Morgunblaðið - 13.02.1974, Qupperneq 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. FEBRUAR 1974
Verzlunarhús kaupfélags-
ins í Þorlákshöfn brann
ELDUR kom upp í verzlunarhúsi
Kaupfélags Arnesinga í Þorláks-
höfn I fyrrakvöld og urðu miklar
skemmdir á húsinu, en verzlun
kaupfélagsins er eina verzlunin í
þorpinu og er því mjög bagalegt
ástand þar eystra nú. Er nú unnið
að því að fá bráðabirgðahúsnæði
fyrir verzlunina, en nýtt
verzlunarhúsnæði er fokhelt og
verður ekki tekið í notkun strax.
Eldurinn kom upp um 10-ieytið
í fyrrakvöld. Lagfæringar höfðu
r
Avísanafals-
ari gripinn
A FÖSTUDAGSKVÖLDIÐ var
handtekinn í Reykjavík maður,
sem grunaður var um þjófnað á
tveimur ávísanaheftum og fölsun
ávísana úr þeim. Öðru heftanna
hafði verið stolið frá manni á
Landakotspítala í byrjun janúar,
en hinu frá manni á Landspítala i
lok janúar. Bárust
síðan til banka falsaðar ávís-
anir úr báðum heftunum og benti
ymislegt til þess, að sami maður
væri þar að verki. Maðurinn, sem
handtekinn var á föstudagskvöld-
ið, var úrskurðaður í gæzluvarð-
hald í allt að 20 daga vegna rann-
sóknar málsins. Hann hefur játað
á sig verknaðinn. Hann falsaði
ávísanir að andvirði um eða yfir
80 þús. kr.
— Aburðar-
farmur
Framhaid af bls. 2
skipti það engum togum, að skipið
fór að síga niður, og sökk það á
2—3 mínútum."
Sagði Þórður i samtali sinu við
fréttaritara Morgunblaðsins, að ef
gúmbjörgunarbáturinn hefði
ekki verið nærtækur, væri ekki
víst að mannskapurinn hefði
bjargast,því ekki hefði gefist tími
til að leysa skipsbát skipsins, og
með naumindum hefði verið hægt
að senda út neyðarkall og skjóta
blysum á loft.
Töluverður sjór komst i gúm-
bátinn, og biotnuðu skipverjar
allir nokkuð við það, en alls voru
þeir í um það bil 40 mínútur í
bátnum, áður en þeim var bjargað
um borð í Harald.
Hannes Hafstein, framkvæmda-
stjóri Slysavarnafélagsins, sagði i
samtali við Morgunblaðið, að það
hefði verið kl. 9.05, sem Loft-
skeytastöðin í Reykjavík hefði
móttekið neyðarskeyti frá Vestra.
Samstundis hefði stöðin kallað
nærliggjandi skip upp og beðið
þau að fara Vestra til aðstoðar.
Síðan hafði S.V.F.Í. samband við
björgunarsveitina á Akranesi og
bað um að bátar yrðu sendir á
stað þaðan. Fóru tveir bátar, Har-
aldur og Höfrungur, út til að svip-
ast um eftir gúmbátnum. Einnig
var haft samband við Landhelgis-
gæsluna og beðið um að flugvél
yrði send á vettvang. Fór
Friendship-vélin TF-SÝR í loftið,
en þyrla Slysavarnafélagsins og
Landhelgisgæzlunnar TF-GNÁ
var höfð til taks. Um kl. 9.52 fann
svo Haraldur gúmbátinn og tók
hann og skipbrotsmenn um borð.
Sagði Hannes, að Akraborg
hefði lagt af stað til Reykjavíkur
frá Akranesi klukkan 9 í gær-
morgun og hefði hún verið stutt
frá þeim stað, þar sem óhappið
varð, þegar það átti sér stað,
Reykjavíkurradíó kallaði strax í
skipið, en það svaraði ekki og
náðist ekki samband við það, fyrr
en það kom til Reykjavíkur.
„Að hafa talstöðvar skipa ekki
opnar, þegar skip eru á siglingu,
er algjört kæruleysi," sagði Hann-
es.
Vestri var 305 nettórúmlestir að
stærð, smíðaður i Danmörku 1964
og hét áður Bellatrix. Skipið var
keypt hingað fyrir nokkrum árum
af Jóní Franklin útgerðarmanni.
