Morgunblaðið - 24.02.1974, Side 14

Morgunblaðið - 24.02.1974, Side 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. FEBRÚAR 1974 874 ÍSLAND 874 fSLAND 1974 874 fSLAND 1974 874 ÍSLAND 1974 I S L A N D 1974 Þannig Hta nýju frlmerkin 11 út. Þau fyrstu koma á markað 12. marz n.k. en þau sfðustu um miðjan júlí. r 1100 ára afmæli Islandsbyggðar: Eitt frímerki fyrir hverja öld MEÐAL þess, sem mun minna íslendinga og um leið útlendinga á 1100 ára Íslandsbyggð eru 11 ný frímerki — eitt frímerki fyrir hverja öld —, sem koma út á árinu. Fyrstu fjögur merkin verða gefin út þann 12. marz næstkomandi og síðan koma 4 í byrjun júní og síðustu þrjú merkin koma sfðan út um miðjan júlí. „Allt hefur verið gert til þess að gera útgáfu þessa sem vand aðasta og póstþjónustan hefur haft sér mjög góða menn til aðstoðar," sögðu þeir Jón Skúlason, póst- og sfmamálastjóri og Rafn Júlfusson, póstmálafull- trúi, þegar við ræddum við þá um nýju frímerkin í gær. Þeir sögðu, að útgáfa þjóð- hátíðarmerkjanna hefði fyrst borið á góma í ársbyrjun 1971, með því að þjóðhátíðarnefnd hefði haft samband við Póst- og símamálastjórnina um útgáfu merkjanna. Var þjóðhátíðarnefnd strax gefið jákvætt svar, og síðan barst bréf frá nefndinni, þar sem farið var fram á að merkin yrðu 11 og hvert merki táknaði merkan atburð hverrar aldar. „Sfðast á árinu 1971 hélt þjóð- hátiðarnefnd fundi með okkur og einnig í ársbyrjun 1972. Aþessum fundum fóru hugmyndír um merkin að koma fram, og á miðju árinu ákváðum við að ieita til dr. Selmu Jónsdóttur, forstöðumanns Listasafns ríkisins eftir listfræði- legri aðstoð," sagði Jón Skúlason og bætti við, Selma tók strax vel í þetta og útvegaði okkur til aðstoðar tvo af nefndarmönnum Listasaf nsins listmálarana Jóhannes Jóhannesson og Stein- þór Sigúrðsson. Þeir félagar gengu rösklega til starfa óg fljót- lega var ákveðið í samráði við þjóðhátiðarnefnd, að fyrirmyndir af merkjunum skyldu vera lista- verk, sem þegar væru til, enda voru allir sammála um, að þjóðin hefði átt það marga góða lista- menn gegnum söguna.“ Fljótlega var ákveðið, að merkin yrðu númeruð með róm- verskum tölum frá I—XI og þjóð- hátíðarnefnd lagði okkur til myndefni, sem er landnámið, landtakan, stofnun alþingis og allsherjarríkis, kristnitakan og stofnun Skálholtsdóms, róstu- sama tfmabilið eða Sturlunga- öldin, ritöldin, konan í íslenzku sögunni, trúin, 300 ára afmæli Hallgríms Péturssonar, 18. öldin og uppgangur á 19. öld. Þegar hér var komið sögu, sögðu þeir Jón og Rafn, þurfti að fara velja myndir á merkin. Það verk önnuðust þeir Steinþór og Jóhannes, ásamt frímerkjanefnd rikisins, en hún er skipuð af ráð- herra og í henni eru J ón Skúlason póst- og símamálastjóri, Rafn Júlíusson póstmálafulltrúi, Gísli Sigurbjörnsson forstjóri, Höskuldur Ölafsson bankastjóri og Sigurður Þorsteinsson kennari, en þrir síðasttöldu eru allir kunnir af frímerkjasöfnun. — Á fyrsta merkið, sem táknar landnámið, verðgildi 10 krónur, var valið teppi ofið af Vigdísi Kristjánsdóttur, eftir frummynd Jóhannes Briem. Annað merkið, verðgildi 13 krónur, táknar stofnun Alþingis og allsherjar- ríkis á íslandi. Sýnir það Grím geitskó við Þingvelli og er eftir málverki Jóhannesar Jóhann- essonar. Þriðja merkið táknar kristnitökuna og stofnun