Morgunblaðið - 15.02.1974, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. FEBRUAR 1974
35
Opið unglinga-
mót í borðtennis
BORÐTENNISDEILD KR gengst
fyrir opnu móti í tilefni af 75 ára
afmæli KR og 5 ára afmæli Borð-
tennisdeildarinnar. Keppt verður
í tveimur flokkum pilta, 15—17
ára og 15 ára og yngri og í flokki
stúlkna 17 ára og yngri. Mótið fer
fram i Laugardalshöllinni 28.
febrúar og hefst klukkan 20.30.
Þátttakendur verða að vera mætt-
ir kl. 20.00. Þátttökugjald er krón-
ur 200 og greiðist við innganginn.
Þátttökutilkynningar þurfa að
berast fyrir 26. febrúar til Jóns
Jónssonar, s. 22543, Péturs Ingi-
mundarsonar, s. 30529, eða Finns
Snorrasonar, s. 17713. Síðar er
áætlað að halda opið kvennamót.
Skólamótið í
knattspyrnu
KNATTSPYRNUMÓT skólanna,
hið sjöunda í röðinni, hefst um
helgina, en alls taka 24 skólar
þátt f mótinu að þessu sinni.
Eftirtalin lið leika saman 1 1.
umferð, ákveðnir leikdagar innan
sviga.
Þingholtsskóli — Hí (laugard. 16.
2., kl. 14 á Kópavogsvelli)
Vi — Vélskólinn (Kópavogsvelli
kl. 15.30, laugardag 16. 2.)
Menntask. Kóp. — iþrótta-
kennarsk. (Kópavogsv. sunnud.
17. 2.,kl. 14.00)
Vighólaskóli — Kennaraháskóli
(Kópavogsvöllur sunnud. 17. 2.,
kl. 15.30)
MH — Gagnfr. Austurb.
MR —Gagnfr.Garðahr.
Vogask. — Stýrimannask.
Lindargötusk. — ML
Héraðssk. Laugav. — Tækni-
skólinn
MA — MT
Laugalækjask. — Mi
Iðnsk., Ak. — Hliðadalssk., Ölfusi
Ráðgert er að ljúka fyrstu um-
ferð helgina 23. — 24. febrúar.
Reglur mótsins er þær, að það lið,
sem tapar í fyrstu umferð, er úr
keppninni, en þau lið, sem eftir
standa, þurfa hins vegar að tapa
tveimur leikjum til að falla úr
keppni. Leiktími er 2x40 mín.,
framlenging 2x10 mín., síðan víta-
spyrnukeppni þar til úrslit fást.
Bikarkeppni KKI
DREGIÐ hefur verið um það,
hvaða lið leika saman í fyrstu
umferð bikarkeppni Körfuknatt-
leikssambands íslands, en hún
mun hefjast i byrjun marz n.k. 1
fyrstu umferð leika saman:
UMFG — Haukar
UMFN — Snæfell
KR — Fram
ÍR — ÍS
Fjögur lið: Valur, Armann,
HSK og UMFS sitja yfir í fyrstu
umferð.
Júgóslavar
íúrslitHM
JOGÓSLAVAR tryggðu sér
þátttökurétt meðal hinna 16
þjóða, sem leika til úrslita í
heimsmeistarakeppninni i
knattspyrnu í Vestur-Þýzka-
landi næsta sumar. Júgóslavía
vann Spán með einu marki
gegn engu í aukaleik liðanna I
Frankfurt I fyrrakvöld og
skoraði Katalinski mark Júgó-
slavanna á 13. mínútu leiksins.
Hann skallaði að marki af
stuttu færi, spánski mark-
vörðurinn hálfvarði, en Katal-
inski fylgdi vel eftir ogrenndi
knettinum í netið. Það var
mikil stemmning á áhorfenda-
pöllunum meðan leikurinn fór
fram meðal hinna 63 þúsund
áhorfenda, þar af höfðu 20
þúsund komið frá Spáni og
Júgóslavíu til að fylgjast með
leiknum. Leikurinn þótti
góður og spennandi, bæði liðin
áttu mörg marktækifæri, en
sigur Júgóslavanna þótti fylli-
Iega verðskuidaður.
HEFUR ÞÚ
40%—70% AFSLÁTTUR
UfSOLUMARKMHNN
AÐ AUSTURSTRÆTI 22 ????
□ 100% ULLARKÁPUR, BÆÐI KÖFLÓTTAR OG EINLITAR — GÓÐ SNIÐ
□ LOÐFÓÐRAÐIR KVENKULDAJAKKAR □ KVENKULDAJAKKAR 100%
ULL □ KVENLEÐURJAKKAR □ DRENGJA- OG TELPNA BUXUR ÚR Tery-
lene & ull, denim og flaueli □ BLÚSSUR □ DÖMUPEYSUR □ SAMKVÆM-
ISBLÚSSUR OG BOLIR □ SAMKVÆMISBUXUR □ SÍÐ PILSQ SÍÐIR
KJÓLAR □ SMEKKBUXUR □ HERRASKYRTUR □ BOLIR □ DENIM
SKYRTUJAKKAR — MJÖG HENTUGIR FYRIR SKÍTVINNU
EF El - ÞÁ ER SVO SANNARLEGA KOMINN
TÍMI TIL ÞESS - SLÍK KJÖR BJÓDAST EKKI
OFT - JÁ ÓTRÚLEG KJÖR
□ FERMINGARFÖT — GOTT
SNIÐ —GOTTEFNI
□ STAKIR HERRAJAKKAR
100% SKOZKT TWEED
— GÓÐ SNIÐ
□ FÖT MEÐ VESTI
ÚR TERYLENE& ULL
MJÖG GÓÐ SNIÐ
□ HERRAKULDA
JAKKAR100%
□ HERRAKULDA
JAKKAR, STUTTIR,
KÖFLÓTTIR,
EINLITIR
□ LOÐFÓÐRAÐIR
STUTTJAKKAR
— FLAUEL
f f □ LOÐFÓÐRAÐIR
RÚSKINNSSTUTTJAKKAR
□ STUTTIR LEÐURJAKKAR
. O
<0) KARNABÆR
■ AUSTURSTRÆTI 22