Morgunblaðið - 24.02.1974, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. FEBRUAR 1974
7
Ný menningarbylting í Kína
Er verið að blása lífi í byltingaranda
alþýðu eða berjast gegn Chou En-lai?
FREGNIR, sem borizt hafa að
undanförnu frá AlþýðulýSveldinu
Kína, benda til þess ótvlrætt að
hafin sé ný menningarbylting þar I
landi — eða nýr þáttur þeirrar
menningarbyltingar. sem þar fór
fram á siðasta áratug með þeim
afleiðingum, að hrikti I stoðum
hins kínverska samfélags og
efnahagslif landsins varð fyrir
margháttuðum áföHum.
Rauðu varðliðarnir i menningarbyltingunni fyrri
W/Wi
4jjf Wh
4 ^
jf ^
i
m i \
Vaxandi gagnrýni hefur heyrzt
frá Kína á vestræna list og menn-
ingu svo og gamlar menningar-
hefðir. Mótmælagöngur hafa verið
haldnar viða um landið og fjölda-
fundir með þátttöku tugþúsunda
manna. Viðtækar umræður eru
sagðar hafa farið fram um skóla-
kerfið og hugmyndafræðilegar
árásir verið gerðar á tvo kunna
Kinverja. heimspekinginn Kon-
fúsius og Lin Piao fyrrverandi
landvarnaráðherra, en þá skilja
2.400 ár — aðeins. Fyrir
nokkrum dögum birti svo Dagblað
alþýðunnar i Peking kröfu um, að
kínversk alþýða tæki virkan þátt
i þeirri baráttu. sem nú væri háð,
og kvartað var yfir því, að sam-
band milli alþýðu manna og
forystumanna i flokkunum og
framleiðslugreinum hefði breytzt
til hins verra frá þvi menningar-
byltingin frá síðasta áratug
hjaðnaði.
Ekki eru allir á eitt sáttir um
tilgang þessarar nýju byltingar-
hrinu, en Ijóst er, að miðstöð
hennar og þungamiðja er borgin
Shanghai, eins og menningarbylt-
ingarinnar fyrri. Sumir telja, að
byltingunni sé beint gegn Chou
En-lai forsætisráðherra og þeirri
stefnu hans að vingast við Vestur-
veldin og þá sérstaklega Banda-
ríkin; aðrir, að tilgangurinn sé
einungis að blása lifi í byltingar
anda almennings og sýna jafn-
framt fram á, að stefnubreyting-
unni i utanrikismálum muni og
þurfi alls engin breyting að fylgja i
innanríkismálum. Mao Tse-tung
formaður kinverska kommúnista-
flokksins er sagður persónulega
ábyrgur fyrir þessari nýju róttæku
öldu, en alkunna er, að kona hans,
Chiang Ching, er mjög róttækur
byltingarsinni og hefur um langt
skeið verið Chou En-lai andstæð.
Ferðamenn frá Shanghai flytja
þær fréttir, að borgarlifið þar beri í
sivaxandi mæli merki menningar-
byltingar. Fréttaveggspjöldunum,
sem fræg urðu í fyrri byltingunni,
fjölgi i sífellu, fjöldagöngur og
fundir verði æ tiðari bæði i
skólum, á vinnustöðum og opin-
berum vettvangi. Haft er fyrir
satt, að forstjóri einnar stærstu
skipasmiðastöðvar Shanghai-
borgar hafi verið rekinn úr starfi
eftir fjöldafund verkafólksins, fyrir
dálæti á fínum fötum og að vinna
ekki nægilega að hagsmunum
starfsfólksins. Sömuleiðis hefur
kennurum og skólastjórum verið
gefinn að sök skortur á stéttar-
vitund og fastheldni við gamlar og
borgaralegar hefðir. Eru þeir m.a.
sakaðir um að láta einkunnir einar
og frammistöðu i námi ráða þvi,
hverjir komast áfram á mennta-
brautinni. Par með hafi „hreinir"
alþýðuunglingar uppfullir af bylt
ingar- og baráttuanda fallið á
prófum, sem ungmenni úr
gömlum borgarastéttum hafi náð
vegna þess að þeir stunduðu
námið af meira kappi en sinntu
félagsstarfi og byltingarstarfsemi
þeim mun minna.
