Morgunblaðið - 15.02.1974, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. FEBRUAR 1974
ístak hreinsarmið-
bæjarhraunið í Eyjum
Stjórn Viðlagasjóðs hefur
ákveðið að taka tilboði ístaks um
hreinsun hrauns að hluta úr mið-
bæ Vestmannaeyjakaupstaðar,
al Is 30 þús. rúmmetra. Gerð hefur
verið áætlun um hreinsun hrauns
í 6 áföngum og spannar þessi
framkvæmd tvo fyrstu áfangana
að sögn Guðlaugs Gíslasonar
alþingismanns Eyjamanna.
Kostnaðaráætlun fyrir þessa
framkvæmd áður en hún var boð-
in út hljóðaði upp á 22 millj. kr.
en auk Istaks gerðu tvö önnur
fyrirtæki tilboð f verkið. Tilboð
Góð veiði
— slæmt veður
GÓÐ loðnuveiði var allan
síðasta sólarhring og er nú svo
komið að skipin eru farin að
streyma til Siglufjarðar og
Raufarhafnar með aflann, svo
miklir eru löndunar-
erfiðleikarnir. 1 gærkvöldi var
vitað um Tálknfirðing BA,
Gletting ÁR, Halkion VE,
Vörð ÞH, Isleif VE og Sigurð
RE, sem voru á leið til Raufar-
hafnar og Siglufjarðar. Skipin
lögðu af stað norður fyrir
Langanes þrátt fyrir að veður-
spá var ekki sem bezt, og sýnir
það hve mikil örvænting hefur
gripið um sig meðal loðnu-
sjómanna vegna löndundar-
erfiðleikanna.
Aflahæstu skipin síðasta
sólarhring voru: Sigurður RE
með 700 lestir, Harpa RE 330,
Héðinn ÞH 420, Öskar
Magnússon AK 420, Asgeir RE
340 og llelga Guðmundsdóttir
BA með 350 lestir.
Istaks var 9,9 millj. kr., tilboð
Loftorku um 20 millj. kr. og tilboð
Þórisóss um 38 millj. kr.
Að sögn Páls Sigurjónssonar
hjá ístaki verður að öllum líkind-
um hafist handa við verkið strax,
en einnig kemur til greina að
hefja hreinsunina á miðju sumri.
Hrauninu verður ekið á Eiðið
milli Heimakletts og Klifsins
þannig að vörn hafnarinnar móti
norðri mun styrkjast til muna.
í fyrstu tveimur áföngunum
verður hreinsað hraun þannig að
rúnturinn í miðbænum opnast
aftur og einnig verður Strandveg-
urinn opnaður aftur austur á
Hraðfrystistöð.
300 rafmagnsstaurar brotn
uðu í snjóflóðum og ísingu
UM 300 rafmagnsstaurar brotn-
uðu í óveðrinu, sem herjað hefur
á norðanvert landið að undan-
förnu. Verst var ástandið í Eyja-
firði, á Vestfjörðum, Snæfells-
nesi og í Húnavatnssýslu. Við-
gerðarflokkar eru byrjaðir að
gera við og lýkur viðgerð á næstu
dögum.
„Við erum að taka saman
heildarskýrslu um ástandið,“
sagði Valgarð Thoroddsen raf-
magnsveitustjóri í samtali við
Morgunblaðið í gærkvöldi, „og
það tekur nokkra daga því víða er
símasamband slitið. Þo' er til
dæmis vitað um 40 brotna staura
á Vestfjörðum, þar af 20 í
önundarfirði, en víða hafa staur-
ar brotnað. Á Vestfjörðum eru þó
Furðufregn Þjóðviljans
um norska orðsendingu
FURÐULEG frétt birtist i Þjóð-
viljanum í gær, þar sem því er
haldið fram, að engin orðsending
hafi borizt frá norsku ríkisstjórn-
inni til hinnar íslenzku um varn-
armálin! Einar Agúsísson, utan-
ríkisráðherra staðfesti það f við-
tali við Morgunblaðið fyrir
nokkru, að slík orðsending hefði
borizt. Hún var afhent fslenzku
ríkisstjórninni í september, en þá
var stjórn Lars Korvald við völd I
Noregi. Afrit af þessari orðsend-
ingu var sent meðlimum utan-
rfkisnefndar Alþingsi sfðast í
nóvember. Þar situr Gils Guð-
mundsson fyrir hönd Aiþýðu-
bandalagslns og ætti hann að geta
staðfest tilvist þessarar orðsend-
ingar við Þjóðviljann. Efni orð-
sendingarinnar hefur ekki verið
birt. Síðan orðsending þessi var
send, hafa stjórnarskipti orðið f
Noregi og Verkamannaflokkur-
inn tekið við stjórnartaumunum
undir stjórn Trygve BrattelL
Stjórn hans hefur enga yfirlýs-
ingu gefið opinberlega um af-
stöðu til þessarar orðsendingar,
en vitað er, að hún er samþykk
efni hennar. Varnarmálaráðherra
Norðmanna hefur lýst þvf yfir í
blaðaviðtali, að íslenzku ríkis-
stjórninni sé kunn afstaða Norð-
manna til þessa máls. Er þar ber-
sýnilega átt við orðsendingu
þessa.
