Morgunblaðið - 24.02.1974, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 24.02.1974, Blaðsíða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. FEBRÚAR 1974 Norsk öryggismál í alþjóðlegu samhengi Erindi Guttorms Hansens, forseta norska stórþingsins og formanns f Det Norske Atlanterhavskomité, á ráð stefnunni Island-Noregur, samstarf um öryggis- og al- þjóðamál, Reykjavík 2. febrúar 1974. Noregi er eins og öðrum smá- þjóðum í veröldinni nauðsynlegt að átta sig á þvi, að ver stöndum nú á krossgötum eða timámótum í alþjóðamálum. Þau nær 30ár,sem liðin eru frá lokum síðari heims- styrjaldaiinnar, má í stórum dráttum líta á sem eftirstrfðsár. Þær ríkjaheildir og þau vanda- mál, sem þessi styrjöld hafði í för með sér, hafa fram til síðustu tveggja eðaþriggja ára mótað allt ástand á alþjóðlegum vettvangi. Noregur hefur eins og önnur Evrópulönd búið við þetta ástand og orðið að laga stefnu sina að því. Pólitískt mat vort og athafnir hafa takmarkazt af heimsástandi eftirstríðsáranna. Það, sem gerzt hefur á síðustu árum, heimilar oss hins vegar að fullyrða, að nú sé eftirstríðsárun- um Iokið. Það, sem nú gerist á alþjóðavettvangi, fer eftir öðrum leiðum og er að sækja í mynztur, sem er talsvert annað en það, sem vér þekkjum frá öllum eftirstríðs- aðrunum. Það, sem vér nú köllum hjöðnun í samskiptum risaveld- anna, er staðreynd, þrátt fyrir hættustundirnar, sem vér lifðum í tengslum við síðustu styrjöld fyrir botni Miðjarðarhafs. Þessi átök draga á margan hátt fram, hversu langt hjöðnunin milli risa- veldanna er komin og ýmsar af- leiðingar þessarar hjöðnunar- stefnu fyrir önnur lönd. Vafalítið eykur hið nýja ástand lífsöryggi vort, en á sama tíma verður erfið- ara fyrir oss að fylgjast með og túlka eínstök atvik og atburði. Þróun slðustu mánaða veitírþess- ari fullyrðingu minni einnig hald- betri forsendur. Það er ekki unnt að skilgreina og fastmóta hlut- verk eigin lands hvorki í veröld- inni allri né Evrópu, án þess að líta bæði til hjöðnunarþróunar- innar milli risaveldanna tveggja og þeirrar auknu alþjóðahyggju bundin við einstök lönd né póli- tísk landamæri og er á góðri leið með að skapa allt annað mynztur í alheimsviðskiptum og fram- leiðslu, og hún hefur áhrif á alla þróun alþjóðamála. Til marks um þessa þróun er nög að nefna það, sem gerðist 1972 og 1973, sam- skipti risaveldanna tveggja gjör- breyttust og þriðja stórveldið i heiminum, Kina, varð beinn þátt- takandi í alþjóðastjórnmálum. Og hér er það raunar fyrst og fremst sambandið milli Bandaríkjanna og Kína og millí Kína og Japan, sem sýnir okkur nýjungarnar. Ég er einnig þeirrar skoðunar, að á þessu ári muni löndin á svæðinu frá Pakistan til Indókína láta til sín taka. Eftir Guttorm Hansen Hlutverk smáríkja í síbreytilegum heimi Það, sem vér sjáum og vekur athygli vora nú, eru hræringarn- ar, sem alls staðar verður vart, en það er erfiðara að koma auga á það mynztur, sem af þeim skap- ast, þegar frá líður. Athafnir mannanna, sem vinna að því að draga úr spennunni milli austurs og vesturs, munu sjálfar skyggja á takmark stefnunnar, sem þeir eru að framkvæma. Þess vegna getum vér auðveldlega látið blekkjast í létti vorum yfir auknu öryggi ()g gleymt þvi, að vér búum í litlu landi, sem verður að haga stefnu sinni eftir því mynztri, sem kemur í kjölfar núverandi