Skál- holtsskóla, verðgildi 30 krónur. Er það gert eftir altaristöflu í Skálholtskirkju, sem er gerð af Nínu Tryggvadóttur. Sæmundur á selnum er svo fjórða merkið, að verðgildi 70 krónur, Táknar þetta merki ritöldina og er gert eftir höggmynd Asmundar Sveins- sonar. Þessi fjögur merki koma út 12. marz n.k. Merki númer fimm, sex og sjö koma síðan út i byrjun júní. Merki númer fimm ber nafnið „Ut vil ek“ og táknar hið róstu- sama tímabil Sturlungaaldar- innar, og verðgildi þess er kr. 17,00. Er það merki gert eftir teikningu Þorvalds Skúlasonar. Sjötta merkið sem táknar rit- öldina er gert eftir mynd úr Flat- eyjarbók og er verðgildi þess kr. 25. Sjöunda merkið er „Eigi skal gráta,“ verðgildi kr. 1,00 og táknar það konuna í íslenzku þjóðfélagi á fyrri tímum. Á það merki var valinn altarísklæðn- aður, frá Stafafelli i Lóni. Síðustu merkín fjögur að tölu eiga svo að koma úl um míðjan júlí. Fyrsta merkið, sem er númer átta í seríunni, er mynd af Guð- brandi Hólabiskupi, að verðgildi kr. 15. Merkið er gert eftir mál- verki af Guðbrandi biskupi, sem geymt er á Þjóðminjasafninu og er talin fyrsta portrett mynd, sem gerð. hefur verið af íslendingi. Níunda merkið, minnir á 300 ára afmæli Hallgríms Péturssonar. Er það að verðgildi kr. 20, og er gert eftir steindri glermynd, sem Gerður Helgadóttir hefur gert og er í Hallgrfmskirkju í Saurbæ á Hvalfjarðarströnd. Tíund merkið að verðgildi kr. 40 minnir fólk á 18. öldina og er það merki í tíðar- anda „innréttinganna". Utskurður frá 18. öld var valinn á myndina. Ellefta frímerkið, að verðgildi kr. 60, og það siðasta í landsbyggðarsögunni á að minna á þær miklu framfarir, sem áttu sér stað á 19. öidinni og hvað sjávarútvegurinn fór þá að hafa mikla þýðingu fyrir íslendinga. Er merkið gert eftir lágmynd Sigurjóns Ölafssonar, sem er í Sjómannaskólanum og sýnir fólk við fiskvinnu. Sögðu þeir Jón og Rafn, að þeir, sem séð hefðu frímerkin væru mjög ánægðir með þau, og hefði þessi góði árangur náðst með sam- starfi fjölda manna. Til dæmis hafí verið haft sambarid við biskup um atriði, sem snertu kirkjuleg atriði. Ennfremur sögðu þeir, að nota ætti sérstakan póststimpil á póst- húsum á þessu þjóðhátíðarári. A stimplinum verður 1100 ára merki íslandsbyggðar og orðin „Hátíð til heilla“. Þessi stimpill, sem gerður er í Englandi er ekki enn kominn til landsins, vegna tafa á afgreiðslu í Englandi. Þá er ákveðið að hafa opið pósthús á Þingvöllum á sjálfan hátíðar- daginn, og verður notaður sér- stakur hátíðarstimpill. Einnig hafa borizt óskir frá ýmsum stöðum á landinu, um að hafa opin pósthús á þeim stöðum, þar sem 1100 ára afmælinu verður fagnað. Sums,Staðar er auðvelt að koma því við, en á öðrum stöðum verra. Þá hafa verið uppi hug- myndir um það, að hestamenn færu í póstferð á hestum frá Aust- fjörðum til Suðurlands eða jafnvel í kringum landið, én ekkert er ákveðið í því efni enn. Þ.O. r Jón Skúlason, póst- og símamálastjóri og Rafn Júlíusson, póstmála- fulitrúi virða fyrir sér fyrstu arkirnar af þjóðhátfðarfrímerkjunum Ljósm. Mbl.: Öl. K. M. ít, A\12.ll11974/5 U Sérstakur útgáfudagsstimpill verður notaður þegar merk- in koma út og hér sjáum við útgáfudagsstimpilinn, sem verður notaður 12. marz.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.