Skipstjóri á Vestra í þessari ferð
var Tómas Hassing.
farið fram á húsinu undanfarið
og var verið að vinna við upp-
setningu á kælitækjum. Tveir
menn unnu með logsuðutæki og
varð þá eldur skyndilega laus og
varð ekki við neitt ráðið. Komust
mennirnir tveir naumiega út úr
húsinu.
Slökkviliðið á staðnum kom
þegar á vettvang, svo og slökkvi-
lið frá Hveragerði og Selfossi.
Vatn var notað úr neyzluvatns-
brunni þorpsins, en einnig var
notaður sjór. Mikið tjón varð á
vörubirgðum verzlunarinnar og
nemur tjónið í brunanum milljón-
um króna. Talið er að vörubirgðir
verzlunarannar séu ónýtar.
Slökkviliðinu tókst að slökkva
eldinn um eða rétt fyrir miðnætti,
en vörður var við brunarústirnar
í aila nótt. Strekkingur var af
norðaustan, en áveðurs við húsið
eru bensin- og gasolíutankar og
mun hagstæð vindátt hafa komið í
veg fyrir að eldurinn kæmist i
tankana.
Reknir
Seoul, 12. febrúar, NTB.
YFIRVÖLD í Suður-Kóreu hafa
vikið 113 embættismönnum á
skattstofu landsins úr starfi og er
það liður í tilraunum þeirra til að
uppræta spillingu opinberra emb-
ættismanna. Skattstjóri landsins
upplýsti á fundi með fréttamönn-
um að hinir reknu hefðu lifað f
vellystingum pragtugiega, langt
um efni fram.
— Oveður
Framhald af bls. 2
ljóst, að háspennulínan frá Laxár-
virkjun hafði slitnað einhvers
staðar. Leit var hafin að bilun-
inni, þrátt fyrir foraðsveður á
Vaðlaheiði og austan hennar og
undir hádegið var ljóst, að línan
var slitin í Reykjadal.
Skömmtun var hagað þannig,
að veitusvæðinu vestan Vaðla-
heiðar var skipt í fjögur hverfi og
hafði hvert hverfi rafmagn í tvær
klukkustundir, en var síðan raf-
magnslaust í sex klukkustundir.
Athafnalíf á Akureyri var lamað í
dag af þessum sökum, skólar gátu
ekki starfað og undir kvöldið
óttuðust menn vatnsskort í bæn-
um, vegna þess að dælur, sem
dæla vatni til bæjarins frá
Krossastaðaeyrum i Hörgárdal
voru óstarfhæfar. Viðgerð á linu-
slitinu í Reykjadal lauk nú í kvöld
og var rafmagn komið á línuna til
Akureyrar klukkan 18,45.
Allmiklar rafmagnslínubilanir
urðu hér við Eyjafjörð í óveðrinu,
m.a. tók snjóflóð sundur þrjá
staura á túninu á Áshóli skammt
sunnan við Laufás. Viðgerðar-
menn hafa verið á ferðinni i dag í
snjóbílum og unnið að Iagfæring-
um.
Hægt gengur að hreinsa götur
Akureyrar, enda snjómagnið
gifurlegt’. Snjórinn hefur lika
blotnað og þétzt í blotanum í dag,
en hér á Akureyri hefur í dag
verið frostleysa með norðaustan-
átt og hríðarlemjanda. — Sv. P.
30 ára tré brotna
Húsavík, 12. febrúar —
STÖÐUG stórhríð hefur verið hér
síðan hann brast á um miðjan dag
í gær. Sett hefur niður mikinn
snjó, en hitastig er um frostmark
og hefur snjór því setzt illa á
raflínur og trjágróður í görðum.
Raflínur hér innanbæjar, sem
ekki eru í jörð, hafa mikið slitnað
og 10 til 20 staurar brotnað. Hafa
ýmsir bæjarhlutar verið raf-
magnslausir af þeim sökum.
Línan frá Laxá hefur enn staðið
af sér veðrið. Húsagarðar hafa
víða skemmzt mikið, t.d. hafa 20
til 30 ára gömul tré brotnað und-
an snjó og veðurofsa. Engin mjólk
hefur komið hingað í dag, svo að
ekki er vitað um færð á vegum í
nágrenninu, en buast má við, að
víða hafi hún spillzt. Ekki verður
færð þó könnuð fyrr en veðrinu
slotar. —Fréttaritari.
— Deilt um
verkfall
Framhald af bls. 2
samningaumleitanir heildarsam-
takanna á sama tíma og prentarar
líta á sem sinn bezta tíma til
kjarabaráttu. Því var ekki um
annað að ræða — sagði Þórólfur,
en HÍP ætti samstöðu með heild-
arsamtökunum við að ná þeim
samningum, sem fengjust.
