Morgunblaðið - 15.02.1974, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 15.02.1974, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. FEBRUAR 1974 Gísii, Eiríkur og Heigi efflr inglbiörgu Jðnsdðttur Umsjónarmaðurinn hváði, en honum létti þegar hann frétti, að hamsturinn héti Hallgrímur og turn- inn ætti að vera Hallgrímsturn. Drengirnir voru allan daginn að smíða. Þetta var að lokum orðið stórt, fallegt hamstrahús með háum — já, mjög háum turni. „Megum við fara heim með það?“ spurði Heigi litli. Umsjónarmaðurinn á starfsvellinum leyfði þeim að fara heim með húsið, þó að hann gerði ekki ráð fyrir því, að nokkur mamma vildi fá það inn tiJ sín. Þetta var svo stórt hús og svo var það appelsínu- rautt allt saman. Mamma hans Helga litla fórnaði líka höndunum, þegar hún sá það. „Blessaðir drengirnir,“ sagði hún. „Duglegir eru þið, það verður aldrei af ykkur skafið, en ég held, að þið ættuð heldur að hafa húsið í garðinum. Ég skal skreppa í bæinn og kaupa hús handa hamstrinum.“ Gísla, Eiríki og Helga þóttu þetta ekki alltof góðar móttökur, en það var svo sem hægt að hafa húsið úti í garði og þeir settu það þar skammt frá kartöflubeð- inu. Mamma hans Helga litla fór í kápu og setti á sig hatt. „Blessaður drengurinn minn,“ sagði hún við Helga litla. „Mamma hans Eiríks lítur eftir þér, meðan mamma skreppur í bæinn til að kaupa hamstrabúr. Annars er mamma alveg að missa af strætó.“ Svona talaði mamma hans Helga litla nefnilega alltaf, en fljót var hún að hlaupa, þegar hún heyrði, að strætisvagninn var að koma. Húsið stóð úti í garði. Þetta var fallegt hús og turninn prýddi það mest. Það var aðeins eitt að. Þeir höfðu gleymt að setja glugga á turnin. „Þá kemur ekkert Ijós inn,“ sagði Gísli. „Nei, við sjáum ekkert til,“ sagði Eiríkur. „Ég á vasaljós,“ sagði Helgi og strákarnir ákváðu á stundinni að halda veizlu í Hallgrímsturni um kvöld- ið. Alvöruveizlu með kökum og kók og láta svo vasaljósið lýsa sér. Þeir skemmtu sér líka vel um kvöldið, þó að þeir mættu ekki vera úti nema til klukkan níu. Á hrikt- andi, skjöktandi borði var kaka og þrjár gosdrykkja- flöskur. Helgi litli hafði smíðað borðið. „Æ,“ sagði Eíríkur. „Nú rak ég mig á einn naglann enn.“ „Það er heilmikið af nöglum í borðinu," sagði Gísli. „Ég hefði aldrei trúað því, að það gætu verið svona margir naglar í einu borði.“ „Þeir eru nú ekki færri hér í Hallgrímsturni,“ sagði Helgi litli og gapti yfir kökubitanum. „Ég held, að það séu engir strákar í öllum heimin- um, sem eiga fínni Hallgrímsturn en við,“ sagði Gísli og lauk við gosið sitt. Hvaö stendur á hinni greininni? avc,s Ef þú vilt vita, hvað það er, sem stendur á greininni andspænis þeim, sem er að tfna hananana, þá skaltu draga milli punktanna, byrja á 1 og enda á 76 og þá færðu svarið. „Já,“ sagði Helgi Iitli. „Það var gott, að mamma keypti hamstrahús handa Hallgrími, því að við fáum hvergi annan eins frið og hérna inni.“ Þeir fengu lika að vera í friði þangað til að mamma þeirra hvers fyrir sig kallaði á þá á mínútunni klukkan níu. „Næst höfum við turninn ennþá hærri,“ sagði Helgi litli um leið og hann smaug inn í kjallarann. „Við höfum tvo turna,“ sagði Gísli um leið og hann fór inn á miðhæðina. <^Nonni ogcTVlanni Jóri Sveinsson Freysteinn Gunnarsson þýddi En ég treysti því, að frelsarinn hjálpi okkur. Hann getur allt. Honum verðum við að treysta“. Þetta var venjulegt svar hjá Manna, þegar hann var í vandræðum. Hann elskaði guð og treysti frelsaranum í öllum erfiðleikum. Ég svaraði: „Þetta er satt og rétt, sem þú segir. En þá verðum við að biðja guð um að hjálpa okkur, og við megum aldrei gleyma því, sem við höfum lofað“. Hann féllst á það, og glaðir í huga gengum við heim. Sögulok Vegna margvíslegra tilviljana, eða réttara sagt, vegna handleiðslu guðs gerðist það ári síðar, að mér var boðið að fara til Frakklands til þess að læra þar í Jesúíta- skóla.1) Þremur árum seinna fór Manni bróðir minn líka til náms í útlöndum. Við vorum lúterskir eins og allur landslýður á ís- landi og andvígir kaþólsku kirkjunni, ekki sízt Jesúít- um, eins og venjulegt er um lúterskt fólk. En jafnskjótt sem við lærðmn að þekkja kaþólsku kirkjuna sem móðurkirkju, sannfærðiunst við um sann- leika hennar og gengum í hana. Um Jesúítana er það að segja, að þeir reyndust okkur duglegir og ástríkir kennarar, sem við höfðum miklar mætur á. Og svo handgengnir urðum við þeim, 0 Frá ferð r.iinni til útlanda segir í bókinni „Nonni“. Hún kom fyrst út í Þýzkalandi um jólin 1913. J — Ég mun aldrei gleyma þér — sko, ég hef bundið hnút á vasaklútinn til að minna mig á. . . — Mikmak. . ; Nú gengurðu 1 svefni enn einu sinni. . . — Það lftur ekki út fyrir að við höfum gleymt nokkurri klemmu þarna inni, — en hvað er yfirdýralæknirinn??? — Það er allt f lagi — þetta var ekki rukkari. . .

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.