Morgunblaðið - 12.01.1974, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. JANUAR 1974
31
| íMiiimmíniii MORcuniBiAÐSiiys
r
Island — Ungverjaland:
ísland og Ungverjaland leika
sinn fimmta landsleik í
handknattleik í Laugardalshiill-
inni í dag og hefst leikurinn
klukkan 16.00 Á morgun leika
þjóðirnar svo aftur og hefst sá
leikur klukkan 15.00. Fullvíst má
telja aS mikil aðsókn verði að
leikjum þessum þar sem þeir
eru þeir síöustu sem íslenzka
landsliðið leikur hér heima áður
en haldið verður til átakanna í
úrstlitum HIVI í A-Þýzkalandi. Er
því rét að minna á forsöluna, sem
Tveir þjálfarar
ANTHONY Sanders, enski þjálf-
arinn, sem Vfkingur hefur ráðið
til að þjálfa 1. deildar lið féiags-
ins næsta keppnistímabil, kom til
landsins í gærkvöldi. Hann dvelst
hér fram yfir helgi, tekur æfingu
með meistaraflokkum og ræðir
við þjálfara og forystumenn Vík-
ings. Síðan kemur hann aftur
hingað í byrjun marz og tekur þá
til við þjálfunina af fullum
krafti.
Vikingar munu þó ekki sitja
auðum höndum fram að þeim
tíma, heldur munu þeir byggja
upp þrekið. Til þess hafa þeir
ráðið Tékkann Maehael Vachun,
en hann þjálfar júdó hjá Júdófé-
lagi Reykjavíkur.
Knapp utan
ENSKI knattspyrnuþjálfarinn
Tony Knapp hélt utan í gær án
þess að skrifa undir saminga við
KR-inga, en hingað kom hann á
þeirra vegum. Kynnti Knapp sér
aðstæður hjá KR og ræddi við
forystumenn félagsins. Þó að ekki
hafi orðið af samingum nú,er ekki
ósennilegt, að það verði gert
innan skamms.
Blakmeistaramótið
hófst í gær og byrjar aftur klukk-
an 13 í dag í Laugardalshöllinni.
ísland og Ungverjalanjl hafa
fjórum sinnum leikið landsleik í
handknattleik og alltaf hafa Ung-
verjarnir borið sigur úr býtum.
Síðast nú í desember, þá munaði
ekki nema 3 mörkum á liðun-
um, en í tvö skiptin þar á undan
höfðu Ungverjarnir unnið með
miklum mun. Ef til vill eru lið
þjóðanna að færast nær hvort
öðru og nú hefur íslenzka liðið í
fyrsta skipti heimavöllinn með
sér. Það er því ekki svo fjarlægt
að gera sér vonir um íslenzkan
sigur — hinn fyrsta gegn Ung-
verjum.
Liðið sem leikur leikinn í dag er
skipað eftirtöldum mönnum:
Ólafi Benediktssyni, Gunnari
Einarssyni, Gunnsteini Skúla-
syni, Gísla Blöndal, Viðari
Jónssyni, Auðunni Óskarssyni,
Axel Axelssyni og Herði kristins-
syni. Liðið sem leikur á morgun
verður valið strax að loknum
leiknum í dag.
loknum leiknum í dag.
Leikirnir við Ungverja eru
tímamótaleikir fyrir nokkra af
leikmönnum landsliðsins. Þannig
leikur fyrirliði liðsins,
Gunnsteinn sinn 50.
landsleik á morgun og Auðunn
Óskarsson sinn fertugasta.I leikn
um leikur Viðar Símonarson sinn
landsleik númer 60 og Hörður
Kristinsson, sem verið hefur utan
landsliðsins 1 þrjú ár, leikur sinn
20. leik í dag.
