Morgunblaðið - 13.02.1974, Side 10

Morgunblaðið - 13.02.1974, Side 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. FEBRUAR 1974 Græna byltingin veitir stundarhlé Hin snjalla skáldsaga George Orwells, 1984, gerði það ár að táknrænu ári endalok- anna, þegar neikvæðar gerðir 20. aldar manna á efnahags- iegu-, félagslegu- og stjórn- málalegu sviði hefðu Jeitt okk- ur á enda blindgötu fátæktar, ófrelsis og einhvers konar fágaðrar villimennsku. Árið 1984 getur líka i raun — ekki aðeins í skáldsögu — orðið hættuár í veröldinni. Á því ári getur það fæðumagn, sem á vantar til að hægt sé að halda við heilsu manna, eðlilegum vexti og andlegum þroska, verið komið upp í 2'A milljón tonna. Á næsta ári mun heimurinn þurfa að fæða 75 milljónir manna til viðbótar við það sem nú er, jafnframt þvi sem dregið hefur mikið úr heimsframleiðslunni á matvæl- um eftir 75% aukningu á árun- um 1960—1970. En uppskera úr sjó og af ökrum eykst ekki jafn hratt og mannfjölgunin. Mikil skrif um þessi mál á undan- fömum árum hafa orðið til þess, að hættan á að við verðum undir í kapphlaupinu milli fólksfjölgunar og matvæla- framleiðslu fer nú varla fram hjá almenningi. Og því gripa menn fegins hendi við hinni svokölluðu „grænu byltingu", sem getur lyft undir bjartari vonir. Árið 1970 hlaut ekki fræg ur stjornmálamaður friðarverð laun Nóbels eins og venjulega, heldur ræktunarmaður, dr. Norman Borlaug, sem með rannsóknum sinum tókst að fá fram hæfari korntegundir og afkastameiri og margfalda þannig uppskeruna á sömu blettunum. Þessar hratt vax- andi korntegundir hans hafa ekki eingöngu breytt korn- skortinum í Mexico í umfram- framleiðslu, svo unnt er að flytja korn út, heldur líka forðað Pakistan og Indlandi frá stöðugri hungursneyð, svo þessi lönd eru nú nær alltaf fær um að brauðfæða sig. Þetta er hin svokallaða „græna bylt- ing“. Og græna byltingin ætti vissulega að megna að veita nokkurt ráðrúm, þó sérfræð- inga greini á um, hve lengi það endist. Með því ætti mannkynið að vinna nokkurn tíma, sem nota ætti til að ráðast á skipu- legan og mannlegan hátt gegn þvi, sem dr. Borlaug kallar „mannfjölgunarskrímslið". En grænu byltingunni eru viss tak- mörk sett af þeim sökum, að til að rækta svo fljótvaxnar og af- kastamiklar plöntur þarf mikið vatn, sem farið er að minnka á jörðinni og má ekki bruðla með í það óendanlega. Einnig krefjast þessar plöntur geysi- mikils tilbúins áburðar, sem ekki er æskilegur af mengunar- ástæðum og er að auki fram- leiddur með mikilli orku, sem lika er takmörk sett. við höfum aldrei beðið eftir fullkomum tegundum eða fullkomnum ræktunaraðferð- um,“ segir dr. Borlaug. — Við höfum einfaldlega notað beztu fáanlegu aðferðirnar sem fyrir hendi eru hverju sinni, og bætum þær svo eftir því sem okkur miðar í framförum. Þessari -einföldu staðreynd vilja vísindamenn iðulega gleyma, þegar þeir eru að kref j- ast fullkomnunar og eyða heilli mannsævi i leit að því ófinnan- lega. . . Nú þegar er fyrir hendi mikil tækni og nægur efniviður til að auka grænu byltinguna og færa hana út til annarra greina ræktunar. Blaðamaður einn hitti dr. Borlaug að máli á tilraunabú- garði hans í Mexico, þar sem bæði eru gerðar tilraunir og þjálfað tæknifólk á þessu sviði alls staðar að úr heiminum. Blaðamaður spurði Borlaug, hvort hann væri sammálaþeim, sem fuliyrtu að „græna hylting- in“ mundi líklega hafa áhrif á líf fleiri manna á skemmri tima en nokkur önnur tæknileg breyting f mannkynssögunni. Hann svaraði: Ég held að græna byltingin hafi möguleika til þess, ef stjórnir landanna láta ekki reka á reiðanum, heldur láta hendur standa fram úr ermum, veita réttan stuðning, halda uppi öflugri tilraunastarfsemi og þjálfa nægilega marga unga vísiridamenn. En það er ekki nóg að vinna að rannsóknum. Menn verða lika að vera reiðu- búnir til að nýta þessa nýju vitneskju og tækni til