Morgunblaðið - 13.02.1974, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. FEBRUAR 1974
STAKSTEINAR
® 22 0-22
RAUDARÁRSTÍG 31
BÍLALEIGA
CAR RENTAL
n 21190 21188
tel 14444 • 25555
BÍLALEIGA car rental
Leiðsögn „vinstri-
villinga” hafnað
I Verkamanninum, mál-
gagni Björns Jónssonar á Akur-
eyri, var nýlega fjallað I for-
ystugrein um úrslitin í
stjórnarkosningunni f verka-
lýðsfélaginu Einingu. Segja
má, að þessi grein spegli ágæt-
lega þann kærleika, sem nú rík-
ir milli samstarfsflokkanna í
ríkisstjórninni, en eins og allir
vita, voru kosningarnar í Ein-
ingu uppgjör milli stuðnings-
manna Björns Jónssonar ann-
ars vegar og Alþýðubandalags-
ins hins vegar. 1 ritstjórnar-
greininni segir:
„Þetta var ekki aðeins sigur
fyrir þá, sem stóðu að framboð-
inu í Einingu, heldur var þetta
sigur allrar íslenzku verkalýðs-
hreyfingarinnar. Enda er það
víst, að flestir forystumenn
hennar um allt land, önduðu
léttar eftir að úrslitin urðu
kunn. Einingarfélagar höfðu
tjáð vilja sinn svo greinilega,
að um hann verður ekki deilt.
Þeir hafa afneitað leiðsögn
„vinstrivillinganna," KSML-
manna og annarra uppreisnar-
manna, sem hafa það eitt að
leiðarljósi að brjóta niður og
berjast gegn öllu lýðræðis-
skipulagi og löglega kosnum
stjórnum. Þeir eygðu fyrir
kosningarnar von um að geta
veitt Einingu fyrir sig í baráttu
gegn rfkisstjórninni, sem þeir
hatast við. Hugmyndin var
einnig að beita félaginu til að
knésetja einstaka atvinnurek-
endur, þvf að eftir boðorðum
þessa lýðs er hver sá, sem ein-
hvern atvinnurekstur stundar
eða veitir atvinnufyrirtæki for-
stöðu, djöfull í mannsmynd og
hefur það eitt markmið að stela
öllu, sem stolið verður, af
verkafólkinu. Hugmyndafræði
sfna hafa menn þessir lært af
gömlum og Iöngu úreltum bók-
um, sem samdar voru við alit
aðrar aðstæður og út frá allt
öðrum forsendum en nú eru til
staðar.“
Ekki meira til
skiptanna en aflast
,Tf ér á íslandi eru sárafáir
stórir atvinnurekendur tiL
Mikill meirihluti alls atvinnu-
rekstrar f landinu er á vegum
rfkisins, sveitarfélaganna og
samvinnufélaganna. Þeir
menn, sem þessum fyrirtækj-
um stjórna, eru launþegar en
ekki atvinnurekendur í venju-
legri merkingu þess orðs. En
þeir eru ábyrgir gerða sinna
gagnvart fólkinu, sem á fyrir-
tækin, og til þess er ætlazt, að
þeir reki fyrirtækin á sem hag-
kvæmastan hátt. Þess vegna er
ekki við því að búast, að þessir
menn, enda þótt þeir séu sjálfir
launþegar, fallist orðalaust á
hverjar þær kröfur, sem verka-
lýðssamtökin setja fram. Þeir
eru til þess ráðnir að annast
hag fyrirtækjanna og yfirleitt
er ætlast til þess, að þau séu
ekki rekin með tapi. Því setjast
þessir menn við samningaborð
andspænis fulltrúum verka-
Iýðsfélaganna, en ekki vegna
þess að þeir séu endilega verka-
lýðsféndur og vilji allt til þess
gera að spilla afkomu fólks.
sem við fyrirtækin vinnur. Nær
lagi mun að fleiri en hitt vilja
að afkoma þeirra, sem við fyrir-
tækin vinna, sé góð og kjörum
þeirra ekki haldið niðri að
óþörfu. En eðlilega vilja þeir
hafa vaðið fyrir neðan sig og
fþyngja ekki fyrirtækjunum
umfram getu.
Nú er líka aðstaða til samn-
ingagerðar orðin allt önnur en
áður var. Reikningar ríkisfyrir-
tækja, sveitarfélaga og sam-
vinnufélaga eru opinber gögn,
sem allir geta haft aðgang að,
Og mörg önnur fyrirtæki reyna
heldur ekki lengur að fela
reikninga sfna. Af þessu leiðir>
að nú er jafnan vitað f höfuð-
atriðum, hver geta einstakra
atvinnugreina er til að bera
uppi hækkuð laun eða aðrar
kjarabætur. Af þessu eiga
verkalýðsfélögin að taka mið,
þegar þau leggja fram kröfur
sfnar. Ekki þó svo, að þær séu
þannig sniðnar, að allur
atvinnurekstur eigi létt með að
verða við þeim, heldur þannig,
að þýðingarmestu atvinnu-
greinarnar geti orðið við þeim
án þess að til vandræða verði
fyrir reksturinn. Það er skipt-
ing þjóðarteknanna, sem um er
deilt við samningaborðið, og
allir verða að gera sér ljóst, að
ekki er meira til skiptanna en
það, sem aflast.“
SENDUM
18
06060
SKODA EYÐIR MINNA.
