Morgunblaðið - 13.02.1974, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 13. FEBRUAR 1974
7
„Greið upplýsingamiðlun
meginhluti starfsins”
Rœtt við Olaf Sigurðsson blaða-
fulltrúa F.Í.L
UR
HRINGIÐU
ATVINNUUFSINS
t nútlmaþjóðfélagi er stöð- <
ugt lögð meiri áherzla hjá
fyrirtækjum og stofnunum á
upplýsingamiðlun. Erlendis
eru vfða stór fyrirtæki, sem
annast þessi mál og nefnd eru á
ensku „Public Relation“, en
ekki virðist enn hafa tekizt að
finna gott fslenzkt orð yfir
þetta starfssvið.
Hér á landi hefur undanfarið
orðið nokkur þróun á þessu
sviði, einkum þannig að fyrir-
tæki, stofnanir eða samtök ráða
sér menn, sem kallaðir eru
blaðafulltrúar. Eru þeir nú
12—15 að tölu. Til þess að fræð-
ast um störf þessara manna átt-
um við samtal við Ólaf Sigurðs-
son, blaðafulltrúa Félags ís-
lenzkra iðnrekenda, en Ölafur
tók við því starfi fyrir rúmu ári
eftir að hafa starfað sem blaða-
fulltrúi Upplýsingaþjónustu
Bandaríkjanna um 5 áraskeið.
— Hvert er starfssvið blaða-
fulltrúa?
— Orðið blaðafulltrúi gefur
kannski ekki rétta mynd af
starfi allra þeirra, sem á þessu
sviði vinna. Sumir, sem slík
starfsheiti bera, hafa mikil
samskipti við fjölmiðla, eins og
t.d. hjá flugfélögunum, Land-
helgisgæzlunni, forsætis- og ut-
anrfkisráðuneytunum, svo eitt-
hvað sé nefnt. Meginhluti
starfsins er hins vegar alls kon-
ar upplýsinga- og fræðslustarf-
semi af allt öðru tagi.
— Ef við förum nánar út í
það?
— T.d. hjá F.Í.I. þurfum við
að halda sambandi við félags-
menn og láta þá vita af því, sem
við erum að gera á skrif-
stofunni, og ég þarf að heim-
sækja þá til að sjá hvað þeir eru
að gera, því að það skilur eng-
inn atvinnugrein án þess að
vita, hvað er að gerast hjá fyrir-
tækjunum. Til þess að halda
þessum samskiptum vakandi
höfum við hafið útgáfu frétta-
bréfs, sem stefnir að þvf að
fræða félagsmenn um starfsemi
félagsins út á við í þeirra þágu
og einnig láta þá vita um starf-
semi hvers annars. Þá er gefið
út tímaritið Islenzkur iðnaður,
er kemur út 4 sinnum á ári. I
því er fjallað í greinum um
þróun mikilvægra mála fyrir
iðnaðinn og birtar stefnumót-
andi greinar.
I þessi tvö rit fer eðlilega
mikill tími. Þá er eitt af starfs-
sviðunum margvisleg þjónusta
við félagsmenn. T.d. ráðgjafar-
starfsemi af ýmsu tagi í sam-
bandi við kynningu og fræðslu.
Má þar nefna hvernig á að taka
á móti skólanemendum f heim-
sókn í fyrirtæki, hvort á að
halda blaðamannafund eða
ekki, hvernig á að útbúa kynn-
ingarbækling um fyrirtækið,
minnast afmælis o.fl. í svip-
uðum dúr.
— Nú ert þú fyrsti blaðafull-
trúi F.Í.I., hvernig var starfs-
svið þitt hugsað?
— Þó að ég sé fyrsti fastráðni
blaðafulltrúi félagsins.þá hafði
áður verið unnið að þessum
málum þar, Islenzkur iðnaður
hefur komið út í meira en 20 ár,
Hagtölur iðnaðarins o.fl., en
markmiðið með ráðningu minni
var að koma þessu starfi á
skipulegri grundvöll, bæði inn
á við og út á við. Það hefur ekki
minna að segja í kynningar-
starfsemi að kynna störf félags-
manna innbyrðis, en meðal
Ólafur Sigurðsson, blaðafull-
trúi F.I.I.
