Morgunblaðið - 15.02.1974, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 15.02.1974, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. FEBRUAR 1974 23 félk f fréttum Mark Spitz á barmi gjaldþrots Ekki blæs byrlega hjá Mark Spitz þessa dagana og fjarri virðast þær dýrlegu stundir í Miinchen, er hann tók á móti hverjum gullverðlaununum á fætur öðrum, alls sjö peningum. Þótt ekki hafi hann skort alls kyns atvinnutilboð eftir sigurgönguna á Ölympiu- leikunum, rambar hann nú á barmi gjaldþrots. Hann hefur reyndar grætt heil ósköp á þvi að koma fram i auglýsingamyndum, en hann hefur ekki haft vit á að fjárfesta í réttum eignum. Hann hefur keypt sér lystisnekkju og glæsilegt hús — og afborganirnar eru nú meiri en tekjurnar, sem hann á erfitt með að auka. Þeir einustu, sem ekki hafa gleymt honum, eru rukkararnir. — Mark Spitz er búinn að vera. Hann er ekki söluvara lengur. Viðskiptavinirnir vilja sjá önnur andlit, segja menn i auglýsingafyr- irtækjunum. Þess vegna hefur Mark neyðzt til að slá lán og nú er hann að leita að vinnu, svo að hann geti séð fyrir konu sinni, Susan. Möguleikarnir á að hann geti hafið fyrra „starf“ að nýju — orðið á ný bezti sundmaður heims — eru taldir sáralitlir. Hann hefur nefnilega alveg gleymt að halda sér i þjálfun. A myndinni sjáum við Aristóteles Onassis kyssa þá ljóshærðu, og greinilegt er á svip Jackie, að hún er ekki beint hrifin af þessu. Hér blossar afbrýðissemin upp Kvöldið var vel heppnað. Kvöldverðurinn á hinum fræga veitinga- stað Maxim í París var — auðvitað — vel heppnaður. Aristoteles Onassis var þarna á ferð í fylgd með konu sinni, Jackie, dóttur sinni Christinu og núverandi fylgdarsveini hennar, Gerd Flick, og öll fjögur voru i góðu skapi. Þess vegna ætluðu þau að halda áfram að skemmta sér. En þá dundu ósköpin yfir. Fyrir utan næturklúbbinn Club Privé. Gríski milljarðamæringurinn, sem ekki liggur á liði sínu, þegar fagrar konur eru nærri, hitti unga, ljóshærða leikkonu, sem hann þekkti. Enginn vafi um það. Því að þau nærri köstuðu sér i fang hvort öðru — og Jackie horfði á. Hún varð að vonum bæði öskureið og afbrýðisöm og strunsaði hið snarasta á brott — karli sínum augljóslega til mikillar skemmtunar. Hann bauð bara þeirri ljós- hærðu í næturklúbbinn í staðinn. Hvað gerðist, þegar næturklúbburinn lokaði um síðir, er ekki vitað. Utvarp Reykjavík Fjör hjá forsetanum Lobna, elzta dóttir Anwars Sadats Egyptalandsforseta, gekk á dögunum að eiga Abdel Khalek Sarwat verkfræðing. Athöfnin fór fram í garði for- setabústaðarins í úthverfi Kaíró-borgar. Við þetta tæki- færi trúlofaðist ungri dóttir Sadats, Nuha, Hassan nokkrum Marei, syni Sayed Mareis, að- stoðarmanns Sadats. Meðal gesta voru nokkrir egypzkir hermann, sem særzt höfðu í októberstríðinu gegn Israel og Idris, fyrrverandi konungur Líbýu, sem hefur dvalizt i Kaíró siðan honum var steypt af stóli árið 1969 