Morgunblaðið - 15.02.1974, Page 1

Morgunblaðið - 15.02.1974, Page 1
36 SÍÐUR 38. tbl. 61. árg. FÖSTUDAGUR 15. FEBRtJAR 1974 Prentsmiðja Morgunblaðsins Togarinn Togarinn Bylgja frá Reykjavík, sem verið hefur á loðnu- veiðum að undanförnu, sökk skammt austur af Hjörleifs- höfða í gærkvöldi. Þegar Morgunblaðið fór í prentun var vitað að flestir skipverjar voru komnir úr gúm- björgunarbátum um borð í Þórunni Sveinsdóttur frá Vestmannaeyjum og var Þórunn væntanleg til Eyja milli kl. 3 og 4 í nótt. Helga RE, Héðinn ÞH og fleiri bátar voru þá komnir á staðinn þar sem Bylgjan fórst. Bylgjan var í eigu útgerðarfyrirtöekisins Sjótak, en áður hét togarinn Jón Þorláksson og var í eigu Bæjarútgerðar Reykjavíkur til ársins 1973. Bylgjan tilkynnti um vandræði í talstöðina kl. 20.15 í gærkvöldi og heyrði Vestmannaeyjaradíó kallið. Bað Bylgjan þá um aðstoð og hafði Helga RE strax samband við skipið og einnig Þórunn Sveinsdóttir og fleiri skip. Var þá komin slagsiða á Bylgjuna. Togarinn, sem var 550 lestir að stærð var smíðaður í Goole í Bretlandi árið 1948. Hann var með 450 tonn af loðnu um borð þegar hann sökk. Helga hélt þegar til togarans, en hún var þá út af Skarðsfjöruvita, um tveggja tima stím að togaranum, sem var rétt út af Alviðruhömrum austur af Hjörleifshöfða. Bátarnir voru síðan stanzlaust í sambandi við Bylgjuna þar til síð- ast heyrðist frá henni kl. 21,35 er skipstjórinn tilkynnti að kominn væru 45 gráðu halli á skipið og þeir væru að fara i björgunarbát- ana. Þegar siðast fréttist var vitað að flestir skipverja voru komnir um borð i Þórunni, en ekki náðist Togarinn Bylgja, en hann hét áður Jón Þorláksson. Fyrir skömmu var skipinu breytt f loðnuskip. talsamband við bátinn þar sem af Bylgjunni voru a.m.k. i tveim- voru á þessum slóðum f gær- einn af sendum Vestmannaeyja- ur gúmbjörgunarbátum. kvöldi, hægur sjór, en gekk á með radiós er bilaður. Skipverjarnir 6 vindstig af austnorðaustri byljum. Tólf voru á skipinu By lg j an sökk Solzhenitsyn víða velkominn óvíst hvar hann sezt að Var sakaður um landráð og hótað 10-15 ára fangabúðavist færi hann ekki úr landi Bonn, Oslo, Stokkhólmi, 14. febr. AP—NTB # Sfmskeyti, bréf og blóm hafa borizt f stríðum straumum f dag til heimilis v-þýzka rit- höfundarins Heinrichs Bölls, þar sem sovézki rithöfundurinn Alexander Sofzhenitsyn átti sína fyrstu nótt sem útlagi úr eigin landi. Hann sagði við blaðamenn f morgun, þegar þeir BöII fengu sér dálitla göngu eftir morgun- verð, að hann hefði sofið vel og gerði sér góðar vonir um að fjöl- skylda sín fengi að koma til hans, hvenær það yrði vissi hann hins vegar ekki. Hann hvaðst ekki hafa tekið ákvörðun um búsetu f nánustu framtfð. 0 Fjöldi blaðamanna var saman kominn við hús Bölls f Langen- broich skammt frá Bonn og fjölgaði stöðugt f hópnum eftir þvf sem á leið daginn. Rit- höfundurinn vildi hins vegar engar yfirlýsingar gefa né blaða- viðtöl yfirleitt og endurtók það, sem hann sagði f gær. „Ég hef veitt svo mörg viðtöl heima f Moskvu, þar talaði ég, hér mun ég þegja.“ Ritari Bölls gerði blaða- mönnum sfðan Ijóst, að engin von væri til þess að Solzhenitsyn Lögfræðingur Solzhenitsyns, Fritz Heeb, veitti þeim viðtöl næstu daga hann mundi a.m.k. alls ekkert segja fyrr en f jölskylda hans væri komin til hans. Framhald á bls. 20. Er röðin komin að Kohout? Prag, 14. febr. HAFT er eftir áreiðanlegum heimildum í Prag, að þvf er herm- ir f NTB-frétt, að tékkneskir lög- reglumenn hafi komið á heimili Framhald á bls. 20. Pompidou hellir sér yfir Nixon París, 14. febr. NTB. HAFT er eftir áreiðanlegum heimildum f París f dag, að Alexander Solzhenitsyn er hér að árita eintak þýsku útgáfunnar af Eyjaklasan- um Gulag fyrir einn af hundruðum blaðamanna, sem þ.vrptust að heimili Heinrichs Bölls f gærmorg- un. Myndin var tekin, er þeir Solzhenitsyn og Böll (t.h.) komu út til að fá sér morgungöngu. George Pompidou, forseti Frakk- lands, hafi á ráðuneytisfundi f Parfs í dag gefið tilfinningum sfnum f garð Bandaríkjamanna fullkomlega lausan tauminn og farið óþvegnum orðum um Rich- ard Nixon, forseta Bandaríkj- anna, og stefnumið hans. Pompidou dró enga dul á reiði sína í garð Nixons og hélt þvfi fram, að hann hefði boðið til orkuráðstefnunnar í Washington 11. febr. sl. i þeim tilgangi einum að tryggja tak sitt á þeim hluta Framhald á bls. 20.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.