Morgunblaðið - 15.02.1974, Page 34

Morgunblaðið - 15.02.1974, Page 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGÚR 15. FEBRÚAR 1974 Norðmannaslagur í Osló fyrir HM ALLar likur eru á þvi, að lands- liðið i handknattleik leiki við Norðmenn áður en haldið verður til Austur-Þýzkalands. Norðmenn voru í fyrstu mjög neikvæðir, er islenzka handknattleikssam- bandið fór fram á landsleik, enda hafa Norðmennirnir ekki að neinu sérstöku að keppa i vetur, þar sem þeir verða ekki meðal liðanna 16 í Osló. Nú virðist hins vegar sem Norðmönnum hafi snúizt hugur og allar likur á því, að af landsleik verði í Osló 25. þessa mánaðar. Landsliðið færi þá utan sunnudaginn 24. og héldi svo til Austur-Þýzkalands 26., en heimsmeistarakeppnin hefst 28. febrúar. Hvert verður leynivopnið? SKÓLAHLJÓMSVEIT Kópavogs hefur nú boðið fram liðsinni sitt á leikkvöldinu í Laugardals- höllinni 20. febrúar n.k., en þar munu fara fram þrfr stórleikir, Hljómskálahlaup HLJÓMSKALAHLAUP ÍR fer fram í þriðja sinn á þessum vetri næstkomandi sunnudag, 17. febrúar, og hefst það eins og fyrri hlaup við hljómskálann, kl. 14.00. Færðin í Hljómskálagarðinum hefur litið breytzt til batnaðar ennþá, en ÍR-ingar vænta þess, að fleiri mæti til keppninnar en sið- ast og um fram allt, að þeir, sem koma til hlaupsins, mæti timan- lega til skráningar og númeraiit- hlutunar. fyrst milli úrvalsliðs úr II deild og liðsins, sem keppti f heims- meistarakeppninni 1964, því næst milli blaðamanna og dömara, og loks leikur landsliðið gegn hinu ósigrandi liði FH. Mun Geir Hallsteinsson leika með lands- liðinu gegn sfnum gömlu félög- um. íþróttafréttamenn eru nú famir að undirbtia sig undir viðureign sína við dómara, en ekkert lið hefur sýnt eins frá- bæran árangur á íþróttavellinum og lið íþróttafréttamanna. Er skemmst að minnast þess, að þeir unnu tvo leiki gegn dómurum í fyrra með miklum yfirburðum, (einu marki) og burstuðu svo stjórn KSÍ i hörkuleik á Laugar- dalsvellinum í sumar. Lið íþrótta- fréttamanna lumar nú á hræði- legu leynivopni og vænta þess, að dómurum falli allur ketill i eld, er þeir verða þess varir. Halli, Halli og Halli. Myndin er tekin f Vestmannaeyjum og sýnir þrjá af meistaraflokksleikmönnum ÍBV við að bæta loðnunót, Harald Gunnarsson, Harald Júliusson og Harald Óskarsson. Þeir eru reyndar frændur og heita f höfuðið ásama afanum —Halla áGrfmsstöðum. Æft af krafti í Evjiim ÞÓ AÐ vertíðin sé f fullum gangi i Vestmannaeyjum eins og öðrum verstöðvum leyfa menn f Eyjum sér þö að hugsa um íþróttirnar. Knattspyrnumenn ÍBV eru búnir að æfa af krafti í allan vetur, fyrst undir leiðsögn Hermanns Jónssonar. Duncan McDowell kom til Eyja I janúar og lagði þá línurnar um æfingar þar til hann kæmi til starfa. Ólafur Sigurvins- son og Friðfinnur Finnbogason munu annast æfingarnar fram i miðjan marz, en þá kemur Duncan. Stjarnan með fullt