breytinga. I utanríkismálum al- mennt eins og i öryggismálum er mjög mikilvægt á tímum eins og vér nú lifum, að smáríkin gæti framtíðarhagsmuna sinna. Það er erfitt fyrir litið land, en þetta er í minum augum það verkefni, sem nú er ofar öllum í norksu utan- ríkis- og öryggismálum. Þess vegna vil ég ekki, að viðfangsefni mitt í þessu erindi takmarkist við sambandið milli Noregs og NATO, heldur mun ég reyna að fjalla um málið í víðtækara sam- hengi. En fyrst er rétt að athuga, hvað gerzt hefur í norskum utan- ríkis- og öryggismálum, frá þvi að vér urðum aðilar að Atlantshafs- bandalaginu fvrir25 árum. Félagsskapur Atlantshafsríkj- anna er lykilorðið í norskri utan ríkisstefnu allan sjötta áratuginn og fram á þann sjöunda. 1949 tengdum vér öryggisstefnu vora stefnu þjóðanna við Atlantshaf, sú ákvörðun hefur verið nefnd líftaugin i norskri utanríkis- stefnu. Mikilvægasti aðilinn að þessu samstarvi voru Bandaríkin og ábyrgð þeirra skiptir sköpum fyrir öryggi Noregs innan banda- lagsins. Á þeim árekstratímum, sem einkenndu eftirstríðsárin og þar með stefnumótun í Evrópu, var staða lands vors mjög sérkenni- leg. Vér stóðum í jaðrinum miðað við þungamiðju evrópskra stjórn- mála, Mið-Evrópu, en vorum jafn- framt í miðju kjarnorkujafnvæg- isins milli risaveldanna. Johan Jörgen Holst, rannsóknatjórí Norsku utanrikismálastofnunar- innar, hefur lýst stefnu vorri á þennan hátt: „Norsk öryggisstefna var við þessar aðstæður mótuð með því að tengja saman tryggingu (NATO) og friðmæli (bann við kjarnorkuvopnum og erlendum herstöðvum) og auk þess ábyrgð risaveldis (Bandaríkin) og póli- tískar skuldbindingar (Vestur- Evrópa).“ % er þeirrar skoðunar, að skil- greining Holsts sé hárrétt áþeirri öryggisstefnu, sem var mótuð á eftirstríðsárunum á grundvelli þess ástands, sem vér höfum búið við í þessi 25 ár. Þessi flétta í öryggismálunum olli því, að vér vorum mjög næmir fyrir öllum breytingum í sambúð Bandaríkj- anna og Sovétríkjanna, og lega vor frá hernaðarlegu sjónarmiði hafði í förmeð sér, að öryggismál- um urðum ve’r hliðarriki, á þann hátt, að samskitpi Sovétrikjanna og Bandarikjanna höfðu á hverj- um tíma áhríf á stöðu vora og athafnafrelsí. Með utanríkis- stefnu sinni hafa því Norðmenn mjög lagt sig fram um að draga úr deilum milli austurs og vesturs, og þeir hafa gert það á margvis- legan hátt. Vér höfum svo lengi búið Við þetta ástand, að enn i dag búum vér flestir við það í huga vorum, þótt það sér ekki sama og áður. Það hefur raunverulega dregið úr spennunní milli austurs og vesturs, fyrri deilur hafa hjaðnað. Vér höfum ekki lengur mikilvægu hlutverki að gegna sem málamiðlari milli risaveld- anna. Þau ræða nú beint hvort við annað og stjórna gangi mála. Vegna hjöðnunarinnar eru að- stæðurnar nú allt aðrar í utan- ríkismálum. Höfuðmarkmið utan- ríkis- og öryggisstefnu er ekki lengur að draga úr spennunni, nú er það fremur árangur hjöðnun- arstefnunar sem veldur oss vand- ræðum. Og nú verðum vér að móta utanríkis- og öryggisstefnu vora á þessum grundvelli. Hér skiptir mestu að gæta mikilvægra þjóðarhagsmuna vorra í heimi, sem er að breytast og þar sem önnur heimsmynd er i mótun. Forsendan fyrir aðild Noregs að NATO. Helzta forsendan fyrir aðild Noregs að NATO er ábyrgð Bandaríkjanna. Þess vegna mun þróunin í samskiptum Bandarfkj- anna og Vestur-Evrópu