af Gaddafi. Rétt andrúmsloft I Salinas í Kaliforníu er hús i viktoríönskum stíl. Þar fæddist rithöfundurinn John Stein- beck. Kvennasamtök í Salinas hafa nú ákveðið að gangast fyr- ir því, að húsinu verði breytt í veitingahús, þar sem gestir geti notið góðra veitinga í húsa- kynnum, sem minna á híbýli söguhetjanna í bókum Stein- becks, t.d. „Austan Edens" eða „Ægisgötu“. Allur ágóði af rekstri veitingahússins verður gefinn til góðgerðastarfsemi. Hefur Sophia misst fóstur? Svo virðist sem brennandi vonir Sophiu Loren hafi brost- ið. Fyrir nokkrum vikum til- kynnti hún, að hún ætti von á barni — því þriðja í röðinni. En nýlega kom Sophia, sem nú er 39 ára gömul, óvænt til Genfar í Sviss, þar sem hún var lögð inn á einkasjúkrahús hins fræga kvensjúkdómalæknis, prófessors Hubert de Watte- ville. Og er hún fór af sjúkra- húsinu nokkrum dögum síðar, virtist hún mjög þreytt og and- lega niðurbrotin. Hélt hún beint til Rómar með einkaflug- vél. Prófessorinn er — auðvitað — þögull sem gröfin, þegar spurt er um ástæðuna fyrir vist- un Sophiu, en fregnir herma, að hún hafi enn einu sinni misst fóstur. Hún og eiginmaður hennar, leikstjórinn Carlo Ponti, eiga saman tvo syni, Carlo fimm ára og Edoardo tæplega tveggja ára. Og Sophia hefur sjálf sagt það heitustu ósk sína að eignast dóttur. Myndin af Sophiu var tekin í Genf í Sviss, er hún kom til einkasjúkrahúss kvensjúk- dómalæknisins kunna. Enn ein ástar- sagan af sjúkrahúsi Þeir ku velta vöngum í stór- hertogadæminu Lúxemborg þessar vikurnar. Marie-Astrid prinsessa, 19 ára gömul, elzta dóttir Jeans stórhertoga og Josephine-Charlotte prinsessu, er farinn að heiman og flutt í heimavist hjúkrunarnema við Sacre Coeur-sjúkrahúsið í Lúxemborg. Af opinberri hálfu hefur ver- ið sagt, að hún ætli að mennta sig sem hjúkrunarkona. Og Marie-Astrid er líka byrjuð að læra; en aðrar heimildir herma, að hún hafi flutzt að heiman gegn vilja foreldra sinna og í mótmælaskyni við þau. Ennþá eru aðeins uppi get- gátur um orsakirnar fyrir þess- ari óánægju stúlkunnar. En margt þykir benda til, að það sé einn af ungu læknunum við sjúkrahúsið, sem skyndilega hafi vakið áhuga prinsessunnar á hjúkrunarstarfinu. FÖSTUDAGUR 15. febrúar 7.00 Morgunútvarp Veðurfregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10. Morgunleikfimi kl. 7.20 Fréttir kL 7.30. 8.15 (of forustugr. dagbl.), 9.00 og 10.00. Morgunbæn kL 7.55. Morgunstund bamanna kL 8.45: Vil- borg Dagbjartsdótti r les framhald sög- uhnar „Börn eru bezta fólk“ eftir Stefán Jónsson (10). Morgunleikfimi kL 9.45. Tilkynningar kl.9.30. Þingfréttir kL 9.45. Létt lög á milli atriða. Spjallað við bændur kL 10.05 Morgunpopp kl. 10.25: Osibisa, Yes og Jimi Hendrix leika og syngja Morguntónleikar kL 11.00: Einleikarar og Scola Cantorum Basiliensis flytja forleik og svítu eftir Telemann / Renato Zanfini og Virtuosi di Roma leika Óbókonsert í c-moll eftir Vivaldi / Milan Turkovic og Ysayekammersveit- in leika Fagottkonsert í F-dúr eftir Stamitz. 