að bæta úr matvælaskortinum. Það er hægt að hafá rétta fræið, kunn- áttuna og tilbúna áburðinn í einhverju landi, en samt gerist þar ekki neitt. Ef græna bylt- ingin á að breyta einhverju, þá verður æðsta stjórn landsins að taka upprétta stefnu og láta framkvæma hana. Stundum er erfiðast að sannfæra stjórnirn- ar um, að þær verði fyrst af öllu að styðja tilraunastarfsemina og síðan að gera það eftir- sóknarvert fyrir smábændurna að nýta þessa nýfengnu þekk- ingu. Nauðsynlegt er að sjá fyrir lánum til kaupa á tilbún- um áburði og fræi og tryggja stöðugan markað, svo botninn detti ekki úr öllu saman, þegar bændurnir fá uppskeru sína. Allir þessir liðir eru álíka mikilvægir. Við verðum að gera okkur far um að dreifa hinni nýju tækni til sívaxandi hluta mannkynsins og ekki aðeins varðandi hveititegundirnar, heldur allar aðrar komtegund- ir, svo að fleiri og fleiri bændur víðs vegar um heim geti orðið þátttakendur. Tökum nýja hveitið sem dæmi. Bændur í Indlandi og Pakistan hafa nú fengið peninga í vasann i fyrsta skipti og þeir eru farnir að kaupa sér ýmislegt. Það hrindir af stað breytingu og hreyfingu í smáiðnaði i þorpunum, og hjálpar til við að lífga alla þjóð- arframleiðsluna. Ef við höldum áfram á sömu braut, náum til fleiri og fleiri manna með þetta, þá kemur það okkur áreiðanlega á óvart, hvað það getur gert fyrir al- menna efnahagslega þróun í landinu. En til að þetta geti orðið og haldið áfram og þróast, þá verðum við að hafa stöðugar stjórnir í löndunum og frið í heiminum. Það er ekki hægt að hafa eintóma óreiðu og bæta jafnframt hag hins almenna borgara í löndunum. Blaðamaðurinn spurði dr. Borlaug, hvort það væri rétt eftir honum haft að erfið- asti vandinn við að koma hinum stórkostlegu umbótum á i Mexico hefði verið að sannfæra bændurna um, að þeir ættu að rækta þessar nýju tegundir af korni. Ég held, að þetta hljóti alltaf að vera einn mesti vandinn við að koma á nýrri tækni, ekki aðeins þegar um korntegundir er að ræða. Viss tregða er alltaf fyrir hendi og því meiri sem fólk er fátækara, sagði Borlaug. Þess vegna eru smábændur tregastir til að breyta til — einkum þeir sem rétt draga fram lífið. Maður verður að gera sér þetta ljóst, ef maður ætlar að kynna nýtt fræ og nýja tækni til úrbóta. Það þýðir ekkert að sýna bóndapum 10— 15% meiri uppskerú einhvers staðar og ætlast til þess að hann trúi þvi. Maður verð- ur að geta sýnt, hvern- ig farið er að þvi að rækta þrefalt eða fjórfalt meira en hans uppskera er venjulega. Sé hægt að gera það á hans eigin landi en ekki á tilraunabúgarði stjórnarinnar, þá skilur hann það. Kotbóndinn er alltaf tregur til að trúa því sem hann sér á opinberri tilraunastöð. Hann heldur að stjómin sé alltaf rík og hafi næga sjóði og geti því framkvæmt ýmislegt, sem hann getur ekki á sinu landi. Þó hann segi það kannski ekki, þá er ég viss um, að iðu- lega veit hann ekki, hvað hann á að halda um þessi töfrabrögð, getur alveg eins trúað, að eitt- hvað slíkt sé á ferðinni eins og að visindin ráði þar um. Eftir að hann hefur aftur á móti séð þetta gerast á hans eigin landi og tekið þátt í ræktuninni þá verður hann einhver duglegasti áróðursmaðurinn, og kynnir að- ferðina fyrir ættingjum sínum og nágrönnum, ekki aðeins í þorpinu sem hann býr i, heldur líka í fjarlægum þorpum, þar sem hann á kannski fjarskyld- ari ættingja. A þennan hátt breiddist þessi nýjung yfir Ind- land og Pakistan og þannig verður hún að dreifast yfir fleiri lönd. Aðeins ein jörð Bergfrid Fjose fyrrverandi félagsmálaráðherra Noregs: Fóstur- eyðingar óviðunandi lausn á félagslegu vandamáli UM HELGINA var frú Bergfrid Fjose hér f boði Norræna félags- ins, og flutti hún erindi um áfengismál í Norræna húsinu sl. laugardag. Frú Fjose var félagsmálaráð- herra i stjórn Lars Korvalds, og hefurhún verið þingmaður Hörða lands fyrir Kristilega þjóðar- flokkinn