og sam- búð Bandaríkjanna og Sovétríkj- anna, framvínda mála innan Bandaríkjannaog ipólitísku sam- starfi Efnahagsbandalagsland- anna ráða mestu um mótun norskrar utanríkisstefnu. Þetta mun að sjálfsögðu einnig setja svip sinn á öryggisstefnuna og ráða miklu um þátttöku Noregs i starfi NATO. Vegna þess hve mikið er að gerast og hefur gerzt í breytinga- átt í því, sem vér köllum „Atlants- hafsfélagsskapinn" er nauðsyn- legt að kanna í hverju þessar breytingar eru fólgnar. Sé litið bæði til Marshall- áætlunarinnar og stofnunar NATO, sjáum vér, að Atlantshafs- samstarfið hófst á tímum, þegar Bandaríkin voru meiri máttar, Vestur-Evrópu minni máttar og stöðugir árekstrar kalda stríðsins milli austur og vesturs. Og póli- tísku landamærin lágu um hjarta Mið-Evrópu, til Tyrklands í suðri og Finnmerkur í norðri. Nú hefur þetta breytzt. Rikin í austri og vestri nálgast hvert annaðhröðum skrefum. Bandarikin ogSovétrík- in efla stöðugt tvíhliða samband sitt, ekki aðeins með þvi að ræðast við eins og ásjöunda áratugnum, heldur einnig með gerð samninga um viðskipti, tæknimál, vísindi og nú einnig um orkusölu. Á sama tíma helypur snuðra á þráðinn milli Bandaríkjanna og Vestur- Evrópu. Vor heimshluti er ekki lengur upp á aðra kominn. I Vest- ur-Evrópu gerist það þvert á móti, að Efnahagsbandalagið kemur fram sem efnahagslegt veldi, er skapar Bandaríkjunum vandræði. Vafalítið má búast við því, að í þeim samningum, sem framund- an eru um alþjóðaviðskipti og gjaldeyrismál, verði hagsmuna- árekstur milli Bandaríkjanna og Vestur-Evrópu, fyrst og fremst Efnahagsbandalagsins. Öryggis- vandamál munu einnig auðveld- lega geta blandazt ínn í þessar viðræður, til dæmis spurningin um samdrátt bandaríks herstyrks í Evrópu og skiptingu varnarþátt- tökunnar bæði fjárhagslega og á annan hátt. Enn er erfitt að mynda sér nokkra skoðun um það, hvaða áhrif slíkir árekstar kunna að hafa á Atlantshafssam- starfið, hvort þeir muni veikja það eða styrkja. Þó má segja, að tvennt liggi alveg ljóst fyrir. 1 fyrsta lagi leggja Efnahags- bandalagslöndin sig fram um að ná samstöðu ekki aðeins í efnahagsmálum heldur einnig í öryggismálum. Um þau mál eru skiptar skoðanir innan bandalagsins, enalltergert til að samræma sjónarmiðin. Og innan Efnahagsbandalagsins hef- ur mótazt sameíginlegt sjálfs- traust aðildarlandanna, og það er pólitíski þátturinn í þessari mynd. Sambúð Evrópu og Bandaríkjanna 1 öðru lagi er þess að gæta, að Bandaríkin koma ekki lengur fram gagnvart Vestur-Evrópu í gervi föðurlegs frænda. Vér hitt- um ekki fyrir Bandarikin með Marshall-áætlunina heldur land með allt aðra stefnu. Bandaríkin hafa reynt margt á þeim árum, sem liðin eru, og þau eru að endurskoða afstöðu sína til heims- ins — einnig til Vestur-Evrópu. Vér hittum ekki nú fyrir Banda- ríkin með hugsjónastefnu sína heldur með raunsæja utanríkis- stefnu, sem grundvallast á hrein- um eiginhagsmunum. Bandaríkin vilja halda áfram að vera risa- veldi, ekki með því að gegna hlut- verki „alheimslögreglu" heldur með samningum við aðrar vald- miðstöðvar: Sovétríkin, Kína, Japan og Efnahagsbandalag Evrópu. Þeim, sem yfirsést þetta tvennt í annars ófullgeðri mynd alþjóða- málanna, yfirsést eitt af höfuð- atriðunum. Oss skiptir það tals vert miklu, hvernig sambandi Bandaríkjanna og Vestur-Evrópu er háttað