Innan skólanna virðast og sér-
staklega sterkar raddir þeirra sem
fordæma sigildar bókmenntir og
tónlist, sem virðist siðustu ár hafa
átt vaxandi vinsældum að fagna.
Má t.d. geta þess, að á liðnu ári
hafa þrjár stórar vestrænar
sinfóníuhljómsveitir farið til Kina
og leikið þar við feikna góðar
undirtektir. Hafa forystumenn í
menningarmálum á Vesturlöndum
gert sér vonir um, að unnt væri að
auka samskipti við Kinverja á
þessu sviði, en sýnt er, að þau
muni mæta verulegri andstöðu
hinna róttæku.
Svipuð klögumál og aðofan grein
ná til starfsemi kommúnista-
flokksins og í þeim efnum eru
árásirnar á Konfúsius tengdar
nafni Chou En-lais. Konfósius er
fordæmdur fyrir að hafa jafnan
boðað trúnað við hefðir og viður-
kenndar siðaskoðanir og staðið
gegn hverskonar breytingum, og
nú er sett fram gagnrýni á flokks-
forystuna fyrir svipaðar sakir, m.a.
fyrir að hafa sett aftur til starfa i
flokksdeildunum ýmsa menn, sem
reknir vor í menningarbyltingunni.
Er á það bent, að F nýkjörinni
miðstjórn kinverska kommúnista-
flokksins séu 52 menn, sem rauðu
varðliðarnir höfðu fengið rekna
þaðan. og þeirra á meðal sé Teng
Hsiao-ping, fyrrum aðalritari, sem
mjög var lítilsvirtur á þessum
árum. Þá hafa byltingarmenn nú
gagnrýnt vaxandi samskipti við
erlend ríki — en þótt þeir vari
eindregið við þvi, að Kinverjar
verði of háðir viðskiptum við
Vesturlönd er megináherzlan lögð
á að gagnrýna Lin Piao fyrrverandi
landvarnaráðherra fyrir að hafa
leitað trausts og halds hjá
„sovézkum heimsvaldasinnum".
Dennis Bloodworth fréttamaður
brezka blaðsins Observer rekur
upphaf þessarar nýju menningar-
byltingar til Wang Hung-wens,
unga mannsins frá Shanghai, sem
komst i efstu röð framkvæmda-
stjórnar flokksins á siðasta flokks-
þingi og skrifað var um þá sem
hugsanlegan arftaka Maos for-
manns. Hung-wen kom einmitt
fram i sviðsljósið í menningar-
byltingunni i Shanghai um miðjan
siðasta áratug og sl. haust hvatti
hann „alla góðabyltingarmenn" til
að „beita sér gegn straumnum",
eins og hann komst að orði. I
blöðum birtust siðan greinar, þar
sem minnihluti flokksmanna var
hvattur til að beita sér gegn
minnihlutanum sem héldi öllum
valdataumum flokksins i Peking
— og var þar látið að þvi liggja,
að forystumenn þar væru á villi-
götum.
í grein frá NTB-fréttastofunni
um þetta mál segir, að valdabar-
áttan hafi fram til þessa verið
innan skynsamlegra marka og
borið merki hófsemi og aga, en nú
bendi fréttir frá Shanghai,
Suchow og Wuhan til þess, að
stjórnleysi setji á hana æ meiri
svip. Með timanum hafa þeir orðið
háværari, sem halda þvi fram, að
forystan i Peking hneigist til
borgaralegra hátta og hugmynda
og innan hennar þurfi nauðsyn-
lega að gera róttæka byltingu.
