Morgunblaðið - 12.01.1974, Síða 24

Morgunblaðið - 12.01.1974, Síða 24
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. JANUAR 1974 — Montreal Framhald af bls. 8 kemur betur og betur í Ijós, hvað hún er skemmtilegt sambland af nýjum og gömlum byggingum. Montreal, næst stærsta frönsku- mælandi borg í heimi, tvær og hálf milljón sálna. Bíllinn skrikar til á hálum götunum, loks nemur hann stáðar, og bílstjórinn fer út. Ég gríp úlpuna mína og held, að ég sé komin á áfangastað. En það reynist misskilníngur, það hefur orðið árekstur milli áætlunarbif- reiðarinnar og litillar fólksbif- reiðar. Bílstjórarnir ræðast við af miklu fjöri og handpati og biða komu lögreglunnar. Kólumbíumaðurínn, sem situr í næstu sætaröð, hallar sér fram og spyr, hvort ég tali spænsku. Ég tala ekki spænsku, en það kemur í ljós, að við eigum margt annað sameiginlegt. Það tekur enginn á móti okkur í Montreal og við erum bæðí hótellaus. Hann kveðst óvanur ferðalögum á eigin spýtur og spyr, hvort hann megi slást í för með mér. Ég sé ekkert því til fyrirstöðu. Bíllinn ekur aftur af stað, það er ekki nema fárra mínútna akstur að áætlunar- stöðinni. En þar með er ekki allt fengið. Bilstjórinn segist ekki geta hleypt út farþegum nema fá nöfn þeirra og heimilisföng sem vitna að árekstrinum. Annars verði þeir hinir sömu að sitja hér í bílnum og bíða æðri dómstóla, kannski í hálftíma, kannski í klukkutíma. Farþegar þrjózkast við af hinni gamalgrónu hræðslu stórborgar- búans við að blanda sér í málefni, sém geta haft óþekktar afleiðing- ar í för með sér. Þar að auki höfðu fæstir raunverulega séð árekstur- inn. Þannig sitjum við í tíu mínút- ur, unz ég og ungur Bandaríkja- maður með bakpoka missum þol- inmæðina og riðum á vaðið með undirskriftir. Bílstjórinn réttir okkur litla miðablokk, á hverjum miða eru tvær spurningar og lína STÓRDANSLEIKUR B LÓÐ BE R G Sætaferðirfrá B.S.Í. kl. 9.30. fyrir undirskrift og heimilisfang. „Teljið þér bílstjóra Greynound- vagnsins eiga sök á slysinu, teljið þér hann ekki o.s.frv. Setjið kross framan við rétt svar.“ En við þurfum ekkert að hafa fyrir að krossa, segir bílstjórinn, bara skrifa undir. Ég geri eins og mér er sagt og býst ekki við, að öku- maður folksbifreiðarinnar hafi mikla möguleika á að vinna málið gegn rúmlega fjörutíu vitnum. Ég kveð barónessuna, sem bfð- ur komu Sternbaums kaupmanns. Hún kyssir mig á báðar kinnar, svo röltum við af stað með föggur okkar, ég og sá kólumbíski. Göt- urnar eru glerhálar, hann styður mig af suðrænni riddara- mennsku. Þvi miður nær hann mér ekki nema rétt í handar- krika, svo að sennilega er erfitt fyrir utanaðkomandi aðila að gera sér grein fyrir, hver styður hvern. Skammt frá áætlunarstöðinni er kaffihús, ofan við það röð af gömlum, rómantiskum húsum, sem öll auglýsa herbergi til gist- ingar. Við fáum okkur kaffi, við erum einu gestirnir utan eins drukkins manns, sem segir, að ég sé sæt stelpa, og býðst til að kaupa handa mér skólatösku næstkom- andi mánudag. Það finnst mér vingjarnalega boðið. Sá kólumbí- ski, sem treystir mér augsýnilega jafn mikið og sendiráðinu sínu, sendir mig i hótelleiðangur, með- an hann passar föggurnar og lýk- ur við kaffið. A næsta gististað fæ ég tvö einsmanns herbergi fyrir 6 dali hvort, gólfin í þeim hallast