Morgunblaðið - 13.02.1974, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. FEBRÚAR 1974
Marinó Jónsson
forstjóri -Minning
F. 4. 11. 1906,
D. 6. 2. 1974.
MARINÖ Jónsson, eigandi og for-
stjóri Töskugerðarinnar, varð
bráðkvaddur hinn 6. þ.m.
Með Marínó er horfinn sjónum
okkar hægur og ljúfur hagleiks-
maður. Marinó var hlédrægur og
undi sér best með vinum sínum
og ættmennum eða góðri bók.
Hann var í hópi þeirra íslend-
inga, sem lifað hafa gjörbyltingu i
lífi þjóðarinnar, ekki aðeins
kynnst henni af frásögn, heldur
+
Föðursystij mín
HELGA LÁRUSDÓTTIR
Bergstaðastræti 68
andaðist að Heilsuverndarstöð-
inni að kvöldi 10. febrúars.l
Fyrir hönd aðstandenda
Gyða Ingólfsdóttir.
tekið virkan þátt í henni og lagt
sinn skerf til að hún gat orðið.
Þeim fer nú óðum fækkandi, sem
tekið hafa þátt í og lifað þessa
ótrúlegu breytingu.
Marínó var tviburabróðir Arna
Jónssonar stórkaupmanns, en
hann lést fyrir fáum árum. Þeir
voru fæddir á Bíldudal h. 4. 11.
1906, synir síra Jóns Árnasonar
og Jóhönnu Pálsdóttur, sem þá
voru nýflutt með prestsetrið frá
Otradal til Bíldudals. Bíldudalur
var í þá daga nokkuð vel settur
atvinnulega séð og á þeirra tíma
mælikvarða, því útgerð Péturs
Thorsteinssonar stóð þá í blóma
og flest allir þorpsbúar, ungir
sem gamlir, tóku þátt í saltfisk-
framleiðslunni á einn eða annan
hátt. Þeir voru ekki gamlir
krakkarnir, þegar þeir fóru að
geta þjálpað til við fiskbreiðslu.
Þeim prestshjónum varð 8
barna auðið. Einn sonur, Árni, dó
kornungur og annar sonur, Páll
fórst með Kútter Gyðu í ofsaveðri
1910, aðeins 17 ára. í því veðri
t
SIGURLAUG DANIELSDÓTTIR
Hreðavatni,
verður jarðsett frá Hvammskirkju, Norðurárdal, laugardaginn 16.
febrúar Athöfnin hefst kl. 2 e.h Blóm afþökkuð.
Aðstandendur.
Eiginmaður minn
GUNNAR SNORRASON,
Básenda 10,
Reykjavík,
andaðist að Heilsuverndarstöðinni 12 febrúar.
Inga Guðmundsdóttir.
+
Móðir okkar, tengdamóðir og amma,
MARGRÉT SIGFÚSDÓTTIR,
frá Uppsölum,
Hrefnugötu 8,
andaðist i Borgarsjúkrahúsinu 1 2. þ.m.
Börn, tengdabörn, og
barnabörn.
+
Maðurinn minn, faðir, tengdafaðir og afi,
BJÖRN FRANZSON,
sem lést 7 þ.m. verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni föstudaginn 1 5.
febrúar kl. 1.30.
Ragna Þorvarðardóttir
Fróði Björnsson, Hólmfriður Kofoed Hansen
og barnaborn
+
Útför móður okkar og tengdamóður
UNU G. Þ. ÞORSTEINSDÓTTUR,
sem andaðist að Hrafnistu 6. febrúar, fer fram frá Dómkirkjunni
fimmtudaginn 1 4 febrúar kl 1 3,30 Þeím, sem vildu minnast hennar,
er bent á Kvennadeild Slysavarnafélagsins.
Ragnhildur Guðmundsdóttir Sig. Gunnar Sigurðsson
Birna Guðmundsdóttir
Kristín Guðmundsdóttir Guðmundur Ófeigsson
fórust 2 fiskiskip frá Bíldudal.
Það var mikið áfall fyrir svo lítið
fiskiþorp að sjá á bak svo mörgum
í hina votu gröf og nærri má geta
að það hefur verið erfiður
reynslutími fyrir síra Jón og frú
Jóhönnu að hugga hina mörgu
syrgjendur og eiga sjálf að sjá
eftir elskulegum og tápmiklum
syni í blóma lífsins.
