Morgunblaðið - 24.02.1974, Side 2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24, FEBRUAR 1974
Tregur bolfiskafli
Grindavíkurbáta
AFLI Grindavfkurbáta, sem
byrjaðir eru á bolfiskveiðum,
hefur verið fremur tregur það
sem af er, að sögn Daníels vigtar-
manns í Grindavík. 15 bátar eru
nú byrjaðir á netum og þrír á
línu, en nokkrir af þessum bátum
eru aðkomubátar. 18 Grinda-
vfkurbátar eru á loðnuveiðum og
nokkrir ekki byrjaðir ennþá.
Afli netabátanna hefur verið
upp í 18 lestir, en þar hefur verið
um meira en næturgamlan af la að
ræða. Yfirleitt hefur aflinn verið
frá 7—13 lestir, mest allt þorskur.
Daníel sagði, að í gær hefði veiðin
virzt mínnkandi aftur eftir að
reytingsafli hafði verið í tvo daga
þar á undan.
Fjöldi loðnubáta var í Grinda-
víkurhöfn í gær að landa loðnu-
afla, en ekkert verkfall kom til
framkvæmda í Grindavík.
Vestmannaeviar:
Ufsagnóttínet
og troll
hæsta frystihús landsins í því
efni. Bolfiskaflinn, sem nú berst á
land í Eyjum, er að mestu leyti
ufsi.
Afli Vestmannaeyjabáta í troll
og net hefur verið mjög góður að
undanförnu, og hafa netabátar
verið með 20—30 tonn úr róðri og
trollbátar allt upp I 16 tonn. Um
30 Eyjabátar eru nú á netum og
trol li, flestir á netum.
Feikileg vinna er nú í Eyjum,
er unnið til miðnættis á hverjum
degi f öllum frystihúsunum og
bræðslurnar tvær framleiða nótt
og dag.
Guðmundur Karlsson fram-
kvæmdastjóri Fiskiðjunnar sagði
í stuttu viðtali við okkur í gær, að
tæplega 200 manns væru við störf
i Fiskiðjunni, eða svo til sami
mannfjöldi og vertfðina fyrir gos.
Sagði hann, að hin frystihúsin
væru einnig með eðlilegan starfs-
mannafjölda.
Fiskiðjan er búin að frysta lið-
lega 700 tonn af loðnu og er lang
— 3 ráðherrar
Framhald af bis. 44
álögunum aflétt, og viðræður
hafa átt sér stað við ráðherrana
þrjá. Lúðvík og Björn munu hafa
sýnt vilja á að lagfæra misréttið,
en sagt er, að Halldór E. Sigurðs-
son hafi ekki viljað skrifa undir
loforð um leiðréttingu þessara
mála og borið því við, að rfkis-
sjóði væri engin vanþörf á þess-
um fjármunum. Gæti sjóðurinn
ekki látið þá af hendi.
Mikill fjöldi manns tekur þátt í
samningagerðinni a Loftleiðum.
Kunnugir telja, að þátttakendur
séu einhvers staðar á bilinu milli
150 til 200 manns og samningsað-
ilar og hin ýmsu stéttarfélög hafa
tugi herbergja á leigu í hótelinu.
Sem dæmi um álagið á símakerfi
hótelsins má geta þess, aðþað fór
allt úr sambandi í fyrrakvöld
vegnaþess að það þoldi ekki þann
fjölda úthringinga, sem áttu sér
stað.
„Stanzaðu góði, stanzaðu.
Má ég sitja í? Ég er nefni-
lega með bíladellu." Mynd-
ina tók Sigurgeir í Eyjum
einn daginn þegar reykur
frá loðnubræðslunni og eld-
fjallagufa rugluðu saman
reytum sínum og grúfðu sig
yfir höfnina 1 Eyjum.
Lögregluþjónn bjargaði
5 ára dreng úr Tjörninni
LÖGREGLUÞJÖNN bjargaði í
fyrradag 5 ára gömlum dreng frá
drukknun í vök f Tjörninni 1
Reykjavík. Drengurinn hafði far-
ið út á Tjörnina með vagn, er
hann hafði meðferðis. Tókst hon-
um að halda í vagninn dauða-
haldi, unz lögregluþjónninn, Þór-
ir Þorsteinsson, kom og bjargaði
honum.
Samkvæmt frásögn lögregl-
unnar safnaðist talsverður fjöldi
fólks saman við Tjörnina og
fylgdist með björgunaraðferðum
Þöris. Er hann kom með barnið að
landi, en talsvert frost var og
kuldi, tók fólkið barnið og ók því
heim til sín. Hins vegar lét lög-
reglan þess getið, að Þórir Þor-
AFSOKUN-
ARBEIÐNI
ALVEG einstök mistök urðu hér í
Mb. i gær, er minningargreinar
um þá Jónas Jóhannesson og Jó-
hannes Finnsson ásamt myndum
víxluðust.