HAGTÖLUR
IÐNAÐARINS
Cti
FÉUG ÍSLENZKRA IÐNREKENDA
Hagtölur iðnaðarins og tslenzk-
ur iðnaður, sem Fll gefur út
ásamt fréttabréfi.
hópa utan iðnaðarins. Mestu
erfiðleikarnir i þessu sambandi
eru hve fjölbreyttur iðnaður-
inn er. Ég hef nú heimsótt um
100 iðnfyrirtæki og um 60
þeirra reka starfsemi, sem égsá
hvergi annars staðar. Ef þetta
er borið saman við aðrar at-
vinnugreinar, þarf ekki að sjá
mörg bú til að vita, hvernig
landbúnaður er rekinn og eins
ekki mörg skip eða verksmiðjur
til að gera sér mynd af sjávarút-
vegi.
eftir
Ingva Hrafn
Jónsson
Kynningarstarfsemi verður
öll miklu erfiðari, þegar svona
er, þar sem fátt fólk hefur
nokkra heildarmynd af því,
hvað Islenzkur iðnaður er. Það
eru ekki mikil tengsl á milli
framleiðslu á steinsteypu og
náttfötum, eða mayonese og
skuttogarasmiði. Allt er þetta
þó flokkað undir iðnað. Af
þessu leiðir að fólk litur ekki á
iðnaðinn sem heild, nema þegar
talað er um hann i fréttum.
— Það hlýtur að hafa tekið
tíma að setja sig inn í þetta allt,
en hvernig hefur gengið að
koma starfinu á þann skipulega
grundvölL sem þú ræddir um
áðan?
— Það hefur gengið hægt,
enda ékki hægt að vinna slikt
verkefni með hraði. Minn timi
hefur farið í að kynnast því,
hvað iðnaður er, hvernig
tengslum hans er háttað við sitt
umhverfi, að kynnast forustu-
mönnum iðnaðarins og ekki sízt
þeim mönnum, sem mest áhrif
hafa á mál iðnaðarins. Það er
raunar fyrst nú, að grundvöllur
er að skapast fyrir skipulögðum
vinnubrögðum i iQ'nningar-
starfsemi fyrir iðnaðinn frá
minni hendi. Mikilvægasta
málið, sem við stöndum frammi
fyrir, er að auka skilning á
iðnaðinum innan fræðslukerfis-
ins, og á það raunar við um alla
atvinnuvegi þjóðarinnar. Ég
hef safnað saman öllu þvi efni,
sem kennt er í samfélagsfræð-
um í skólum, og mér virðist
augljóst, að þar þurfi margt að
endurskoða. Svo er annað sér-
vandamál iðnaðarins og það er
að mikill meirihluti íslendinga
er nátengdur landbúnaði og
sjávarútvegi gegnum ættir, en
iðnaðurinn er tiltölulega ung
atvinnugrein.
— Hver heldurðu, að þróunin
verði hér á sviði upplýsinga-
miðlunar?
— Hraði upplýsinga-
dreifingar fer stöðugt vaxandi,
og því þarf að sama skapi greið-
ari aðgang að upplýsingum. Það
er meginhlutverk þeirra, sem
að blaðafulltrúastörfum vinna,
að sjá um greiða upplýsinga-
miðlun. Ég tel engan vafa á, að
slíkum mönnum eigi eftir að
fjölga mikið á næstu árum.
Hins vegar er þorri fyrirtækja
og stofnana það litill, að ekki er
grundvöllur fyrir fullu starfi á
þessu sviði einu. Það hlýtur því
að fara að koma að því, að hér
verði stofnað ráðgjafarfyrir-
tæki um upplýsingamiðlun og
er raunar þegar orðin brýn þörf
fyrir slíkt fyrirtæki.
FORD BRONCO ÁRG. '73 Til sölu V 8 vél og kraftstýri. Uppl. Islma 32374 eftirkl. 8. keflavIk sandgerði Til sölu 3ja, 4ra og 5 herb. ibúðir i Sandgerði og Keflavík Blla og Fasteignaþjónusta Suðurnesja Slmi eftir kl. 13, 92-1535 og heima 92-2341.
