Morgunblaðið - 12.01.1974, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. JANUAR 1974
5
w
Bóksalafélag Islands 85 ára
islendingar hafa löngum státað
af því, að vera mesta bókaþjóð í
heimi — miðað við fólksfjölda.
Hvað sem um það má segja, er
hitt víst, að prentlistin hóf
snemma innreið sína eftir að upp-
finning Gutenbergs kom til sög-
unnar 1454. Talið er líklegt, að
fyrsta bók, sem prentuð var á
íslandi og jafnframt Sú eina, sem
prentuð var fyrir siðabót, hafi
verið Brevoritum Nidrosience,
sem út kom árið 1534, þó að ekki
séu nú til af henni nematvö blöð,
sem eru í Sviþjóð.
Á 16. öld er talið, að út hafi
komið milli 40 — 50 bækur á
Islenzku og ber þar fyrst að nefna
Nýja testamenti Odds Gottskálks-
sonar biskups, sem prentað var I
Hróarskeldu 1540, og um 30 árum
síðar kom út Guðbrandsbiblía,
vafalaust mesta gersemi íslenzkr-
ar prentlistar fyrr og síðar, prent-
uð á Hólum.
Á 17. öld koma út um 225 is-
lenzkar bækur, 134 prentaðar á
Hólum 62 í Skálholti, en hinar
erlendis.
Á 18. og 19. öld fo'r bókaútgáfa
jafnt og þétt vaxandi, að vísu
hægt framan af, en þegar lfður á
19. öldina, einkum síðari hluta
hennar, fer bókaútgáfa og jafn-
framt blaðaútgáfa mjög í vöxt.
Fyrstu bóksalar á Islandi voru
farandsalar, sem ferðuðst með
1 bækur, ýmist á hestum eða ber-
andi bókapinkla á sjálfum sér.
Skipulag kemst ekki á þessa dreif
ingu fyrr en þrír framtaksamir
bókaútgefendur í Reykjavík tóku
sig saman og stofnuðu Bóksala-
félag íslands 12. janúar 1889.
Menn þessir voru: Björn Jónsson,
ritstjóri, Sigfús Eymundsson,
bókaútgefandi og ljósmyndari,
sem var formaður og Sigurðuur
Kristjánsson.
Fundargerðarbækur félagsins
eru allar til frá upphafi. í fyrstu
fundargerðinni er greint frá regl-
um, sem samþykktar voru fyrir
félagið. Þá eru þar bókuð „við-
skiptaskilyrði Bóksalafélagsins
við útsölumenn sína“, og jafn-
framt er birt skrá yfir útsölu-
mennina, 27 talsins.
í dag eru útsölumenn Bóksala-
félags islands milli 90 og 100.
Allt fram til ársins 1952 var
félagið sameiginlegt fyrir bóksala
og bókaútgefendur, en þá var lög-
um félagsins breytt þannig, að
félagar gátu einungis verið bóka-
útgefendur, enda höfðu bóka-
kaupmenn áður stofnað með sér
sérstakt félag.
Það er ljóst, að þegar við stofn-
un Bóksalafélags íslands var lagð-
ur sá grunnur að starfsemi félags-
ins, sem það byggir á enn þann
dag i dag. Meginverkefni hefur
alla tíð verið að gera samninga við
útsölumenn félagsins og hafa eft-
irlit með starfsemi þeirra. Annað
verkefni félagsins hefur jafnan
verið að standa vörð um hags-
muni bókaútgefenda og stuðla að
viðgangi bókagerðar í landinu.
Það hefur eftir föngum reynt að
fylgjast með þróun mála i bókaút-
gáfu í öðrum löndum, sérstaklega
hjá þeim þjóðum, sem okkur eru
skyldastar, og reynt að hafa áhrif
á löggjafarvaldið þannig að að-
staða islenzkrar bókaútgáfu væri
ekki lakari en þar tiðkast, þó það
verði því miður að segjast, að í því
efni hafi oft verið talað fyrir
daufum eyrum og ekkki náðst sá
árangur sem skyldi.
Sem dæmi um þessa mismun-
andi aðstöðu má geta þess, að í
Noregi hafa stjórnvöld talið sér
skylt að styðja við bakið á bókaút-
gáfu með margs konar aðgerðum
á þeirri forsendu, að norska þjóð-
in, sem telur fjórar milljónir
manna, sé svo lítið málsamfélag,
að því sé hætta búin ef bókaút-
gáfa og bókalestur drægist veru-
lega saman, en hér á landi, í
200.000 manna málsamfélagi hafa
stjórnvöld á umliðnum áratugum
jafnan skellt skollaeyrum við ósk-
um íslenzkra bókaútgefenda um
hliðstæðar aðgerðir.