iskyggilega, en þau eru hrein og þokkaleg. Gistihússeigandinn ráð- leggur okkur að fara og borða á veitingastað, sem heitir Napóleon og er við St. Catherinestræti, aðal- verzlunargötu Montreal. Þetta er fallega innréttað veitingahús af betra taginu, matseðillinn fullyrð- ir, að allir réttir séu miðaðir við það, sem Napóleon þótti allra bezt, sem sé ekkert slor að miða við. Við veljum okkur fondue á napóleonska vísu, og ég sé það fyrir mér, hvernig Napóleon, hundleiður á öllu stíðsbrölti, hef- ur setið með Jósefínu sinni á dimmu, köldu vetrarkvöldi og slappað af við að steikja fondue. Hótel Akranes Stórdansleikur leikur I kvöld Stórfurðulegt, hvað öll stórmenni veraldarinnar hafa alltaf verið heimilislega sinnúð inni við bein- ið, samanber Guðföðurinn og Napóleon. Því miður eigum við, ég og sá kólumbíski, lítið sam- eiginlegt með Napóleon og Jóse- fínu annað en stærðarmismuninn og fonduíð. Eftir matinn ákveðum við að fara út að dansa og leitum ráða gengilbeinunnar í þeim efnum. Hún mælir með Caf’con í Champalin-kastalanum, sem sé tvímælalaust bezti dansstaðurinn í Montreal. Við tökum okkur leigubíl þangað, en þetta reynist vera Hótel Saga þeirra Montreal- búa, dyravörðurinn lítur með við- bjóði á gallabuxurnar minar og föðurlandsúlpuna, hann harðneit- ar að hleypa okkur inn. Við reyn- um annan stað, sem bílstjórinn mælir með, sá heitir Sexmaskin- an. Hann á það sameiginlegt með Hótel Sögu, að fyrir utan er mílu- löng biðröð. Við reynum þann þriðja, sem er við næstu götu. Þar er lögreglan komin á undan okk- ur, hún ryður sér braut gegnum mannþröngina, sem bíður fyrir utan. Fólkið missir áhugann á að fara inn og það sama gildir um okkur. Bílstjórinn segir okkur, að lögreglán hafi sennilega fengið ábendingu um eiturlyfjaneyzlu eða unglinga undir lögaldri. Ég vendi mínu kvæði í kross og vil bara fara í bíó, og okkur tekst að ná i siðustu sýningu á „Öpum og hvískri'1 eftir Bergman. Mynd- in reynist vera með sænsku tali og frönskum texta, svo að það er ekki bara, að þessi norræna list fari gjörsamlega fyrir ofan garð og neðan hjá þeim kólumbíska, heldur þjáist hann líka ógurlega af leiðindum, eftir því sem á myndina líður blandast lágar stunur hans óþægilega saman við óp og hvískur Bergmans. Við rölt- um svo heim í hálkunni, sá kólum- bíski er full og gerir enga tilraun til aðstyðja mig. IESIÐ DflGLEGIl ÞJÓÐMÁL UTANRÍKISMÁL MENNTAMÁL STEFNUSKRÁRRÁÐSTEFNA HEIMDALLAR, FYRRI HLUTI Heimdallur, samtök ungra Sjálfstæðismanna, efnir til ráðstefnu um stefnuskrá Sjálfstæðisflokksins í Þingholti, laugardaginn 12. janúar, kl. 14:00. Að loknu framsðguerlndl mun páittakendum geflnn kostur á að sklpa sér íeftirtalda starlshöpa: 1. Starfshópur um þjóðmál. Málshefjandi: Gunnar Thoroddsen. 2. Starfshópur um utanríkismál. Málshefjandi: Björn Bjarnason. 3. Starfshópur um menntamál. Málshefjandi: Þorvaldur Búason. 4. Starfshópur um borgarmál. Málshefjandi: Albert Guðmundsson. 5. Starfshópur um skipulagsmál Sjálfstæðisflokksins. Málshefjandi: Baldvin Tryggvason. 6. Starfshópur um Sjálfstæðisstefnuna. Málshefjandi: Jón Steinar Gunníaugsson. Væntanleglr páttlakendur lötl skrá slg t síma 171 oo HEIMDALLUR S.U.S SKIPULAGSMÁL SJÁLFSTÆÐIS- FLOKKSINS SJÁLFSTÆÐIS STEFNAN

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.