varadiselstöðvar og neyðarástand
er því ekki nema á einstaka býli.
Geysimikil bilun varð við austan-
verðan Eyjafjörð til Grenivíkur
og þar hafa líklega um 60 staurar
brotnað. Grenivík varð þá algjör-
lega straumlaus, en við fengum
lánaða diselstöð frá Akureyri til
þess að bjarga verðmætum á
staðnum og rafmagn er nú
Varðbergsfund-
ur á Akureyri
Á MORGUN gengst Varðberg á
Akureyri fyrir almennum fundi
um Vestræna samvinnu og varnir
Islands.
Erindi og ávörp flytja Bárður
Halldórsson menntaskólakennari,
Bjarni Einarsson bæjarstjóri,
Björn Bjarnason, fréttastjóri, og
MarkúsÖrn Antonsson ritstjóri.
Fundurinn verður haldinn í
Sjálfstæðishúsinu. Hefst hann kl.
2 e.h., og eru allir áhugamenn um
málið hvattir til að koma á fund-
inn, sem er öllum opinn, eins og
áður segir.
skammtað þar. Annars eru vand-
ræði um allar trissur og allt að
300 staurar hafa brotnað víða á
Norðurlandi og Vestfjörðum, en
Suðurland slapp alveg, Austur-
land svo til alveg og Vesturland,
nema Snæfellsnes.
Flestir staurarnir hafa brotnað
vegna snjóflóða, en einnig hefur
ísing ráðið miklu og varð allt að
20 sm þykkur ís á rafmagnsvír-
unum.“
Valgarð kvað aðalstarfið nú
Framhald á bls. 20
Mótmæltu við
rússneska
sendiráðið
HEIMDALLUR, samband
ungra sjálfstæðismanna í
Reykjavík stóð fyrir mótmæl-
um við rússneska sendiráðið í
Reykjavík í gær til þess að
mótmæla meðferðinni á Solzh-
enitsyn. Hópur ungs fólks tók
sér stöðu við sendiráðið með
áletruð spjöld þar sem með-
ferðinni á rússneska rithöf-
undinum var mótmælt. Þá af-
henti Már Gunnarsson, for-
maður Heimdallar, mótmæla-
skjal, sem starfsmaður sendi-
ráðsins tók við eftir nokkurt
þóf, en hann vildi ekki taka
við því í fyrstu.
Mótmælastaða þessi fór f
alla staði mjög prúðmannlega
fram.
Sendinefnd Palestínu-
F
Araba kemur á vegum SHI
VÆNTANLEG er til landsins
þriggja manna sendinefnd frá
Palestínu-Aröbum á vegum
Stúdentaráðs Háskóla íslands.
Hafa þeir verið á ferð um Norður-
lönd til að kynna málstað Pal-
estfnu-Araba að sögn Jóns Sveins-
sonar varaformanns Stúdenta-
ráðs. Sagði Jón, að S.H.I. hefði
Skuttogarar
landa í Færeyjum
ÁKVEÐIÐ hefur verið, að flestir
skuttogarar Austfirðinga Iandi í
Færeyjum á næstunni, eða á
meðan loðna er fryst af krafti f
frystihúsunum eystra. Það er
ekki fyrr en nú alira sfðustu daga,
Vinstri stúdentar:
Saka Alþýðubandalagið
um undanslátt
EKKI linnir ásökunum ungra
vinstri manna á hendur Alþýðu-
bandalaginu um undanslátt f
varnarmálunum. 1 gær skýrði
Morgunblaðið frá ályktun liðs-
fundar Samtaka herstöðvaand-
stæðinga þar sem Alþýðubanda-
lagið er harðlega gagnrýnt. Morg-
unhlaðinu hefur einnig borizt
ályktun frá Verðandi, félagi rót-
tækra stúdenta við Háskóla ís-
lands sama efnis. Ennfremur
ályktun fulltrúaráðsfundar
Æskulýðssambands Islands, sem
er undir stjórn vinstri manna, þar
sem Alþýðubandalagið er gagn-
rýnt.