Morgunblaðið biður aðstand-
endur hinna látnu afsökunar svo
og greinarhöfunda.
steinsson lögregluþjónn hefði
orðið að ganga langleiðina á lög-
reglustöðina rennblautur í frost-
inu, án þess að nokkrum dytti f
hug að bjóða honum akstur þang-
að. Loks kom þó sendiferðabíl-
stjón, sem sá aumur á Þóri og ók
honum á stöðina.
Barninu mun ekki hafa orðið
meint af baðinu í Tjörninni, né
heldur Þóri.
Fernt á sjúkrahús
FERNT var flutt á sjúkrahús eft-
ir mjög harðan árekstur á gatna-
mótum Kringlumýrarbrautar og
Miklubrautar um kl. 1 í fyrrinótt.
Áreksturinn atvikaðist þannig, að
Fiat-bifreið var ekið suður
Kringlumýrarbraut og Land
Rover-jeppa vestur Miklubraut og
skullu bilarnir saman á gatnamót-
unum. Þrennt var í Land Rovern-
um og mun ökumaðurinn hafa
mjaðmagrindarbrotnað, og tveir
farþegar í bílnum meiddust nokk-
uð. Ökumaður Fiat-bílsins, sem
var einn í bilnum, meiddist eitt-
hvað á höfði.
Skömmu áður en áreksturinn
átti sér stað, höfðu lögreglumenn
tekið eftir ógætilegum akstri Fiat-
bílsins, en misst sjónar af honum.
Kom í ljós, að ökumaður bílsins
var ungur að árum og hafði hann
tekið bflinn, sem var alveg nýr,
ófrjálsri hendi heima hjá föður
sínum. Grunur leikur á, að öku-
maðurinn hafi verið ölvaður.
Utankjörstaða-
atkvæðagreiðsla
Utankjörstaðaatkvæðagreiðsla í
prófkjöri Sjálfstæðisflokksins
vegna borgarstjórnarkosning-
anna hefst á morgun, mánudag,
að Laufásvegi 47. Verður kjiir-
staður opinn kl. 17—19. Sjálf
prófkosningin fer svo fram um
næstu helgi, 2.—3. marz, á 8 kjör-
stöðum, en síðan verður einn
kjörstaður opinn 4. marz.
Ahrif verkfallsins
Framhald af bls. 44
Tungnaá f bráðabirgðafarveg, og
er nú veríð að gera þennan far-
veg. Ef gerð farvegarins tefst
mjkið, þá veit enginn hvenær
hægt verður að veita Tungnaá í
nýja farveginn; því illmögulegt
og mjög dýrt verður að gera hann,
eftir að vorflóð byrja. Þvi getur
verkfallið seinkað Sigöldufram-
kvæmdunum.
LITLU FLUGFÉLÖGIN
HALDA AFRAM
Verkfallið hefur engin áhrif á
starfsemi litlu flugfélaganna, því
þau hafa öll sérstaka eldsneytis-
tanka og nægar birgðir.
Hjá Flugstöðinni fengum við
þær upplýsingar, að fyrirtækið
væri með 25 þúsund lítra geymi,
sem hefði verið fylltur fyrir verk-
fail. Þær birgðir ættu að endast
nokkuð lengi og því væri ekki
hætta 'á, að starfsemi félagsins
lamaðist á næstunni.
Gífurlegar annir eru nú hjá
Flugstöðinni, en í gær voru flestir
flugvellir landsins lokaðir vegna
veðurs. Til stóð að senda vél frá
Flugstöðinni, sem lokast hafði á
Egilsstöðum, til Frankfurt til að
ná í varahluti, sem liggur á að fá
til landsins. Átti vélin að fara frá
Egilsstöðum um hádegisbilið í
gær, ef veður leyfði.
Eftir helgina á Flugstöðin von á
nýrri flugvél frá Bandaríkjunum,
og tekur sú vél sex farþega.
ENGIN MJÓLK
FAANLEG
í gær var enga mjólk að fá í
Reykjavík, þar sem starfsstúlkur
í mjólkurbúðum eru komnar í
verkfall. Að því er bezt er vitað þá
verður engin mjólk afgreidd fyrr
en að verkfalli loknu, og hætt er
við að vandræði skapist út af
mjólkurleysinu eftir helgina, sér-
staklega á heimilum, þar sem
ungbörn eru.
Stefán Björnsson, forstjóri
Mjólkursamsölunnar, sagði í sam-
tali við Mbl. 1 gær, að fólk hefði
yfirleitt birgt sig upp af mjólk á
föstudaginn, en ekki mætti verk-
fallið standa lengi, ef vandræði
ættu ekki að hljótast af. Bændur
geta heldur ekki geymt mjólkina
endalaust.
