Morgunblaðið - 17.01.1974, Side 32

Morgunblaðið - 17.01.1974, Side 32
i>. |Wor0uní)laí)ib KmPRCFPLDBR I mHRRHfl VÐHR ragmtMfiMfe |H®ir0i«n!t>Iaíiií» nucLvsincnR ^[*-»22480 FIMMTUDAGUR 17. JANUAR 1974 Stjórnarkjör í Einingu um helgina: Björn Jónsson á framboðslista gegn félagsstjórninni Akureyri — 16. janúar. STJÓRNARKJÖR f Verkalýðsfé- laginu Einingu fer fram á Laug- ardag og sunnudag f allsherjarat- kvæðagreiðslu meðal félags- manna. sem eru alls um 1800 — á Akureyri. Dalvfk, Ölafsfirði og Hrísey. Framboðsfrestur rann út á hádegi í dag og höfðu þá tveir listar komið fram. Sá fyrri var borinn fram af stjórn og trúnað- armannaráði félagsins, en hinn síðari af Jóni Helgasyni og fleir- um. Þrfr loðnubátar héldu til loðnuveiða frá Reykjavfk f gær. A myndinni sést Ásgeir, þegar hann lét úr höfn. Ljósm. IVIbl. Sv.Þ. 130 skip á loðnuveiðar Gnðarmikið JL Gríðarmikið loðnumagn úti f\rir Austfjörðum „HINGAÐ vantar aðeins skip til að veiða loðnuna, Börkur er re.vndar á útleið, eftir að hafa farið heim til Neskaupstaðar og sótt þangað loðnunótina, og f kvöld er Súlan EA væntanleg á miðin og Eldborg GK f nótt, þann- ig að það fer að rætast úr með komu veiðiskipanna," sagði Hjálmar Vilhjálmsson, fiski- fræðingur og leiðangursstjóri á Árna Friðrikssvni, í samtali við blaðið f gærkvöldi. Um tíma í gær leit úr fyrir, að loðnuskipin færu ekki úr höfn fyrr en loðnuverð væri komið. Fundur var haldinn hjá Far- manna- og fiskimannasambandinu um málió. en samkomulag náðist ekki meðal skipstjóra. Fóru því bátarnir að tínast út sfðari hluta dags í gær og má þar nefna Gísla Arna, Þorstein og Asgeir. I dag má svo búast við að fjöldi báta leggi af stað til veiða, og nokkur floti loðnuskipa ætti að vera kom- inn á miðin úti fyrir Austfjörðum um helgina. í næstu viku má svo búast við, að flest öll loðnuskipin verði komin til veiða. Búizt er við að loðnuskipin í vetur verði yfir 130, en í fyrra voru þau ekki nema 87. 32 bræðsl- ur hafa búið sig undir að taka á móti loðnu, en 26 tóku á móti loðnu í fyrra. Hjálmar Vilhjálmsson á Arna Friðrikssyni sagði í gær, að þeir á Árna hefðu í fyrrakvöld leitað ásamt Berki meðfram djiipkantin- um frá Reyðarfjarðardýpi allt undir Glettinganesgrunn. Fram- an af nóttu var loðnan mjög dreifð, og lítið fannst, utan nokkr- ar stakar torfur um kvöldið. Síðari hluta nætur fundust marg- ar góðar torfur á svipuðum slóð- um og í fyrrinótt, 55 sjómílur frá Dalatanga og Gerpi. Voru þær mjög þéttar, flestar 5 — 10 faðma þykkar, á 5 — 10 faðma dýpi. Um leið og birti í gærmorgun dýpkuðu torfurnar á sér. Sagði Hjálmar, að Börkur hefði ekki kastað flottrollinu í fyrri- nótt, heldur haldið heim um þrjú- leytið og sótt nótina, en Börkur var væntanlegur á miðin aftur um kl. 17 í gær. Súlan var væntanleg um miðnættið og Eldborg GK um kl. 3 í nótt. Að sögn Hjálmars lóðaði á mjög mikilli loðnu í gær á svæðinu frá Gerpi að Dalatanga og norður með landgrunninu, á samtals 30 mílna svæði.Stóðloðnan