sfðan 1969. Hún er ákafur fylgismaður bindindis og hefur beitt áhrifum sfnum mjög á þvf sviði. Blaðamaður Mbl. átti viðtal við frú Fjose, og sagði hún, að í Nor- egi sem annars staðar væri við alvarlegt áfengisvandamál að etja. Þ(í væri það gleðiefni, að nú væri áfengisneyzla almennt miklu minni en hún hefði verið á siðustu öld, og mætti fyrst og fremst þakka það viðtæku bindindisstarfi og ýmsum aðgerð- um stjórnvalda til að hamla gegn sölu og dreifingu á áfengum drykkjum i landinu. Frú Fjose sagði, að upp úr 1960 hefði áfengisneyzla farið vaxandi viða um Iönd, og væri ástæðan stórbætt lífskjör og velmegun al- mennings. Einnig bæri að líta á það, að verðlag á áfengi hefði ekki fylgt eftir þeirri tekjuaukn- ingu, sem orðið hefði i velferðar- þjóðfélögum, svo og það, að áfengisauglýsingar hefðu aukizt mjög frá því, sem áður var, en þessar auglýsingar hefðu sannan- lega mjög örvandi áhrif á neyzl- una. Þá hefði áfengislöggjöf verið rýmkuð tiltakanlega í Noregi árið 1972, og hefði árangurinn ekki látið á sér standa. Til dæmis hefði með gildistöku hinna nýju laga orðið mun auðveldara að fá keypt áfengi um helgar, og um leið hefði tala umferðarslysa um helgar hækkað verulega. Frú Fjose kvað það vera sér mikið áhugamál, að komið yrði á samnorrænni löggjöf um bann við áfengisauglýsingum og teldi hún það vera verðugt verkefni fyrir Norðurlandaráð aðstuðla að slíkri löggjöf. Þetta mál hefði borið á góma innan ráðsins og værí ljóst, að slík samræming væri vel fram- kvæmanleg og mjög æskileg. Þá hefði þetta einnig komið til tals innan Evrópuráðsins, og þætti sér ekki óliklegt, að reynt yrði að stuðla að samræmdri löggjöf á þeim vettvangi einnig. Spurningunni um það, hvað vænlegast væri í baráttunni við áfengisvandamálið svaraði frú Fjose á þá leið, að vinna þyrfti að því með öllum tiltækum ráðum, að áfengisneyzla minnkaði stór- lega, — efla hjálparstarf við áfengissjúklinga, — stuðla að víð- tæku fræðslustarfi í skólum og æskulýðsfélögum og setja strang- ari lagaákvæði um ölvun við akstur. Einnig telur hún mikilvægt, að verðlag á áfengi verði stórhækkað frá því, sem nú er, og einnig, að kostnaður af hjálpar- og varnar- starfi verði greiddur af því fé, sem aflað er með þessu móti. Frú Fjose vék að hefð, sem rikt hefur lengi um víða veröld, þ.e.a. s. tollaeftirgjöf á áfengi, tóbaki og öðrum munaðarvarningi, sem veitt er diplómötum og ferðafólki sem ferá milli landa. Hún sagði, að sér fyndist þessi eftirgjöf fráleit og sæi raunar enga skynsamlega ástæðu til þess, að einstakir hópar nytu slikra for- réttinda. Hún sagðist hafa orðið þess greinilega vör, að þetta sjónarmið sitt ætti miklu fylgi að fagna meðal norskra þingmanna á „vinstri vængnum", meðan þeir, sem væru hægrisinnaðir, væru yfirleitt tregari til að fallast á það. Þá spurðum við frú Fjose um afstöðu hennar til breytingar á norsku fóstureyðingalöggjöfinni, en það mál hefur verið mjög á döfinni í Noregi að undanförnu. Hún sagðist vera mótfallin því, að hróflað yrði við þeirri löggjöf, sem í gildi væri, enda væri hún rýmri en gerðist víða annars staðar. Hún sagði það vera persónulega skoðun sína, að frjálsar fóstureyð- ingar væru óviðunandi lausn á félagslegu vandamáli i sið- menntuðum þjóðfélögum, enda hefði reynslan af frjálsum fóstur- eyðingum orðið neikvæð, þar sem þær hefðu verið teknar upp. Töl- ur um fóstureyðingar i hlutfalli við fæðingar væru ógnvekjandi í þeim löndum, þar sem fóstureyð- ingar hefðu verið gefnar frjálsar. Þá benti hún á það, að í Rúmeniu hefði verið tekin upp löggjöf, sem heimilaði fóstureyðingu að ósk konu, en þar hefði þessi löggjöf nú verið afnumin að fenginni reynslu. Frú Fjose sagði, að um þetta mál færu nú fram miklar umræð- ur í Noregi og nú væri ljóst, að úrslit í norska Stórþinginu. gætu oltið á einu atkvæði.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.