CHEVROLET Vega Station 1972 til sölu. Nýinn- fluttur frá U.S.A. uppl. I slma 35200. 21 712 og 13285. KEFLAVÍK SUÐURNES Til sölu 140 ferm. einbýlishús á góðum stað I Keflavik Skipti koma til greina á íbúð i Reykjavik eða Keflavik Bila og Fasteignaþj. Suðurn. S. 1 535 og heima 92-2341.
TRJÁKLIPPINGAR og áburðardreifing. Þórarinn Ingi Jónsson. Slmi 36870 HÚSNÆÐI ÓSKAST Ung barnlaus hjón vantar 2ja herb. ibúð eins fljótt og hægt er. Fyrir- framgr i boði ef óskað er Algjörri reglusemi heitið Tlb merkt 3282 sendist Mbl. fyrir 1 5. þ.m.
SUMARBÚSTAÐUR Stór sumarbústaður til sölu 50 km. frá Reykjavík, bústaðurinn er fokheldur. Verð 2—300 þús Tlb sendist Mbl. f. 19. þ.m. merkt 1 366. MÓTATIMBUR Notað mótatimbur til sölu Uppl i sima 92-2375.
RÁÐSKONUSTAÐA ÓSKAST Kona um fertugt með 2 börn á framfæri óskar eftir ráðskonustöðu á góðu heimili I Rvk. eða nágr. Tlb. óskast send Mbl. merkt „Ráðskona 1365" KEFLAVÍK — YTRI-NJARÐVÍK Herbergi óskast fyrir tvo reglu- sama menn. Simar 2152 eða 1549.
BROTAMÁLMUR Kaupi allan brotamálm langhæsta verði. Staðgreiðsla. Nóatún 27, slmi 25891. GÓÐUR HESTUR 4ra vetra. stór, sótrauður, ekki fulltaminn, alveg hrekkjalaus, til sölu. Óska einnig eftir að koma hvolpi fyrir aðeins i sveit Uppl. í s. 1 991 1 e. kl. 8.
MÓTATIMBUR til sölu. Sími 21 962. UNGUR REGLUSAMUR MAÐUR utan af landi óskar eftir herbergi, helst sem næst miðborginni. Tilboð sendist blaðinu fyrir 18. þ.m. merkt 1364.
ÓSKAEFTIR húsnæði strax, ca. 100 fm. fyrir sérverzlun; Tlb. sendist Mbl. fyrir 15.2. merkt Húsnæði 3216. LÍTIL ÍBÚÐ ÓSKAST til leigu 1. marz helst i Austurbæn- um. Tvö fullorðin i heimili, vinna bæði úti. Uppl. í síma 12608 á kvöldin.
TILSÖLU er heildsala og smásala i sérflokki. Miklir möguleikar. Lítil útb. Tlb. sendist Mbl. fyrir 15. 2. merkt Tækifæri 321 5. ^>mnRGFmDRR 7 mRRHRfl VÐRR
Ný sending af
ODYRU
tfoáhiha
sjónvarpstœkjum komin
En því miður hún er
uppseid. — En við
eigum von á annarri
sendingu mjög bráðlega.
Það borgar sig að panta
tæki strax. Verðið er ein-
stakt.
12" sjónvarpstæki 220
volt og 12 volt kr.
18.470.
14" sjónvarpstæki 220
voltkr. 19.600.
Toshiba Japan er stærsta verksmiðja í heimi á sviði
rafeinda og kjarnorkutækja. 1 50.000 manna starfslið og
þar af 6000 vísindamenn standa að baki hverju Toshiba
tæki — Trygging fyrir gæðum.
Flest japönsk tæki á markaðnum eru að meira eða minna
leiti byggð upp af hlutum framleiddum af Toshiba.
Trygging fyrir góðu verði.
Umboðsmenn Toshiba Japan
Einar Farestveit & Co h.f.,
Bergstaðarstræti 10 a. Sími 16995.
KEA — Akureyri.
Hljómverh.f. Akureyri.