Auk tvíburanna voru 4 systur
og eru þær allar enn á lífi. Þær
eru: Sigríður, f. 1892, var gift
Sigurði heitnum Magnússyni
prófessor og yfirlækni á Vifils-
stöðum, Ragnheiður, f. 1896,
starfaði um árabil við innheimtu
Landsbankans, Anna Guðrún, f.
1900, frv. hjúkrunarkona, gift
þeim er þetta ritar og Svanlaug, f.
1903, var gift Gfsla heitnum Páls-
syni lækni.
Þetta var umhverfið og and-
rúmsloftið, sem tvíburarnir ólust
upp í. Þar skiptust vitanlega á
skin og skúrir, eins og áður var á
drepið, en fuliyrða má, að prests-
heimilið hafi verið eitt af mestu
menningarheimilum þorpsins.
Þegar Marínó hafði aldur til fór
hann að heiman til að leita sér
frekari menntunar. Hann lauk
loftskeytamannsprófi rétt eftir að
þess var kostur hér á landi og
sigldi um 10 ár á togurum, lengst
með Jóni Birni Elíassyni skip-
stjóra á b/v Surprise. Var með
þeim mikil vinátta meðan báðir
lifðu. Eins vissi ég til, að sumir af
skipsfélögum Marínós héldu við
hann tryggð, löngu eftir að hann
varhættur siglingum.
Árið 1931 kvæntist Marinó
Soffíu Vedhólm og fór í land
nokkrum árum síðar. Sonur
þeirra er Örn viðskiptafræðingur
og starfsmaður í fjármálaráðu-
neytinu. Hann er kvæntur Ragn-
heiði Þorgeirsdóttur frá Gufunesi
og eiga þau 3 börn: Soffíu, Örn
Marinó og Þór. Árið 1966 missti
Marfnó konu sina og var það hon-
Þórunn Rafnar —
Kveðja frá Thorvaldsensfélaginu.
ÞÓRUNN Rafnar dáin — Er ég
opnaði Morgunblaðið á heimleið
erlendis frá blöstu þessi orð við
mér. Mér varð um stund svart
fyrir augum. Ein af okkar yngstu
félagskonum í Thorvaldsensfélag-
inu skyndilega horfin úr hópnum.
Ég hvarf aftur í barnstrú mína,
er ég sveif í háloftunum og hugs-
aði, að ég hlyti að vera nær henni,
en á jörðu niðri.
Okkar kynni höfðu ekki staðið í
mörg ár, en þess betri. Hugur
minn reikaði til eins af hamingju
dögum þeirra hjóna, er þau
giftu eldri dóttur sína Ingi-
björgu. Hún giftist Stefáni syni
vina og tengdafólks míns, Erlu og
Skarphéðins Loftssonar. Þórunn
var glöð þann dag, því þau hjónin
vissu, að þar biðu dóttur þeirra
önnur foreldrahús. Yfir þeim
degi hvíldi hamingja og sá menn-
ingarbragur, er ætið fylgdi þeim
hjónum Þórunni og Ingimari.
+
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi
EINAR BALDVIN GUÐMUNDSSON.
Hæstaréttarlögmaður
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 1 4. febrúar kl. 3.
Kristín Ingvarsdóttir,
Unnur Óskarsdóttir, Axel Einarsson,
Jóhanna Jórunn Thors, Ólafur B. Thors,
Kristfn Klara Einarsdóttir, Árni Indriðason
og barnabörn.
Skömmu síðar gekk hún f Thor-
valdsensfélagið. Tjáði hún mér að
stefnuskrá félagskvenna væri sér
að skapi, að hjálpa og vinna sem
+
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vináttu við andlát og útför
eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður og ömmu
EINHILDAR SVEINSDÓTTUR,
frá Þúfu.
Guðjón Magnússon,
Þórhallur Guðjónsson, Sólveig Guðjónsdóttir,
Sveinbjörg Guðjónsdóttir, Ársæll Markússon
og barnabörn.