12.00 Dagskráin. Tónieikar. Tilkynning- ar. 12.25 Fréttir og veðurfregnir. Tilkynn- ingar. Tónleikar. 13.05 Við vinnuna: Tónleikar. 14.30 Síðdegissagan: „Dyr standa opnar“ eftir Jökul Jakobsson Höfundurles sögulok (12). 15.00 Miðdegistónleikar Paradisarþátturinn úr óratóríunni „Friði á jörðu“ eftir Björgvin Guðmundsson viðl jóðaflokk Guðmund- ar Guðmundssonar. Svala Nielsen, Sigurveig Hjaltested, Hákon Oddgeirs- son og söngsveitin Filharmónía syngja með Sinfóníuhljómsveit íslands. Stjórnandi Garðar Cortes. jt A skjánum FOSTLD.VGLR 15. febrúar 1974 20.00 Fréttir 20.25 Veður og auglýsingar 20.30 Að Heiðargarði Bandariskur kúrekamyndaflokkur. 3 þáttur. Skuggi fortíðar Þýðandi Kristmann Eiðsson. 21.25 Landshorn PYé t taskýr i ngaþátt u r um innlend málofni. U msjónanhaður Guðjón Einarsson. 22.05 (iestur kvöldsins Bandariski þji'iðlagasöngvan nn Bete Seeger sj-ngur bresk og bandarísk lög og leikur sjálfur undir á gítar og lianjó. Þýðandi Heba Júliusdóttir. 22.35 Dagskrárlok. L.VL’G.VRD.VGL'R 16. ft4)rúar 1974 17.00 Iþróttir Meðal efnis eru n\vndir frá innlendum iþróttaviðburðum og m> nd úr ensku knat tspy rnunni. Umsjónarmaður Ómar Ragnarsson. 19.15 Þingiikan Þáttur um störf Alþingis. Umsjönarmenn Bjöm Teitsson Björn Þorsteinsson. 19.45 III é 20.00 Fréttir 20.20 Veður og auglýsingar 20.25 Söngelska f jölskyldan í kvöld kl. 19.30 flytja þeir Ólafur R. Grímsson og Þor- steinn Eggertsson tvö síðustu erindin í erindaflokki þeim um varnamálin, sem verið hefur á dagskrá nú í vikunni. Eins og áður hefur verið greint frá, mun lokaatriðið í f lokki þessum verða umræðuþáttur þar, sem flytjendurnir sex munu koma fram, og er umræðuþátturinn fyrirhugaður næsta sunnudag. Hvert gagn útvarpshlust- endur hafa haft af þessum er- indum getur verið umdeilan- legt, en allavega verður það að segjast hér, að málflutningur þeirra tveggja, sem fram hafa komið í þáttunum til þessa, og mótfallnir eru því, að hér séu varnir, hefur jafnvel jaðrað við það að vera málefnalegur, a.m.k. málflutningur Þorsteins Vilhjálmssonar, sem talaði s.l. þriðjudag, og var það sannar- lega ánægjulegt nýmæli. í kvöld kl. 21.25 verður Landshorn, og stjórnandinn að þessu sinni er Guðjón Einars- son. Þar verður fyrst fjallað um verkfalls- og samningamál, sem ofarlega eru á baugi í innan- * 15.45 Lesin dagskrá næstu viku 16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15 Veðurfregnir). 16.20 Popphornið 17.10 (Jtvarpssaga barnanna: „Jói f ævin- týraleit“eflir Kristján Jónsson Höfundur byrjar lesturinn. 17.30 Framburðarkennsla I dönsku 17.40 Tónleikar. Tilkynningar. 18.30 FYéttir. 18.45 Veðurfregnir. 18.55 Tilkynningar. 19.00 Veðurspá. Fréttaspegill 19.15 Þingsjá Ævar Kjartansson sér um þáttinn. 