Ályktun Verðandi er nánast
samhljóða ályktun Samtaka her-
stöðvaandstæðinga. I ályktun
Verðandi segir að félagið „hafni
einnig þeim undanslætti, sem
felst í ályktun miðstjórnar Al-
þýðubandalagsins frá 28. janúar
sl. og bendir á, að ályktunin brýt-
ur í bága við ákvæði málefna-
samningsins og yfirlýsta stefnu
Alþýðubandalagsins... Félagið
gagnrýnir einnig þann undanslátt
forystu Alþýðubandalagsins að
ljá máls á áframhaldandi hernað-
araðstöðu NATO hér á landi og
fallast þannig á, að ísland hafi
skuldbindingar við NATO þvert
ofan í það samningsákvæði frá
1949, að hér skuli ekki vera er-
lendur her né herstöðvar á friðar-
tímum."
í ályktun fulltrúaráðsfundar
Æskulýðssambands Islands segir:
„Fundurinn hafnar þeim undan-
slætti frá ákvæði málefnasamn-
ingsins um brottför hersins á
kjörtimabilinu, sem felst i álykt-
un miðstjórnar Alþýðubandalags-
ins frá 28. janúar. Sérstaklega lýs-
ir fundurinn furðu sinni á þvi, að
miðstjórnin skuli fallast á frestun
á brottför hluta herliðsins fram
yfir lok kjörtímabilsins."
sem frystihúsin á Austfjörðum
hafa byrjað á loðnufrystingu svo
einhverju nemur. Astæðan fyrir
þvf er sú, að skuttogararnir hafa
aflað það vel, að vart hefur hafst
undan að vinna fiskinn úr þeim,
og þvf er gripið til þess ráðs að
láta togarana landa í Færeyjum.
Landa skipin í Færeyjum fyrst
og fremst vegna þess, að þangað
er styst af miðum skipanna, en
undanfarið hafa þau verið að
veiðum um 50 sjómflur undan SA-
landi. Þrátt fyrir að fiskverð í
Færeyjum sé hærra en á íslandi
þá hefur hvorki útgerð né áhöfn
meira út úr því að landa þar, þar
sem 8% af heildarverðmæti
aflans fara í útflutningsgjöld.
Einn íslenzkur togari, Karls-
efni seldi ígær íGrimsby. Skipið
seldi 122.5 lestir fyrir 35.400
sterlingspund eða 6.9 millj. kr.
Meðalverðið er kr. 56.20.
Togarinn Rán seldi í Grimsby í
fyrradag, alis 82,2 lestir fyrir
27.370 sterlingspund eða5.3 millj.
kr. Meðalverðið, sem Rán fékk,
var kr. 64.30. Það liðu aðeins 11
dagar frá því að Rán fór á veiðar
og þangað til skipið seldi í
Grimsby, og þótti fiskurinn eink-
ar ferskur.
fengið bréf frá Aröbunum með
heiðni um að taka á móti þeim
hér á landi. Hefði S.H.Í. orðið við
þeirri beiðni.
Jón Sveinsson sagði, að Palest-
ínu-Arabar væru í tengslum
við I.U.S. (International Union of
Students), sem eru alþjóðleg
stúdentasamtök með aðsetri í
Prag í Tékkóslóvákiu. Kæmu þeir
væntanlega hingað 20.—25.
febrúar n.k. Mundi S.H.l. gangast
fyrir a.m.k. einum fundi með
sendinefndinni.
Smyslov
teflir fjöltefli
SMYSLOV, fyrrverandi heims-
meistari i skák, teflir fjöltefli við
stúdenta í stofu 301 í Arnagarði
kl. 8 í kvöld. Þátttaka er bundin
við 40 manns, sem verða að hafa
með sér töfl. Þátttökugjald er
300 kr. Stúdentaráð H.Í. gengst
fyrir fjölteflinu.
Engin ákvörðun
um mótmæli
MORGUNBLAÐIÐ hafði í gær
samband við Einar Agústsson ut-
anríkisráðherra og spurði hann
hvort erindi rússneska sendiráðs-
starfsmannsins, sem klagaði
Magnús Torfa Ólafsson, hefði ver-
ið mótmælt eins og skorað var á
Einar að gera á alþingi i fyrradag.
En sendiráðsstarfsmaðurinn kom
í utanríkisráðuneytið og kvaðst
vona að slík ummæli, sem
menntamálaráðherra hafði um
mál Solzhenitsyns og Sovétríkin,
myndu ekki endurtaka sig.
Utanríkisráðherra kvað enga á-
kvörðun hafa verið tekna i því
efni.