og einnig á hvern hátt sambúð þeirra við Sovétrikjanna breytist. A utanríkisráðherrafundi NATO í desember s.l. kom til fyrsta árekstursins mili Banda- rikjanna og evrópsku aðildarland anna, einkum við Frakkland. Ég lít á þetta sem fyrsta hagsmuna- áreksturinn eftir að sambandið milli Bandaríkjanna og Sovétríkj- anna hefur breytzt frá þvi áður var. Menn voru einkum ósammála um samninginn milli Bandarikj- anna og Svovétríkjanna, sem var undirritaður 22. júní í fyrra, þeg- ar Brezhnev heimsótti Nixon, þá var einnig deilt um atburðina i tengslum við deíluna fyrír botni Mið.jarðarhafs. Loks eru skoðanir skiptar um ræðu Kissingers frá 23 apríl i fyrra, þar sem hann hreyfði hugmyndum um nýja sameiginlega yfirlýsingu um Atlantshafssamstarfið í framtíð- inni. Það, sem gerðist á þessum fundi, sýndi, að Bandaríkin hafa einkum augasatað á þeim átta Efnahagsbandalagslöndum, sem eru aðilar að NATO, og sú hætta er fyrir hendi, að þau geti myndað öxull milli Bandarikj- anna og Efnahgsbandalagsins innan NATO. Enn geta Efnahags- bandalagslöndin ekki talað einni röddu, en ljóst er, að pólitískur vilji er innan bandalagsins til að ná þessu marki. Vér höfum einnig séð þetta á öðrum vettvangi, til dæmis i öryggismálaráðstefnu Evrópu. Ég tel nauðsynlegt, að Norðmenn beiti sér gegn þvi inn- an NATO, að slikur öxull myndist innan bandalagsins milli Banda- ríkjanna og Efnahagsbandalags- landanna, og þessir aðilar taki raunverulega allar ákvarðanir, sem siðan séu formlega staðfestar á vettvangi NATO. Og norskir talsmenn hafa líka oftar en einu sinni lýst því yfir, að enn sem fyrr verði varnarsamstarfið og mótun öryggisstefnunar að fara fram innan NATO og ekki flytjast í neinu til Efnahagsbandalagsins. Það er varla á valdi Noregs að stöðva slika þróun, ef hún byrjar, en ve'r verðum að leggja lóð vort á vogarskálina gegn henni. Þjóðar- atkvæðagreiðslan og síðan við- siptasamningur vor við Efnahags- bandalagið hafa markað sam- starfsramma vorn við Vestur- Evrópu gegnum bandalagið. Vér verðum að taka afleiðingum slíks ramma — og ekki fallast hendur. En þeir menn tala af léttúð, sem haldaþví fram, að staða Noregs sé nákvæmlega sú sama og áður og það hafi lítil sem engin áhrif á oss, sem kann að gerast. Þessir menn stinga höfðinu í sandinn. Öll stjórnmálaþróun í heiminum hefur áhrif á oss, og eigin ákvarð- anir vorar um samband lands vors og tengsl við alþjóðlegar og svæðisbundnar stofnanir og valdamiðstöðvar hafa auðvitað mikla þýðingu. Sú staðreynd, að Noregur ákvað að breyta ekki sambandi sínu við Efnahags- bandalagið, þýðir auðvitað ekki, að ákvörðunin hafi ekkert í för með sér. Breytt stefna og markmið Hér á eftir ætla ég að reyna að draga nokkrar ályktanir um norska utanríkis- og öryggis- stefnu, einkum í sambandi við NATO. t fyrsta.Iagi verðum vér að gera oss ljóst, að ekki er lengur grund- völlur fyrir sams konar Atlants- hafspólitík og þeirri, sem rekin var á sjötta og sjöunda áratugin- um, með þáverandi pólitisk stefnumið fyrir augum. Vér verð- um að miða öryggisstefnu vora við þá möguleika, sem nú eru fyrir hendi, — vér verðum að viðurkenna núverandi tilvist þeirra, laga oss að þeim og reyna að færa þá oss í nyt í mótun öryggisstefnunnar. í öðru lagi gæti svo farið, að vegna hagsmuna bæði Bandaríkj-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.