Morgunblaðið - 24.02.1974, Page 12
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. FEBRUAR 1974
Rögnvaldur Rógnvaldsson. Aðal-
steinn var að mála gluggana á
húsinu þar sem Rögnvaldur er
húsvörður og i gegn um glugga-
rúðuna studeraði hann andlit
Rögnvaldar með þessum árangri.
„Hvar málar þú?"
„Ég mála í geymslu í kjallaran-
um hjá mér og það er fínt. Þó
maður komi líka seint upp að
sofa. þá er alltaf vitað hvar
maður er," bætti Aðalsteinn við
og hló um leið.
„Hefur þú sýnt áður?"
„Já tvisvar, fyrst sýndi ég
skömmu eftir að ég lauk námi og
síðan aftur fyrir einu og hálfu ári
með 25 Akureyringum. Þetta er
afslöppun hjá mér þó þetta sé
eins og sýki, sem heltekur mann.
Það hefur verið mjög hvetjandi
að vinna að þessum sýningum
með félögum minum, en það sem
er mest hvetjandi fyrir mig í
þessu er það hvað krakkarnir í
skólanum geta látið sér detta
margt snjallt i hug og gera stór-
kostlega hluti. Þau gera miklu
betri myndir en ég, það er sann-
leikurinn."
. „Ég byrjaði að mála á mennta-
skólaárunum í MA," sagði Óli G.
Jóhannsson, 28 ára Akureyr-
ingur, I hópi fjórmenninganna
sem sýna nú i Norræna húsinu.
„Ég vann oft að ýmsum skreyt-
ingum," hélt hann áfram, „og
öðru með skemmtilegum hóp
sem ég var samskipa í skólanum.
Við unnum mikið saman og smit-
uðum hvert annað. Siðan hef ég
fengist við þetta. en siðan við
stofnuðum Myndlistarfélag Akur-
eyrar 1972 hefur áráttan ágerzt
til muna. Stofnun félagsins virk-
aði á mann eins og vitamin-
sprauta og mest hef ég málað
síðan."
„Hvert sækir þú þinar fyrir-
myndir?"
„Þær sæki ég mest í endur-
minningar minar, frá þeim dög-
um, sem ég var i sveit og i sam-
bandi við siglingar á Pollinum og
út fjörðinn. Eins frá þeim tima
þegar þeir voru að drepa smásíld-
ina á Pollinum. Ég sæki líka oft
fyrirmyndir i fugla. Ég hef bæði
gaman af þvi að skjóta fugla og
mála fugla. Þá hafði það einnig
áhrif á mig að fara i ferðalag
suður til Spánar. Það hitaði svo
lítið í mér."
„Hvernig vinnuaðstöðu hefur
þú?"
„Ég hef enga vinnuaðstöðu
„Sæki mest í endurminningar mínar”
núna. Ég er að byggja hús og þar
byggi ég 55 fm bilskúr, sem ég
mun nota fyrir vinnustofu. í
blokkinni, sem ég bjó í, málaði ég
á nóttunni þegar konan og börnin
voru komin i ró. Þá lagði ég undir
mig stofuna."
Óli er póstmaður á Akureyri og
kennari við Vélskóla fslands á
Akureyri, en hann er jafnframt
formaður hins nýstofnaða Mynd-
listarfélags Akureyrar.
„Að hverju er helzt starfað i
félagi ykkar?"
„Við beitum okkur fyrir eflingu
myndlistar á Akureyri með
kennslu og sýningum. Við erum
búnir að halda 8 sýningar siðan
félagið var stofnað."
„Hvernig er aðstaða til sýninga
á Akureyri?"
„Það er skemmtilegur lítill
salur i Landsbankanum þar og
það var stórmerkt framtak hjá
bankanum að koma sUkri að-
stöðu upp. í þeim sal höfum við
fjórar fastar sýningar á ári og
einnig sýnum við i Myndasmiðj-
unni. Þar höfum við okkar bæki-
stöðvar og þar er hægt að breyta
tveimur kennslustofum i einn sal.
Við innréttuðum þetta i gömlu
húsi með aðstoð frá Akureyrar-
bæ, en Akureyrarbær hefur veitt
65o þús. kr. til skólans á siðustu
fjárhagsáætlun."
„Þinar myndir bera ævintýri
með sér."
„Já, þær eru mest ævintýri,
enda þarf hver mynd að vera
ævintýri eins og Veturliði sagði.
Allar minar myndir eru gerðar
með acryl litum, plastmassa, og
þær eru mest unnar með spaða.
Þó er olíukritarivaf í myndunum
einnig, en ég teikna mikið með
olíukrít."
„Hvernig hafa Akureyringar
tekið tilþrifum Myndlistarfélags-
ins?"
., Þeir hafa sýnt okkur afskap-
lega mikinn skilning og sjálfur
þarf ég alls ekki að kvarta. Árið
1973 var ég með einkasýningu
og þá seldi ég mest af minum
myndum,"
Nú er listmálunin hins vegar
algjört skemmtiatriði fyrir mér.
Ég vinn i málningu fyrir hádegi og
kenni eftir hádfegið, en oft geri ég
skissur á vinnustað ef eitthvað
leitarámig."
Krummi
„Hvaða viðfangsefni hrífa þig
mest?"
„Ég velti mikið fyrir mér birt-
unni og ég staðset myndir minar
ekki endilega eftir staðnum, sem
ég er að fást við. Ef mér finnst
birtan kalla á eitthvað annað, þá
fær hún að ráða. Birtan er það
sem mest leitar á og hefur alltaf
gert. Enda kemur það oft fyrir að
fólk þekkir ekki endilega mynd-
irnar mínar frá ákveðnum
stöðum."
Aðalsteinn við eitt verka sinna,
Sólskin i desember.
„Hvenær byrjaðir þú að mála
aftur?"
„Ég byrjaði aftur fyrir rúmum
tveimur árum, en það hafði fyrst
og fremst legið niðri vegna dag-
legs amsturs."
„Birtan í lífi nágrennisins”
Tveir tala saman. Óli og persóna í
einni af myndum hans.
Frá höfninni.
„Ég sæki mínar fyrirmyndir út
a götuna og úr lifinu í nágrenni
við mig," sagði Aðalsteinn Vest-
mann, listmálari frá Akureyri,
þegar við röbbuðum við hann á
sýningunni i Norræna húsinu.
Aðalsteinn er fæddur 1932.
Hann stundaði nám í Myndlistar-
og handíðaskólanum um 1950 og
tók kennaradeildina i tvö ár.
Hann vinnur sem teiknikennari
fyrir Norðan við barnaskóla
Akureyrar.
„Ég hætti að mála skjótt eftir
að námi lauk," sagði Aðalsteinn,
„og fór i málaraiðnina, en ég er
einnig starfandi málarameistari
fyrir norðan. Ég hef eiginlega
ekki málað myndir í mörg ár, en
þó málaði ég leiktjöld um árabil
fyrir Leikfélag Akureyrar.
f dagsins önn.
, Síldarævintýri.
list í borgarreisu
Textl: Árnl Johnsen Myndlr: Olalur K. Magnússon
AKureyrar-