RÆSTING LEYFÐ
í SKÓLUM?
Meðal þeirra verkalýðsfélaga,
sem eru í verkfalli, er verka-
kvennafélagið Framsókn, en
konur úr þvi félagi sjá um ræst-
ingu í skólum borgarinnar. Ef
ræsting fellur niður í skólunum,
mun skólahald í borginni lamast á
næstu dögum, en f undan-
gengnum verkföllum hefur alltaf
verið veitt undanþága til ræstinga
á skólunum.
Kristján J. Gunnarsson,
fræðslustjóri Reykjavíkur, sagði í
samtali við Morgunblaðið i gær,
að búið væri að sækja um undan-
þágu til verkakvennafélagsins
Framsóknar um ræstingu . í
skólum og einnig hefði verið sótt
um undanþágu til að hægt væri að
þvo allt tau skólanna í þvottahús-
unum.
Dr. Ragnar
Undirskriftasöfnun samtak-
anna Varið land er nú orðin sú
langmesta sem nokkru sinni
hefur farið fram á íslandi og í
gærkvöldi höfðu verið talin
rúmlega 53 þúsund nöfn. Morg-
unblaðið sneri sér til dr. Ragn-
ars Ingimarssonar, sem hefur
yfirumsjón með yfirferð og
samanburði listanna, til að for-
vitnast um hvernig unnið væri
úr þessum ósköpum til að
tryggja að listarnir væru réttir
og ófalsaðir.
— Við úrvinnsluna notum
við meðal annars tölvu sem við
fóðrum á öllum nöfnunum og
hún finnur m.a. strax hvort ein-
hverjar tvfritanir eru á Iist-
unum. Þá tekur mannfólkið við
aftur og kannar hvernig á því
stendur og gerir leiðréttingar
þannig að nafn sama aðila komi
ekki tvisvar á listanum. Það er
þegar búið að gefa tölvunni
upp 44 þúsund nöfn og hún á að
fara igegnum alla listana.
— Það eru mjög lítil brögð að
því en þó hefur það komið
Talan er svo há að
hún er afgerandi
fyrir. Við könnun hefur komið
í ljós að þetta fólk er ekkert að
reyna að svindla með því að
rita nafn sitt tvisvar. Við vitum
að einstaka ofstopamenn hafa
rifið lista og svo hafa nokkrir
týnst og þetta fólk hefur ritað
nöfn sín aftur fil að vera visst
um að vera með. Fólk hefur
líka snúið sér til okkar áður en
það skrifaði nöfn sín aftur, ef
það hefur haft grun um að list-
inn sem það skrifaði á í
upphafi hafi á einhvern hátt
glatast. Við höfum sagt þessu
fólki að það sé allt í lagi að
skrifa tvisvar, því tölvan finni
út úr því.
— Þegar tölvunni sleppir
taka svo starfsmenn sam-
takanna til við miklu seinlegra
verk og það er að bera nöfnin
saman við íbúaskrár, til þess
meðal annars að gæta þess að
enginn sé á listanum sem ekki
er orðinn tvítugur eða verði
það fyrsta marz. Það hafa
einnig fundist nokkur slík ti4
felli en þá hefur það oftast
verið þannig að viðkomandi
hefur aðeins vantað nokkra
mánuði upp á tvftugt, í einu
tilfellinu voru það ekki nema
tveir dagar, og talið sig hafa
rétt til að tjá sig af þeim or-
sökum. Sem dæmi má nefna að
f 6000 nafna fullunnu úrtaki í
Reykjavík, fundust 38 tví-
ritanir og 49 sem ekki höfðu
náð tvítugsaldri.
— Hvernig er svo ætlunin að
afhenda þetta?
Listarnir verða bundnir inn
þegar búið er að yfirfara þá til
fullnustu og við vonum að það
verði fyrir fyrsta marz. Hug-
myndin er svo að afhenda þá
forsætisráðherra og forseta
sameinaðs þings.
— Þetta verða um eða yfir 50
prósent atkvæðisbærra Is-
lendinga?
— Já um það bil, en mér
finnst alveg óraunhæft að miða
við það. Kjósendafjöldinn sem
slíkur er enginn mælikvarði. I
þingkosningum eru það ekki
nema 80—90 prósent kjósenda
sem skila sér og er það þó mun
umfangsmeiri starfsemi sem
rekin er í því sambandi, þá eru
kjördeildir um allt land. Þaðer
líka fjöldi manns sem af ýms-
um ástæðum hefur ekki fengið
tækifæri til að skrifa sig á lista
núna, samgönguerfiðleikar eru
þar ein orsökin. Margir vilja
heldur ekki tjá sig opinberlega.
— En ég held sem sagt að
samanburður sé óraunhæfur.
Þessi tala hjá okkur er orðin
svo há að hún hlýtur að vera
afgerandi.