Þetta hef ég talið vera stefnu
félagsins og I samræmi við vilja
félagsmanna. Segist hann hafa
hagað störfum sinum innan 30
manna nefndarinnar samkvæmt
því, enda hafi aldrei komið til
þess, að trúnaðarmannaráðið sam-
þykkti það, að félagið drægi sig út
úr heildarsamningunum. Þegar
síðan 30-manna nefndin verður
sammála um að dagsetja verkfall,
þá vill meirihluti trúnaðarmanna-
ráðs, 13 gegn 7, ekki gera það og
hefur ennfremur ekki aðra hug-
mynd um dagsteningu verkfalls.
„Þarna verður stefnubreyting hjá
HlP,“ sagði Þórólfur, „að í febrú-
armánuði telur það sig ekki geta
framkvæmt það, sem það hafði
talið sig geta frá því I fyrrasumar,
þegar ég var sendur á kjaramála-
ráðstefnuna. Niðurstaðan verður
sú, að þegar fulltrúi prentarafé-
lagsins hefur verið hafður í-30-
manna nefndinni allan þennan
tíma og verið trúað fy'rir ákveðn-
um málaflokkum fyrir iðnaðar-
menn — hefur þessi stefnubreyt-
ing það í för með sér, að um árabil
verður fulltrúa HlP aldrei treyst
til þess að fara með slíka mála-
flokka einfaldlega af því að hon-
um yrði ekki treystandi til þess að
félag hans veitti honum þann
stuðning, sem þarf til að slást til
loka hverrar baráttu."
Þórólfur sagði, að afstaða hans
myndi ekki breytast, nema því
aðeins að félagsfundur kæmist að
annarrri niðurstöðu en trúnaðar-
mannaráðið og að því tilskyldu, að
það breyti um skoðun og boði til
verkfalls sem næst 19. febrúar
eða með löglegum fyrirvara. Fé-
lagsfundur I HlP verður í dag.
Þórólfur sagðist þó búast við því,
að meirihluti trúnaðarmannaráðs
hefði félagsfund með sér I þessari
afstöðu. Afsögn Þórólfs gildir frá
og með næsta aðalfundi að þvi er
öll félagsmál varðar að undan-
teknum samningamálunum, sem
hann tekur ekki lengur ábyrgð á
— eða frá þvi er trúnaðarmanna-
ráðið gerði samþykkt sína.
— Loðnu
dælt í sjó
Framhald af bls. 32
„Ég get aðeins sagt eitt,“ sagði
hann, „ég hef ekki efni á svona
veiðiskap, og ég held að þjóðar-
búið hafi ekki heldur efni á þvi.
Þvi miður gerði ég þá vitleysu á
sinum tíma að kjósa þá flokka,
sem mynda núverandi ríkis-
stjórn, en það geri ég ekki aftur.
Brennt barn forðast eldinn.“
Ef fer sem horfir, þá eru miklar
likur á, að enn fleiri skip þurfi að
dæla loðnunni í sjóinn í dag og á
morgun, ef ekkert verðurað gert.
— Loðnan
full af átu
Framhald af hls. 32
mælzt áður, en sem betur fer eru
sumir farmar lausir víð átuna.
Verið er að athuga hvort átan sé á
einhverju vissu veiðisvæði, og
bendir margt til þess, að meira sé
um átufulla loðnu á vestursvæð-
inu. I dag höfum við því reynt að
benda skipstjórnarmönnum á að
koma ekki með loðnu til frysting-
ar, sem inniheldur átu, sagði
Eyjólfur.
Ólafur Jónsson, aðstoðarfram-
kvæmdastjóri sjávarafurðadeild-
ar S.I.S. sagði, að átumagnið væri
orðið stórvandamál og leyfði
S.I.S. ekki frystingu á loðnu, sem
væri með átu. Frystihús Sam-
bandsins voru búin að frysta um
1100 lestir af loðnu i gær.
Við erum þegar búnir að neita
bátum um löndum, því að loðnan
sem þeir hafa verið með er með of
mikið af átu, sagði Bjarni
Magnússon hjá íslenzku umboðs-
sölunni. Hann sagði, að þeirra
frystihús væru nú búin að frysta
um 500 lestir og gengi frysting
sæmilega.