+
Okkar innilegustu þakkir, til allra þeirra, sem sýndu okkur hlýhug og
samúð við andlát og jarðarför móður okkar, tengdamóður, ömmu og
systur,
GUÐRÚNAR SIGURÐARDÓTTUR,
Hverfisgötu 6 a,
Hafnarfirði.
Guðlaug Guðmundsdóttir, Eiríkur Ágústsson,
Stefanía Guðmundsdóttir, Guðbjörn Jóhannesson,
Gfsli Guðmundsson, Sigurlaug Sigurðardóttir,
Sigurður Guðmundsson, Helga Baldursdóttir,
Guðmundur Guðmundsson, Ásta Vilmundardóttir,
Jón Guðmundsson, Margrét Lára Þórðardóttir
barnabörn og bræður.
um mikið áfall, enda voru þau
óvenjulega samhent.
Þegar Marinó fór í land hóf
hann framleiðslu á kventöskum.
Dáðist ég að hversu vel honum
tókst til við að sníða og fullgera
alls konar töskur. Þær jöfnuðust
fyllilega á við það, sem fæst
annars staðar frá. Rak hann
starfsemi þessatil dauðadags.
Það fer ekki hjá því, að þegar
við kveðjum vini okkar yfir landa-
mærin miklu, þá leita á okkur
tregablandnar minningar, ekki
síst þegar um jafn óáleitinn og
elskulegan mann er að ræða eins
og Marínó Jónsson var. Ég veit, að
þeir eru margir, sem minnast
hans með hlýhug, ekki síst eldri
Bílddælingar, en trygglyndi hans
kom m.a. fram í þvi, að hann taldi
sig til þeirra til hinstu stundar.
Fyrir örfáum dögum bauð Marinó
Sigríði systur sinni með sér á
Sólarkaffi Bílddælinga.
Söknuður nánustu ástvina er þó
sárastur, ekki síst litlu sonarbarn-
anna, nú getur afi ekki glettst við
þau oftar.Eins veit ég, að systurn-
ar sjá eftir bróðursínum. Ég votta
þeim öllum samúð og bið Guð að
blessa minningu Marínós Jóns-
sonar.
Gunnar Bjarnason
fyrrv. skólastjóri.
Minning
mest í kyrrþey. Stóð það nálægt
eðli hennar sjálfrar. Hún vann
meðal okkar brosmild og háttvís.
Hún var sönn húsprýði hvar sem
hún fór.
Við Thorvaldsensféiagskonur
biðjum manni hennar, börnum og
dætrabörnum guðsblessunar og
er það fullvissa okkar, að það
leiðarljós, er þau hafa kveikt
fyrir börnin sín, slokknar ekki,
þau geta haldið stefnunni örugg
og viss og gefið það næstu kynslóð
í hendur.
Bræðrum hennar og fjöl-
skyldum þeirra sendum við inni-
legar samúðarkveðjur.
F.H.
Thorvaldsensfélagsins
Unnur Agústsdóttir
formaður.
Samvinna
um lausn
B eirut 11. febrúar — NTB
ABDEL Rahman Atiki, oliumála-
ráðherra Kuwait, sagða i gær, að
hai.n liti svo á, að bæði olíu-
neyzlulönd og olíuframleiðslu-
lönd ættu að koma saman til að
finna sameiginlega lausn á orku-
kreppunni. Þessi yfirlýsing kem-
ur sama dag og fulltrúar olíu-
neyzlurfkja komu saman til fund-
ar í Washington.
+
Alúðarþakkir fyrir auðsýnda sam-
úð og vináttu við andlát og
jarðarför eiginmanns míns,
bróður, föður, tengdaföður og
afa,
JÓNS GUÐMUNDSSONAR,
bónda,
Stóru-Ávik.
Unnur Aðalheiður Jónsdóttir,
Ingibjörg Guðmundsdóttir,
börn, tengdabörn og barna-
börn.
+
Þökkum hjartanlega auðsýnda
samúð og vináttu við andlát og
útför sonar okkar og bróðurs,
KRISTJÁNS
RÖGNVALDSSONAR,
Stekkjarflöt 9.
Fríða Kristjánsdóttir
Rögnvaldur Bergsveinsson
Ragnheiður Rögnvaldsdóttir
Regína Rögnvaldsdóttir.