• •
Orninn
Borðtennisklúbburinn Örninn
heldur aðalfund sinn f Kristalsal
Hótels Loftleiða sunnudaginn
13.1. og hefst hann kl. 14.00. I lok
fundarins fer fram skráning eldri
félaga til æfinga á vormisseri.
Skráning nýrra félaga verður
þriðjudaginn 15. janúar klukkan
18.00 í Laugardalshöll.
Ur landsleikjum Islands og
Ungverjalands hingað til er
markataian Ungverjunum hag-
stæð um 25 mörk, 83:58. Leik-
urinn í dag verður 125. lands-
leikur íslands og er markatalan
úr þeim leikjum sem leiknir hafa
verið tslendingum hagstæð um 63
mörk, en hún er 2248 mörk
skoruð gegn 2185 mörkum.
Leikurinn í dag hefst klukkan
16, en á morgun byrjar slagurinn
klukkan 15. Dómarar í leikjunum
verða sænskir, þeir Gunnar
Lundin og Axel Wester, þeir hafa
ekki dæmt hér á landi áður.
Sterkur varnarmaður er nauð-
synlegur hverju liði og það er
ekki sízt verk Harðar Kristins-
sonar hve Ármannsvörnin
hefur verið þétt f vetur.
Myndin er tekin í leik
Armanns og IR f fyrra og það
er Hörður Kristinsson sem
gnæfir yfir aðra leikmenn.
„Er ekki kominn tími
til að vinna þá?”
HÖRÐUR Kristinsson, hinn há-
vaxni leikmaður Ármanns,
kemur að nýju inn í landsliðið í
leiknum við Ungverja í dag,
eftir að hafa verið úti í kuldan-
um þrjú síðustu ár. Hörður
hefur leikið 19 landsleiki, lék
síðast með landsliðinu f Tiblisi
í desember 1970. í landsleikj-
um sfnum hefur Hörður skorað
42 mörk, en að öllum líkindum
verður hann ekki með mark-
hærri leikmönnum landsliðsins
f Ieiknum í dag.
— Ég er valinn í liðið til að
styrkja vörnina, skytturnar eru
mýmargar í liðinu, svo það
kæmi mér ekki á óvart þó ég
yrði látinn hvíla í sókninni,
sagði Hörður er við ræddum við
hann i gær og Hörður heldur
áfram. — Þó ég komi iskaldur
inn i landsliðið nú, en með því
hef ég ekkert æft i vetur, er ég
bjartsýnn á leikinn i dag. Ég
hef leikið meira og minna með
strákunum í landsliðinu og oft-
sinnis á móti þeim svo ég ætti
að þekkja inn á þá.
— Til Ungverjanna þekki ég
litið, hef einu sinni leikið gegn
þeim, það var í Bratislava árið
1964, með'liðinu sem leikur for-
leikinn að leiknum á morgun.
Mér er sagt að Ungverjarnir
séu nokkuð sterkir um þessar
mundir og við höfum aldrei
borið sigurorð af þeim, en er
ekki kominn tími til að gera það
i leiknum í dag?
Fimmti leikuriim,
fyrsti sigurinn?
Áhorfendum fækkar með hverju ári
Blakmenn taka nú um helgina
til við þar sem frá var horfið fyrir
jólafríið og fara tveir leikir fram
í blakmeistaramótinu á morgun,
sunnudag. Báðir leikirnir verða
háðir á Laugarvatni og eru það
Kópavogsfélögin: Handknatt-
leiksfélag Kópavogs og Breiða-
blik, sem fara þangað í heimsókn.
Leikur HK við UMF Laugdæla og
Breiðablik leikur við UME Bisk-
upstungna. Fyrri leikurinn hefst
kl. 13.30 og verður það leikur HK
og UMF Laugdæla.
KNATTSPYRNUMENN hafa oft
kvartað sáran yfir þvf, að aðsókn
að knattspyrnuleikjum færi ört
minnkandi. Þessi þróun virðist
einnig eiga sér stað í handknatt-
leiknum, en hingað til hefur
handknattleikurinn verið sú
íþrótt, sem mestum vinsældum
hefur átt að fagna.