djúpt, en af og til fundust gríðarstórir loðnuflekkir, einkum um há- degisbilið. Gerði Hjálmar sér vonir um, að skipin þrjú, sem yrðu á miðunum í nótt, fengju afla. Frambjóðendur til stjórnar- kjörs á lista Jóns Helgasonar eru: Jón Helgason, formaður, Þor- steinn Jónatansson, ritari, Jakob- fna Magnúsdóttir, gjaldkeri, og meðstjórnendur: Sigríður Pálma- dóttir, Ólöf Jónasdóttir og Gunn- ar Sigtryggsson. Þess má geta, að Björn Jónsson félagsmálaráðherra, heiðursfé- lagi Einingar og formaður félags- ins um árabil, hefur átt sæti í trúnaðarmannaráði félagsins, en hann skipar nú neðsta sæti vara- manns á þessum lista og má skoða það sem eins konar heiðurssæti. Á lista stjórnar og trúnaðar- mannaráðs eru þessir frambjóð- endur til stjórnarkjörs: Jón Ás- geirsson, formaður, Rut Björns- dóttir, varaformaður, Bragi Rós- bergsson, ritari, Vilborg Guðjóns- dóttir, gjaldkeri og meðstjórnend- ur: Auður Guðjónsdóttir, Björn Gunnarsson og Ananías Berg- sveinsson. Maður féll milli báts og bryggju á Akranesi Mjög góð viðbrögð fólks við undirskriftasöfnun VIÐBRÖGÐ fólks við undir- skriftasöf nuninni, Varið land, hafa verið injög jákvæð fvrir söfnunina, og í gærkvöldi höfðu 900 listar farið út, en á hverjum er rúm fyrir 20 nöfn. Þá var vitað um að nokkur þúsund manns voru búin að undirrita áskorun- ina gegn uppsögn varnar- samningsins. Samkvæmt upplýsingum Hreggviðs Jónssonar hjá undir- skriftaskrifstofunni var geysileg- ur fjöldi fólks búinn að hafa sam- band við skrifstofuna í gær í síma 36031 og þar af var mjög mikill fjöldi utan af landsbyggðinni, en víða um land hefur verið beðið um lista og verða þeir sendir í þessari viku. Þó kvað Hreggviður þá vilja hvetja fólk, bæði á höfuð- borgarsvæðinu og úti á landi, að hafa samband og samvinnu við skrifstofuna. 1 húsnæðí skrifstofunnar, Varið land, var fjölsótt í gær, og kom fram geysileg ánægja fólks með það að fá að tjá sig í þessum málum. Fjölmargir lögðu einnig pening i sjóð fyrir rekstur skrif- stofunnar og var þ'ar um að ræða fólk á öllum aldri. Skrifstofan er opin milli kl. 2-7 alla virka daga í Míðbæ við Háaleitisbraut, norð- austurenda. Börkur með 160 tonn Þegar Morgunhlaðið hafði samhand við Hjálmar Vilhjálmsson um horð í Arna Friðriks- svni í gærkvöidi, kvað hann Börk NK hafa kast- að einu sinni um 55 míl- ur réttvísandi austur af Norðfjarðarhorni og hafa fengið 160 tonn í þessu fyrsta kasti. Súl- an, Magnús NK, og Eld- horgin áttu þá skammt ófarið á miðin. Akranesi — 16. janúar. ALVARLEGT slys varð hér við höfnina f gær, er maður féli milli báts og bryggju og í sjóinn. 