti allur ver.ður unninn hér.
Togarinn hefur aflað mjög vel.
Hann kom hingað í mafmánuði í
fyrra og hóf þá veiðar. Fékk hann
samtals 1950 tonn á sl. ári. Nú
hefur verið ákveðið, að leigja vb.
Dofra til Bolungarvíkur, þar sem
mannskapurinn er önnum kafinn
við vinnslu á afla Bessa og getur
ekki annaðmeiru.
— Fréttaritari
almennum hegningarlögum, en
458 fyrir brot gegn sérrefsilög-
gjöf, þar af 355 fyrir ölvun við
bifreiðarstjórn.
Eftir niðurstöðum skiptast dóm-
arnir þannig, að í 18 tilfellum var
sýknað af öllum kröfum ákæru-
valds, en áfallsdómar voru 679. 1
79 þeirra var ákærðum dæmd
sekt, skilorðsbundið varðhald í 28
málum, óskilorðsbundið varðhald
í 361 máli, skilorðsbundið fang-
elsi í 76 málum og óskilorðsbund-
ið fangelsi í 109 málum.
í 11 tilfellum var ákvörðun um
refsingu frestað skilorðsbundið
og í 13 málum var ákærði sak-
felldur án þess honum væri
dæmd refsing. Einn sakborninga
var dæmdur til að sæta vist á hæli
og einn sviptur sjálfræði.
Ödæmdar ákærur i árslok voru
143. Það er einnig óafgreiddur
mikill fjöldi smámála, einkum
mála út af minni háttar umferðar-
brotum.
1973 fóru, eins og áður segir,
133,572 tonn til þessara fram-
kvæmda og er það um 14% aukn-
ing frá fyrra ári.
Á árinu 1973 voru flutt inn
32.859 tonn af erlendu sements
gjalli. Árið 1972 voru flutt inn
12.207 tonn af sementsgjalli.
Alls var lokið á síðastliðnu ári i
við smíði 794 íbúða í Reykjavík
— samkvæmt nýútkominni
skýrslu byggingarfulltrúa
Reykjavíkurborgar. Ibúðirnar
eru af stærðinni frá 1 herbergi og
upp í tíu herbergi —. flestar 3ja
herbergja eða 235 talsins, 234 2ja
herbergja, 140 4ra herbergja og
133 fimm herbergja íbúðir.
Þá segir ennfremur í yfirliti
byggingarfulltrúans, að i smíðum
nú um áramótin hafi verið 1450
fbúðir, þar af séu 859 fokheldar
eða meira. Á sl. ári var hafin
bygging á 1133 nýjum íbúðum.
Lokið var við 108 færri fbúðir árið
1973 en árið 1972, en hafin
bygging á 238 fleiri íbúðum á sl. •
ári en árið á undan.
Á s.l. ári var ennfremur flutt
inn 1.600 tonn af sekkjuðu
sementi til sölu innanfand.
Framleidd voru innanlands um
99.000 tonn af sementsgjalli á s.l.
ári. Á árinu 1972 var framleitt
svipað magnj enda framleiðslu-
getan nýtt aðfullu bæði árin.
Einnig kemur fram, að alls j
hefur verið lokið yið að byggja á
árinu 84.974,5 fermetra og
649.829 rúmmetra eða 8,70%
minna en árið 1972. Þar af éru
íbúðarhús alls 33.449.3 ferín. og
265:447 rúmm.; skólar og félags-
heimili eru 6.669.8 . ferm. og
50.597 rúmm.; verzlunar-, iðnaðar
og skrifstofuhús eru ails 8.662.8
HEIMDALLUR, samtök ungra
sjálfstæðismanna, efnir til ráð-
stefnu um stefnuskrá Heimdallar
í Þingholti (Hótel Holt) f dag kl.
14.00.
Fyrirkomulag ráðstefnunnar
verður með þeim hætti, að i dag
verða flutt framsöguerindi og sið-
an verður þátttakendum gefinn
kostur á að skipa sér í starfshópa.
Starfshóparnir starfa síðan um
eins mánaðar skeið en þá verður
ráðstefnunni framhaldið og álykt-
anir gerðar.
Fjallað verður um eftirtalda
málaflokka í dag á ráðstefnunni:
1. Þjóðmál — málshefjandi
Gunnar Thoroddsen.
2. Utanríkismál — málshefj-
andi Björn Bjarnason.
3. Menntamál — málshefjandi
Þorvaldur Búason.
ferm. og 80.569 rúmm.; iðnaðar-
og geymsluhús 28.350.0 ferm og
229.955 rúmm. og bflskúrar,
geymslur o.fl. eru alls 7.842.6
ferm. og 23.261 rúmm.
Rúmmetrarnir skiptast þannig:
úr steini 622.276 rúmm., úr timbri
23.828 rúmm. og úr járni 3.725
rúmm.
4. Borgarmál — málshefjandi
Albert Guðmundsson.
5. Skipulagsmál Sjálfstæðis-
flokksins — málshefjandi Bald-
vin Tryggvason. .
6. Sjálfstæðisstefnan — máls-
hefjandi Jón Steinar Gunnlaugs-
son.
Ráðstefna með þessum hætti er
nýmæli í starfi Heimdallar, og er
þess vænst að ungt sjálfstæðisfólk
taki virkan þátt i henni.
Fundur um loðnu-
verð á mánudag
EKKI hefur verið haldinn fundur
um loðnuverðið hjá Verðlagsráði
sjávarútvegsins siðan á miðviku-
dag, og að sögn Sveins Finnssonar
hjá Verðlagsráðinu, verður næsti
fundur ekki haldinn fyrr en á
mánudag.
Yfirnefnd Verðlagsráðsins
hefur fjallað um verð á fiskbein-
um að undanförnu, en ekki hefur
enn náðst samstaða um það. Mun
Yfirnefndin að líkindum koma
saman um helgina og fjalla um
verðið.
Bráðabirgða-
lög um útflutn-
ingsgjald
EINS OG skýrt hefur verið frá í
Morgunblaðinu, ákvað sjávarút-
vegsráðherra að láta setja lög um
sérstakt útflutningsgjald af
loðnuafurðum, sem framleiddar
verða á árinu 1974, til þess að
greiða niður verð á brennsluolíu
fiski skipa. Útflutningsgjaldið
verður 5% af fob-verðmæti loðnu-
afurða.
í gær gaf svo forseti Islands út
bráðabirgðalög um sérstakt út-
flutningsgjald af loðnuafurðum
framleiddum á þessu ári og öðluð-
ust þau þegar gildi.
Aldraðir Vestmannaeyingar eru nú að flytja inn í 31 fbúð f Reykjavfk, sem Rauði krossinn leggur þeim
til við Sfðumúla og Brekkulæk. Lyklar að 12 fyrstu íbúðunum voru afhentir í gær.
Rauði krossinn keypti fbúðirnar fyrir 31 milljón króna af söfnunarfé til að hjálpa öldruðum Vestmanna-
eyingum, sem fluttust til Reykjavíkur eftir eldgosið. Myndin er frá afhendingunni f gær.
Sementsverksmiðjan seldi
um 136 þús. tonn á sl. ári
Ráðstefna um stefnu-
skrá Heimdallar