Frá því á keppnistímabilinu
1970 hefur aðsóknin minnkað
mjög mikið, eða um meira en
helming að leikjum 1. deildar í
Laugardalshöllinni. í íþróttahús-
inu í Hafnarfirði er þróunin hins
vegar ekki sú sama, en lítil breyt-
ing er þar á aðsókn frá ári til árs.
Þessar upplýsingar fengum við,
er við ræddum við Gunnar Guð-
mannsson forstjóra Laugardals-
hallarinnar og Yngva Rafn
Baldvinsson, íþróttafulltrúa f
Hafnarfirði. Hér á eftir fara töfl-
ur yfir aðsókn að leikjum 1.
deildar í þessum tveimur íþrótta-
húsum, en sá er munurinn að f
Laugardalshöllinni er miðað við
hvert keppnistímabil, en í
Hafnarfirði við áramót.
Íþróttahöllin í Laugardal:
Ar Leik- Alls
kvöld áhorfendur
1969—70 16 7601
1970—71 15 20762
1971—72 15 19090
1972—73 21 17670
19 73—74 9 4715
íþróttahúsið í Hafnarfirði:
1971 8 6318
1972 4 3254
1973 7 5493
Það skal tekið fram, að tölurnar
úr íþróttahöllinni fyrir íslands-
mótið 1973—74 eru miðaðar við
10/1. Því er ef til vill ekki rétt að
dæma aðsóknina nú, þar sem
venjan er sú, að leikir fyrri
umferðarinnar eru alltaf verr
sóttir, en leikir þeirrar síðari.
Hins vegar leynir það sér ekki,
að aðsóknin fer minnkandi með
hverju árinu frá því 1970—71 og
má mikið vera ef íslandsmótið nú
verður eins vel sótt og síðasta
íslandsmót. Þegar fjölgað var f 1.
deild Islandsmótsins um eitt lið
haustið 1971 og svo upp i 8 haust-
ið eftir, voru þeir margir, sem
spáðu því, að með auknum leikja-
fjölda myndi aðsóknin minnka.
Sú virðist ætla að verða raunin,
Meðaltal
475
1380
1273
889
524
789
814
785
aukinn leikjaföldi gerir það að
verkum, að áhorfendur dreifast í
fleiri leiki. Sum leikkvöldin verða
laus við alla spennu þar sem miðl-
ungsliðin keppa og berjast hvorki
á toppi eða botni. Þegar svo
stemmningin minnkar á leikj-
unum, hætta jafnvel tryggustu
áhorendur að koma, því það er nú
einu sinni þannig, að það eru ekki
sízt margir áhorfendur, sem
skapa spennu á handknattleiks-
leikjum.
1 Hafnarfirði virðist aðsóknin
vera nokkuð svipuð frá ári til árs,
að meðaltali i kringum 800 á
hvern leik. Er það mjög gott,
þegar miðað er við það, að íþrótta-
húsið í Hafnarfirði tekur ekki
nema í mesta lagi 1150 manns.
Aðdáendur Hafnarfjarðarliðanna
sýnast tryggari en Reykjavíkur-
félaganna og svo er það örugglega
þungt á metunum, að færri
Framhald á bls. 18
Leikið í 2. deild
VEGNA Iandsleikjanna við
Ungverja verður ekkert leikið í 1.
deild karla um helgina. Hins
vegar fara fjórir leikir fram í 2.
deild í dag og á morgun.
Fjölgun liðanna f 1. deild úr 6 f 8 er ef til vill ein meginorsökin fyrir
þvf, að áhorfendum fækkar nú að leikjum 1. deildar. Þessi mynd er
tekin að loknum leik Vfkings og Ármanns haustið 1971, Vfkingar
fagna sigri og sæti í 1. deild — þvf sjöunda.