1 fallinu hlaut hann mikið höfuð- högg og rifbeinsbrotnaði, auk þess sem hann drakk mikinn sjó, áður en honum var bjargað. Mað- urinn lá í gær þungt haldinn í sjúkrahúsinu á Akranesi. Lögreglunni var tilkynnt um slysið um kl. 16.50. V.b. Hilmir lá hér við hafnargarðinn og var unn- ið að því að taka loðnunót um borð. Maðurinn, sem er Akurnes- ingur, var að fara frá borði upp á hafnargarðinn, er honum skrikaði fótur í hálku og féll niður milli bátsins og bryggjunnar. Þorsteinn skipstjóri á Hilmi fór þegar ásamt einum háseta sínum niður á milli bátsins og bryggj- unnar eftir manninum, en á meðan hélt skipshöfnin á Akra- borginni og fleiri menn Hilmi frá bryggjunni. Björguðu þeir síðan Tilboðið þykir ná skammt » " Í M r. A —A 1 I . ASÍ og VSÍ aftur á fundi í dag ÞRJATÍU-manna nefndir Al- þýðusambandsins og Vinnuveit- endasambandsins voru á fundi með sáttasemjara frá kl. 2—7 í gærdag, og er annar fundur boð- aður í dag kl. 2 — að þessu sinni í húsakynnum sáttasemjara, en ekki í Loftleiðahótelinu eins og hingað til. Ólafur Jónsson, for- maður Vinnuveitendasambands- ins sagði í viðtali við Morgunblað- ið í gær, að á þessum fundum hefði tilhoð vinnuveitenda verið á dagskrá og komið fram, að í því væru ýmis ákvæði, sem verkalýðs- foringjarnir væru ekki alltof ánægðir með. Snorri Jónsson, for- seti ASÍ, vildi ekkert ræða um tilhoðið á þessu stigi. Eftir upplýsingum, sem Morg- unblaðið hefur aflað sér, hafa vinnuveitendur í þessu tilboði boðið hæst um 11% kauphækkun þar sem tæplega 8% kauphækkun er boðin þegar í stað, en síðan 3% ofan á það 1. marz 1975. í tilboð- inu gera vinnuveitendur ráð fvr- ir, að gerð verði endurskoðun á vísitölunni til að draga úr víxl- hækkunum kaupgjalds og verð- lags með því að fella úr henni nokkra liði, svo sem áfengi og tóbak, hækkun olíuverðs og að hækkun óbeinna skatta komi ekki fram í henni. Loks er gert ráð fyrir því, að samningurinn gildi til 1. nóvember 1976. Morgunblaðið hefur einnig fregnað, að innan verkalýðsfor- ustunnar þyki þetta tilboð ná skammt og verkalýðsfélögin muni jafnvel ekki geta sætt sig við það sem opnunartilboð í þeirri mynd, sem það er lagt fram. manninum naumlega úr sjónum, en hann hafði þá drukkið mikinn sjó. Maðurinn var þegar fluttur í sjúkrahúsið á Akranesi, þar sem hann lá þungt haldinn í dag, eins og áður segir. Þá kom varðskipið Þór hingað inn í nótt og hafði þá tilkynnt lögreglu um komu sína og beðið um að sjúkrabifreið biði á hafnar- bakkanum. Var Þór með slasaðan mann um borð, en sá hafði fallið í stiga á hafi úti og lærbrotnað. Maðurinn var fluttur í sjúkra- húsið hér á Akranesi. — Júlfus. Samið við Pólverja um mjöl- sölu í dag? SAMNINGAR eru nú hafnir við pólska sendincfnd, sem stödd er hér á landi þessa dagana, um sölu á loðnumjöli. Ekki hefur verið gengið frá samningum, en vænt- anlega verður það gert f dag og á morgun. Pólverjar hafa verið ein- hverjir stærstu kaupendur á loðnumjöli frá Islandi undanfar- in ár og f fyrra fengu þeir minna en þeir vildu fá. Verð á mjöli og lýsi hefur hald- ist stöðugt síðustu vikur, þangað til að lýsi hækkaði nokkuð i þess- ari viku. Er nú hvert lýsistonn selt á 510—520 dollara, en var áður um 500 dollarar. Þetta mun þó ekki koma íslenzkum seljend- um til góða, því þeir eru búnir að selja allt lýsi fyrirfram.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.