Shodh
LBOAH
AUÐBREKKU 44-46.
SlMI 42600.
Vandaðar, fallegar og
hlýjar telpna- og drengja-
húfur.
*elfur
tízkuverzlun æskunnar
Þinghoítsstræti 3.
Ferðabílar h.f.
Bílaleiga.
Vetrarfrí lokað til 1.
mars.
Bókhaldsaðstoð
meðtékka-
færslum
BÚNAÐAR-
BANKINN
Rannsóknir á ískjarna Vatnajökuls
vekja athyglisverðar spurningar
LÍTILL hópur íslenzkra
vísindamanna er nú leita að
upplýsingum um sögu veður-
fars á íslandi f 10—20 aldir
með því bora að bora 400 m
gegnum jökul. Þannig hefst
fréttagrein. sem Alþjóðakjarn-
orkustofnunin í Vín birtir í
skýrslum sfnum. Er þar átt við
boranirnar, sem fram fóru í
fyrra sumar á Bárðarbungu á
vegum nokkurra vísindamanna
við Raunvísindastofnun Há-
skóla lslands. En það verkefni
er styrkt af Kjarnorkustofnun-
inni og er eitt af 600 rann-
sóknaverkefnum, sem stofnun-
in styður um allan heim, þar
sem kjarnorkutækni er beitt í
friðsamlegum tilgangi. En f
greininni segir, að verkefni is-
lenzku vísindamannanna, að
reyna að bora niður í gegn um
2000 metra þykka íshettuna á
Vatnajökli sé fyrsta tilraunin
af þessu tagi í veröldinni.
í greininni segir, að fskjarn-
arnir hafi verið fluttir í rann-
sóknastofurnar í Reykjavfk í
frauðplastumbuðum, sem sé
ákaflega ódýr og raungóð að-
ferð. Og þar sé nú verið að
rannsaka þá. Mbl. leitaði upp-
lýsinga um hvernig gengi hjá
Braga Árnasyni efnafræðingi.
Sagði hann, að Páll Theodórs-
son eðlisfræðingur væri langt
kominn með sínar þrívetnis-
mælingar, en þær ná um hálfa
öld aftur í tímann. Sjálfur
kvaðst Bragi vera um það bil
hálfnaður með tvívetnisrann-
sóknirnar og yrði líklega búinn
undir næsta haust. En jarð-
fræðingarnir Sigurður
Þórarinsson og Sigurður Stein-
þórsson eru að vinna að ösku-
lagaathugunum i kjörnunum.
Þessar athuganir, þó ekki sé
lokið, munu hafa vakið ýmsar
aðrar athyglisverðar spurning-
ar og hvatt til nýrra athugana,
En þetta verkefni á í heild eftir
að bæta við almenna þekkingu
á jöklum og eðli þeirra. Til
dæmis eru vísindamennirnir að
mæla klór og natrium í lögun-
um niður í gegnum jökulinn og
hafa þar komizt að raun um,
ýmislegt, sem ekki var vitað,
svo sem að þær verkanir, sem
fram fara í efsta hjarninu,
halda áfram niður í jökulinn í
einhverjum mæli. Vekur þetta
áhuga á frekari rannsóknum.
Einnig, að klórið hverfur í jökl-
inum smám saman, eftir því
sem neðar dregur. En þar sem
krystallarnir stækka neðar, þá
hlýtur vatn að komast þama að
og eyða klórinu á einhvern
hátt, að því er Bragi sagði. Þá
er ætlunin að athuga fleira, svo
sem kvikasilfurmagnið, sem
bundizt hefur í jöklinum á ýms-
um tíma. En slíkt vekur nú
mikla athygli i eldfjallalöndum,
þar sem talið er, að mikið
kvikasilfur komi upp með eld-
gosum og af gufusvæðum. En
rannsóknirnar á kjörnunum
eru sem sagt í gangi og á áætl-
un, að því er Bragi sagði og gefa
vornir um að verða ákaflega
fróðlegar.