Þeir hafa aflað fylgis við þessar
skoðanir innan hinna ýmsu fram-
leiðslugreina. einkum iðnaðarins,
og i skólum og haldi svo áfram má
búast við auknum átökum.
Bloodworth segir hins vegar, að
eingöngu tvær af tuttugu og niu
héraðsstjórnum kommúnista-
flokksins kinverska hafi tekið
undir málflutning hinna róttæku,
þegar deilurnar voru lagðar fyrir
þær; hinar hafi viljað viðhalda-
stefnu meirihlutans og aga flokks-
forystunnar, enda þótt allir virðist
fúsir að taka undir það vigorð
Maos formanns, að án byltingar
sé uppbygging útilokuð. Sama
máli gegnir um herinn, að sögn
fréttamannsins, hann er á lang-
mestu leyti fylgjandi forystu
flokksins og þvi dregur Blood-
worth þá ályktun, að enda þótt
þessi nýja menningarbylting kunni
að hafa i för með sér átök í fram-
haldsskólum og e.t.v. brottvikn-
ingu einhverra flokksstarfsmanna
úr starfi, muni hún ekki ná að
skekja grundvöll og skipuleg hins
kinverska samfélags á sama máta
og byltingin á siðasta áratug.
— mbj.
TILSÖLU Ford Mustang Monteago árg. '69 sjálfskiptur, vökvastýri og power bremsum Mjög vel útlítandi bUI Uppl. í síma 86402 MOHAIR-GARN Saba-garnið er svissnesk gæða- vara og er einnig ódýrt. Verzl. Hof Þingholtsstræti 1.
LÖBERAR OG DÚLLUR Gobelin borðdúkar sem selt var i Litlaskógi er selt nú að Nökkvavogi 54, sími 34391 Sendum gegn póstkröfu. MÆÐGIN óska eftir að taka á leigu 2—3 herb íbúð nú þegar eða í vor Algjör reglusemi Tilboð leggist inn á afgreiðslu Mbl fyrir febrúar- lok merkt: „1974—3235".
CHEVROLET VEGA G.T árg. 1972 (sportmodel) rauð- ur 52 5 þús., nýinnfluttur. Uppl. i sima 1 3285 —34376 TILSÖLU Volkswagen 1200 árg '72, ek- inn 28 þús km.. sem nýr. Uppl. i sima 37157.
2JA HERBERGJAÍBÚÐ óskast fyrir fullorðin hjón Uppl. i stma 83672 í dag TILSÖLU 3ja—4ra herb. íbúð í Stóragerði. Uppl. í síma 81719.
ÖNNUMST VIÐGERÐIR og sprautun á barnavögnum, kerr- um, reiðhjólum og hjálparmótor- hjólum Upplýsingar eftir kl 7eh Opið öll kvöld og um helgar. Leiknir s/f, simi 35512. IRorgim&lntofc mRRCFRLDRR mÖCULEIKR VDRR
1 oo lesta stálsklp
til solu og afhendingar strax, nýstandsett. Neta- og
trollútbúnaður fylgir
Aðalskipasalan, Austurstræti 14,
sími 26560, heima 301 56/82219.
mikill
ACherr
legt útlit. F
jður. Stórt
jrseiginleikar framúr
Ocm.hseðfrávegi -
Auglýsing
um umlerð I Kópavogl
Athygli skal hér með vakin á því, að umferðarreglum í
Kópavogi hefur nýlega verið breytt á þá leið, að Borgar-
holtsbraut og brú yfir vegargjána á Hafnarfjarðarvegi
hafa nú aðalbrautarrétt, auk Digranesvegar, sem áður
hafði hann.
Er athygli vegfarenda sérstaklega vakin á því, að jafn-
framt eru niður fallin öll aðalbrautarréttindi, sem hinn
gamli Hafnarfjarðarvegur (vestan nýja vegarins) naut, en
hann gegnir nú hlutverki tengibrautar.
Bæjarfógetinn í Kópavogi.
BEZT að auglýsa
í Morgunblaðinu