hús stiga í 3. deild Allir meistaraflokksmenn ÍBV eru komnir til Eyja nema þeir, sem eru í skólum á fastalandinu, Kristján Sigurgeirsson og Snorri Rútsson. Fréttir um, að stór hluti Vestmannaeyjaliðsins yrði eftir í Reykjavík og nágrenni hafa því ekki lengur við rök að styðjast. Meistaraflokkur ÍBV hefur fengið boð frá Svíþjóð um að koma þangað í keppnis- og æfingaferð undir vorið og eru allar líkur á, að því boði verði tekið. Fýrsti leikur Eyjaskeggja í is- landsmótinu fer fram í Eyjum og verða mótherjar þeirra nýliðarnir í 1. deildinni, Víkingar. Sá leikur fer að öllum líkindum fram á grasvellinum við Hástein, en gert var við skemmdirnar á vellinum strax eftir að lokið var við að hreinsa öskuna af honum í fyrra- sumar. t marz verður hafizt handa um að hlúa að vellinum þannig að hann verði f góðu standi þegar íslandsmótið hefst. Kambaboðhlaup KAMBABOÐHLAUP það, sem ÍR og HSK gengust fyrir 1 fyrsta sinn s.I. vetur, fer fram f annað sinn sunnudaginn 24. febrúar n.k. Keppt er um bikar, sem gefinn var af Timburverzlun Árna Jóns- sonar, en hann unnu ÍR-ingar mjög glæsilega f fyrsta hlaupinu sJ. vetur. Þátttökutilkynningar þurfa að berast til Guðmundar Þórarins- sonar þjálfara ÍR-inga eigi síðar en að kveldi hins 20. febrúar n.k. LEIKMENN Stjörnunnar í Garða- hreppi hafa nú lokið leikjum sfn- um f Suðurlandsriðli þriðju deildar. Hafa þeir unnið alla and- stæðinga sfna og eru því með fullt hús stiga, Stjarnarn hefur sýnt umtalsverða yfirburði í leikjum sínum og minnsti munurinn er 4 marka sigur gegn Víði úr G arði. Það verða því Stjörnumenn, sem leika til úrslita í riðlinum, þó svo að þeir hafi ekki verið sérlega bjartsýnir i upphafi keppnistíma- bils, en þá voru æfingatímar þeirra af skornum skammti. Bet- ur rættist þó úr en á horfðist, og hafa ýmis nágrannafélög léð þeim tíma f íþróttahúsum sínum. Ekki er vitað, hvaða lið leikur gegn Stjörnunni í úrslitum, en senni- legast verður það annaðhvort Þróttur, Neskaupstað, eða Hug- inn frá Seyðisfirði. Þessi lið áttu að leika saman fyrir nokkru, en af í Breiðabliksstúlkurnar stefna á ný í 1. deild leiknum varð ekki, og herma fréttir, að upp sé komið snúið kærumál milli þessara liða. Síðustu leikir i Suðurlandsriðli 3ju deildar hafa endað sem hér segir: Afturelding — ÍA 26:22 Afturelding — Stjarnan 21:26 íA — Stjarnan 20:28 Stjarnan — Víðir 26:21 Staðan í riðlinum er þvi þessi: Stjarnan 6 6 0 0 155:113 12 Afturé. 5 2 1 2 120:125 5 ÍA 5 0 2 3 100:118 2 Víðir 4 0 1 3 89:108 1 Mörg verkefni fr j álsíþró ttaf ólks FJRÁLSÍÞRÓTTASAMBAND Ís lands hefur nú gengið frá móta- skrá sinni fyrir næsta keppnis- tfmabil. Verður mikið um að vera í þessari iþróttagrein, en hæst mun bera landskeppni við íra sem fram á að fara í Reykjavík 5.