Kjarnorkustofnunin litur á
þessar rannsóknir á ískjarnan-
um í Vatnajökli sem lið í athug-
unum á ýmsum fyrirbrigðum í
veröldinni allri. Til dæmis á
þeim sveiflum, sem orðið hafa á
veðurfari i heiminum, með
löngum hita- eða kuldatímabil-
um, sem hafa haft gífurleg
áhrif. Til dæmis, segir í skýrsl-
unni, sýna bandarískar mæling-
ar víðs vegar að úr heiminum,
að frá 1880 fram yfir 1940 hafi
loftslag hlýnað verulega. í
heiminum almennt munaði það
hálfri gráðu á Celcius, en á
norðurhveli var sveiflan mun
Frá Bridgefélagi Kópavogs.
Eftir 24 umferðir í baromet-
erkeppninni er staða efstu para
þessi:
Ármann — Lárus 341
Valdimar — Haukur 316
Guðmundur — Öli 282
Þorvaldur — Garðar 278
Ragnar—Sirrý 265
Arnar—Stefán 180
Guðjón — Ragnar 179
Gunnar — Björn 158
Sævin—Bjarni 147
Sverrir — Hermann 139
Kári — Grímur 115
Guðmundur—Helgi 101
Þrjár síðustu umferðirnar
verða spi laðar á morgun.
— O —
Fjórum umferðum er nú lok-
ið í aðalsveitakeppni TBK og
urðu úrslit síðustu úmferðar
þessi
Sveit Kristínar
17—3
vann Jóns B.
Sveit Þórarins
vann Sigríðar 14—6
Sveit Tryggva »
vann Þórhalls 19—1
Sveit Rafns og Bernharðs
gerðu jafntefli 10—10
Sveitir Gests og Guðlaugs
gerðu jafntefli 10—10
Staða efstu sveita í meistara-
flokki er nú þessi:
Kristínar Þórðardóttur 63
Þórhalls Þorsteinssonar 61
Tryggva Gíslasonar 44
Bernharðs Guðmundssonar 42
Þörarins Arnasonar 41
I
flokkur
Sveit Þorsteins
vann Hannesar
Sveit Sigurjóns
vann GuðmundarG.
SveitBirgis
vann Kristínar
Sveit Erlu
vann Guðmundar P
Sveit Guðmundíu
vann Gísla
18—2
20—0
19—1
17—3
12—8
Staðan í I. flokki:
Birgis ísleifssonar 72
Erlu Eyjólfsdóttur 62
Þorsteins Erlingssonar 61
Sigurjóns Tryggvasonar 51
Kristinar Ölafsdóttur 49
Guðmundar Pálssonar 48.
— O —
sterkari og munaði uþp í nokkr-
ar gráður á árunum frá 1920 til
1940. Því fylgdi, að heimskauta-
ísinn minnkaði um 10% og
þynntist um einn þriðja, en
jöklar um allan heim drógust
saman, meðan ár og fljót
flæddu yfir bakka sína vor og
sumar, segir í skýrslu Kjarn-
orkustofnunar. En í sl. 25 ár
hefur jörðin verið að kólna
hægt. Og því er öll vitneskja
um þessar breytingar sýnilega
mjög mikilvæg, einkum ef hún
getur orðið til þess, að hægt sé
að sjá breytingar fyrir.
Þá er í skýrslunni skýrt frá
því hve mikilvægar slíkar upp-
lýsingar séu fyrir íslendinga.
Með öskulögnum sé hægt að
ákvarða aldurinn mjög vel, tví-
vetnis- og þrívetnismælingar
geti gefið mjög góðar upplýs-
ingar um veðurfarið og þessar
rannsóknir geti veitt mikilvæg-
ar upplýsingar til ákvörðunar á
jarðhitasvæðunum. Þá er lýst
verkinu og erfiðleikunum við
að framkvæma það, gerð bors-
ins, sem lokið var við að smíða
1971, tilraunaboruninni með
honum þá um sumarið, endur-
bótum veturinn eftir og borun-
inni niður á 415 m dýpi sumarið
1972, þegar náðust upp 99% af
borkjörnunum. Oglýster erfið-
leikum við slika borun, þar sem
jökullinn er ekki mikið undir
frostmarki og bræddar ísnálar
vildu frjósa aftur á bornum, en
á því tókst að sigrast.
Eins og fram hefur komið hér
í þættinum stöð til að spilarar
frá Huddersfield kæmu til
keppni á vegum TBK f fyrra-
sumar. Ekkert varð af þeirri
heimsókn m.a. út af þorska-
stríðinu. Nú hefur aftur á móti
komið boð frá Huddersfield —
og er þar boðið 36—40 pörum
til keppni i eina viku — 21. —
28. júní nk. Stjórn TBK fjallar
nú um málið — en ákveðið er
að fara og er búið að semja við
flugfélagið. Nánar verður sagt
frá ferðalagi þessu síðar í þætt-
inum. __q___
í sfðustu viku fórst fyrir að
birta fréttir, sem bárust frá
TBK, og biðst þátturinn vel-
virðingar á þessum mistökum.
A.G.R.