Það hefur alla tíð verið eitt af
baráttumálum félagsins, að felld-
ir yrðu niður tollar af bókagerðar-
efni og skal það viðurkennt, að
nokkuð hefur áunnizt í þeim mál-
um.
Hins vegar hefur þeirri mála-
leitan félagsins ekki verið sinnt,
að fella niður söluskatt af bókum,
sem talið er sjálfsagt í ýmsum
menningarlöndum og alls staðar
hefur verkað örvandi á bóksölu.
Á síðasta alþingi var samþykkt,
að endurgreiða til höfunda upp-
hæð, sem svarar til söluskatts af
bókum. Það er meginstefna Bók-
salafélags íslands, að á meðan
söluskattur er lagður á bækur og
honum ætlað að renna til höf-
unda, þá eigi það að vera í réttu
hlutfalli við sölu bóka hvers höf-
undar.
Þrátt fyrir það orð, sem fer af
íslendingum sem bókaþjóð, þá
Sigfús Eymundsson — fyrsti for-
maður Bóksalafélags Islands.
eru ekki til i landinu neinar
öruggar, tölulegar upplýsingar
um þróun bókaútgáfu og bóksölu
síðustu áratugina, en slíkt er
nauðsynleg forsenda fyrir þvi, að
unnt sé að gera sér grein fyrir
hvert stefnir i þessum efnum. Af
þeim sökum hefur Bóksalafélag
islands farið þess á leit við al-
þingi, að það veiti fé til rann-
sókna á þessu sviði.
Því er ekki að neita, að í nú-
tímaþjóðfélagi hefur aðstaða bók-
arinnar .breytzt mjög, ekki sízt
fyrir tilkomu sjónvarps og ann-
arra mikilvirkra fjölmiðla. Þetta
atriði er mjög á dagskrá innan
félagsins og hefur félagið ákveðið
i tilefni afmælisins að efna innan
tíðar til ráðstefnu meðal bókaút-
gefenda um stöðu bókaútgáfu i
landinu.
Svo sem áður segir, vai- Sigfús
Eymundsson fyrsti formaður fé-
lagsins, síðan gengdi formennsku
i félaginu Ólafur Runólfsson,
Arinbjörn Sveinbjarnarson, Pét-
úr Halldórsson, Gunnar Einars-
son, Ragnar Jónsson, Oliver
Steinn og Valdimar Jóhannsson.
Núverandi stjórn félagsins er
þannig skipuð: Örlygur Hálfdán-
arson, form., .Arnbjörn Kristins-
son, varaform., Gisli Ölafsson, rit-
ari, Hilmar Sigurðsson, gjaldkeri
og meðstjórnendur þeir Valdímar
Jóhannsson, Böðvar Pétursson og
Björn Jónsson. Lögfræðilegur
ráðunautur félagsins er Knútur
Bruun.
Á sjötiu og fimm ára afmæli
félagsins gaf það út myndarlegt
afmælisrit, sem Sveinn Sigurðs-
son tók saman og er þar margan
fróðleik að finna bæði um sögu
félagsins og bókaútgáfu almennt.
Félagið hefur nýlega keypt sér
húsnæði fyrir framtiðarstarfsemi
sina aðLaufásvegi 12, Reykjavik.
(Frá Bóksalafélaginu).
* /
OKKAR LANDSFRÆGA JANUAR-
ÚTSALA
HEFST MANUDAGINN
14. JANUAR
OG NÚ HÖLDUM VIÐ HANA Á
2 STÖÐUM
Á LAUGAVEGI 37 OG 89
FÖT FRÁ KR. 5900,—
PEYSUR FRÁ KR. 690.—
RÚSSKINNSJAKKAR FRÁ KR. 5900.—
STAKIR JAKKAR FRÁ KR. 3500 —
SKYRTUR FRÁ KR. 560.—AMERÍSKAR
KULDAÚLPUR FRÁ KR. 2950.—
ALULLARTEPPI 2mx1,50m FYRIR ABEIHS KR. 990.-
STÓRKOSTLEG PLÖTUUTSflLfl
MIKfB AF NÝJUSTU PLÖTUNUM
Hljómdeild
Laugavegi 89.