—6. ágúst. írskir frjálsíþrótta- menn hafa náð mjög svipuðum árangri og íslenzkir þannig að bú- ast má við mikilli og skemmti- legri keppni. BREIÐABLIK stendur óneitan- lega vel að vígi í 2. deild kvenna. Liðið á enn eftir að leika tvo leiki í Suðurlandsriðli deildarinnar, en hefur hlotið fleiri stig en önn- ur lið geta náð. Breiðablik féll sem kunnugt er niður í 2. deild á síðastliðnum vetri, en allt bendir til þess, að dvölin verði ekki löng þar. Þó er engin ástæða til að óska Breiðabliksstúlkunum strax til þessi: hamingju, þær eiga eftir að leika Breiðablik 8 8 0 0 126:64 gegn sigurvegaranum í ÍBK 7 4 1 2 74:69 Norðurlandsriðli, Völsungum eða UMFN 8 3 1 4 88:90 KA, sennilega Völsungum, því að Haukar 6 2 0 4 67:87 Húsavfkurstúlkurnar unnu KA Grótta 7 2 0 5 67:99 11:5 í fyrri leik liðanna. ÍR 6 1 0 5 49:72 Úrslit síðust leikja í 2. deild kvenna hafa orðið sem hér segir: Breiðablik — Grótta 17:7 Breiðablik — ÍBK 13:7 Breiðablik — UMFN 16:10 Grótta — ÍR 14:11 Grótta gaf leikinn gegn UMFN Staðan í Suðurlandsriðli er nú 16 9 7 4 4 2 Breytingar á blakleikjum MIKLAR breytingar verða gerðar á niðurröðun leikja í blakmeistaramóti íslands um helgina. Svo sem kunnugt er, áttu Víkingar að fara norður á Akureyri um síðustu helgi og leika þar tvo leiki, en komust þangað ekki sökum ófærðar. Því hefur verið ákveðið, að Víkingur fari norður nú um helgina og leiki þar leiki sfna. Fyrri leikur Víkinganna verð- ur við UMSE í íþróttaskemm- unni kl. 20.00 á laugardag, en kl. 14.00 á sunnudag leika svo Vikíngar við ÍMA, einnig í í- þröttaskemmunnni. Leikur ÍMA og UMSE, sem fram átti að fara f iþrótta- skemmunni álaugardag, erþví frestað um óákveðinn tíma, og einnig leik Víkings og UMFB, sem fram átti að fara f Árbæj- arskólanum á sunnudaginn. Munu þessir leikir væntanlega fara fram i næstu viku. Einn leikur verður í islands- mótinu hér syðra og leika þá íþróttafélag stúdenta og Ung- mennafélag Biskupstungna i Vogaskóla. Sá leikur hefst kl. 14.00 á laugardag. Mótaskrá FRÍ er þannig í stór- um dráttum: 2.—3. marz: Meistaramót íslands innanhúss (Reykjavík) 10. marz.Innanhúsmót drengja og stúlkna (Njarðvík) 24. marz. Víðavangshlaup íslands 22.—23. júní. Meistaramót is- lands í fjölþrautum (Reykjavfk) 25. júní. Bikarkeppni Norður- landa, konur, (Noregi) 9. —10. júlí. Reykjavfkurleikar 21.—23. Meistaramót islands, aðalhluti (Reykjavfk) 27. —28. júli. Bikarkeppni FRÍ, 2. deild (Akureyri) 5.—6. ágúst Landskeppni karla, ísland-irland (Reykjavík). 10. —11. ágúst. Meistaramót. Drengir, stúlkur, sveinar, meyjar. 10.—11. ágúst. Meistaramót. Pilt- ar, telpur, strákar, stelpur, (Sel- foss) 17.—18. ágúst. Bikarkeppni FRÍ, 1. deild (Reykjavík) 24.—25. ágúst. Norðurlandamót i fjölþrautum unglinga (Noregur) 31. ágúst. Unglingakeppni FRÍ 1.—8. sept. Evrópumeistaramótið í Róm 7.—8. september. Fjórðungsmót- in 28. —29. september. Landskeppni í tugþraut, Ísland-Bretland-Frakk land (París)

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.