19.30 Varnarmálin Tvö stutt erindi flytja: Ólafur Ragnar Grímsson prófessor og Þorsteinn Eggertsson stud. jur. 20.00 Sinfónfutónleikar Frá tónleikum Sinfóníuhljómsveitar- innarí Frankfurtí októbers.L, a. Sinfónia í Es-dúr (K 543) eftir Wolfang Amadeus Mozart. b. „Dafnis og Klói“, sinfónísk atriði úr samnefndum ballett eftir Maurice RaveL 20.55 Hálföld á Hrafnkelsdal Kristján Ingólfsson ræðir við hjónin Aðalsteinog Ingibjörgu á Vaðbrekku 21.30 (Jtvarpssagan: „Trfstan og !sól“ eftir Joseph Bédier Ðnar öl. Sveinssom í^lenzkaði. Kristin Anna Þórarinsdóttirles (5). 22.00 Fréttir. 22.15 Veðurfregnir. Lestur Passíusálma (5) 22.25 Kvöldsagan: „Skáld pís larvættis- ins“eftirSverri Kristjánsson höfundur les (3). 22.45 Draumvfsur Sveinn Árnason og Sveirm Magnússon kynna lög úrýmsum áttum. 23.45 Fréttir í stuttu máli Dagskrárlok. Bandariskur söngva- og gamanmynda- flokkur. Þýðandi Heba Júliusdóttir. 20.50 L'gla sat á kvisti í þessum þætti verður enn rífjuð upp dans- og dægurtónlist f rá liðnum árum. Brugðið verður upp mynd frá litlum dansstað, eins og hann hefði getað litið út á árunum 1945—50. Hljómsveit Björns R. Einarssonar, skipuð hIjóðfæraleikurum frá þeim tíma. leikur jass- og Dixielandtönlist, og einnig verða flutt \inis skemmti- at riði. U msjónarmaður Jónas R Jónsson. 21.30 Alþýðulýðveldið Kfna Breskur fræðsl umyndaflokkur um Kínaveldi n útímans. 6. þáttur Þýðandiog þulur Gylfi Pálsson. 21.55 HeiLsa fylgir hóf i Stutt teikniinynd um heilsusamJega lifnaða rhæt ti. 22.05 ! skóla Iffsins (Le chemin deséeoliers) Frönsk biömynd frá árinu 1959. byggð á sögu eftir Mareel Ayme. Leikstjóri Miehel Borismnd. Aðalhlutverk Franeoise Arnoul. Alain Delon og Jean-Claude Bríaly. Þýðand i l>»ra Ha fs teinsdót ti r. Myndin geríst í Parísarborg i heims- styrjöldinni síðarí. Ungur skólapiltur kemst i kynni við svartamarkaðs- braskara. og í hópi þeirra er ung og tælandi stúlka. sem honum fellur afar vel i geð. 23.35 Dagskrárlok. landsmálum þessa stundina. Sá, sem reifar þessi mál, er Elías Snæland Jónsson, blaðamaður á Tímanum, en hann hefur nú komið í stað Baldurs Öskars- sonar, sem nú dvelst i Tanzan- íu. Þá mun Guðjón ræða við Júlíus Sólnes, prófessor, og Ragnar Stefánsson, jarð- skjálftafræðing, um byggingar húsa og annarra mannvirkja hérlendis með tilliti til jarð- skjálfta. Júlíus lærði bygginga- verkfræði með sérstöku tilliti til jarðhræringa í Japan, því mikla jarðskjálftalandi, en einnig starfaði hann í Dan- mörku um árabil. Þá ræðir Vilmundur Gylfa- son við Guðlaug Þorvaldsson, háskólarektor um útþensluna í skólamálum fyrir neðan há- skólastigið á síðustu 10 árum, og spurninguna um það hvort tími sé til kominn að takmarka aðgang að háskólanum að öðru leyti en þvi er tekur til stúdentsprófs. Að lokum mun Vilborg Harð- ardóttir fjalla um málefni van- gefinna og þá sérstaklega að- stöðumun þeirra í dreifbýli og þéttbýli. fclk f fjclmiélum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.