Núverandi ástand er mjög al-
varlegt og ekki er vitað, til hvaða
ráða er hægt að grípa. Menn vona
helzt að áta haldi sig svo til ein-
göngu á einu veiðisvæði eins og
margt bendir til, og ef svo er þá
ætti að vera hægt að fá loðnu til
frystingar af átufríu svæði, sagði
Bjarni.
— Solzhenitsyn
Framhald af bls. 1
hvað sovézk yfirvöld ætlist fyrir
með Solzhenitsyn. Þeir telja hugs-
anlegt að honum verði sleppt með
viðvörun um að hætta mótmæla-
aðgerðum sínum. Einnig gæti
hann orðið ákærður fyrir að hafa
skrifað óhróður um Sovétríkin og
settur I gæzluvarðhald meðan á
rannsókninni stæði, en slík rann-
sókn getur tekið allt að 9 mánuði.
Hámarksdómur fyrir slíkt brot er
7 ár í vinnubúðum og 5 ára Siber-
íuvist. Þá er hugsanlegt að hann
verði sendur í útlegð til einhvers
afskekkts staðar I Sovétríkjunum
og enn einn möguleiki er að hon-
um verði varpað úr landi, en
margir sérfræðingar telja að slíkt
sé ólöglegt.
Solzhenitsyn hefur áður verið 8
ár í fangelsum og vinnubúðum í
Sovétríkjunum og það var bók
hans Gulag Eyjahafið, sem gefin
var út í París fyrir síðustu áramót
og lýsir aðbúnaði í vinnubúðum á
tímum Stalíns, sem var upphaf
herferðarinnar á hendur honum í
sovézkum fjölmiðlum og sem nú
hefur leitt til handtöku hans.
Solzhenitsyn lét áróðursherferð-
ina ekkert á sig fá og hefur á
siðustu vikum afhent erlendum.
fréttamönnum í Moskvu hverja
yfirlýsinguna á fætur annarri,
þar sem hann hefur svarað árás-
unum. I siðustu yfirlýsingunni,
sem hann gaf eftir að honum var
fyrst stefnt til saksóknara á laug-
ardaginn sagði m.a.: „Utrýmið úr
áhrifastöðum þeim, sem hafa
ótakmarkað vald yfir borgurun-
um og kunna það ráð eitt að draga
þá fyrir dömstóla eða geðlækna."
Af hálfu sovézkra yfirvalda var
engin yfirlýsing gefin út um mál-
ið í dag né skýrt frá handtökunni
í fjölmiðlum.
Talsmaður sænsku vísindaaka-
demíunnar Karl-Ragnar Gierow
sagði í dag að fréttin um handtök-
una væri mikið áfall, en erfitt
væri að gera sér grein fyrir eðli
málsins. Sagðist hann vona að
Solzhenitsyn yrði ekki settur í
gæzluvarðhald. Trygve Bratteli
forsætisráðherra Noregs sagði að
fréttirnar frá Moskvu ykju þann
kvíðboga, sem Norðmenn hefði
borið vegna meðferðarinnar á
Solzhenitsyn og frekari frétta
yrði beðið með eftirvænt.ingu.
Talsmaður Nixons forseta sagði
að forsetinn hefði ekkert rætt
þetta mál, en bætti við að Banda-
rfkjastjórn hefði áður látið í ljós
álit sitt í þessu máli. I kvöld höfðu
ekki borist fregnir um önnur við-
brögð frá stjórnum á Vesturlönd-
um.
— Til Helga
Framhald af bls. 16
valda misskilningi, en hann
mátti leiðrétta síðar, ef hans
yrði vart, og nú er tími til þess
kominn. Allt eins og orðið
erindi getur bæði merkt visst
snið bundins máls og óbundins,
þannig hugsa ég mér að orðið
ljóðabréf geti bæði merkt rím-
uð sendibréf, eins og það hefur
hingað til gert, og stutta ljóð-
ræna pistla í Iausu máli, áþekka
þeim sem frá mér komu nú í
haust. Ég sakast ekki um það
við neinn, þótt bókarheitið væri
skakkt skilið, við því mátti bu-
ast. En þetta hefur það í för
með sér, að Ljóðabréf eru ekki
lengur svo og svo lök í sam-
jöfnuði við ljóðabækur mínar,
heldur bækur í sundurlausu
máli.
Að endingu:
Þú nefnir Esjuna í bréfi
þínu, frændi minn. Ég skal feg-
inn ganga með þér upp á hvaða
sjónarhól sem er til þess að dást
að Esjunni. En einu máttu ekki
gleyma, að nú styttist mjög til
borgarstjórnarkosninga og þess
vegna er hætt við að á flestum
góðum útsýnisstöðum verði lít-
ið pláss fyrir vinstrimann eins
og þig og lausamann eins og
mig vegna ljósmyndara Sjálf-
stæðisflokksins. Þú hlýtur að
hafa tekið eftir því, að ljós-
myndum af Esjunni fjölgar
jafnaðarlega til stórra muna í
Morgunblaðinu og víðar hægra
megin í þjóðfélaginu, þegar
dregur að borgarstjórnarkosn-
ingum, því ekki má fara fram
hjá neinum að Esjan, fjall
Reykvíkinga, er i Sjálfstæðis-
flokknum og styður borgar-
stjórnarmeirihlutann. Fyrir
þessar sakir legg ég til að við
geymum okkur að ganga upp í
Öskjuhlíð ellegar á aðra jafn-
góða kögunarhóla þar til eftir
kosningar. Þá verður komið vor
og við getum lagzt í grasið og
hlegið saman eins og oft áður.
Eg mun ekki tala við þig um
Silfurhestinn, þvi ég nenni því
ekki framar. En kannski um
aðra hesta, til dæmis Stiganda
Jóns Péturssonar frænda okkar
frá Nautabúi, hinn hvíta vekr-
ing sem heygður var standandi
og altygjaður i Skiphól i Vall-
hólmi. Þaðan horfir hann yfir
skeiðgrundirnar miklu og
norður í hafsauga.
Þinn frændi
Hannes.
— Heikal
Framhald af bls. 15
aukið jafnvægi f samskiptum
Bandarikjanna við tsrael og Ara-
baríkin sé til komið af öðru en
þvi, hversu tiltölulega vel
Aröbum og þá sérstaklega Egypt-
um gekk í síðasta stríði.
SADAT AKVEÐINN
Sadat forseti virðist hins vegar
ákveðinn í að gefa Kissinger tæki-
færi til að sanna hollustu sína, og
hann hefur gefið hverja yfir-
lýsinguna á fætur annarri um
efnahagsáætlanir fyrir Egypta-
land, en þegar þessar áætlanir
eru komnar í framkvæmd, gætu
þær minnkað möguleikann á að
fara hernaðarleiðina. Sadat vill
með þessu sýna, að honum sé full
alvara, þegar hann segist vilja
semja um réttlátan frið.
— Magnús Torfi
Framhald af bls. 1
ógnarstjórninni eins og. hún var
grimmust á dögum Stalins, heldur
einnig að rótum þess kerfis, þar
sem ekki ríkti lögbundin stjórn,
heldur geðþóttastjórn. Hann
leitaðist við að sýna fram á, að
þau ógnarverk, sem hann lýsti i
bókinni, væru afleiðing þeirra
ákvarðana, sem teknar voru á
byltingarárunum um stjórnar-
hætti, jafnvel þótt þær hefðu ekki
komið fram I sinni verstu mynd
fyrr en löngu seinna.
Menntamálaráðherra sagði, að
Nóbelsskáldið hefði skrifað þessa
bók fyrst og fremst fyrir landa
sina og til þess að hafa áhrif á
þróunina heima fyrir. Hann
reyndi að finna orsakirnar fyrir
þeirri sögulegu þróun, sem átt
hefði sér stað og hvað þjóðin gæti
gert til þess að koma í-wg fyrir
þetta síðar. Eftir því sem ég hef
séð af bókinni, sagði menntamála-
ráðherra, er ég sannfærður um,
að hún á eftir að hafa gífurleg
áhrif í Sovétríkjunum. Viðbrögð
stjórnvalda sýna, að þeim er ljóst,
hvert áhrifavald hennar er, líka
heima fyrir. I meira en áratug
væri búið að þegja um Solzhenit-
syn í Sovétríkjunum en samt yrði
hann allt i eini miðdepill mikillar
umræðu, án þess, að landsmenn
vissu um hvað mál hans raun-
verulega snerust. Þau fyrirbæri,
sem hann lýsir eru áreiðanlega
mjög stór i vitund Rússa og þeir
munu hafa úti öll spjót, eftir því
sem kjarkur dugar, til þess að fá
frekari upplýsingar um mál hans.
Menntamálaráðherra sagði að
lokum, að enginn gæti vitað, hvað
yrði um Solzhenitsyn, sjálfviljug-
ur mundi hann ekki fara úr landi,
hins vegar gæti til þess komið, að
honum yrði hent úr landi.